Morgunblaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 71
MINNINGAR 71 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Hér sitjum við tvær yngstu systurn- ar og erum að reyna að átta okkur á að hún yndislega Jóna systir okkar sé dáin. Þetta gerðist svo fljótt að það er erfitt að sætta sig við það. Við systkinin vorum 9, en nú eru 4 systur farnar. Jóna var þriðja yngst svo þetta er mjög sárt og ótímabært. Við systur höfum farið í nokkrar utanlandsferðir sem voru ógleym- anlegar og fara í minninganna sjóð. Við systur, mágkona og æskuvin- konur okkar höfum verið saman í saumaklúbbi í 45 ár, sem hefur gef- ið okkur mikla gleði og hamingju. Það var aðdáunarvert þegar Jóna ákvað að fara í sjúkraliðanám um fertugt og vann hún við það til 67 ára aldurs. Þá var komið að því að fara að njóta fleiri ferða með Ella sínum í hjólhýsinu. Þau Elli og Jóna eiga 3 yndislega stráka og 10 barnabörn, sem voru ljósið í lífi þeirra. Við kveðjum kæra systur með sorg í hjarta og djúpri virðingu og þakklæti fyrir samfylgdina sem var okkur mjög dýrmæt, hlý og gefandi. Elsku Elli, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn, megi algóður Guð umvefja ykkur kærleika og gefi ykkur styrk. Þínar systur, Dagfríður (Dæja) Hall- dóra (Dóra). Elsku hjartans föðursystir. Það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur og ég eigi aldrei eftir að knúsa þig aftur. Af öllum þeim árum sem ég hef búið erlendis þá hefur aldrei verið eins erfitt að búa erlendis og núna! Að geta ekki verið hjá sínum nánustu, faðmað þau og knúsað og syrgt saman. En það er líka á stundu sem þessari að maður sest niður og hugsar um það sem við eigum saman – minningarnar! Þær eru dýrmætar og sjaldan dýrmæt- ari en akkúrat núna! Þú ert og verður alltaf einstök í mínum huga. Þú og fóstri voruð eins klettar í hafinu í mínu lífi, þið voruð bak- landið sem veittuð mér allan þann stuðning sem ég þurfti á að halda þegar mikið af tíma foreldra minna fór í að sinna systkinum mínum í veikindum þeirra og þá sérstak- lega á meðan Viðar bróðir var á lífi. Alltaf var heimili ykkar opið fyrir mér og aldrei gerðuð þið upp á milli mín og strákanna ykkar – ég var einn af þeim! Þú varst einstök smekkmanneskja og bjóst þér og þínum ávallt til fallegt heimili. Öllu var smekklega komið fyrir en það var alltaf hægt að gera betur – þú miklaðir aldrei fyrir þér að rífa nið- ur veggi eða færa til, og alltaf tókst þér að tala fóstra til og fá hann í lið með þér. Þér þótti ekki leiðinlegt að ferðast hvort sem það var innan- lands eða utan og á ég margar góð- ar minningar sem tengjast ferða- lögum okkar saman. Þær ferðir sem eru hvað eftirminnilegastar eru þegar ég fór með þér og fóstra til Mallorca 1984 ásamt Dóru, Dæju, Árna og strákunum. Marm- aris í Tyrklandi 2007 til að fagna sextugsafmælinu þínu og nú síðast árið 2014 þegar Edward og ég buð- um þér og fóstra ásamt mömmu og pabba til Brugge og Ostende í Belgíu til að halda upp á sjötugs- afmælið hans pabba og gullbrúð- kaupsafmæli þitt og fóstra. Sú ferð fær sérstakan stað í hjarta mínu núna því þetta var síðasta ferð okk- Jóna Geirný Jónsdóttir ✝ Jóna GeirnýJónsdóttir fæddist 2. ágúst 1947. Hún lést 15. maí 2017. Útför Jónu fór fram 26. maí 2017. ar saman. En það ferðalag sem stendur upp úr er þegar ég fór með þér og fóstra, Bigga og Adda hringveginn 1982. Leið lá um Suð- urlandið þar sem fóstri stoppaði á öll- um helstu ferða- mannastöðum, okkur var dröslað út úr bílnum í myndatökur því það átti að festa ferðina, heldur betur, á filmu. Síðan lá leið um Austurland og Norðurland og allt- af stoppað og myndað á helstu stöðum. Þegar við vorum komin að Goðafossi voru farnar að renna á okkur tvær grímur – þetta var orð- in ansi löng filma hjá honum fóstra. Þegar betur var að gáð kom í ljós að það var engin filma í vélinni! Þetta var yndisleg ferð í alla staði og aldrei leiddist okkur að rifja upp þessa ferð og þá sérstaklega þetta með filmuna og fóstra. Að lokum langar mig til að minnast Teigakjörs-áranna en þar tók ég mín fyrstu spor í atvinnulíf- inu undir tryggri leiðsögn þinni og fóstra. Það voru ógleymanleg ár og margs að minnast en það veganesti sem ég fékk þaðan hefur reynst mér dýrmætt í lífinu seinna meir! Elsku hjartans föðursystir, það er erfitt að kveðja þig með skrifuðum orðum því það er svo margt sem mig langar að þakka fyrir og segja þér. Ég kveð þig með þessum orð- um: Takk fyrir allt! Elsku fóstri, Jói og Magga, Biggi og Ríkey, Addi og Adda og fjölskyldur. Ég bið góðan Guð að geyma ykkur og veita ykkur allan þann styrk sem þið þurfið til að takast á við þessa miklu sorg! Ég elska þig meira en allt. Þinn elskulegi bróðursonur, Tómas Bolli Hafþórsson. Ljúf, hlý og glaðleg er það fyrsta sem kemur í huga okkar þegar við minnumst Jónu vinkonu okkar og eiginkonu Ella Más frænda. Hugurinn reikar til liðins tíma þegar fjölskyldur okkar bjuggu á Eiði á Seltjarnarnesi í litlu og skemmtilegu samfélagi. Á þeim tíma voru Elli Már og Jóna að stíga sín fyrstu spor í einlægu og góðu hjónabandi. Þau hjón komu bæði úr stórum og sérlega samheldnum systkinahópi og voru þrjú systkin gift þremur systkinum. Jóna var alltaf ljúf, skemmtileg og brosmild kona. Það voru for- réttindi að hafa fengið að fylgja henni og fjölskyldunni á lífsleiðinni. Við kveðjum okkar kæru vin- konu með söknuði og þökk fyrir samveruna og biðjum góðan Guð að taka hana í sína arma, en yljum okkur við allar góðu minningarnar. Ég, börn mín og tengdabörn vottum Ella Má og fjölskyldunni allri innilega samúð. Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor, því hún var mild og máttug og minnti á jarðneskt vor. (Davíð Stefánsson.) Guðrún Eyjólfsdóttir (Dúna) og fjölskylda. Við ólumst upp í holtinu við leik og störf, krakkaskarinn. Holtið er Kleppsholtið sem um miðja síðustu öld var eins og lítið sveitaþorp þar sem allir þekktust. Í þessum krakkaskara, sem ólst þar upp, voru, Laufholtssystkinin, systurn- ar átta og einn bróðir. Ein systr- anna var Jóna bernskuvinkona mín. Við vorum jafnaldra og jafn- stórar, önnur ljóshærð og hin dökkhærð og báðar bláeygar. Að- eins átta dagar skildu á milli okkar í aldri. Strax á fyrstu árum okkar byrjuðum við að stauta saman og bundumst sterkum böndum sem aldrei slitnuðu þrátt fyrir að langt gæti liðið milli þess að við hittumst eða heyrðumst. Vináttan var djúp og laus allra skuldbindinga. Það var mikið leikið og fóru leikirnir að mestu fram úti í holtinu á milli þúfna og sléttra klappa holtsins. Það var engin gata yfir holtið þá heldur troðningar, sem gaman var að þræða. Allt í kring voru litlir kofar sem eflaust hafa haft sinn til- gang fyrir okkar tíð og þar gat krakkaskarinn leikið sér vordaginn langan og langt fram á kvöld. Eins og að framan segir var Jóna eitt barna Jóns og Geirnýjar í Lauf- holti. Í næsta húsi við þau bjuggu ættingjar að vestan, systkinin Pía og Jói og Óli sonur Píu. Einhvern veginn fór það svo að Jóna var mik- ið hjá frændfólki sínu og þegar við héldum af stað í skólann á morgn- ana þá kom ég við þar og þaðan leiddumst við Jóna saman í Lang- holtsskólann sem var nokkuð langt fyrir litlar og smástígar stúlkur. Þegar skóla lauk héldum við heim á leið og lékum okkur saman alla daga. Við vorum báðar miklar dúkkukonur og lékum okkur með dúkkurnar okkar fram að 12 ára aldri en við fórum leynt með það, enginn mátti vita, af því það var svo barnalegt. Eftir að barnaskóla lauk fórum við hvor í sinn gagnfræða- skólann en þráðurinn slitnaði ekki. Jóna var mjög ung þegar hún hitti Ella og þau ung þegar elsti dreng- urinn þeirra fæddist. Þau voru fyrst í skjóli hjá Píu eða þar til þau stofnuðu sitt eigið heimili. Á þess- um árum kom ég oft til þeirra í heimsókn og fylgdist með lífi þeirra. Samband þeirra einkennd- ist alltaf af mikilli hlýju og virðingu og þessa þætti skynjaði ég í sam- bandi þeirra í hvert skipti sem ég hitti þau hjónin og það breyttist aldrei. Nú er Jóna bernskuvinkona mín horfin okkur, en eftir sitja hlýj- ar minningar um góða og vandaða konu og þessar minningar halda áfram að styrkja þráðinn okkar Jónu. Elsku Elli og fjölskylda þín öll, hlýjar hugsanir streyma til ykkar. Megi allar góðar vættir vera með ykkur áfram. Magnea Ingólfsdóttir. Í dag kveðjum við Jónu vinkonu okkar með miklum söknuði. Við höfum þekkst síðan við vorum litl- ar stelpur í Kleppsholtinu. Við höf- um verið ásamt systrum hennar og Lilju mágkonu í saumaklúbb í næstum hálfa öld. Það hefur verið ómetanlegt fyrir okkur að eiga vin- áttu þeirra. Þær eru allar einstak- lega kærleiksríkar og hlýjar konur. Saumaklúbburinn okkar er ein- stakur og hefur aldrei fallið skuggi á vináttuna. Við höfum bæði hlegið mikið og veitt hver annarri stuðn- ing á þessum árum. Við höfum allt- af hlakkað til að hittast. Makar okkar hafa notið góðs af, þó að hlátrasköllin hafi stundum haldið fyrir þeim vöku. Nágrannar hafa haft orð á því að við keyrðum heim eftir fjörið. Héldu að við hlytum að hafa haft áfengi um hönd. Það hef- ur aldrei verið, heldur höfum við fundið þessa heilbrigðu innilegu gleði þegar við hittumst. Við höfum fylgst að í gegnum gleði og sorg. Við erum ekki búnar að átta okkur á því að Jóna sé farin og munum sakna hennar yndislegu nærveru um ókomin ár Við sendum Ella, Jóa, Bigga, Adda og fjölskyldum, systkinum Jónu og þeirra fjöl- skyldum okkar innilegustu samúðarkveðjur Guð gefi ykkur styrk á þessari erfiðu stundu. Helga, Rósa, Ása og fjölskyldur. Að kveðja elsku Jónu okkar, eina af Eirarholtsrósunum, eins og við köllum okkur, er sárt og erfitt að trúa að við eigum ekki eftir að sjá fallega brosið hennar aftur og finna hennar einstöku nærveru. Eftir að hún hætti að vinna á Eir- arholti ákváðum við nokkrar af þeim sem höfðum unnið lengi sam- an að stofna „saumaklúbb“ til að halda hópinn og hittast reglulega. Við höfum þekkst mislengi og frá fyrstu kynnum við Jónu fór ekki á milli mála hvaða manneskju hún hafði að geyma. Alltaf blíð og góð, traust, heiðarleg, með sterka réttlætiskennd. Hún lét sig varða hvernig samferðafólkinu leið, hlustaði, hvatti og huggaði með sínu rólega fasi og setti hlutina í samhengi. Hnippti í okkur ef henni fannst við hafa unnið of mikið: „Þú verður að passa þig elskan mín, er þetta ekki of mikið fyrir þig?“ Það fór ekki á milli mála hve öllum leið vel þegar Jóna var á vakt á Eir- arholti, bæði starfsfólki og heim- ilisfólki. Eirarholtsrósirnar fóru saman í ferðalög og sumarbústaðaferðir. Síðasta ferðin sem Jóna fór í með okkur var til Dyflinnar á liðnu hausti. Sú ferð verður lengi í minn- um höfð – dýrmæt minning. Að hlusta á hana tala um Ella sinn og fjölskylduna fékk mann til að hugsa hve lánsöm þau væru að eiga hvort annað. Minnisstætt er þegar Elli keyrði okkur í jólaboð fyrir þremur árum, einhver sagði þá að við myndum passa Jónu og hann svaraði „já gerið það því ég ætla að eiga mörg ár í viðbót með þessari konu“. Það er sárt að hugsa til þess að árin þeirra verði ekki fleiri. Við megum til með að nefna samband Jónu og Þórunnar son- ardóttur hennar, en því kynntumst við þegar Þórunn vann með okkur. Það var alltaf eins og þær hefðu ekki sést í margar vikur þegar þær hittust í vinnunni, knús, kossar og falleg orð. En þær höfðu þá jafnvel hist daginn áður. Við kveðjum þig elskan okkar með tárum og mikið eigum við eftir að sakna þín. Sendum Ella og öðr- um ástvinum innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna Arndal, Herdís, Erna, Jóhanna Hrafnkels, Kristjana, Else, Hallfríður (Halla), Sigríður (Sirrý), Sólrún, Gerður, Hjördís og Ingibjörg Halldóra (Inga Dóra). Skammt hefur verið á milli högga í vinahópi okkar sem hefur varað í marga áratugi gegnum ferðalög, söng og ýmsar uppákom- ur. Jóna, mín elskuleg vinkona til margra áratuga, er fallin frá. Með tárin í augunum reyni ég að skrifa nokkur minningarorð, get varla trúað að þetta sé raunveru- leiki, svo óvænt var þetta fyrir okk- ur öll, vini og vandamenn. Hverj- um hefði dottið það í hug nú í vor að vortónleikar Strætókórsins í Ás- kirkju yrði okkar síðasta samveru- stund. Að kveðjustundin biði við næsta horn á sama stað. Allt sem við höfum gert og deilt saman, rifjast upp bæði þegar við bjuggum í sömu götunni til margra áratuga og eins eftir að fjarlægðin varð meiri á milli okkar. Það rifjast upp þegar við hittumst fyrst á árshátíð 1972 og þið systkina- þrenningin komuð eftir ballið heim í litlu kjallaraíbúðina okkar. Frá þeim tíma hefur vinátta okkar ver- ið svo djúp, einlæg og sönn. Það var svo gott að eiga hana Jónu og svo erfitt að trúa að hún sé ekki lengur til staðar. Góð vinátta er það dýrmætasta sem maður á og það höfum við átt hjá þeim hjónum frá fyrstu kynnum. Allt það sem við ætluðum að gera á síðasta ári og gerðum ekki og það sem við vor- um byrjaðar á að plana í okkar síð- asta spjalli, þar sem við hittumst fyrir nokkrum vikum og verður aldrei. Á svona tímamótum, sérlega þegar maður er kominn á seinni hluta æviskeiðsins en finnst samt maður eiga svo mikið eftir, þá hugsar maður, ekki fresta, ekki bíða, heldur framkvæmum hugs- anir, vináttu, langanir, ræktum, verum, elskum og njótum alls sem við höfum möguleika á og tækifæri til. Á svona stundum skynjum við hvað lífið er stutt og mikilvægi þess að rækta vini, maka og ástvini. Elsku Jóna mín var einstaklega ljúf, blíð, falleg, hlý og geislandi kona. Það fór ekki fram hjá neinum sem kynntist henni hversu mikill mannvinur hún var og hve mikla mannelsku hún hafði til að bera eins og allt hennar fólk. Einstaklega er það minnisstætt þegar við fórum saman í okkar fyrstu ferð út til Bergen á norð- urlanda-kóramót með karlakór SVR 1983. Öll vorum við ung og sum kornung, lífið blasti við okkur „endalaust“. Þetta sama á eflaust við um börnin okkar í dag. Þannig er lífið. Engu að síður þykir okkur sem fórum í þessa fyrstu ferð 1983 svo ótrúlega stutt síðan. Þrátt fyrir það hefur mikið vatn runnið til sjávar og margir horfnir úr hópn- um okkar. Elli minn, elsku kæri vinur, við sendum þér og allri fjölskyldunni, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Biðjum góðan Guð að styrkja og blessa ykkur öll í sorginni. Þú átt okkur að nú sem endranær. Eygló og Reynir. ✝ Jóna GuðbjörgBaldvinsdóttir fæddist á Akureyri 28. maí 1940. Hún lést 23. maí 2017 á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri. Foreldrar hennar voru Lilja Svanbjörg Jóns- dóttir, f. á Steiná, A-Hún. 12. október 1917, og Baldvin Marinó Kristinsson, f. á Blönduósi 3. júlí 1917. Systk- ini Jónu eru Kristlaug Kolbrún Baldvinsdóttir, f. 1944, Helga Jónsdóttir, f. 1950, og Stefán Jónsson, f. 1952. Eiginmaður Jónu var Bjarni Anton Bjarnason, f. 1935, d. 2000. Börn Jónu eru Jón Halldórs Bjarnason, Ingi- björg Elfa Bjarna- dóttir, Pétur Bjarnason og Lilja Kolbrún Bjarna- dóttir. Barnabörn Jónu eru níu talsins og tvö barnabarnabörn. Útför Jónu fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag, 31. maí 2017, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku tengdamamma, nú í vor eru 31 ár frá því við hittumst fyrst, þegar Pési þinn kynnti mig fyrir ykkur Bjarna í Lerkilundinum. Síðan þá höfum við gengið saman langan veg bæði í gleði og sorg. Það er svo skrýtið að þú sért ekki lengur til staðar, því frá okk- ar fyrstu fundum varð Lerkilund- urinn og þið Bjarni nokkurs konar kennileiti mitt á Akureyri. Þar átti ég, sunnanstelpan, öruggt og hlýtt skjól. Þegar við Pési fluttum suð- ur og Bjarni kvaddi fyrir 17 árum varðst þú enn stærri hluti af til- veru okkar og heimilislífi. Þú komst í reglulegar hressingar- ferðir suður og við gistum hjá þér í Lerkilundinum. Ég er þakklát fyrir hvað krakkarnir okkar, þau Ari, Kári og Rut, kynntust þér vel fyrir vikið. Þau nutu þess oft að spjalla við þig um heima og geima hvort sem það var yfir kvöld- kaffinu sem þú kenndir þeim að meta, mjólk og kleinu eða í seinni tíma yfir pizzusneið, sem þau kenndu þér að meta. Fyrstu árin eftir að Bjarni kvaddi voru þér erfið en með hjálp fjölskyldu, vina og dásamlegra ná- granna fetaðir þú veginn fram. Síðustu árin sóttir þú í góðan fé- lagsskap í dagþjónustunni á Hlíð þar sem þú naust umönnunar ynd- islegs starfsfólks. Það verður erfitt að koma norð- ur þegar þú, þessi fasti punktur í tilveru okkar, ert ekki lengur til staðar. Landslagið er breytt og kennileitið horfið, þaðan sem allar ferðir norður byrjuðu og enduðu. Mikið sem ég sakna þín elskuleg. Það er huggun harmi gegn að vita að fallegur, vel greiddur og broshýr maður bíður þín fyrir handan. Mig dreymdi hann fyrir stuttu við opnar dyr í leðurjakkan- um með Agio í hönd. Ég var hissa og spurði hvort hann væri kominn strax og hann svaraði á sinn ein- staka hátt: Hvað heldurðu!? Það verða vafalítið fagnaðar- fundir hjá ykkur elsku samhentu, samrýndu og yndislegu hjón. Mik- ið sem ég er rík að hafa kynnst ykkur. Hafið þökk fyrir allt, bless- uð sé minning Jónu Bald og Bjarna Bjarna. Í fjarlægum, fögrum skógi ég friðsælt rjóður veit. Þar skjálfa geislar í grasi, þar ganga hindir á beit. Á bak við blávötn og akra rís borgin með þys og ljós, en skóggyðjan felur í faðmi friðarins hvítu rós. Þar líður tíminn og líður, — sem laufelskur, mildur blær. Og yfir nöfnunum okkar á eikinni börkur grær. (Hulda) Ágústa Björnsdóttir. Í Hávamálum segir: en til góðs vinar liggja gagnvegir. Kynni okkar Jónu hófust fyrir alvöru þegar hún bankaði upp á hjá mér með Lilju dóttur sína á fjórða ári sér við hönd, til að fá litlu systur mína, sem var jafn gömul og var í heimsókn, til að koma út að leika. Eftir þetta var nánast innangengt milli húsa okk- ar í 43 ár, eða jafn lengi og við bjuggum báðar í Lerkilundinum. Jóna bjó yfir einstöku æðru- leysi og léttri lund og fleytti það henni langt þegar á móti blés. Við vorum búnar að eiga margar glað- ar stundir í gegnum tíðina þar sem stutt var í hláturinn. Vinátta hennar, Bjarna manns hennar og barna þeirra var mér mikils virði þar sem ég var nýflutt til Akureyrar frá Reykjavík. Síðar bættust í fjölskyldu þeirra tengdabörn og barnabörn sem einnig urðu vinir okkar. Þegar fjölgaði í fjölskyldu okkar var dóttirin umvafin velvild og hlýju fjölskyldunnar í númer eitt og á hún ógleymanlegar minningar frá æskuárunum þar sem Jóna gæddi henni á góðgæti og Bjarni galdraði fram sleikjó, sem jafnvel fannst bak við eyru hennar. Yngsti fjölskyldumeðlimurinn í okkar fjölskyldu átti góðan vin í Jónu og saknar vinar í stað. Þær mæðgur, Þórunn Kristín og Þór- unn Birna, spurðu oft hvort þær ættu ekki að taka Jónu með þegar til stóð að borða saman um helgar. Þórunn Birna var mjög glöð þegar Jóna gat komið í 10 ára af- mælið hennar í febrúar, en hún hafði verið lasin og vissi ekki hvort hún kæmist. Kynni okkar Jónu til 45 ára voru fölskvalaus. Þegar við rædd- um um vináttu okkar rúmum sóla- hring fyrir andlát hennar hafði hún eitt orð yfir hana, dásamleg, og endurtók það. Ég tek heilshug- ar undir það um leið og ég þakka Jónu áratuga vináttu. Við hjónin, dóttir og dótturdótt- ir sendum börnum, tengdabörn- um, barnabörnum, systkinum og öðrum aðstandendum Jónu okkar dýpstu samúðarkveðjur. Þórunn K. Birnir. Jóna Guðbjörg Baldvinsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.