Freyr - 01.08.2005, Síða 14
HROSSARÆKT
Fyljunarvottorð
og A-vottun
Til þess að folöld geti fengið A-vottun er nauðsynlegt að hrossaræktendur útvegi sér
fyljunarvottorð eða fái staðfesta dvöl hryssu hjá stóðhesti á stóðhestaskýrslu. Með
því er tryggt að ætterni folalds fari ekki á milli mála.
IEftir Pétur Halldórsson,
ráðunaut, Búnaðarsam-
bandi Suðurlands
Fyljunarvottorð má nálgast á
skrifstofum búnaðarsambanda
og Bændasamtaka íslands. Á
vottorðinu kemur fram nafn og
fæðingarnúmer viðkomandi
stóðhests og hryssu, tímabil
gangmáls, staður/girðing/hús-
notkun, nafn og kennitala
hryssueiganda/umráðamanns,
nafn, kennitala og undirskrift
stóðhestahaldara. Einnig eru
reitir fyrir ómskoðun (sé hún
framkvæmd, annars sleppt) en
þá ber dýralækni að staðfesta
með undirskrift niðurstöðu slíkr-
ar skoðunar.
Afar mikilvægt er að allar
hryssur, sem eru í stóðhesta-
girðingum, séu leystar út annað
hvort með fyljunarvottorði eða
komi fram á stóðhestaskýrslu -
hvort heldur þær skoðast með
fyli eður ei. Bæði er að alrangar
niðurstöður fást um frjósemi
stóðhesta ef eingöngu er skilað
inn gögnum fyrir fengnar hryss-
ur og enn fremur er ekki alveg
óþekkt að folald fæðist að ári
þó að við skoðun hafi hryssan
metist „tóm". f því sambandi er
rétt að nefna að fyl verður fyrst
þokkalega greinanlegt við óm-
skoðun eftir um hálfan mánuð
frá getnaði. Þetta þýðir að þar
sem stóðhestar eru teknir úr
girðingum samtímis ómskoðun
er nokkur von um fyl þó að són-
ar við girðingu staðfesti það
ekki.
TIL UPPRIFJUNAR ÞÁ ERU
SKILYRÐI FYRIR A-VOTTUN
HROSSA ÞRENNS KONAR:
1 .Fyijunarvottorð eða stóð-
hestaskýrsla sem staðfestir
dvöl móður hjá viðkomandi
hesti á fyljunarári - hvort sem
sónað er eða ekki og hvort
sem skoðun bendir til fyls eða
ekki. Fyljunarvottorðum/stóð-
hestaskýrslum ber að skila til
viðkomandi búnaðarsam-
bands (síðasta lagi fyrir árslok
á fyljunarári.
2.Skýrsluhaldarar geri grein fyrir
fæddum folöldum á folalda-
skýrslu sinni og skili henni inn
til skráningar I stðasta lagi fyr-
ir áramót ár hvert ásamt af-
drifaskýrslu um seld eða felld
hross, gelta fola, nafngiftir
o.fl. Þeir sem utan hefð-
bundna skýrsluhaldsins
standa verða á sama hátt að
grunnskrá folöld sín á fæð-
ingarári - og/eða að skila inn
fullskráðu örmerkingaeyðu-
blaði.
3.Verðandi folald sé einstak-
lingsmerkt (örmerki/frost-
merki) og gögnum þar að lút-
andi skilað inn til skráningar á
búnaðarsambandi í síðasta
lagi fyrir 1. mars árið eftir
fæðingu.
Ekkert mælir gegn því að fol-
öldin séu örmerkt sem allra fyrst
eftir fæðingu í stað þess að bíða
fram yfir áramót. Með því vinnst
t.d. að hætta á „rangmæðruð-
um" folöldum í stærri stóðum er
lágmörkuð. Folaldið er strax
skráð sem númeraður og merkt-
ur einstaklingur í WorldFeng,
svo fremi að tilgreindar upplýs-
ingar séu á merkingareyðublaði.
Sé hryssan á leið með folaldið f
stóðhestagirðingu er merkingin
trygg leið til að fyrirbyggja rugl-
ing að loknu gangmáli. Folaldið
verður þegar komið inn á blöð
skýrsluhaldara þegar haust-
skýrslur eru sendar út.
FREYR 08 2005