Morgunblaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 74
74 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Það er verið að vinna í húsinu hjá mér. Það er 120 ára gamalt ogkominn tími á endurnýjun. Ég geri því enga stóra hluti í tilefniafmælisins enda íbúðin í rúst. Ætli ég fari ekki út að borða og hafi það huggulegt,“ segir Ragnhildur Kolka, sem á 75 ára afmæli í dag. Ragnhildur býr í hjarta Reykjavíkur, á Bókhlöðustígnum, við hliðina á Menntaskólanum í Reykjavík, en hún hefur búið í sama í húsinu í 45 ár. „Það er enginn hérna í hverfinu sem hefur búið hér jafnlengi og ég. Það er mjög fínt að búa hérna þegar maður er einhleypur. Þá er gott að fara niður í bæ til að fá sér að borða. Uppáhaldsstaðurinn er Jómfrúin. Eini gallinn er slagurinn við Bílastæðasjóð. Það er eins og að vera staddur í myndinni Groundhog Day, því ég þarf að sannfæra Bílastæða- sjóð á hverju ári um rétt minn til að leggja bílnum hérna í götunni. Það tekur, standard, þrjár vikur að herja út leyfið. En ég er nýbúin að fá leyfið fyrir næsta ár.“ Ragnhildur er bæði lífeindafræðingur og bókmenntafræðingur að mennt og er með mastersgráðu í báðum fögunum. Hún starfaði sem líf- eindafræðingur hér heima og í Bandaríkjunum og Bretlandi. „Ég hætt að vinna sjötug en átti þá efni í tvær greinar til birtingar í læknis- fræðilegum fagtímaritum. Ég er búin að koma annarri greininni út en er að vinna í hinni. Hún er um ónæmiskerfið, þ.e. frumstæðasta hluta ónæmisviðbragða (lektínferil komplimenta). Ég æfi kínverska leikfimi og svo fylgist ég mjög vel með þjóðmálum, bæði hér innanlands og al- þjóðamálum. Við lifum á óræðum tímum, ég segi ekki að maður sé þunglyndur yfir því, en við vitum ekkert hvað gerist næst.“ Ragnhildur er fráskilin, en sonur hennar heitir Marvin Elmer Wallace og sonardóttirin heitir Fjóla Lind. Í Frakklandi Ragnhildur í ferð um La Camargue síðastliðið haust. Hefur búið á Bók- hlöðustígnum í 45 ár Ragnhildur Kolka er 75 ára í dag J ón Kristinn Snæhólm fæddist í Reykjavík 31.5. 1967 en ólst upp í Kópa- vogi: „Ég er Vestur- bæingur í Kópavogi, ólst upp á Sunnubrautinni. Þar fór vel um okkur guttana sem kunnum að meta holtið og fjöruna og vorum við ekki alltaf í takt við boð og bönn hinna fullorðnu. Við brenndum sinu á vorin, stunduðum lífshættulegt jakahlaup úti á voginum á veturna og teikuðum bíla þegar færi gafst. Þetta var auðvitað allt saman harð- bannað og stórhættulegt en rosa- lega spennandi. Frá æskuárunum eru mér auk þess minnisstæðar landgræðsluferð- ir með pabba á landgræðsluvélinni Páli Sveinssyni - TF-NPK, sem er Douglas C-40, ósvikin herútgáfa af DC-3. Þetta er líklega frægasta flugvélategund í heimi og ég hef alla tíð síðan verið yfir mig hrifinn af þessum flugvélum. Ég var reynd- ar einn af stofnendum Þristavina- félagsins á Íslandi sem hefur það markmið að varðveita þessa frá- bæru flugvél, sem er enn í notkun, og halda henni í flughæfu ástandi.“ Jón Kristinn var í Kársnesskóla og Þinghólsskóla, lauk stúdentsprófi frá MK 1987, lauk BA-prófi í sagn- fræði frá HÍ 1994 og lauk MSc- prófi í evrópskum og aþjóðlegum stjórnmálum frá Edinborgarháskóla 1996. Jón Kristinn starfaði hjá Íslensku vátryggingarmiðluninni 1997-2002 og var þar starfandi stjórnar- Jón Kristinn Snæhólm, fjölmiðla- og athafnamaður – 50 ára Með Járnfrúnni Varaformaður Europian Young Conservatives heilsar hér Margréti Thatcher forsætisráðherra. Alvöru íhaldsnagli með flugdellu í blóðinu Með börnunum Þórunn Soffía, Jón Kristinn og Fannar Alexander. Ingibjörg Hulda Valdimarsdóttir og Sigrún Efemía Halldórsdóttir héldu tom- bólu við Bónus í Spönginni og söfnuðu 6.200 kr sem þær færðu Rauða kross- inum á Íslandi að gjöf. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is lÍs en ku ALPARNIR s alparnir.is ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727 Í leik & starfi SUMARTILBOÐ Salmon Quest gönguskór + legghlífar + 1 par af sokkum SUMARTILBOÐ KEYPTU 3 PÖR AF SOKKUM OG BORGAÐU FYRIR 2 GÓÐ GÆÐI – BETRA VERÐ 39.900 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.