Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 12

Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 STERKIR OG GÓÐIR POTTAR Á ALLAR TEGUNDIR ELDAVÉLA Ljósmynd/Egill Sigurðsson Kattavinur Myndin, sem birtist í Vikunni 1972, var tekin á heimili dóttur Guðrúnar þar sem alltaf voru kettir. Guðrún var mjög hrifin af dýrum alla tíð og fannst erfitt að kveðja skepurnar þegar hún fluttist á Krókinn 1939. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Ævintýralegar vinsældirGuðrúnar frá Lundibreyttu engu um aðíslenska bókmennta- elítan og háskólasamfélagið fitjuðu upp á nefið og flokkuðu bækur henn- ar með erlendum afþreyingarbók- menntum og reyfararusli. Vel að merkja – ef á annað borð var látið svo lítið að minnast á þær í opinberri um- ræðu. Ástarvellur, kaffibollaþvaður og guðmávita hvaða lýsingar lærðir menn viðhöfðu um metsölubækur þessarar rosknu og hógværu sveita- konu, sem kvaðst einungis skrifa sér til ánægju. Í viðtölum síðar meir þeg- ar stór hluti þjóðarinnar las allt sem frá henni kom af fádæma áfergju, baðst hún hálfpartinn afsökunar á því að skrifa svona mikið, en sagði að sér þætti afskaplega vænt um áhuga les- enda. „Gagnrýnisraddirnar voru sér- staklega háværar á 7. og 8. áratug lið- innar aldar. Fyrstu tíu árin eða svo eftir að Dalalíf í fimm bindum, Af- dalabarn og Tengdadóttirin í þremur bindum, höfðu komið út, var ekki mikið amast við henni. Fyrstu dómar voru jákvæðir og allir hældu henni fyrir sagnagáfu og persónusköpun,“ segir langömmubarn skáldkonunnar, Marín Guðrún Hrafnsdóttir bók- menntafræðingur, sem ásamt Krist- ínu Sigurrós Einarsdóttur, leiðsögu- manni og kennara, hafði veg og vanda af sýningunni Kona á skjön - Sýning um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi, sem opnuð verður í dag, 3. júní, á Sauðárkróki, en þá eru 130 ár frá fæðingu skáldkonunnar. Boðið í eldhússkrókinn Þær stöllur hafa undirbúið sýn- inguna um eins árs skeið og víða leit- að fanga, en hún er hluti af lokaverk- efni Marínar Guðrúnar í hagnýtri menningarmiðlun í Háskóla Íslands. „Við segjum sögu Guðrúnar á 19 textaspjöldum, sem við gerum okkur far um að setja fram á skemmtilegan hátt þannig að frásögnin höfði bæði til þeirra sem þekkja verk Guðrúnar og sögu og hinna sem minna vita. Mesti galdurinn var velja úr öllum þeim heimildum sem við höfðum úr að moða. Töluvert hefur varðveist af persónulegum munum Guðrúnar, til dæmis sauðskinnsskór, saumavél, skyrta og svunta við peysuföt, sem því miður eru glötuð. Einnig hvers- dagslegir hlutir eins og kaffikanna og -bollar, útsaumaðir dúkar og þvíum- líkt sem við fengum að láni hjá barna- börnum hennar, Byggðasafni Skaga- fjarðar og fleiri söfnum fyrir norðan,“ segir Marín Guðrún. Sjálf lagði hún til fjaðurpenna langömmu sinnar, sem hún fékk að gjöf frá ömmu sinni, dóttur Guð- rúnar, fyrir margt löngu. „Guðrún var reyndar þekkt fyrir að skrifa með blýanti sem hún nýtti upp til agna. Fjaðurpennann notaði hún allra fyrst þegar hún hóf að skrifa, en þau hand- rit eru týnd. Gamlar ljósmyndir og munir úr eigu Guðrúnar gerðu okkur svo kleift að útbúa stofu og eldhús- krók í sýningarrýminu í líkingu við heimili hennar á Sauðárkróki.“ Þá verða á sýningunni lifandi myndir; sjónvarpsviðtal við skáldkon- una frá 1972 og upplestrar úr bókum hennar í útvarpinu. Sýningarhöf- undar hafa um nokkurra ára skeið haldið námskeið og verið með fyrir- lestra um ævi og störf skáldkon- unnar. „Við kynntumst þegar Kristín Sigurrós bauð okkur ættingjunum í fyrstu rútuferðina sem hún efndi til á söguslóðir Guðrúnar; um Fljótin, út á Skaga og um Sauðárkrók. Báðar er- um við mjög áhugasamar um að halda minningu hennar á lofti og rétta hennar hlut,“ segir Marín Guðrún og víkur talinu aftur að langömmu sinni og arfleifð hennar: Metsöluhöfundur í áratugi „Ég var sjö ára þegar hún lést og man lítið eftir henni að öðru leyti en því að hún kom mér fyrir sjónir sem sú hægláta og þægilega kona sem hún var. Guðrún var 52ja ára þegar hún og maður hennar, Jón Þor- finnsson, brugðu búi og fluttust til Sauðárkróks. Börnin þrjú voru flogin úr hreiðrinu, Jón mikið að heiman við smíðavinnu og því fékk hún loks næði til að skrifa. Mig grunar að hjá henni hafi kviknað draumur um útgáfu þeg- ar frændi hennar, heildsali í Reykja- vík, spurði hvort hann mætti fara með eitt handritið til útgefanda. Handritið flakkaði milli forlaga í nokkur ár, en loks birtist Afdalabarn sem framhaldssaga í Nýju kvenna- blaði við miklar vinsældir. Þegar þar var komið sögu afréð Gunnar Ein- arsson hjá Leiftri, stofnandi Ísafold- arprentsmiðju, að gefa út Dalalíf á ár- unum 1946-1951, og Afdalabarn 1950.“ Þessar bækur og allar bækur Guðrúnar næstu árin nutu þvílíkra vin- sælda að annað eins hafði ekki þekkst. Guðrún var ekki einnar eða tveggja bóka höfundur heldur naut hún met- vinsælda samfellt í tvo áratugi. Bæk- urnar voru efstar á lista hvort sem litið var til sölu eða útlána í bókasöfnum. „Smám saman spunnust umræður um að menningu þjóðarinnar færi hnign- andi, þjóðin lægi bara í léttvægum sveitasögum og hefði ekki lengur áhuga á að lesa gömlu þjóðskáldin eða nýju, framúrstefnuskáldin sem veltu sér upp úr síðari heimsstyrjöldinni og öllu því Metsöluhöfundur sem baðst afsökunar á vinsældum sínum Þegar bókmenntaelítunni og háskólasamfélaginu þótti vinsældir Guðrúnar frá Lundi keyra um þverbak upphófust harmakvein um meinta menningarhnignun þjóðarinnar, sem læsi gamla sveitarómana sér til óbóta. Talað var um „kell- ingabókmenntir“, reyfararusl og þar fram eftir götunum. Upp úr aldamótum fór skáldkonan smám saman að fá uppreisn æru í bókmenntalegu tilliti. Ný Guð- rúnar-bylgja gekk í garð og í dag, 3. júní, þegar 130 ár eru frá fæðingu hennar, opna þær Marín Guðrún Hrafnsdóttir og Kristín Sigurrós Einarsdóttir sýn- inguna Kona á skjön um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi. Fuglavernd býður upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa á morgun, sunnu- daginn 4. júní. Leiðsögumaður að þessu sinni verður Hlynur Óskarsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Ís- lands og forsvarsmaður Votlendisset- urs Íslands. Fuglaskoðunin hefst klukkan 17:00 við fuglaskoðunarskýlið sem er við bílastæðið í Friðlandinu. Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalífið er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma en nærri 25 tegundir verpa þar að staðaldri. Fugl ársins 2017, lómurinn, er ein- kennisfugl svæðisins. Mikilvægt er að vera í stígvélum eða nær vatnsheldum skóm því frekar blautt er á svæðinu. Munið eftir sjónaukanum og einnig er gaman að hafa með sér handbók um fugla. Allir velkomnir og ókeypis aðgang- ur. Vefsíðan fuglavernd.is Fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa Morgunblaðið/Ómar Fugl ársins 2017 Fuglavernd valdi lóminn sem fugl ársins 2017. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.