Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 4
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–19 | Um helgar 11–19
Fjölskyldubók
ársins
Sævar Helgi segir frá plánetum og
tunglum í sólkerfinu okkar þar sem
líf gæti hugsanlega leynst
Iðnaður Talið er fimm milljónir
evra þurfi til að koma til móts við
kröfur Umhverfisstofnunar um
úrbætur á kísilmálmverksmiðju
United Silicon. Þetta kemur fram
í mati norska ráðgjafarfyrirtækis-
ins Multiconsult, sem rannsakað
hefur búnað verksmiðjunnar fyrir
stjórn og kröfuhafa fyrirtækisins.
Þá leggja ráðgjafarnir til að ráðist
verði í viðbótarfjárfestingu upp á
20 milljónir evra svo verksmiðjan
teljist fullkláruð og eins og best
verður á kosið í iðnaðinum. Á
nýju ári stefnir stjórn United Sili-
con að því að ganga til viðræðna
við mögulega kaupendur að verk-
smiðjunni.
Rekstur kísilmálmverksmiðju
United Silicon í Helguvík var stöðv-
aður af Umhverfisstofnun þann
1. september síðastliðinn. Í tilkynn-
ingu frá Umhverfisstofnun frá þeim
tíma sagði að eftir gangsetningu
verksmiðjunnar hafi stofnuninni
borist ríflega eitt þúsund kvartanir
frá íbúum Reykjanesbæjar vegna
mengunar. Við skoðun hafi komið
fram að frávik frá starfsleyfi United
Silicon hafi verið alvarleg.
Frá þeim tíma hefur farið fram
ítarleg skoðun á búnaði fyrirtækis-
ins. Karen Kjartansdóttir, talsmaður
United Silicon, segir fjármagns-
þörfina hafa verið vanreiknaða frá
upphafi. „Það er rétt að það er metið
svo að um 25 milljónir evra þurfi
til að fyrirtækið verði eins og best
verður á kosið og áætlanir gengu út
á,“ segir Karen. Hún bætir við að í
skýrslu úttektaraðila komi fram að
grunnhönnun ofnsins sjálfs sé góð
en augljóst sé að ódýr og óvand-
aður jaðarbúnaður sé orsök tíðra
bilana sem bæði skapaði erfiðleika
í framleiðslu og rekstri auk þess sem
Multiconsult telur þau vandkvæði
meginorsök lyktarmengunar á
svæðinu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru mögulegir kaupendur
að verksmiðjunni tæplega tíu tals-
ins. Karen vildi ekki tjá sig um fjölda
kaupenda en sagði að nokkur áhugi
virtist fyrir hendi. Stjórn myndi lík-
ast til hefjast handa á fyrstu dögum
nýs árs við að ræða við þessa aðila
um kaup á verksmiðjunni. Fram-
haldið ráðist svo af því hvað komi
út úr þeim viðræðum. – sa
Þrír milljarðar til að koma verksmiðju United Silicon aftur í gang
Það er rétt að það er
metið svo að um 25
milljónir evra þurfi til að
fyrirtækið verði eins og best
verður á kosið.
Karen Kjartans-
dóttir, talsmaður
United Silicon
Dómsmál Kona og karlmaður, bæði
um tvítugt, voru sakfelld fyrir rán í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Samkvæmt dómnum þykir sannað
að ákærðu hafi í sameiningu blekkt
eldri mann með samskiptum við
hann á samfélagsmiðlum og talið
honum trú um að hann væri að
kaupa vændi af tveimur stúlkum.
Þau fengu brotaþola til að bjóða sér
inn heima hjá sér undir þessu yfir-
skini en þegar inn var komið rudd-
ust aðrir tveir menn inn og réðust að
manninum með exi, kylfu og byssu,
þvinguðu hann í gólfið og veittu
honum ýmsa áverka þar á meðal
stungusár á læri, sár á sköflungi,
rifbrot og hruflsár á hálsi. Meðan
þessu fór fram kröfðu þeir manninn
um peninga. Atlögunni lauk þegar
nágranni kom að og hringdi á lög-
reglu en á flóttanum höfðu ákærðu
með sér verkjalyf, sígarettur og
iPhone 5 síma.
Málavöxtum er þannig lýst í dóm-
inum að lögregla hafi verið kvödd
að húsi við Reynimel í Reykjavík
vegna innbrots. Brotaþoli greindi
lögreglu frá því á vettvangi að hann
hefði samið um að tvær vændis-
konur kæmu til hans þetta kvöld
en hann hafði áður verið í sambandi
við stúlku á netinu og síðar einnig
karlmann og hefði þeim samist
um að tvær stúlkur kæmu til hans.
Önnur stúlkan og karlmaður hefðu
komið til hans um klukkan níu
þetta kvöld og sagt að hin stúlkan
væri á leiðinni. Skömmu síðar hefði
verið barið að dyrum og þegar hann
opnaði hefðu þrír grímuklæddir
menn ruðst inn og ráðist á hann
ásamt manninum sem þegar var
kominn. Mennirnir hafi verið vopn-
aðir öxi, hafnaboltakylfu og tveir
þeirra auk þess með vasahnífa. Þeir
hafi krafið sig um peninga en þegar
hann neitaði því hefðu þeir beitt sig
ofbeldi.
Grunur tók að beinast að ákærðu
eftir rannsókn á síma brotaþola og
játuðu dómfelldu að hafa komið í
íbúðina. Karlmaðurinn játaði aðild
að hluta en benti á aðra menn sem
helstu skipuleggjendur brotsins. Þá
játaði konan að hafa komið í íbúð-
ina sem tálbeita.
Enn er óupplýst hverjir það voru
sem ruddust inn og réðust á brota-
þola eftir að ákærðu voru komin
inn til hans. Konan var ekki ákærð
fyrir þátt í líkamsárásinni en karlinn
var sýknaður af þeirri ákæru vegna
sönnunarskorts. Brotaþoli var einn
um að bera að hann hafi ráðist
á hann með fyrrgreindum hætti
ásamt hinum óþekktu mönnum en
að mati dómsins styðja önnur gögn
málsins ekki framburð brotaþola
um aðild hans að líkamsárásinni.
Konan hlaut 6 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir ránið
en karlmaðurinn var dæmdur til
fangelsisvistar í þrjá mánuði óskil-
orðsbundið en hann rauf skilorð
með broti sínu og var dæmdur
hegningarauki.
Auk þeirra tveggja sem sakfelld
voru fyrir ránið var þriðji maður-
inn ákærður í málinu, en hann var
sýknaður, aðallega vegna sönn-
unarskorts en einnig vegna nafna-
ruglings í ákæru þar sem nöfnum
hans og meðákærða var ruglað
saman. Lögum samkvæmt má ekki
dæma ákærða fyrir aðra hegðun
en þá sem í ákæru er greint frá né
heldur dæma aðrar kröfur á hendur
honum. Ákvæðið heimilar þó leið-
réttingu á misritun en í dóminum
er ekki fallist á að misritun nafna
ákærðu sé aukaatriði sem leiðrétta
megi með bókun.
Þar sem hin ákærðu voru sýknuð
af líkamsárás og aðrir árásarmenn
eru óþekktir, var enginn sakfelldur
fyrir líkamsárásina.
adalheidur@frettabladid.is
Kröfðu manninn um peninga
Tvö voru sakfelld fyrir rán eftir beitingu blekkinga með notkun tálbeitu. Ráðist var á brotaþola með hníf-
um og kylfu en enginn var sakfelldur fyrir líkamsárás. Gerendur höfðu síma, lyf og tóbak upp úr krafsinu.
Myndin tengist fréttinni ekki. NordicPhotos/Getty
Brotaþoli sagði lögreglu
að hann hefði samið um að
tvær vændiskonur kæmu til
hans umrætt kvöld.
sa m g ö n g u r Samgöngufélag
Íslands hefur skoðað hvað þurfi til
að ná megi útsendingum útvarps
í þeim veggöngum, þar sem ekki
nást útvarpssendingar eins og er.
Þetta kemur fram í erindi félagsins
til samgönguráðherra, Vegagerðar-
innar og sveitarfélaga.
Í Fjallabyggð þar sem bæði
Héðinsfjarðargöng og Stráka-
göng er að finna kveðst bæjar-
ráðið taka undir nauðsyn
þess að útvarpssendingar náist
í veggöngum. Það myndi auka
öryggi. „Bæjaryfirvöld hafa tekið
málið upp við Vegagerðina án
árangurs og er unnið að gerð erindis
til Vegagerðarinnar vegna málsins,“
segir bæjarráðið. – gar
Útsendingar í
veggöngum
TrÚmál Ríkisútvarpinu (RÚV) hefur
ekki borist beiðni frá biskupi Íslands
eða Biskupsstofu um að endurupp-
taka aftansöng jóla.
Hvert aðfangadagskvöld er aftan-
söngur á dagskrá RÚV og flytur
biskup predikun í guðsþjónustu
þeirri. Aftansöngurinn er vanalega
tekinn upp nokkrum dögum fyrir
aðfangadag en að þessu sinni þann
14. desember síðastliðin.
Frá því að athöfnin var tekin upp
hefur kjararáð kveðið upp um tæp-
lega fimmtungs hækkun
launa biskups. Sú
ákvörðun mun ekki hafa
áhrif á orð hans í pre-
dikuninni. „Biskup mætti
í aftansönginn með til-
búna ræðu. Sú ræða
stendur óhögguð,“
segir Skarphéðinn
Guðmundsson,
yfirmaður inn-
lendrar dagskrár
hjá RÚV. – jóe
Predikun ekki
tekin upp á ný
2 1 . D e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T u D a g u r4 F r é T T I r ∙ F r é T T a b l a ð I ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-6
F
E
4
1
E
9
3
-6
E
A
8
1
E
9
3
-6
D
6
C
1
E
9
3
-6
C
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K