Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 28
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Vandamálið
sem fjöl-
miðlar glíma
við er að
stjórnmálin
eru leikhús
þar sem
einlægni er
ekki metin að
verðleikum
Framleiðsla á kvikmyndum, myndböndum og sjón-varpsefni er umfangsmikil atvinnugrein hér á landi sem hefur víðtæk og jákvæð áhrif á samfélagið allt.
Það efni sem framleitt er styrkir stöðu tungumálsins
okkar, laðar erlenda ferðamenn til landsins og skapar
ótal störf og önnur verðmæti í samfélaginu. Velta í þess-
ari grein hugverkaiðnaðar nam tæplega 20 milljörðum
króna í fyrra og hefur hún aldrei áður verið meiri. Hefur
veltan í greininni fjórfaldast frá árinu 2010 og er saman-
lögð velta á tímabilinu 2009-2016 orðin tæplega 100
milljarðar króna.
Fjöldi ferðamanna sækir landið heim eftir að hafa
dáðst að íslenskri náttúru í alþjóðlegum kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum. Einn af hverjum sex erlendum
ferðamönnum sækir Ísland heim vegna alþjóðlegra
kvikmynda, heimildarmynda, sjónvarpsþátta og tón-
listarmyndbanda sem sýna íslenska náttúru, samkvæmt
könnun á ferðavenjum erlendra ferðamanna. Þessu til
viðbótar segja 4,4% að hugmyndin hafi vaknað við að
horfa á íslenskar kvikmyndir.
Það er því hægt að fullyrða að stór hluti þeirra erlendu
ferðamanna sem hingað koma gerir það vegna þeirrar
öflugu starfsemi sem hér er á þessum vettvangi hug-
verkaiðnaðar. Greinin skilar þannig talsvert meiru til
þjóðarbúsins en ofangreindar veltutölur einar bera með
sér og er þannig stór þáttur í gjaldeyrissköpun landsins,
hagvexti síðustu ára og atvinnusköpun.
Um síðustu áramót tók gildi breyting á lögum um
endurgreiðslu til kvikmyndagerðar og hækkaði endur-
greiðslan úr 20% í 25%. Það var mikil sátt á Alþingi um
afgreiðslu málsins og voru allir flokkar sammála um
mikilvægi þess. Einstök náttúra, íslenskt fagfólk með
reynslu og skattalegir hvatar skapa Íslandi sérstöðu
til að laða til sín erlend verkefni og ætti ekki að setja
hömlur á endurgreiðslurnar líkt og greint hefur verið
frá í fréttum. Þá ætti að stefna að því að auka enn frekar
framleiðslu á leiknu íslensku sjónvarpsefni. Þannig
ræktum við vörumerkið Ísland og aukum eftirspurn
eftir Íslandi og því sem frá landinu kemur.
Kvikmyndaiðnaður
ræktar vörumerkið Ísland
Sigurður
Hannesson
framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins
Fjöldi ferða-
manna sækir
landið heim
eftir að hafa
dáðst að
íslenskri
náttúru í
alþjóðlegum
kvikmyndum
og sjónvarps-
þáttum.
PREN
TU
N
.IS
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
PREN
TU
N
.IS
LAUFABRAUÐ
eftir norðlenskri uppskrift
................................................
Hægtað pantasteikt ogósteikt
Sigmundur á sælkeraslóðum
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Miðflokksins,
hefur flutt lögheimili sitt á
Aðalstræti 6 á Akureyri. Engum
sögum fer af því hvort Sig-
mundur hyggist búa í húsinu en
fari svo er hann, sem sælkeri,
vel í sveit settur þar sem hin
margrómaða ísbúð Brynju er
beint á móti húsinu. Rjómaís
er í uppáhaldi hjá honum ef
marka má viðtal við hann í
Fréttatímanum sáluga 2013.
Þá stakk Sigmundur upp á því
að komið yrði við í ísbúð áður
en ljósmyndari blaðsins ók
honum á Þingvelli fyrir for-
síðumyndatöku.
Hættir Davíð?
Þann 17. janúar á næsta ári
fagnar Davíð Oddsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, 70 ára afmæli
sínu. Á Morgunblaðinu er löng
og ófrávíkjanleg hefð fyrir
því að starfsfólk blaðsins láti
af störfum þegar það verður
sjötugt. Þannig hurfu ritstjór-
arnir Matthías Johannessen og
Styrmir Gunnarsson á braut
á þessum tímamótum. Þegar
Davíð er annars vegar gætu
þó önnur lögmál gilt. Auk
þess deilir hann afmælisdegi
með ekki ómerkari jöxlum
en boxaranum Muhammad
Ali og glæpaforingjanum Al
Capone þannig að ef til vill er
fullsnemmt að byrja að leita að
arftakanum.
thorarinn@frettabladid.is
Í október árið 1959 stóð Granada Television fyrir fyrirlestraröð í Guildhall í Lundúnum um upp-lýsingamiðlun. Bandaríkjamaðurinn Edward R. Murrow, sem var brautryðjandi á sviði sjónvarps-frétta, hélt þar erindi.
Í ræðu Murrows, sem bar heitið Sjónvarp og stjórn-
mál, sagði hann í lauslegri þýðingu: „Þegar stjórnmála-
menn kvarta undan því að sjónvarpið breyti starfsvett-
vangi þeirra í sirkus þá þarf að hafa hugfast að sirkusinn
var alltaf til staðar og sjónvarpið hefur aðeins sýnt fram á
að þeir sem þar koma fram eru ekki allir í góðri þjálfun.“
Allir sem starfa í sjónvarpi og á vettvangi fjölmiðla
almennt ættu að hafa sannleiksregluna í heiðri. Að
leitast við að hið sanna og rétta komi í ljós. Fjöl-
miðlar hafa fyrst og fremst skyldum að gegna gagnvart
lesendum og áhorfendum. Þeirra frumskylda er því að
komast að staðreyndum máls og greina frá þeim. Hver er
þá ábyrgð fjölmiðla sem birta pólitískar æsifréttir? Hver
er ábyrgð fjölmiðils sem birtir aðeins hluta úr ræðum
þar sem stjórnmálamenn voru yfirlýsingaglaðir eða
helltu úr skálum reiði sinnar? Dagskrárvaldið er vand-
meðfarið og sannleiksást margra vestrænna fjölmiðla
virðist stundum hafa kulnað í skugga markaðslögmál-
anna. Hjá þessum fjölmiðlum þurfa allar fréttir að hafa
afþreyingargildi. Hvað verður um skyldurnar gagnvart
sannleikanum þegar öll upplýsingamiðlun er matreidd
sem afþreying?
Vandamálið sem fjölmiðlar glíma við er að stjórn-
málin eru leikhús þar sem einlægni er ekki metin að
verðleikum. Stjórnmálamenn sem viðurkenna þekk-
ingarleysi í beinni útsendingu eru sjaldgæfir. Hvítir
hrafnar af þessu tagi eru samt yfirleitt fljótir að ávinna
sér traust kjósenda því kjósendur verðlauna heiðarleika.
Vandamálið snýst því í reynd aðeins um ótta. Væri lífið
ekki einfaldara ef stjórnmálamenn og við öll gætum
yfirstigið óttann og verið heiðarleg gagnvart því sem við
vitum og vitum ekki?
Bandaríski milljarðamæringurinn Ray Dalio lýsir lífs-
reglum sínum í bókinni Principles. Eitt af því sem Dalio
leggur höfuðáherslu á er að finna það sem er satt og rétt
í hverju máli. Öll sameiginleg viðfangsefni snúist um
þessa sannleiksleit. Dalio segir að í öllum fyrirtækjum
og stofnunum eigi menn stöðugt að spyrja sig spurninga
eins og „er þetta satt?“ og „hljómar þetta rökrétt?“. Dalio
segir að fólk eigi að vera á varðbergi gagnvart þeim sem
finnst neyðarlegt að vita ekki. Stjórnendur eigi ekki að
hafa áhyggjur af hvernig þeir komi sjálfir út, aðeins af
því sem er satt og rétt. Starfsmenn eigi að viðurkenna
eigið þekkingarleysi og það sé kostur því markmiðið sé
að komast að sannleikanum. Það sé aukaatriði hver eigi
sök á mistökum eða hver fái heiðurinn af góðu gengi því
það eina sem skipti máli sé hvað er rétt og rangt í hverju
máli.
Ef stjórnmálamenn myndu tileinka sér þessi vinnu-
brögð væri sirkusnum í sjónvarpinu sjálfhætt. Ekkert
framboð væri lengur af sýningum af því tagi sem reglu-
lega sjást og heyrast í ljósvakamiðlum og líklega meira
framboð af frjórri umræðu á grunni viðurkenndra
staðreynda.
Sirkusinn
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r28 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
SKOÐUN
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-8
8
9
4
1
E
9
3
-8
7
5
8
1
E
9
3
-8
6
1
C
1
E
9
3
-8
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K