Fréttablaðið - 21.12.2017, Qupperneq 6
Á stórhátíðardögum
átt þú að fá borgað
stórhátíðarálag
Stórhátíðardagar eru aðfangadagur og gamlársdagur
eftir kl. 12, jóladagur og nýársdagur.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS
Við komum því til skila
Opnunartími pósthúsanna á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri
9:00-20:00
9:00-20:00
11:00–17:00
9:00–12:00
fimmtudagur
föstudagur
laugardagur
sunnudagur
21. desember
22. desember
23. desember
24. desember
Þú getur póstlagt jólakortin og jólapakkana
þegar þér hentar. Allar nánari upplýsingar
um opnunartíma pósthúsanna er að finna
á postur.is/jol.
Jóla- og nýárskveðja
frá Ingvari Gíslasyni
Sendi ættingjum og vinum hugheila jóla- og nýárskveðju.
Með þökk fyrir allt hið liðna.
Ingvar Gíslason fyrrverandi Alþingismaður.
reykjanesbær „Hvers kyns þöggun
eða afneitun gagnvart þessu málefni
verður ekki liðin og bera stjórnend-
ur, bæjaryfirvöld og aðrir þeir sem
kunna að verða varir við framkomu
af þessu tagi, sameiginlega ábyrgð
á að uppræta hana,“ segir í yfir-
lýsingu allra bæjarstjórnarmanna
í Reykjanesbæ um aðgerðir gegn
einelti, kynbundinni og kynferðis-
legri áreitni.
„Í ljósi þeirrar mikilvægu umræðu
sem átt hefur sér stað í samfélaginu
undanfarin misseri þar sem fjöldi
kvenna hefur stigið fram og lýst
reynslu sinni undir myllumerkinu
#metoo vilja bæjaryfirvöld í Reykja-
nesbæ árétta og renna styrkari
stoðum undir þá afdráttarlausu
stefnu að kynbundin og kynferðis-
leg áreitni eða ofbeldi af nokkru tagi
er ekki liðin á vinnustöðum sveitar-
félagsins,“ segir í yfirlýsingunni.
Vitnað er til starfsmanna-
stefnu Reykjanesbæjar þar sem
fram kemur að leggi starfsmaður
annan samstarfsmann í einelti eða
sýni honum kynferðislega áreitni,
teljist hann brjóta grundvallarregl-
ur samskipta á vinnustað. Það geti
leitt til áminningar og brottreksturs.
„Ábyrgð Reykjanesbæjar sem
vinnuveitanda nálægt eitt þúsund
einstaklinga er afar rík. Leggja
bæjaryfirvöld því ríka áherslu á að
stjórnendur í sveitarfélaginu fái
þjálfun og aðstoð við að greina og
koma með kerfisbundnum hætti
í veg fyrir kynferðislega og kyn-
bundna áreitni í sínu nærumhverfi,“
segir bæjarstjórnin. – gar
Reykjanesbær vinni kerfisbundið að
því að uppræta kynferðislega áreitni
Ábyrgð Reykjanes-
bæjar sem vinnu-
veitanda nálægt eitt þúsund
einstaklinga er
afar rík.
Bæjarstjórn
Reykjanesbæjar
Fjárlög Að mati Bílgreinasam-
bandsins horfir til vandræða með
fjölda notaðra bíla hér á landi og
að offramboð verði á þeim innan
skamms. Bílaleigur séu stór aðili á
markaði og kaupi sífellt fleiri bíla í
takt við aukinn ferðamannastraum.
Bílgreinasambandið telur mikilvægt
að bílaleigur haldi afslætti sínum af
kaupum nýrra bíla til landsins.
„Undanfarin ár hefur bílafloti
bílaleiga hér á landi farið vaxandi
í takt við aukinn straum ferða-
manna hingað til lands. Allar spár
benda til áframhaldandi vaxtar um
einhvern tíma sem er mjög gott.
Núna síðustu ár hefur ekki verið
neitt vandamál með sölu notaðra
bíla,“ segir Jón Trausti Ólafsson,
formaður Bílgreinasambandsins
og framkvæmdastjóri Öskju. „Hins
vegar, ef vöxturinn heldur áfram,
verður hlutfall bílaleigubíla of hátt
fyrir höfðatölu Íslands. Því gæti
orðið mikið offramboð á notuðum
bílum.“
Að mati Jóns Trausta gæti offram-
boðið orðið til þess að bílaleigubílar
lækki hratt í verði sem komi sér
afar illa fyrir bílaleigurnar. Segir í
umsögn sambandsins um fjárlaga-
frumvarpið að afkoma bílaleiga hafi
dregist mikið saman og að hætta sé
á að hér safnist upp stórir flotar af
gömlum óöruggum og mengandi
bílaleigubílum. – sa
Floti gamalla mengandi bílaleigubíla safnast upp á landinu
Bílgreinasambandið hefur áhyggjur af fjölda bílaleigubíla. FréttaBlaðið/SteFán
sTjÓrnsÝsla „Við ætlum að vanda
okkur. Við erum ekki í neinni
tímaþröng með þetta,“ segir
Helga Vala Helgadóttir, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis. Nefndin ákvað á fundi
sínum í gær að taka til skoðunar
stjórnsýsluhætti Sigríðar Á. Ander-
sen dómsmálaráðherra við skipan
landsréttardómara.
L a n d s r é tt a r d ó m a ra r vo r u
skipaðir í upphafi júnímánaðar.
Áður en til þess kom skilaði sér-
stök dómnefnd um hæfni þeirra
umsögn um hverja nefndin taldi
hæfasta til starfans. Dómsmála-
ráðherra vék frá þeirri niðurstöðu í
fjórum tilvikum. Í fyrradag dæmdi
Hæstiréttur þá málsmeðferð ólög-
mæta og var ríkinu gert að greiða
tveimur umsækjendum 700 þús-
und krónur hvorum í miskabætur
vegna þessa.
Eftir að dómurinn féll hefur
dómsmálaráðherra meðal annars
sagt að hún sé ósammála niður-
stöðunni og að dómurinn leggi
„ríkari skyldur á ráðherra að
rannsaka málið með sjálfstæðum
hætti“. Þá hyggst Sigríður bregðast
við með setningu reglna sem taka
á því hvernig ráðherra eigi að bera
sig að hyggist hann leggja aðrar
tillögur fyrir Alþingi en þær sem
hæfisnefnd leggur til við skipun
dómara.
„Meðal þess sem við munum
skoða er hvort ráðherrann sé
heppilegur aðili til að setja sér
reglur um hvernig hún á að fara
með þetta vald sitt næst þegar
hæfisnefnd skilar af sér,“ segir
Helga Vala.
Annað sem nefndin mun taka
til skoðunar er staða þingsins. Við
skipan dómaranna var ráðherra
skylt að leggja tillögur sínar fyrir
þingið. Ábyrgðin var þó ráðherr-
ans en ríkið byggði sýknukröfu
meðal annars á því að þingið hefði
samþykkt tillögurnar og því væri
ráðherrann ábyrgðarlaus.
„Hefði Alþingi átt að leggjast
í sérstaka rannsókn á málinu?
Hlutverk þingsins var mögulega
ekki nægilega skýrt í ferlinu,“ segir
Helga Vala.
Þá verður stjórnskipunarleg
staða Sigríðar sem dómsmála-
ráðherra einnig tekin til greina.
„Burtséð frá því hvort forsætis- og
fjármálaráðherra treysti dóms-
málaráðherra til að gegna starfi
sínu áfram þá er það hlutverk
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
að hafa eftirlit bæði með þingi og
framkvæmdavaldi. Nefndin getur
ekki látið eins og ekkert sé,“ segir
Helga Vala.
Hún segir að á fundinum í dag
hafi miklar og góðar umræður
sprottið um þetta og ýmsum hug-
myndum hafi verið varpað fram.
Nefndarmenn hafi gert sér grein
fyrir alvöru málsins. Nefndin hefur
kallað eftir öllum gögnum máls-
ins og ætlar að kanna það ofan í
kjölinn.
„Þetta snýst um að auka traust á
Alþingi og framkvæmdarvaldinu,“
segir Helga Vala.
johannoli@frettabladid.is
Ætla að kanna dómara-
skipanina ofan í kjölinn
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins ákvað á fundi sínum í gær að taka stjórn-
sýsluhætti dómsmálaráðherra við skipan landsréttardómara til sérstakrar skoðunar.
Formaður nefndarinnar segir að í mörg horn sé að líta og nefndin muni flýta sér hægt.
Hæstiréttur taldi að Sigríður hefði brotið gegn rannsóknarskyldu sem á henni
hvíldi. Sjálf hefur ráðherrann sagst ósammála dómnum. FréttaBlaðið/ernir
Meðal þess sem við
munum skoða er
hvort ráðherrann sé heppi-
legur aðili til að setja sér
reglur um hvernig hún á að
fara með þetta vald sitt næst
þegar hæfisnefnd
skilar af sér.
Helga Vala Helga-
dóttir, formaður
stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d a g U r6 F r é T T I r ∙ F r é T T a b l a ð I ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-8
3
A
4
1
E
9
3
-8
2
6
8
1
E
9
3
-8
1
2
C
1
E
9
3
-7
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K