Freyr - 01.08.2005, Side 17
NAUTGRIPIR
Tafla 1 sýnir árangur sæðinga
eftir svæðum, þar sést að sum-
staðar er uppsveifla í fangpró-
sentu en annars staðar hefur
árangur farið niður á við. Hvað
heildarniðurstöðu varðar mun-
ar mest um mun betri árangur
á Suðurlandi en þar hækkar
fanghlutfall um 2,4%. Það
munar um minna enda er þar
um að ræða rúmlega 40% af
öllum fyrstu sæðingum á land-
inu.
Á árinu 2004 voru flestar
fyrstu sæðingar í janúar eða
2.746 og I desember 2.654.
Þessir tveir mánuðir voru einnig
með flestar sæðingar á árinu
2003 en þá var toppurinn hærri
og fleiri en 3.000 kýr voru
sæddar í desember 2003. Fæst-
ar voru fyrstu sæðingar í sept-
ember, 967, og var það eini
mánuður ársins með færri
fyrstu sæðingar en 1.000. Best
héldu kýrnar sem sæddar voru í
ágúst eða 76,2%, september
75,4% og maí 74,5%. Verst
héldu þær sem sæddar voru í
janúar eða 64,5%.
Alls voru 28 óreynd naut not-
uð í 150 fyrstu sæðingum eða
fleiri en á árinu 2004. Á mynd 2
kemur fram árangur þessara
nauta. Svo sem sjá má hélt
prýðilega við flestum þeirra en
þó eru tvö naut sem ná ekki
60% árangri, sem telst slakur
árangur, en meðalárangur þess-
ara nauta var 69,3% og hefur
heldur hækkað milli ára. Afleit
útkoma Gilsungs hlýtur að
valda sérstökum vonbrigðum.
Við smásjárskoðun er allt sæðið
flokkað í fjóra gæðaflokka, úr-
valssæði, miðlungssæði, frekar
slakt sæði en þó nothæft og
síðan í sæði sem telst ónothæft
og er hent strax. Úr ungnaut-
unum fer helst aldrei út annað
sæði en í besta gæðaflokki ef
það á annað borð næst úr við-
komandi einstaklingi.
Á árinu voru notuð 22 reynd
naut og holdanaut i 150 eða
fleiri fyrstu sæðingum (holda-
nautin náðu að vísu ekki þeirri
notkun en þau sem voru mest
notuð eru höfð með eins og
áður). Árangur þeirra sést á
mynd 3. Öll naut ná 60% fang-
hlutfalli sem er gott. Meðalár-
angur þessara nauta var 66,9%
(á móti 65,37% og 20 naut
2003). Á árinu 2004 munar því
4% á óreyndum og reyndum
nautum þeim óreyndu í vil (á
móti 3,3% þeim óreyndu í vil
2003). Árgangur nauta frá
1996 var sá síðasti þar sem
sæðið var þynnt og ef það
hefur haft áhrif á árangur er
þeim kafla sæðingasögunnar
nú að Ijúka. Áberandi eftir-
spurn var eftir Stíg 97010 frá
Oddgeirshólum og voru nærri
1.900 fyrstu sæðingar skráðar
með sæði úr honum og fang-
hlutfall yfir 70%. Það telst af-
bragðsgott því að væntanlega
hefur hann verið notaður mikið
á „bestu" kýr, sem oft eiga erf-
itt með að festa fang rétt eftir
burð.
FREYR 08 2005
17