Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 72
Í rauninni vorum við bara tvo daga í upptökum, þriðji dagurinn fór í að hlusta og láta taka af okkur myndir,“ segir Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari um upptöku
ferli hins nýja disks hans og Eyþórs
Gunnarssonar píanista, Innst inni.
Segir þá reyndar hafa hist áður en
upptökur hófust til að fara yfir efnið.
„Við vorum komnir með lögin nokk
urn veginn í puttana, lokuðum svo
bara augunum, læstum bílskúrnum
hans Eyþórs og hurfum inn í okkur
– heyrðum bara rödd hvor annars
og svöruðum henni. Það var enginn
upptökumaður, bara við tveir. Eyþór
ýtti á takkann.“
Tómas tekur fram að eitt grund
vallaratriði gildi við allar upptökur,
það sé andinn. „Við kunnum þetta
sem við erum að gera en öllu skiptir
hvernig hugarástandið er. En Eyþór
bjó til gott kaffi, ég kom með gott
bakkelsi og við byrjuðum dagana
mjög jákvæðir.“
Tónsmíðarnar á Innst inni eru
ballöður eftir Tómas og það var
hann sem átti frumkvæðið að plöt
unni. Samstarf hans og Eyþórs er
heldur ekki nýtt af nálinni. „Eyþór
er búinn að spila á meira en tíu
plötum sem ég hef gefið út með
minni músík,“ segir hann og rifjar
upp fyrstu kynnin árið 1981. „Þetta
var í Brautarholtinu. Tónlistarskóli
FÍH var nýstofnaður og tekinn þar
til starfa. Ég stóð þarna með minn
fyrsta kontrabassa og við flygilinn
sat einn af strákunum í Mezzoforte,
Eyþór, við spiluðum saman eitt, tvö
lög, eitthvað svoleiðis, og ég man
hvað það var mikil sveifla í spilinu
hjá honum. Jesús minn, hugsaði ég,
án þess að segja neitt.“
Á þessum tíma kveðst Tómas
hafa verið í hljómsveitinni Nýja
kompaníið og á níunda áratugnum
hafi þeir oft spilað saman, hann og
Mezzofortestrákarnir, þeir Eyþór,
Gunnlaugur Briem og Friðrik Karls
son, auk Sigurðar Flosasonar og
Rúnars Georgssonar, meðal annars
á plötu sem kom út 1985 og hét Þessi
ófétis djass, sem innihélt aðallega
músík Tómasar. „Svo komu mínar
plötur hver af annarri og ég hringdi
alltaf af og til í Eyþór. Ég hef aldrei
verið svikinn af hans spili.“
Tómas segir Eyþór hafa gefið sér
sjálfstraust sem lagasmið, hann hafi
verið svo glúrinn að spila hljóma.
„Ég samdi lög sem voru með dálítið
nútímalegri hljómum en áður tíðk
uðust í djassinum hér, og þeim sem
eldri voru gekk misvel að spila þau.
Svo hljómuðu þau eins og dýrðin
sjálf þegar Eyþór var við hljóðfærið.“
Og áfram heldur Tómas að hæla
Eyþóri, sem fer örugglega hjá sér
þegar hann les þetta!
„Eyþór hefur alltaf spilað vel á
mínum plötum en oftar en ekki
átt glæsilegustu tilþrifin í rólegum
lögum, ballöðum, eins og eru á ferð
inni á nýja diskinum. Eyþór hefur
stundum kallað sig rómantískan
töffara. Ég hugsa að það fari nærri
lagi. Ég skil hans línur, þær eru rök
Lokuðum augunum og læstum okkur inni
Þeir Tómas R. og Eyþór Gunnarsson stilla sér upp utan við bílskúrinn hjá Tómasi. Mynd/BalduR KRisTjánsson
Þeir Tómas R.
Einarsson og Eyþór
Gunnarsson hafa
þekkst í 36 ár og
á þeim tíma tekið
marga spretti á
tónlistarvellinum.
Nýlega tóku þeir
upp ballöðudisk
á þremur dögum.
Hann heitir Innst
inni. Þar eru ellefu
lög eftir Tómas.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
Bækur
Saga Ástu
HHHHH
Höfundur: Jón Kalman Stefánsson
Útgefandi: Benedikt
Prentun: Bookwell, Finnlandi
síðufjöldi: 443
Kápuhönnun: Jón Ásgeir
Saga Ástu, tólfta skáldsaga Jóns
Kalmans Stefánssonar, fjallar ekki
aðeins um eina konu heldur er
um að ræða sögu heillar ættar og
fólksins sem sveimar í kringum
hana. Vissulega er Ásta þó burðar
ásinn og saga hennar er rakin
með ýmsum hliðarsporum frá
fyrsta andardrætti og þar til hún
situr ein í sinni íbúð, fullorðin
konan, og skrifar bréf til þess sem
hún elskar. Inn í þá sögu fléttast
dramatísk saga foreldra hennar,
föðurbróður, systur, stjúpmóður
og fleira fólks sem allt tekst á ein
hvern hátt við það að elska – jafn
vel aðeins of mikið – og leita sér að
stað í þessum heimi.
Sögumaðurinn hefur sterka nær
veru og er raunar ein af persónum
bókarinnar um leið og hann semur
söguna og segir frá því hvernig
gengur við skriftirnar, en hann
viðurkennir fúslega að hafa ekki
fullkomin tök á frásögninni. Óhjá
kvæmilega tengir lesandi sögu
mann við söguhöfund og finnst
jafnvel að þessi sama rödd hafi
heyrst í fyrri bókum hans. Þegar
líður á lesturinn vaknar svo grunur
– sem síðar breytist í fullvissu – um
að sögumaður tengist persónum
þessarar bókum sterkum böndum.
Saga Ástu er sumpart bók um
eigin tilvist. Sjónarhornið er ávallt
hjá sögumanninum en hann færir
sig frá einni persónu til annarrar,
frá einum tíma til annars, og alls
ekki í línulegri röð. Hann stekkur
fram og til baka, stundum að því
er virðist tilviljanakennt, og það
kemur fyrir að lesandinn áttar sig
ekki á því um leið hjá hvaða per
sónu hann hefur staldrað við í hvert
skiptið. Þó svo sögumaður dvelji
aldrei lengi í einu við hverja og eina
persónu, eru þær dregnar skýrum
dráttum. Öllu heldur:
Aðgreinandi dráttum. Ásta
er til að mynda ákaflega
þokukennd persóna, per
sóna sem erfitt er að henda
reiður á – rétt eins og Helga
móðir hennar sem ung
sneri baki við eiginmanni
sínum, Ástu sjálfri og systur
hennar. Aðrar persónur eru
frá upphafi skýrari, svo sem
Sigvaldi, faðir Ástu, sem er
salt jarðar, jarðbundinn
og vinnusamur og á þar af
leiðandi afskaplega erfitt
með að skilja kviklynda
fyrri eiginkonu sína og
fiðrildið sem dóttir hans
er og hvað þá þær byrðar
sem svo þungt hvíla á
þeim.
Hraðinn og takturinn í
sjálfum textanum greinir
líka persónur að. Yfir köfl
unum sem fjalla um Sig
valda er einhver andans
ró – texti þar sem hægt
er að draga andann djúpt
og lesa í ró og næði. Jafn
vel þótt hann liggi milli
heims og helju fyrir neðan
stigann sem hann datt úr.
Yfir köflunum sem fjalla
um Helgu og Ástu er meiri
ókyrrð og óvissa og það er
sömuleiðis eins og sögu
maður sé ekki jafn öruggur
með sjálfan sig með þeim
og öðrum persónum. Þess
ari ókyrrð er komið til skila
með því að skipta snöggt
á milli, hætta við, fara til
baka, stökkva áfram, sem
og orðavali og stíl.
Sagan gerist að stórum
hluta í Noregi og Reykjavík
en þegar við færum okkur
út á land, á sveitabæ sem
liggur við að nái út fyrir
endimörk þessa heims, er
eins og annar andi færist
yfir söguna – og sjálfa Ástu
líka, þótt hún þurfi til þess
vissan aðlög unar tíma. Þá
hægist takturinn svo um
munar enda liggur við að
tíminn standi kyrr á stað sem
er svona fjarri öllu og öllum.
Þegar hjartað missir taktinn
2 1 . d e S e m B e r 2 0 1 7 F I m m T u d A G u r56 m e n n I n G ∙ F r É T T A B L A ð I ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-A
1
4
4
1
E
9
3
-A
0
0
8
1
E
9
3
-9
E
C
C
1
E
9
3
-9
D
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K