Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 8
Heilbrigðismál Sala á íslensku nef-
tóbaki dróst saman um tæp fimm
prósent á fyrstu ellefu mánuðum
ársins samanborið við sama tíma-
bil í fyrra. Tóbaksgjald var hækkað
um 77 prósent í ársbyrjun 2017 og
virðist nú allt stefna í að sala ÁTVR
á neftóbaki dragist saman milli
ára í fyrsta skipti frá 2013. Það ár
var tóbaksgjaldið síðast hækkað
hraustlega en síðan hefur neyslan
aukist verulega ár frá ári. Sérfræð-
ingur í tóbaksvörnum segir þó að
ekki sé bara hægt að stóla á hækk-
anir, aðrir þættir þurfi að spila inn
í.
Nýjar tölur frá ÁTVR sýna að seld
voru rúmlega 34 tonn af neftóbaki á
fyrstu ellefu mánuðum ársins 2017,
eða 4,7 prósentum minna en á sama
tímabili í fyrra þegar seld höfðu
verið 35,8 tonn. Svo fór að 39,9 tonn
af neftóbaki voru seld það ár en ef
fram heldur sem horfir má áætla að
salan í ár endi í 37 tonnum.
Í fjárlögum næsta árs er gert ráð
fyrir tveggja prósenta hækkun á
tóbaksgjaldi sem leiða mun til
hækkunar heildsöluverðs um 1,7
prósent að sögn Sigrúnar Óskar
Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra
ÁTVR. Íslenska ríkið tekur nú til sín
um 76 prósent af hverri seldri dós
í formi virðisaukaskatts og tóbaks-
gjalds auk heildsöluálags ÁTVR, sem
nemur 18 prósentum.
ÁTVR selur neftóbakið í heild-
sölu til verslana í sölueiningum sem
eru 20 stykki af 50 gramma dósum.
Slík eining kostaði 1. janúar 2014 í
heildsölu 29.243 krónur en kostar
nú 47.052 krónur.
Smásöluaðilar kaupa því hverja
50 gramma dós á 2.352 krónur frá
Neyslustýring á neftóbaki ber árangur
Mikil hækkun á tóbaksgjaldi í ársbyrjun virðist ætla að hafa þau áhrif að draga úr neftóbakssölu ÁTVR í fyrsta skipti frá árinu 2013.
Fyrstu ellefu mánuði ársins dróst salan saman um tæp fimm prósent samanborið við fyrra ár. Þegar tóbaksgjald á neftóbak hefur verið
hækkað hraustlega undanfarin ár sýna tölur að neysla minnkar, í það minnsta tímabundið. Huga þarf þó að fleiru en hækkunum.
40
35
30
25
20
15
10
5
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017*
25,5
tonn
30,2
tonn 28,8tonn 27,6tonn
32,9
tonn
36,1
tonn
39,9
tonn
34,1
tonn*
10%*** 10% 75% 100% 3% 0% 2,5% 77%
✿ Neftóbakstonn og tóbaksgjaldaþróun
b
re
yt
in
g
m
ill
i á
ra
-7
,2
6%
**
b
re
yt
in
g
m
ill
i á
ra
10
,5
2%
b
re
yt
in
g
m
ill
i á
ra
9,
7%
b
re
yt
in
g
m
ill
i á
ra
19
,2
%
b
re
yt
in
g
m
ill
i á
ra
-4
,1
6%
b
re
yt
in
g
m
ill
i á
ra
-4
,6
3%
b
re
yt
in
g
m
ill
i á
ra
18
,4
%
*jan-nóv. **M.v. selt magn 37 tonn *** Hækkun tóbaksgjalds í ársbyrjun
ÁTVR og er algengt verð á dós út úr
búð nú rúmar þrjú þúsund krónur.
Til samanburðar kostaði dósin að
jafnaði um 700 krónur í verslunum
árið 2010 og hefur verðið sem neyt-
endur greiða fyrir dósina því hækk-
að um 328 prósent síðan. Með fyrir-
huguðum tóbaksgjaldshækkunum
eftir áramót mun dósin út úr búð
vafalaust enn á ný hækka eitthvað,
neytendum til armæðu.
Þegar tölur yfir sölu ÁTVR á nef-
tóbaki og breytingar á tóbaks-
gjöldum frá árinu 2010 eru skoðaðar
kemur í ljós að þegar komið hefur til
verulegrar hækkunar tóbaksgjalda
á neftóbak verður samdráttur í sölu
næstu tólf mánuði.
Í ársbyrjun 2012 hækkaði tóbaks-
gjaldið um 75 prósent og dróst sala
ÁTVR saman um 4,6 prósent það ár.
Ári síðar var gjaldið hækkað aftur
um 100 prósent með þeim áhrifum
að annað árið í röð dróst salan
saman, um rúm 4 prósent.
Frá ársbyrjun 2013 til loka árs
2016 kom ekki til neinna verulegra
hækkana á tóbaksgjaldi enda jókst
sala ÁTVR á neftóbaki á tímabilinu
úr 27,6 tonnum á ári í 39,9 tonn. Í
ársbyrjun 2017 hækkaði tóbaks-
gjald á neftóbak enn á ný, sem fyrr
segir og stefnir allt í að það skili sér
í rúmlega 7 prósenta samdrætti í
sölu.
Viðar Jensson, verkefnisstjóri
tóbaksvarna hjá Landlækni, segir
að reynslan sýni að hækkun skatta
á tóbak sé einfaldasta og árangurs-
ríkasta leiðin til að draga úr heilsu-
tjóni af völdum tóbaksneyslu og
hafi einna mest áhrif á ungt fólk.
Samdráttur í sölu í kjölfar hækkana
sýni þá virkni. Íslendingar séu aðilar
að rammasamningi um tóbaks-
varnir (FCTC) þar sem kveðið er á
um þörfina á virkri verðstýringu til
að draga úr tóbaksneyslu en einnig
að virkt samtal þurfi að vera á milli
velferðarráðuneytisins og fjármála-
ráðuneytisins þar sem verðstefnan
er yfirfarin og reglulega. Fleiri þættir
en skattahækkanir þurfi þó að spila
saman til að lausnin verði ekki
tímabundin.
„Fræðin setja verðstýringu í
fyrsta sæti og svo koma viðvaranir,
merkingar, takmarkanir á aðgengi,
fræðsla og forvarnir og aðstoðin við
að hætta að nota tóbak. Þetta þarf
allt að spila saman. Verðið er ein-
faldasta og áhrifaríkasta leiðin, en
við getum ekki bara stólað á hækk-
un á tóbaki.“ mikael@frettabladid.is
328%
er hækkun smásöluverðs
neftóbaksdósar frá 2010.
Verðið er einfald-
asta og áhrifaríkasta
leiðin, en við getum ekki
bara stólað á hækkun á
tóbaki.
Viðar Jensson,
verkefnisstjóri
tóbaksvarna
Selt magn neftóbaks á
fyrstu 11 mánuðum ársins
jafngildir 682 þúsund
dósum.
Dómsmál Afkomendur Sævars
Ciesielski hafa skipt um verjanda
vegna endurupptöku Guðmundar-
og Geirfinnsmála og hefur Oddgeir
Einarsson nú tekið við málinu af
Unnari Steini Bjarndal sem skip-
aður var af Hæstarétti í haust. „Að
Unnari Steini ólöstuðum óskaði ég
ekki eftir honum sem verjanda fyrir
mína hönd en hann var engu að
síður skipaður af Hæstarétti
að ósk systkina minna. Í
síðustu viku varð sátt um
að Oddgeir tæki málið
að sér fyrir hönd okkar
allra,“ segir Júlía Marínós-
dóttir, dóttir Sævars, og
bætir við: „Það er fagnaðar-
efni að sátt hafi náðst
um verjanda og
málið er í góðum
farvegi í höndum
Oddgeirs.“
D a v í ð Þ ó r
B j ö r g v i n s s o n ,
settur saksóknari, bindur vonir við
að gögnum málsins verði komið til
Hæstaréttar fyrir jól, en gögnin eru
upp undir 20 þúsund síður. „Svo fæ
ég væntanlega frest fram í janúar til
að skila greinargerð og þá kemur í
ljós hvaða kröfur ég geri í málinu.“
Enn liggur þó ekki fyrir hvorir
gera kröfur á undan; settur sak-
sóknari eða verjendur dómfelldu.
„Það er mín skoðun að saksóknari
eigi að gera kröfur fyrst,“ segir Jón
Steinar Gunnlaugsson, verjandi
Kristjáns Viðars Viðarssonar. Hann
segir þá skyldu hvíla á saksóknara
að krefjast sýknu í áfrýjuðu máli telji
hann menn hafa verið ranglega sak-
fellda í héraði.
Verði eingöngu gerðar sýknu-
kröfur í málinu er ekki um ágreining
að ræða og því allt eins mögulegt
að málið verði dómtekið án mál-
flutnings. Hafþór Sævarsson, sonur
Sævars Ciesielskis, segir öllu máli
skipta að málinu verði gerð rækileg
skil í Hæstarétti. „Pabbi barðist
fyrir því alla tíð að vera hreinsaður
af þessum málum. Hann fékk aldr-
ei að lifa þann dag. Í dag berjumst
við fyrir heildaruppgjöri en ekki
sýndar réttarhöldum og sýknu með
einu pennastriki án alvöru réttar-
halda,“ segir Hafþór. – aá
Sævar Ciesielski fær nýjan verjanda
Pabbi barðist fyrir
því alla tíð að vera
hreinsaður af þessum
málum. Hann fékk aldrei
að lifa þann dag.
Hafþór Sævarsson, sonur Sævars
Ciesielskis
samgöNgur Fimm ríkisstofnanir
fá á næstu vikum afhenta sjö vel
útbúna Nissan Leaf-rafbíla frá BL
að undangengnu útboði hjá Ríkis-
kaupum. Kaupverð bifreiðanna sjö
er rúmar 25 milljónir króna en for-
svarsmenn Ríkiskaupa segja vaxandi
áhuga hjá stjórnendum og rekstrar-
aðilum ríkisstofnana að auka vægi
vistvænna bifreiða í þjónustu þeirra.
Halldór Sigurðsson, forstjóri
Ríkiskaupa, segir að Háskóli Íslands
muni kaupa þrjá bíla en ÁTVR,
Landbúnaðarháskóli Íslands, Nátt-
úrufræðistofnun og Tollstjóri einn
hver.
Aðspurður um kaupverðið segir
Halldór að tilboð BL hafi hljóðað
upp á 3.590.000 krónur fyrir hvern
bílanna sjö en hverjum þeirra fylgja
vetrar- og sumardekk, heima-
hleðslustöð og þriðji lykill. Ljóst er
að Ríkiskaup hafa náð hagstæðum
innkaupum á rafbílunum.
„Bifreiðarnar eru mjög vel búnar.
360 gráðu myndavél, sólarsella
í vindskeið, led-aðalljós, svartar
felgur, svartir speglar og svartar
rúður.“
Ný tegund Nissan Leaf-rafbíla,
með nýtt útlit, stærri rafhlöðu og
aukið drægi er væntanleg á mark-
að á næsta ári en Halldór segir að
bílarnir sem keyptir voru séu eldri
gerðin með 30 kWh rafhlöðu. Ríkis-
kaup segja kaup á vistvænni bif-
reiðum vera að aukast jafnt og þétt
hjá ríkisstofnunum en í dag eru um
4,5 prósent bifreiðaflota ríkisins
vistvænni bifreiðar á borð við raf-
magns- og hybrid-bifreiðar.
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri
Náttúrufræðistofnunar, segir raf-
bílinn koma til með að leysa af
Hyundai-smábíl sem starfsmenn
stofnunarinnar nota innanbæjar og
í styttri ferðir á höfuðborgarsvæð-
inu. Bifreiðin hafi sparað dýrar
ferðir til Reykjavíkur eftir að stofn-
unin flutti í Urriðaholt í Garða-
bæ. Jón Gunnar segir flestar aðrar
stofnanir nota leigubíla í sambæri-
legar ferðir, sem væri dýrari kostur
fyrir Náttúrufræðistofnun. Bif-
reiðin hafi verið komin á tíma og
því ákveðið að endurnýja.
„Rafmagnsbíll ætti að auka enn
á þennan sparnað í rekstri,“ segir
Jón Gunnar en segir enga ákvörðun
hafa verið tekna um endurnýjun á
jeppum stofnunarinnar sem báðir
séu komnir á tíma.
„Við viljum rafvæða ef það er
mögulegt.“ – smj
Fimm ríkisstofnanir rafbílavæðast fyrir 25 milljónir króna
Sjö Nissan Leaf-rafbílar munu bætast
við ríkisstofnanaflotann í byrjun
næsta árs. FréttabLaðið/Pjetur
2 1 . D e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m T u D a g u r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-9
7
6
4
1
E
9
3
-9
6
2
8
1
E
9
3
-9
4
E
C
1
E
9
3
-9
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K