Morgunblaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 92
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Jón Ásgeir svarar Grími Grímssyni
2. Telur Costco leggja 15 kr. á lítrann
3. Woods: Var ekki undir áhrifum áfengis
4. Nichole brast í grát í ræðustól
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Arkitektinn, sýningarstjórinn og
höfundurinn Rory Hyde fjallar um
nýjar forsendur og aðferðir í síbreyti-
legum heimi hönnunar og arkitektúrs
í Norræna húsinu í kvöld kl. 20. Við-
burðurinn, sem fram fer á ensku, er
haldinn í tilefni af opnun sýning-
arinnar Borgarveran, sem er aðalsýn-
ing ársins í Norræna húsinu. Aðgang-
ur er ókeypis.
Fjallað um arkitektúr
í Norræna húsinu
Tilvistarleg
angist er yfir-
skrift tónleika
sem haldnir verða
á Hard Rock Café
Reykjavík í
Lækjargötu annað
kvöld, fimmtudag,
kl. 21. Þar troða
upp Mosi frændi,
Hemúllinn og Casio Fatso ásamt sér-
stökum leynigestum. Casio Fatso
sendir senn frá sér plötu og Mosi
frændi er að ljúka upptökum á sinni
plötu sem kemur út í haust.
Tilvistarleg angist
á Hard Rock Café
Soul’d Out er yfirskrift tónleika
sem Harold E. Burr heldur í Hann-
esarholti á morgun, fimmtudag, kl.
20. Harold hefur búið á Ís-
landi undanfarin ár, en
var á yngri árum með-
limur í hljómsveitinni
The Platters. Á tón-
leikunum fer
hann yfir sögu
sálartónlistar
í tali og tón-
um.
Sálartónlist í Hann-
esarholti á morgun
Á fimmtudag Austanátt, víða 10-15 m/s en 15-23 við suður-
ströndina. Rigning um land allt, einkum þó suðaustan til. Hiti 8 til
15 stig, hlýjast suðvestanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 5-15 m/s, hvassast við
norðurströndina. Súld eða rigning nyrðra og eystra fram yfir há-
degi, annars skýjað með köflum og smá skúrir. Hiti 6 til 14 stig.
VEÐUR
„Ég var búin að segja að ég
ætlaði að skora fyrir ömmu
og ég var svo fegin þegar
það tókst. Þetta mark og
þessi sigur var algjörlega
tileinkaður henni,“ segir
Kristín Erna Sigur-
lásdóttir, knatt-
spyrnukona úr Vest-
mannaeyjum, sem átti
stóran þátt í sigri ÍBV
á Breiðabliki í Pepsi-
deild kvenna í fyrra-
kvöld. » 4
Ég ætlaði að
skora fyrir ömmu
Eygló Ósk Gústafsdóttir, Bryndís Rún
Hansen og Hrafnhildur Lúthersdóttir
voru gullverðlaunahafar Íslands á
fyrsta degi sundkeppninnar á Smá-
þjóðaleikunum í gær þrátt fyrir
skamman nætursvefn í fyrri-
nótt. Þær voru á meðal ís-
lensku keppendanna sem
voru nærri tvo sólarhringa
að komast á keppnis-
staðinn. Eygló Ósk
hafnaði síðan í
fjórða sæti í 100
m skriðsundi
sem er auka-
grein
hennar á
leikunum.
»3
Eygló Ósk og stöllur
söfnuðu saman gullinu
Ásdís Hjálmsdóttir bætti eigið móts-
met í spjótkasti á Smáþjóðaleikunum
í San Marínó í gær. Ásdís hafði mikla
yfirburði í sinni grein á þessum vett-
vangi og í raun er meiri spenna um
það hversu lengi met hennar mun
standa heldur en hvort henni tækist
að sigra í gær. Ásdís bætti eigið
mótsmet um metra og kastaði í
fyrsta sinn á árinu yfir 60 metra. »3
Bætti mótsmetið og
kastaði yfir 60 metra
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sundkeppni á milli sveitarfélaga er
liður í Hreyfiviku Ungmennafélags
Íslands, sem hófst á mánudag, og á
Rangárþing ytra tvöfaldan titil að
verja. „Við ætlum að vinna þriðja
árið í röð,“ segir Þórhallur Svav-
arsson, forstöðumaður sundlaugar-
innar á Hellu, en Félag forstöðu-
manna sundstaða gaf farandbikar
til keppninnar.
Fyrir um tveimur árum ráðgerðu
Fjallabyggð og Norðurþing að
koma á laggirnar sundkeppni sín á
milli en að höfðu samráði við UMFÍ
varð úr sundkeppni á milli sveitar-
félaga sem hluti af Hreyfiviku. 28
sveitarfélög skráðu sig til leiks og
35 í fyrra, en nú er keppt í 30 sund-
laugum í 27 sveitarfélögum.
Mikil keppni er á milli sveitar-
félaga og sérstaklega á milli Rang-
árþings ytra og Rangárþings
eystra. Sveitarfélögin urðu í 1. og 2.
sæti fyrir tveimur árum en í 1. og 3.
sæti í fyrra. Þá skaust Hrísey á
milli. 2015 voru syntir 311,5 km í
sundlauginni á Hellu, eða 375 m á
íbúa, en í lauginni á Hvolsvelli voru
syntir 260,5 km, eða 279 m á íbúa. Í
fyrra syntu íbúar á Hellu samtals
401 km, eða 487 m á mann, en íbúar
á Hvolsvelli 257 km, eða 268 m á
mann. Hríseyingar syntu samtals 64
km, 413 m á mann.
Þurfa ekki gulrót á Hvolsvelli
Þórhallur segir að ýmislegt sé
gert á Hellu til þess að vekja at-
hygli á keppninni og laða fólk ofan í
laugina meðan á Hreyfivikunni
stendur. „Nú er bara synt og synt
og við ætlum að hafa opið til mið-
nættis annað kvöld,“ segir hann.
„Þá gerum við okkur glaðan dag
með mjólk og skúffuköku eftir
sundið.“
Að sögn Þórhalls er alltaf boðið
upp á kaffi að loknu keppnissund-
inu, stundum hefur verið grillað of-
an í sundfólkið og krakkarnir fengið
ís. „Það er mikil keppni á milli
Hellu og Hvolsvallar og ég held að
það sé aðalkeppnin,“ segir hann.
„Ég veit ekki hver gulrótin er hjá
þeim núna, hef ekki heyrt í þeim og
þeir fara leynt með það.“
Ólafur Örn Oddsson, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi á Hvolsvelli og for-
stöðumaður sundlaugarinnar, segir
að stefnan sé alltaf sett á fyrsta
sætið og ekki þurfi gulrót til þess.
„Krakkarnir á Hellu hafa fengið ís
eftir hverja 500 metra en við seljum
ekki einu sinni ís í sundlauginni og
erum ekki með neinar gulrætur
heldur hvetjum fólk til að synda,“
segir hann.
Þó að grunnskólakrakkarnir á
Hellu hafi verið í skólaferðalagi á
mánudag segir Þórhallur að keppn-
in hafi farið vel af stað og lofi góðu
um framhaldið. „Á mánudag voru
syntir 47,4 kílómetrar samanborið
við 38 kílómetra fyrsta dag í fyrra,“
segir hann og bætir við að klukkan
níu í gærmorgun hafi verið búið að
synda 18 km til viðbótar.
Þórhallur segir að fastagestirnir
bæti við í hreyfivikunni og ný andlit
bætist í hópinn. „Þeir sem koma
þrisvar í viku að jafnaði mæta á
hverjum degi og margir bæta við
200 til 500 metrum í hvert sinn,“
segir hann. „Það er mikil stemning í
kringum þessa keppni, miklu fleira
fólk í lauginni en venjulega og talað
er um keppnina úti um allan bæ.“
Gulrótin er mjólk og kaka
Hella stefnir að
sigri í sundkeppn-
inni 3. árið í röð
Ljósmynd/Þórhallur Svavarsson
Keppni Krakkarnir á Hellu létu sig ekki vanta í laugina í gærmorgun og bættu nokkrum km í safnið.