Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 77
DÆGRADVÖL 77
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þér sýnist í fljótu bragði það
liggja í augum uppi að gera ákveðinn hlut
skaltu hægja á þér og skoða málið vandlega.
Vertu raunsær og varastu að láta óskhyggj-
una taka öll völd.
20. apríl - 20. maí
Naut Enda þótt þú sért einfari í eðli þínu
kannt þú vel að meta félagsskap annarra
bæði í leik og starfi. Reyndu þó að eyða ekki
um efni fram og láta matföng nægja.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú á tímum er hægur vandi að
bæta við þekkingu sína svo þú hefur enga af-
sökun fyrir því að láta ekki undan þessari
löngun þinni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að vera á varðbergi svo þú
missir ekki af tækifærum til að bæta aðstöðu
þína. Takist þér þetta ættirðu ekki að verða
fyrir neinum skakkaföllum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Rómantískt samband þarfnast smáveg-
is innspýtingar – vertu hvatvís og djarfur.
Komdu makanum á óvart. Farðu varlega og
gáðu að þér, þér hættir dálítið við slysum í
dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt að láta tilfinningar þínar í ljós
en ekki byrgja þær inni. Notaðu kvöldið til að
endurnýja orku þína.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu engan texta frá þér fara fyrr en þú
ert fullviss um að hann geti ekki valdið nein-
um misskilningi. En varastu að gera vanda-
mál annarra að þínum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er þér í hag að málamiðlun
náist í mikilvægu máli. Trú þín er ekki
heimskuleg – allt annað en það.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú getur átt góðan dag í vinnunni
en það sama er ekki að segja um einkalífið.
Ekki gera stórinnkaup eða taka mikilvægar
ákvarðanir í dag því hlutirnir eru á iði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Farðu í gegnum símaskrána þína
til að hafa aftur samband við frábært fólk.
Eitt er víst, allir vilja vera í návist þinni.
Kannski er meðvitundin að tala.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vinur gæti blekkt þig í dag. Hjón
lífga upp á sambandið með því að passa mis-
kunnarlaust upp á samveruna. Sambönd þarf
að rækta.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er mikið slúðrað í kringum þig og
ætlast er til að þú takir þátt í leiknum.
Kannski verður einhver afbrýðisamur.
Ég hitti karlinn á Laugaveginumþar sem hann skundaði niður
Njarðargötuna. Það lá vel á honum.
Hann leit um öxl og tautaði:
Hún er leikandi létt í spori
enda langt síðan vann hún í slori.
Eins og kerlinga er siður
setur kartöflur niður
mín kerling og fagnar vori.
Og var horfinn.
Séra Hjálmar Jónsson kvaddi
söfnuð sinn í Dómkirkjunni á
sunnudaginn og var það hátíðleg
stund sem þó var létt yfir eins og
prestinum. Eins og við var að búast
flugu vísur. Jón Ingvar orti í orða-
stað sr. Hjálmars:
Ekki ligg ég enn í valnum
allt þó sé að fara á hvolf.
Keyri burt úr Katedralnum,
kitla pinnann, fer í golf.
Og svo þegar hann gekk út úr
kirkjunni:
Messan þótti gild og góð,
Guðs þar ríkti friður
og átján sinnum upp ég stóð
eða settist niður.
Undir messunni orti Eyþór Árna-
son Bjarnasonar frá Uppsölum í
Blönduhlíð:
Kátur fer sérann úr kjólnum,
kallar á sumarið hlýtt.
Nú stígur Hjálmar úr stólnum
og stokkar sinn dag upp á nýtt.
Og sem þeir nálguðust kirkju-
dyrnar og Alþingishúsið blasti við
sagði sr. Vigfús Þór Árnason við
mig að ég yrði að kveðja sr.Hjálmar
með vísu – og henni laust inn í
höfuðið á mér eins og stundum ger-
ist:
Það er mörgu að moða úr
meðan ævitíminn líður;
boðun sinni og túlkun trúr
með Templarasund á báðar síður.
Það var eftir mér – og líkt mér
auðvitað – að fara rangt með föð-
urnafn Helga R. Einarssonar og
segja hann Jónsson í Vísnahorni á
laugardag og bið ég hann og les-
endur afsökunar á því. Helga
fannst sjálfsagt að nota tækifærið
fyrst ég rangfeðraði hann og koma
með leiðréttingu:
Einar pabbi og mamma mín,
man ég, voru hjón,
sem áttu saman unga sín,
en ekki þessi Jón.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af kartöflum, kveðju-
messu og rangfeðrun
Í klípu
„ÞETTA ER OFURLÍM. NOTIST AÐ VILD.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ REYNA EKKI AÐ
STILLA RÚMIÐ SJÁLFUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... nógu lítil til þess
að komast fyrir í lófa
þínum, en nógu stór
til þess að rúma ykkur
bæði.
JÆJA, ÞETTA VAR
INDÆLL DAGUR
ÆTLAR ÞÚ AÐ
BORÐA ÞETTA DAUNILLA
KVIKINDI?
NEI… ÉG
ÆTTI HELST AÐ
SLEPPA ÞVÍ…
ÉG Á
STEFNUMÓT
Í KVÖLD!
ÉG HATA
VETURINN Víkverji þarf daglega að komastleiðar sinnar í höfuðborginni og
þarf að fara lengra en svo að
áfangastaðir hans séu í hjólafæri,
hvað þá í göngufæri. Hann hefur
hvorki þolinmæði né tíma til að nýta
sér almenningssamgöngur og fer
því um á einkabíl. Víkverji fær hins
vegar ekki það mikla ánægju út úr
því að keyra að hann væri ekki til í
að nota tímann til einhvers annars.
Tækifærið til þess nálgast ef marka
má reglulegar fréttir um framfarir í
smíði sjálfakandi bíla og svo virðist
sem þeir séu orðnir algengari á göt-
unum en menn (í það minnsta Vík-
verji) gera sér almennt grein fyrir.
x x x
Nýverið heyrði Víkverji af manniá Suðurnesjum sem reglulega
ekur í bæinn á sjálfakandi bifreið. Á
leiðinni fer hann í gegnum tölvu-
póstinn sinn. Bíllinn sér um að
koma honum á leiðarenda og er ein-
fær um það nema á hringtorgum,
þar sem hann virðist eiga erfitt með
að átta sig og farþeginn neyðist til
að gerast ökumaður. Víkverja skilst
þó að sjálfakandi bílar taki fyrr eft-
ir öðrum bílum en ökumenn al-
mennt.
x x x
Erfitt er að sjá fyrir hvaða afleið-ingar innleiðing sjálfakandi bif-
reiða mun hafa. Leitt hefur verið
getum að því að fólk muni síður
vilja eignast bíla en áður, heldur
muni það gera samning við bíla-
framleiðanda- eða umboð um visst
mánaðargjald gegn því að það hafi
bíl til umráða þegar á þarf að halda.
Slíkt fyrirkomulag þekkist þegar, til
dæmis í stórborgum í Þýskalandi.
x x x
Breiðist þetta út fyrir alvöruvaknar spurningin hvaða áhrif
það hafi á almenningssamgöngur.
Ljóst er að í það minnsta til að
byrja með muni vera minna um-
burðarlyndi gagnvart þessari tækni
fari eitthvað úrskeiðis, en þegar
maður af holdi og blóði situr undir
stýri. Svo er spurningin með trygg-
ingar. Nú byggist tryggingin á
frammistöðu bíleigandans undir
stýri. Hver er ábyrgð þess sem sit-
ur í sjálfakandi bifreið þegar hún
lendir í árekstri? vikverji@mbl.is
Víkverji
Engill Drottins setur vörð kringum þá
sem óttast hann og frelsar þá.
(Sálm. 34:8)
Fyrir salernið
Karl K. Karlsson, Nýbýlavegi 4, 200 Kópavogi