Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 90
Þetta er hreyfing þar sem áherslan er lögð á meiri sjálfsást og sjálfsmildi í samfélaginu. Andagift mun opna súkkilaðisetur í janúar á Rauðar
árstíg. Þar munum við vera með
rými þar sem verða opnir tímar fyrir
hugleiðslu, tónheilun, sere móníur og
alls konar gúmmelaði,“ segir Tinna
Sverrisdóttir, tónlistar og leikkona.
Tinna og Lára Rúnarsdóttir tón
listarkona hafa stofnað hreyfinguna
Andagift og vinna að opnun súkku
laðiseturs 11. janúar, en hægt er
að leggja þeim lið við opnunina í
gegnum Karolina Fund.
Blaðamaður hefur ekki heyrt um
súkkilaðiseremóníur og spyr því í
einfeldni sinni hvort um sé að ræða
trúarsamtök eða einhvers konar költ.
„Nei, alls ekki,“ svarar Tinna hlæj
andi, „þetta kemur upprunalega
frá Mayaindjánum í Gvatemala og
hefur verið notað í þúsundir ára til
að tengjast hjartanu og dýpka hug
leiðslu. Þannig að þetta verður í raun
og veru andlegt setur, fyrir hvern
þann sem vill koma og taka sér stund
frá amstri dagsins, aðeins staldra við
og vera með sjálfum sér.“
En kakóið, hvernig virkar það?
„Kakóið sem við erum að nota er
hundrað prósent hreint kakó frá
regnskógum Gvatemala. Eins og ég
segi hefur þetta verið notað þar í
margar aldir en er nú farið að breið
ast út og er notað víða. Súkkulaðið
er mjög kraftmikið og næringarríkt
og hefur meðal annars hæsta magn
esíuminnihald allra plantna. Svo að
ef þú drekkur einn bolla af hreinu
kakói hjálpar það til við að slaka á
þreyttum og spenntum vöðvum og
leiðir okkur því greiðar inn í djúp
slökun.
Sannað hefur verið að hugleiðsla
og djúpslökun eru ein okkar bestu
ráð til að sigrast á streitu. Súkkulaðið
eykur einnig blóðflæði til heilans
og vöðva sem styrkir fókus okkar
og úthald. Svo það stuðlar bæði að
líkamlegri og andlegri vellíðan.“
Tinna segir súkkulaðið vera sann
kallaða ofurfæðu og að vakning hafi
átt sér stað á síðustu árum um mátt
þess.
„Það er svolítið fyndið að vinna
með súkkulaði að því leyti að við
þekkjum það öll úr okkar daglega
lífi, við fáum okkur Nóa Kropp og
svona til að gera vel við okkur en
staðreyndin er sú að margt súkkulaði
er stútfullt af sykri, mjólk og öðrum
aukaefnum og eftir situr aðeins lítið
magn af raunverulegu súkkulaði. Því
er meginmunurinn að súkkulaðið
sem við notum er hreint og óunnið
og þannig helst næringarinnihald
plöntunnar óskert.
Við höfum verið að vinna í
einkaseremóníum með fólki sem er
að kljást við kvíða og þunglyndi og
höfum séð mikinn árangur. Ástæðan
er sú að súkkulaðið eykur endorfín
framleiðslu og kemur jafnvægi á
hormónaframleiðsluna.
Margir kannast líklega við að fá
sér súkkulaði til að líða betur. Þarna
kemur útskýringin. Svo það er alveg
magnað að vinna með súkkulaðið
samhliða andlegri iðkun og sjá hvað
það hjálpar mörgum að gæða sér
á ilmandi bolla áður en slakað er á
huga og líkama.“
Sagan bak við Andagift hófst með
því að Tinna fór í nám til Gvatemala
í febrúar síðastliðnum. Um var að
ræða hálfgerða skyndiákvörðun
eftir að Tinna hafði sjálf farið í súkku
laðiseremóníu hér á landi.
„Ég hætti í vinnunni minni, keypti
flug og fór út. Það var alveg magnað.
Þetta voru tveir mánuðir þar sem
ég var að læra um kakóplöntuna
og hvernig á að vinna með hana,
tónheilun og hugleiðslu. Þannig að
í raun og veru er þetta ein tegund
af jóga en það eru margir vinklar á
því – því jóga er ekki bara stöðurnar
og flæðið. Við vinnum með að nota
bæði röddina og hljóðfæri til þess að
leiða fólk inn djúpa slökun og djúpa
heilun. Það er margsannað að ef þú
notar ákveðin hljóð og hreina tóna
hefur það áhrif á taugakerfið okkar
og innkirtlakerfið.“
Eftir að Tinna kom heim fóru
þær Lára að vinna saman og héldu
seremóníu þangað sem mættu sex
tíu manns. Hún segir að sérstaklega
í ljósi allra þeirra byltinga sem eigi
sér stað um þessar mundir – #metoo,
#égerekkitabú, #höfumhátt – finni
hún fyrir mikilli eftirspurn eftir rými
þar sem fólk getur slakað á frá amstri
hversdagsins og gefið sér stund til að
anda djúpt og tengjast inn á við.
Þær vinna líka með námskeið
– Lára hefur verið með kvíða
stjórnunar námskeið fyrir unglinga
og Tinna hefur verið með námskeið
fyrir ungt fólk, sérstaklega stelpur, til
að auka sjálfstraust í listsköpun en sú
vinna hófst þegar hún starfaði með
Reykjavíkurdætrum. Tinna segir
súkkulaðisetrið munu nýtast öllum
þeim sem vilja gefa sér stundar frið í
amstri dagsins.
stefanthor@frettabladid.is
Súkkulaðisetur í miðbænum
Súkkulaðiðsetrið verður opnað á Rauðarárstíg í janúar. Þar verður hægt að slaka reglulega vel á. FRéttablaðið/anton bRink
Ég hætti í vinnunni
minni, keypti flug
og fór út. Það var alveg
magnað. Þetta voru tveir
mánuðir Þar Sem Ég var að
læra um kakóplöntuna og
hvernig á að vinna með
hana, tónheilun og hug-
leiðSlu.
Þær tinna Sverris-
dóttir og lára
rúnarsdóttir hafa
stofnað Andagift,
hreyfingu með
áherslu á að auka
sjálfsást og sjálfsmildi
í samfélaginu. Þær
nota mátt súkku-
laðis til að komast að
þessu marki sínu, en
Tinna lærði allt um
hann í Gvatemala.
KRINGLAN / SMÁRALIND
JÓLAGJÖFIN
HENNAR FÆST
Í VERO MODA
Bali kjóll
4.990 kr.
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r74 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-9
2
7
4
1
E
9
3
-9
1
3
8
1
E
9
3
-8
F
F
C
1
E
9
3
-8
E
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K