Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 66
66 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Margrét var móð- ir minnar ástkæru æskuvinkonu, Svövu heitinnar. Henni á ég að þakka ótaldar gleðistundir og síðast þegar ég sá hana, þá orð- in veik og minninu farið að förla, skein samt enn í gegn sami gamli persónuleikinn sem mér þótti svo vænt um. Margrét var dökk yfirlitum og fríð sýnum. Hún var ríkum mann- kostum búin, hafði áhuga á fólki í góðum skilningi þess orðs, var hreinskilin, skrumlaus og gestris- in, hafði góða sýn inn í málefni líð- andi stundar og taldi ekkert eftir sér. En hún var fyrst og fremst góð manneskja. Samúð, hjartahlýja og djúpur skilningur á innri líðan annarra var hennar aðall. Hún bar tilfinningar sínar aldrei á torg en samt var hún ekki lokuð. Heimili Guðmundar og Mar- grétar var mikið menningarheim- ili. Tónlist var í hávegum höfð og öll börnin spiluðu á hljóðfæri. Þau hjónin höfðu einlægan áhuga á náttúru Íslands. Þau fóru mikið um landið og um allar versl- unarmannahelgar á meðan ég dvaldi í sveit komu þau og náðu í mig. Hjá Guðmundi og Margréti var oft mikið hlegið, enda kímnigáfan Margrét Rakel Tómasdóttir ✝ Margrét RakelTómasdóttir fæddist 20. ágúst 1927. Hún lést 16. maí 2017. Margrét var jarðsungin 26. maí 2017. rík. Þau voru fyndin, gátu verið hæðin en þó aldrei meiðandi. Ég laðaðist að þessu heimili. Ég var aðeins 7 ára þegar ég fór að venja kom- ur mínar þangað; þar ríkti líf og fjör, enda börnin fimm. En það ríkti líka vel- vild og ég fann fyrir öryggi í loftinu. Það voru ófár máltíðir sem ég þáði og helgar sem ég eyddi hjá þeim. Fljótlega bundumst við Margrét sterkum böndum. Hún hjálpaði mér með skólahandavinnuna sem ég var alltaf of sein með og við Svava vorum ótregar að segja henni frá lífinu í skólanum. Við vorum ekkert sérlega ánægðar með útlit okkar – þó var Svava ein- staklega falleg – og Margrét sagði okkur að málið væri alls ekki að vera smáfríður, að fegurðin lægi annars staðar. Einhverra hluta vegna festist þetta í minni mínu. En það syrti í lofti og Margrét fékk meira á því að kenna en al- mennt gerist. Árið 1987 missti hún eiginmann sinn, Guðmund, þá að- eins 59 ára gamlan og sex mán- uðum síðar Svövu dóttur sína sem var aðeins 32 ára. Aldrei eru strandhögg dauðans jafn óbæri- leg, sár og óskiljanleg og þegar hann ber að með skjótum og svip- legum hætti. Tvö þung högg á einu ári. Hver hefði ekki brotnað? En Margrét sem hafði alltaf fyrst hugsað um aðra áður en hún hugs- aði um sjálfa sig lét ekki bugast; hún áskildi sér ekki réttinn til þess. Því allir hinir höfðu líka misst og þeim þurfti að huga að og ekki síst drengjunum tveim sem misst höfðu móður sína í blóma lífsins. Þannig var Margrét. Eftir að ég varð fullorðin hélt ég áfram að vera í sambandi við Margréti. Hún bauð mér oft í mat heim til sín og nokkrum sinnum kom hún til Parísar þar sem við eyddum löngum stundum saman. Ofarlega er mér í huga þegar hún kom til Parísar ásamt Fjólu systur sinni stuttu eftir andlát Svövu. Sú ferð gleymist mér seint. Að lokum vil ég þakka Margréti samfylgdina og fyrir alla þá vel- vild sem hún sýndi mér alla tíð. Nú er raust hennar þögnuð, hún er flogin á vit annarra heima, minningin ein lifir skír og fögur. Ég votta börnum Margrétar og Fjólu systur hennar mína dýpstu samúð. Ragnheiður Ásgeirsdóttir. Það var alveg sama hvernig á stóð. Hvort sem það var happ- drætti Þjóðviljans eða félagsgjald- ið í Alþýðubandalaginu. Eða að mæta á fund svo það yrði nú örugglega einhver. Alltaf var þetta fólk, þessir góðu félagar, á staðnum. Uppeldið úr Sósíal- istaflokknum, Æskulýðsfylking- unni og seinna Alþýðubandalag- inu. Það brást aldrei. Svona var Magga. Margrét Tómasdóttir og Guð- mundur Magnússon voru hjón. Hann var svona gegnheill banda- maður líka. Kynntust þau ekki á einhverju æskulýðsmótinu? Sósí- alistar. Fyrst málstaðurinn, svo ég. Guðmundur var forseti Æsku- lýðsfylkingarinnar sambands ungra sósíalista; þannig sá ég hann þegar ég var unglingur. Svo var hann formaður Alþýðubanda- Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá, að lokkar oss himins sólarbrá, og húmið hlýtur að dvína, er hrynjandi geislar skína. Vor sál er svo rík af trausti og trú, að trauðla mun bregðast huggun sú, þó ævin sem elding þrjóti, guðs eilífð blasir oss móti. Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást, að hugir í gegnum dauðann sjást. – Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur – síðar. (Jóhannes úr Kötlum) Komið er að kveðjustund. Við Kolfinna vorum ungar þegar leið- ir okkar lágu saman er við gift- umst þeim frændum og fóst- bræðrum Þorsteini og Kristjáni. Aldrei hefur slitnað sá strengur sem þá var ofinn milli fjölskyldna okkar og skipti ekki máli hvort Kolfinna og Þorsteinn byggju ná- lægt okkur eða fjarri. Það er okk- ur mikil gleði hversu börn okkar eru mikil frændsystkini og vinir enn í dag. Aðeins 12 dagar voru milli þess að frumburðir okkar fæddust og næst var rúmur mán- uður milli fæðinga, svo að barna- lánið var okkur sameiginlegt. Kolfinna var einstök kona, lista- maður sem kom með nýja strauma inn í samfélagið hvar sem hún bjó. Þegar hún var á Reyðarfirði sóttu konur víða af Austurlandi námskeið í postu- Kolfinna Ketilsdóttir ✝ Kolfinna Ket-ilsdóttir fædd- ist 10. ágúst 1943. Hún lést 13. maí 2017. Útför Kolfinnu fór fram 26. maí 2017. línsmálun hjá henni og minnast þess með gleði og þakk- læti. Ég fór bara á eitt námskeið hjá henni og var alveg viss um að ég hefði enga hæfileika, en það var hjá mér eins og mörgum öðrum, Kolfinna þurfti bara aðeins að taka við penslinum til að flat- ar og líflausar myndir lifnuðu við. Ég og Kristján eigum margar góðar minningar um ferðalög með þeim hjónum, útilegur í Hallormsstaðaskógi með barna- skarann, fjölskylduferð til Spán- ar og ljúfar minningar seinni árin um ferðalög um Austurríki, Þýskaland, Danmörku og að sjálfsögðu Svíþjóð. Í dag, 26. maí, er ár síðan við komum heim frá Gautaborg úr ferðalagi með Kol- finnu og Þorsteini og heimsókn til þeirra í Laholm þar sem við nut- um gestrisni þeirra eins og oft áð- ur. Elsku Þorsteinn, Katla, Steini, Ingibjörg og fjölskyldur, megi góðar minningar um yndis- lega konu milda sorgina. Innileg- ar samúðarkveðjur frá okkur Kristjáni. Álfheiður Hjaltadóttir (Heiða). Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta fara að finna oft (Úr Hávamálum) Þannig minntust þau Kolfinna og Þorsteinn Viðars míns þegar hann lést. Eins vil ég minnast minnar kæru vinkonu, Kolfinnu, nú þegar hún er farin héðan, eftir ótrúlega stutt veikindi sem hún tók af miklu æðruleysi. Vinátta okkar hófst fyrir rúm- um 60 árum þegar við byrjuðum í Réttarholtsskóla og eins voru Viðar og Þorsteinn æskufélagar svo það er margs að minnast. Í gegnum árin hefur verið mikill samgangur á milli heimila okkar, þegar þau bjuggu á landsbyggð- inni þá voru heimsóknir tíðar á báða bóga, eftir að þau fluttu aft- ur til Reykjavíkur, sem var okkur Viðari til mikillar ánægju, þá tóku við skemmtilegir tímar, leik- húsferðir, óperusýningar, bæði innan og utanlands ásamt ferða- lögum hér heima og svo líka til Svíþjóðar, já þangað fórum við með þeim, þegar þau komu í fyrsta skipti til Lindome, sem er ógleymanleg ferð. Eftir að þau fluttu til Laholm má segja að ég hafi verið eins og grár köttur hjá þeim öll árin. Við Anna Kristjáns komum til þeirra einu sinni til tvisvar á ári og ég kom þess á milli annað hvort vor eða haust. Við ferðuðumst um Svíþjóð og fórum einnig til Austurríkis í heimsókn til Kristjáns og Heiðu. Þetta voru yndislegir tímar og alltaf fann ég mig jafn velkomna hjá þeim hjónum. Einu sinni sagðist ég ætla að stoppa frekar stutt. „Ha, áttu ekki sumarfrí eins og aðrir?“ sagði Kolla mín. Kolfinna var mikill listamaður, allt lék í höndunum á henni, bók- staflega allt. Hún kenndi postu- línsmálningu til fjölda ára og þeg- ar hún flutti út til Svíþjóðar þá lagði hún postulínsmálun á hill- una og sótti námskeið í vatnslit- un, sem hún hafði reyndar líka gert hér heima. Þetta veitti henni mikla ánægju og bera myndir hennar því fagurt vitni. Hún hef- ur haldið sýningar bæði hér heima og úti í Svíþjóð. Eins var með allan saumaskap, ef hana langað í fallegt pils eða eitthvað annað þá saumaði hún það bara. Vinátta okkar hefur vaxið og dýpkað með árunum og minning- arnar eru margar, sem nú er gott að ylja sér við. Fyrir það þakka ég. Á sama tíma og fyrstu vorblómin fagna vori kvaddi mamma þessa jarð- vist og valdi einnig dag sem var vel við hæfi – sjálfan mæðradag- inn. Þó svo að vitað væri að mamma myndi ekki ná sér af veikindunum og beðið hefði ver- ið í nokkra daga var fregnin þung og sláandi. Lamandi þögn- in eftir að símtalinu við Sollu systur lauk þennan morgun, hafði aðeins eitt að segja: – Það er ekki hægt að búa sig undir móðurmissi. Í þeim eftirbylgjum sem dynja á manni fyrstu dagana eft- ir stóra höggið hendist hugurinn til og frá í rúmi og tíma. Tóma- rúmið sem verður til er stórt og sorgin skapar ómælda þörf til að fylla það. Minningarnar streyma og hugurinn reikar um svið eigin tilveru og safnar gersemum til að fylla upp í tómið. Í þessum hugrenningum er ryki tímans blásið af alls kyns myndum og minningabrotum og í stað gam- allar konu fer ég að sjá mömmu skýrar fyrir mér frá þeim tíma þegar ég var barn. Hún stendur ljóslifandi fyrir mér þessi kraft- mikla og atorkusama kona sem vílaði ekkert fyrir sér, hélt utan um sjö manna fjölskyldu í stóru húsi og lét aldrei verk úr hendi falla. Þó svo að hún væri ekki mikið fyrir pjátur og prjál var heimilið alltaf í toppstandi, agi og reglufesta, alltaf eldað á mat- málstímum þó svo að unnið væri fullan vinnudag, laugardagar yf- irleitt tiltektardagar fyrri part- inn, oft bakaðar kleinur en meiri rólegheit það sem eftir lifði helg- ar. Á kvöldin hafði hún alltaf eitthvað fyrir stafni, við bakstur, að sauma föt á okkur systkinin, prjóna, hekla og mála, svo eitt- hvað sé nefnt.Tíminn alltaf nýtt- ur til einhvers uppbyggilegs. Mamma var tilfinningarík, um það vitna ljóðin sem hún lét eftir sig, en hún átti ekki auðvelt með að sýna tilfinningar sínar eða tjá út á við. Þess í stað sýndi hún þær í verki á margan hátt, með þeirri alúð og natni sem hún lagði í uppeldi barna sinna, með öllu sem því tilheyrir og gagn- vart náunganum í hjálpsemi á ótal sviðum. Blómin voru einnig stór hluti af tilveru hennar, þar sem hún ræktaði þau í stórum stíl, bæði úti og inni, og var eins og hún væri gædd einhverjum töframætti á því sviði, því allt sem hún snerti í þeirri flóru óx og dafnaði svo um munaði. Mamma hafði mjög næmt innsæi fyrir hæfileikum og hvatti mig áfram á þeim sviðum sem ég var sterkur í. Hún á stóran þátt í því að ég fetaði tón- listarbrautina og hve góðum tök- um ég náði á móðurmálinu. Ótaldar eru fjölmargar dyggðir frá henni og pabba komnar sem ég hef leitast við að tileinka mér í lífinu og innræta mínum börn- um. Það er komið kvöld þegar þessar lokalínur eru slegnar inn. Vorregnið bylur á þakinu og blómin hafa lokað krónum sínum fyrir nætursvefninn. En eins og mér er innanbrjósts finnst mér þau lúta höfði í sorg til heiðurs móður minni og það geri ég einnig, fullur þakklætis fyrir allt það veganesti sem mamma, blómakonan Solla í Sunnuhvoli, gaf mér fyrir göngu mína á lífs- ins vegi. Guð blessi minningu hennar að eilífu. Solveig G. Sigurjónsdóttir ✝ Solveig G. Sig-urjónsdóttir fæddist 2. sept- ember 1932. Hún lést 14. maí 2017. Útför hennar fór fram 27. maí 2017. Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð, –- í brekkum fjalla hvíla hljótt, þau hafa boðið góða nótt. (Magnús Gíslason) Sólmundur. Í dag kveðjum við mömmu mína sem nú er farin í ferðalagið yfir í Sólskinslandið og þegar kemur að kveðjustund sækja margar minningar á hugann. Mamma var mikill dugnaðar- forkur og kom miklu í verk, sí- starfandi frá morgni til kvölds. Var með græna fingur og allt dafnaði í höndunum á henni og hún var mjög fróð um íslenskar og erlendar plöntur. Unni nátt- úrunni og hafði gaman af útivist. Mikil hannyrðakona og mjög listræn. Hún málaði á koddaver og í handklæði og gaf við ýmis tilefni. Þegar við fórum á sund- námskeið voru handklæðin okk- ar fallega merkt nafninu okkar. Þegar gamli vefstóllinn var sett- ur upp í Sunnuhvoli óf hún mott- ur úr niðurklipptum fötum heim- ilisfólks. Þegar hún fékk sér nýrri vefstóla urðu verkin fín- gerðari, með fallegu mynstri. Ef mig langaði í nýja flík eða peysu var hún saumuð, prjónuð eða hekluð. Þegar ég baksaði við hannyrðir hafði hún ekki þol- inmæði og þá var viðkvæðið oft: „Hana, ég skal gera þetta.“ Mamma söng í kirkjukórnum um árabil og í messum hlustaði ég alltaf eftir röddinni hennar. Hún söng líka í eldhúsinu, með sunnudagsmessunni og uppá- haldssöngkonunum sínum. Mamma var vel máli farin og vildi að við töluðum rétt mál. Hún var lestrarhestur og las alls kyns bækur, á íslensku og Norð- urlandamálunum. Alltaf var lesið fyrir okkur á kvöldin og hún var sá allra besti lesari sem ég hef kynnst. Hún skrifaði líka ým- islegt sem hún hélt fyrir sig og hélt dagbók í marga áratugi. Í Fögruhlíð í Skriðdal var sælureitur mömmu og pabba. Þar dvöldu þau löngum stundum og mamma var mesta aflaklóin. Oft bretti hún buxurnar upp að lærum, óð út í Skriðuvatnið á skónum og stóð lengi og veiddi. Þegar vinkonur komu í heim- sókn var ég alltaf send upp eða út með orðunum: „Litlar könnur hafa stór eyru.“ Ég hafði það að leiðarljósi með mín börn að þau heyrðu ekki hvað sem er. Mamma bar tilfinningarnar ekki á torg og það tók sinn toll. Iðjusemin frá morgni til kvölds var hennar leið til að þurfa ekki að horfast í augu við erfiða reynslu og tilfinningar. Hún fékk viðvörunarmerki frá líkam- anum um að hægja á en virti þau ekki og veiktist alvarlega andlega þegar kerfið gaf sig. Hún varð aldrei söm og það var erfitt fyrir okkur að takast á við það. Pabbi var hennar klettur en þegar hann lést héldum við að hún myndi brotna. Hún bognaði en rétti úr kútnum og hélt áfram. Hún naut þess að vera með fjölskyldunni og fylgjast með börnunum mínum þegar þau fæddust og prjóna á þau það sem vantaði hverju sinni. Við systkinin buðum mömmu til Danmerkur þegar hún varð sjötug og áttum saman dýrðar- daga þar. Saman fórum við tvær til Noregs fyrir nokkrum árum. Það var góð ferð þó þrekið væri farið að minnka. Mamma bjó á Uppsölum á Fáskrúðsfirði í rúm fjögur ár. Hún naut einstaklega góðrar umönnunar, hlýju og virðingar fram á hinstu stund. Heilabil- unin bankaði upp á og síðasta árið átti hún erfitt með að tjá sig en hélt alltaf áfram á æðru- leysinu fram á síðustu stund. Ég kveð í dag með þakklæti í hjarta fyrir allt sem mamma kenndi mér og gaf mér alla tíð. Solveig Friðriksdóttir. Nú er hún amma komin yfir í sumarlandið. Elsku fallega amma mín. Þó ég hafi ekki náð að heim- sækja hana eins oft og ég hefði viljað síðustu árin, þá var hugur minn alltaf hjá henni. Þar sem fjarlægðin á milli okkar var allt- af mikil vorum við duglegar að skrifast á. Ég á mörg bréf frá ömmu þar sem hún sagði mér allt það helsta að austan og spurði fregna af mér. Með tím- anum minnkuðu þessi bréfa- skipti en við héldum þó áfram sambandi símleiðis. Ég sendi henni síðasta bréfið nokkrum dögum fyrir andlátið. Ég sendi það til Sollu frænku sem las það svo fyrir hana. Hluti af bréfinu finnst mér eiga vel við í dag sem minning- arorð. „Stundum er svo gott að vera bara með manni sjálfum og hugsa. Hugsa um það sem mað- ur vill og þráir, hugsa um lífið og tilganginn, hugsa um fólkið sitt og allt milli himins og jarð- ar. Maður kemst því ekki hjá því að hugsa örlítið til fortíðar og fara yfir góða tíma. Ég hugsaði mikið til þín. Þín og afa. Hversu heppin ég er að hafa átt ykkur að. Þó tíminn sem ég hafði með afa hafi ekki verið mjög langur þá var hann svo góður vinur minn í minningunni og er enn. Ég man svo vel hvað ég var mik- il afastelpa. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég fór með ykkur í ferðalag á húsbílnum. Ég var ekki nema 5 ára eða jafnvel yngri, en þetta man ég eins og það hafi gerst í gær. Ég man eftir því að sofa á milli ykk- ar, sofna við hroturnar í afa … það sem hann gat hrotið. Ég man eftir baunahlífinni sem var á bílstjórasætinu og besta minn- ingin er þegar afi dró fram Sæ- mund í sparifötunum og bauð mér eitt. Svo hélt ég áfram að koma í heimsókn til þín á Greni- melinn. Ég man vel eftir því að ég dundaði mér stundum inni í herbergi þar sem vefstóllinn var. Þar sat ég og litaði eða teiknaði á meðan ég hlustaði á geisla- diskana þína. Þar eignaðist ég minn uppáhalds geisladisk, hlustaði endalaust á hann og geri enn. Á honum voru lög sam- in við ljóð Tómasar Guðmunds- sonar. Egill Ólafsson og Guðrún Gunnars syngja lögin. Seinna gafstu mér svo þennan geisla- disk í jólagjöf og ég fer með hann eins og gull. Þar á ég mörg uppáhalds lög og finnst ekkert skemmtilegra en að setja disk- inn í tækið og syngja hástöfum með. Þegar ég var orðin eldri voru heimsóknirnar þar sem ég kom ein eflaust ekki eins marg- ar. En ég man samt alveg eftir þeim. Við eyddum oft tímanum saman yfir sjónvarpinu á kvöld- in, sátum og prjónuðum og spjölluðum. Það var alltaf svo notalegt að koma til þín í heim- sókn. Skoða steinasafnið þitt, gægjast í gróðurhúsið og laum- ast í eitt og eitt hindber á meðan ég lék mér í garðinum fyrir of- an. Ég mun alltaf vera svo þakk- lát fyrir allar þessar minningar. Ég á öll bréfin sem þú skrifaðir mér þegar við vorum sem dug- legastar að skrifast á. Það er svo dýrmætt að geta grafið svona hluti upp og lesið, hoppað aftur í tímann í smá stund og hlýjað sér við minningarnar.“ Elsku amma er nú komin á betri stað, sameinuð afa á ný og kveð ég hana að sinni. Ég óska henni góðrar ferðar og alls hins besta, þar til við hittumst aftur. Hildur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.