Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 44
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Ég myndi lýsa mínum eigin fatastíl þannig að hann er alls konar og fer eftir skapi, veðri
og vindum. Einhver lýsti honum
sem klassískum en með smá tvisti
en ég fylgi oftast eigin innsæi,“ segir
Anna Hafberg hjúkrunarfræðingur
sem starfar hjá TM Software við
að þróa rafræna sjúkraskrárkerfið
Sögu.
Á enn 25-30 ára gamla skó
úr Evu
Aðspurð segist Anna helst kaupa
fötin sín á útsölum, hvar sem er.
Þegar hún er stödd í útlöndum lítur
hún gjarnan við í Cos og Uniqlo og
skoðar hvað þar er í boði. „Cos er
eftirlætisverslunin mín í útlöndum
en hér heima reyni ég að eignast
það sem íslenskir hönnuðir eru að
gera. Uppáhaldsbuxurnar mínar
eru frá Jónu Maríu og ég á topp frá
Ræmunni, sem ég held mikið upp
á. Maður á náttúrlega að versla í
heimabyggð. Annars á ég föt mjög
lengi, svo ég tali nú ekki um skó. Ég
á til dæmis enn þá skó sem keyptir
voru fyrir 25-30 árum í Evu, sem
þá var og hét. Síðan hef ég verið
svo heppin að fallegustu fötin mín
hafa verið sérsaumuð á mig, bæði af
mömmu sem saumaði á mig öll föt
í upphafi og langt fram eftir aldri,
og Petru Jónsdóttur skraddara sem
saumaði til dæmis brúðarkjólinn
minn,“ segir hún.
Gamla flauelsdragtin aftur í
tísku
Hvaða föt eru í mestu uppáhaldi
hjá þér? „Þægileg föt eru í mestu
uppáhaldi hjá mér. Ég á til dæmis
svartan kjól sem ég fékk hjá Rakel
Hafberg, bróðurdóttur minni, og ég
nota hann mikið við ýmis tilefni.
Hann er mjög hlýr og því hentar vel
að klæðast honum þegar ég syng í
köldum kirkjum, en ég syng með
Dómkirkjukórnum. Ég get ekki
undanskilið flauelsdragt sem var
saumuð á mig um árið, hún kemur
aftur og aftur í tísku. Ég gæti haldið
endalaust áfram og held mögulega
að allt í fataskápnum sé í uppá-
haldi.“
Anna notar fylgihluti ekki mikið,
fyrir utan eyrnalokka dagsdaglega.
„Ég bý vel að því að eiga listrænt
fólk að, pabbi, bróðir minn og
bróðurdóttir hafa öll gert þá hluti
sem ég nota mest spari.“
Hrífst af fólki með eigin stíl
Hvað tískufyrirmynd varðar segist
Anna helst hrífast af fólki sem
fylgir sínum eigin stíl og hleypur
ekki á eftir öllum nýjustu tísku-
straumum. Þegar hún er spurð út
í bestu og verstu fatakaupin segir
hún að bestu kaupin séu klárlega
fyrrnefndur ullarkjóll frá Rakel
Hafberg, enda noti hún hann mikið
bæði fínt og hversdags. „Allir skórn-
ir mínir eru bestu kaup, mögulega
eru einhver skókaup þau verstu ef
þeir hafa ekki verið þægilegir. Ann-
ars hafa hlutir tilhneigingu til að
verða verstu kaup þegar þeir detta
alfarið úr tísku. Það var erfitt að eiga
föt frá 9. áratugnum lengi, axlapúð-
arnir eltust ekki vel og erfitt að nota
fötin þótt þeir væru teknir úr.“
Skósafnið í uppáhaldi
Finnst þér gaman að klæða þig upp
á? „Já, en ég geri allt of lítið af því.
Það virðast vera æ færri tækifæri til
þess. Hér áður fyrr átti ég það til að
klæða mig upp á bara fyrir bíóferð,
nú fer maður varla í bíó. En ég sæki
tónleika af töluverðum móð og
reyni þá að skipta allavega um föt.“
Hvaða flík gætir þú ekki verið
án? „Ég er að reyna að aftengja mig
fötum á þann hátt. Í raun þarf ég
bara hlý föt á veturna og léttari um
sumar, en vissulega gengur verr að
losa sig við sumt en annað. Ætli
ég nefni ekki bara skósafnið sem
uppáhalds.“
Færðu þér nýja flík fyrir veturinn
eða sumarið? „Ég fæ mér reglulega
eitthvað nýtt, já, ætli það sé ekki
óhætt að segja það og jafnvel flík
eða tvær þar á milli.“
Tímalaust með tvisti
„Buxurnar eru keyptar í steikjandi hita í Curacao, merkið heitir Bamali. Blúndutoppur er frá Evuklæðum, keyptur í Ræmunni í Kópavoginum. Kápan er keypt í
Cos, eftir að hafa séða hana í einu landi en ekki keypt, séð eftir því og hún keypt í næstu ferð til London, kennir manni að kaupa strax.“ MYNDIR/ANTON BRINK
„Silfrið er gert af pabba mínum og elsta bróður, heimasmíð. Eggið og eyrna-
lokkarnir er Smyrilvarpið, nota það endalaust,“ segir Anna.
Ullarkjóllinn er frá Rakel Hafberg.
Anna Hafberg
fylgir eigin inn-
sæi þegar kemur
að tísku. Hún er
þekkt fyrir klass-
ískan stíl með
smá tvisti og kýs
að kaupa föt í
heimabyggð.
Allir skórnir mínir
eru bestu kaup,
mögulega eru einhver
kaup þau verstu ef þeir
hafa ekki verið þægilegir.
Annars hafa hlutir til-
hneigingu til að verða
verstu kaup þegar þeir
detta alfarið úr tísku.
þeir væru teknir úr.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-C
8
C
4
1
E
9
3
-C
7
8
8
1
E
9
3
-C
6
4
C
1
E
9
3
-C
5
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K