Morgunblaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 86
Louisu Matthíasdóttur (1917-2000) þarf vart að kynna,svo greyptar eru stíl-hreinar landslagsmyndir
hennar í sjónminni þjóðarinnar að
stundum er talað er um Louisulands-
lag líkt og talað er um kjarvalskt
landslag. Það hefur hins vegar ekki
alltaf verið svo, því að Louisa var
komin fast að sextugu þegar verk
hennar voru sýnd í fyrsta sinn á Ís-
landi um miðjan áttunda áratuginn.
Hún fór ung að árum til Kaupmanna-
hafnar í myndlistarnám, lærði síðan
hjá hinum þekkta Marcel Gromaire í
París. Á stríðsárunum var erfitt um
vik fyrir listamenn að komast til
náms í Evrópu og því lá beinast við að
fara til Bandaríkjanna, sem Louisa
gerði ásamt fleiri íslenskum lista-
mönnum og nam við skóla hins þýska
Hans Hoffmann í New York. Louisa
settist að í Bandaríkjunum og bjó þar
nánast alla tíð ásamt manni sínum
Leland Bell og var verkum hennar
fljótt vel tekið af gagnrýnendum og
listunnendum vestra.
Á sýningunni Kyrrð má sjá verk
sem spanna allan listamannsferil
Louisu, uppistaðan er olíumálverk á
striga en einnig gefur að líta nokkur
pastel- og vatnslitaverk auk sjald-
séðra skúlptúra úr leir og skissubóka
hennar.
Tvö innri rými eru stúkuð af í saln-
um og í öðru þeirra eru verk frá upp-
hafi ferils Louisu, en þá málaði hún
aðallega nærumhverfið og heimilið,
nánustu fjölskyldu sína, t.d. Temmu
dóttur sína, eiginmann og vini. Inni-
leiki og nánd innan veggja heimilisins
í anda viðfangsefna Mary Cassatt
svífur yfir vötnum í þessum verkum.
Skarpa útlínuteikningu og tilbrigði
við bjarta ljósgula og kremaða lita-
tóna á hreinum formum má sjá í
verkinu „Temma með barnavagn“
(1948) en í „Ellen og Temma“ (1952)
færist meira líf í bakgrunninn en
hlýjan og væntumþykjan er næstum
áþreifanleg. Í portrettunum frá 5.
áratugnum af Matthíasi föður
Louisu, Halldóri Laxness, Nínu
Tryggvadóttur og fleirum má sjá
hvernig hún einfaldar andlitsdrætti
og með fáum áreynslulausum strok-
um nær hún fram ríkri tilfinningu
fyrir nærveru og útlitseinkennum
þeirra sem sitja fyrir, þótt áherslan
liggi fremur í uppbyggingu verksins
en í persónueinkennum fyrirmynd-
arinnar. Í hinu rýminu eru kyrralífs-
myndir, en Louisa sneri sér að þeim,
ásamt sjálfsmyndum og síðar lands-
lagsverkum, eftir að einkadóttirin og
helsta viðfangsefni hennar var farin
að heiman. Verkin eru frá ólíkum
tímum en flest frá u.þ.b. 1976-1984, í
verkinu „Uppstilling með flösku“
(1984) og í fleiri áþekkum verkum
bylgjast borðdúkur á borðplötu sem
hallast lítið eitt og þar stillir listamað-
urinn á klassískan hátt upp borðbún-
aði, ávöxtum og grænmeti framar-
lega á myndflötinn. Endurtekningin,
djúpfjólublár litur eggaldins og
grænn kúrbítur í mismunandi upp-
stillingu sýnir aga, fumlaus vinnu-
brögð og tæra myndsýn Louisu þar
sem ákveðinni hugmynd er fylgt eftir
og reynd í þaula.
Sterkar sjálfsmyndir Louisu eru
líkt og leiðarstef á sýningunni og
fylgja áhorfandanum um salinn. Í
þeim má greina áherslur hennar á
mismunandi tíma á ferlinum og
hvernig stíllinn þróast úr litlum verk-
um af ungu listakonunni í stól eða
með málaratrönurnar í verkinu
„Sjálfsmynd“ (1939-1940) þar sem
pensilskriftin er hröð og ferlið
expressjónískara og sýnilegra en síð-
ar varð. Sjálfsmyndirnar stækka síð-
an í fulla líkamsstærð þar sem Louisa
stendur gleið og ákveðin á svip, með
hendur á mjöðmum og horfir sjálfs-
örugg beint í augu áhorfenda í ódag-
settri sjálfsmynd, þetta er verk lista-
manns sem fylgir eigin sannfæringu
og er viss í sinni sök. Formræn upp-
röðun hreinna litaflata í verkinu
endurspeglast í röndunum á prjóna-
gollunni, sem var hönnuð og prjónuð
af Louisu sjálfri.
Verkunum á sýningunni er þema-
skipt; auk innri rýmanna sem áður er
lýst eru borgarmyndir í öðrum enda
salarins og landslagsverk í hinum.
Borgarmyndir frá 9. og 10. áratugn-
um einkennast af hreinum formum
úr útlínum húsa og tærum litaflötum
þar sem sjóndeildarhringur og lands-
lag hefur verið einfaldað en um leið
úthugsað. Elstu borgarmyndirnar
„Maine landslag II“ (um 1960) og
„Iowa borg“ (um 1965), búa yfir
frjálsari dráttum og mýkri litatónum.
Louisa er þekktust hér á landi fyrir
hinn hreina og tæra tón sem er gegn-
umgangandi í landslagsverkum
hennar á síðari hluta ferilsins. Öryggi
í myndbyggingu, víðátta þar sem
stöku kindur og hestar eru á beit og
íslensk birta minninganna hafa skap-
að einstakan persónulegan stíl, yfir
þessum verkum hvílir kyrrð og ein-
faldleiki sem hefur átt greiða leið í
þjóðarsálina. Í verkum eins og „Gul“
(1990) og „Landslag og gulur himinn“
(1989) kjarnast tök Louisu á því að
samtvinna orkuna og fegurðina sem
býr í landslaginu, með kyrrðinni og
einfaldleikanum.
Rýnir saknar helst fleiri verka frá
fyrri hluta ferilsins, frá skeiði sem er
minna þekkt meðal almennings, en
segja má að það sé sparðatíningur
um annars fallega sýningu. Þakklátir
áhorfendur munu eflaust flykkjast á
Kjarvalsstaði í sumar og njóta heild-
stæðs yfirlits yfir feril þessarar dáðu
listakonu.
Form Skarpa útlínuteikningu og kremaða litatóna á hreinum formum má sjá í verkinu Temma með barnavagn.
Leitin að einfaldleikanum
Listasafn Reykjavíkur,
Kjarvalsstaðir.
Kyrrð bbbmn
Sýning á verkum Louisu Matthías-
dóttur. Sýningarstjóri: Jón Proppé.
Sýningin stendur til 17. september
2017. Opið alla daga frá kl. 10-17.
ALDÍS
ARNARDÓTTIR
MYNDLIST
Morgunblaðið/Hanna
Listakonan Sjálfsmynd á grænum skóm frá árinu 1993.
Sveitasæla Landslag og gulur himinn nefnist verkið hægra megin.
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Guðrún Antonsdóttir
lögg. fasteignasali
Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu.
Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð.
Núna er tækifærið ef þú vilt selja.
Hringdu núna í 697 3629
og fáðu aðstoð við að selja
þína eign, hratt og vel.
Ertu í söluhugleiðingum?
Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is