Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Því lengur sem ég bý úti því meira
hugsa ég heim,“ segir Inga Lísa
Middleton, ljósmyndari og kvik-
myndagerðarkona, um ljósmynda-
sýningu sína, Hugsað heim, sem
opnuð verður í Þjóðminjasafninu í
dag, laugardaginn 3. júní.
Inga Lísa er með mastersgráðu í
ljósmyndun frá The Royal College
of Art í London og hefur búið lengi
þar í borg. Hún segir heimþrána og
nostalgíuna aukast með tímanum
og að þaðan komi hugmyndin að
sýningunni.
„Ég syng líka í íslenska kórnum
hér í London og við syngjum mikið
af ættjarðarlögum, sem magnar til-
finninguna,“ segir Inga Lísa en
hún kemur reglulega til landsins til
að taka myndir og vinna að öðrum
verkefnum.
Notar aðferð fyrsta ljósritsins
Inga Lísa fór að gera tilraunir
með Cyanotype-tæknina sem fund-
in var upp af breska vísindamann-
inum og stjörnufræðingnum John
Herschel árið 1842. „Þetta er eigin-
lega fyrsta ljósritið. Hann notaði
sólarljósið til að fjölfalda skrif sín,“
segir Inga Lísa og kveðst nota
þessa gömlu aðferð til að vinna
ljósmyndirnar á sýningunni. Að-
ferðinni lýsir hún þannig að hún
málar ljósnæma upplausn eftir
uppskrift Herschel á vatnslita-
pappír og leggur svo negatívu á
flötinn. Hún segir sólarljósið upp-
haflega hafa verið notað til að
framkalla myndirnar en sjálf noti
hún útfjólubláa lampa því ekki sé
stanslaus sól í London.
Gaman að prenta í höndunum
„Við gerum svo mikið í tölvunni
svo það er rosalega gaman að
prenta svona í höndunum,“ segir
Inga Lísa. Að lokum segist hún
skola myndirnar í vatni þannig að
blái cyan-liturinn birtist. „Mér
fannst þetta vera einskonar nostal-
gíulitur eða Íslandsblús. Ljós
hérna heima er líka svolítið hart og
blátt svo mér fannst þetta smell-
passa.“
Inga Lísa segir sýninguna hafa
verið svolítið á flakki, en hún var í
sendiráði Íslands í London í fyrra
og nú er hún í íslenska sendiráðinu
í Kaupmannahöfn. „Sýningarnar
eru settar upp á mismunandi hátt
en þó alltaf með sama þema,“ segir
hún, en sýningin verður í Þjóð-
minjasafninu fram á haust.
Táknmyndir fyrir Ísland
„Myndirnar eru einskonar tákn-
myndir fyrir Ísland. Hver ljós-
mynd hefur tvennskonar merk-
ingu, ljóðræna og praktíska.
Fossarnir eru tignarlegir og ljóð-
rænir en svo eru þeir líka orku-
gjafi. Hvönnin minnir mann á lykt
og græna lit íslenska sumarsins en
hún er líka lækningajurt,“ segir
Inga Lísa um þema sýningarinnar.
Hún segir það mikinn heiður að
fá að sýna í Þjóðminjasafninu og að
sér þyki gaman að fleiri sýningar
með sama þema séu á safninu á
sama tíma, en ljósmyndasýningin
Fuglarnir, fjörðurinn og landið eft-
ir Björn Björnsson verður einnig
opnuð í dag, laugardag.
Þegar Inga Lísa er spurð að því
hvort hún fari ekki bara að flytja
heim til Íslands segist hún ekki sjá
það fyrir sér í náinni framtíð. „Ef
ég byggi hérna heima á Íslandi
hefði ég sjálfsagt ekki gert svona
myndir. Fjarlægðin gerir fjöllin
blá,“ segir hún að lokum.
Fjarlægðin gerir fjöllin blá
Morgunblaðið/Ófeigur
Táknmyndir Inga Lísa Middleton við verk sín á vegg Ljósmyndasalar Þjóðminjasafnsins.
Inga Lísa Middleton opnar ljósmyndasýningu í Þjóðminjasafninu Notast við Cyanotype-tækni
við framköllun sem gerir myndirnar bláar Hún segir heimþrána aukast með tímanum
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Sviðslistahópurinn Ást og karókí
setur upp verkið Sýning um glímu
og Slazenger í húsnæðiLeikfélags
Kópavogs, í kvöld og á mánudag
kl. 20 bæði kvöld. Þetta er önnur
sýning hópsins sem skipaður er
Adolf Smára Unnarssyni, Birni
Jóni Sigurðssyni, Friðriki Mar-
grétar-Guðmundssyni, Matthíasi
Tryggva Haraldssyni og Stefáni
Ingvari Vigfússyni. Fyrsta verk
þeirra var Sýning um ást og karókí
og kemur nafnið á hópnum þaðan.
Sýningin er unnin í samsköpun og
því eru þeir allir höfundar og leik-
stjórar.
Há sjálfsmorðstíðni
„Í verkinu glímum við við skað-
lega karlmennsku og hefðbundnar
staðalímyndir karlmennskunnar og
hvaða áhrif þetta tvennt hefur á
geðheilsu ungra karlmanna,“ segir
Stefán og bætir við að þeir vinni
þetta meðal annars í ljósi hárrar
sjálfsmorðstíðni hjá körlum á aldr-
inum 18 til 35 ára.
Hann segir að í þessari rann-
sókn sinni hafi þeir skoðað ör-
mögnun sem komi meðal annars út
frá áhuga þeirra á kenningum Ant-
onin Artaud um grimmdarleikhús.
„Pælingin er sú að eina leiðin til
þess að til verði heiðarlegt sam-
band á milli áhorfanda og flytjanda
sé sú að flytjandinn þurfi að vera
búinn að ganga í gegnum eitthvað
líkamlega erfitt eða sársaukafullt.“
Glíman erkitýpa
íslenskra íþrótta
Um nafnið á verkinu segir hann
að þeir hafi skoðað íþróttir og
tengt þær við væntingarnar sem
gerðar eru til karlmanna og að
glíma sé einskonar erkitýpa ís-
lenskra íþrótta. „Orðið glíma hefur
líka merkingu út af fyrir sig burt-
séð frá íþróttum. Það er þessi
glíma við hugmyndirnar sem við
erum að díla við,“ segir Stefán.
Hvað varðar íþróttamerkið Slaz-
enger vill Stefán að það komi fram
að þeir hafi ekki fengið „spons“ frá
merkinu, heldur séu þeir einfald-
lega hrifnir af merkinu. „Það hitti
svoleiðis á að við vorum með „bud-
get“ fyrir búningum þegar við fór-
um í Sports Direct. Við gátum
keypt heilgalla, skó, boli og brúsa
frá Slazenger fyrir okkur alla
fimm undir „budgeti“. Þetta er frá-
bært vörumerki.“ Miða má panta
með því að senda póst á: stef-
an.vigfusson@gmail.com. Allar
nánari upplýsingar eru á Face-
book-síðu sem samnefnd er sýn-
ingunni.
Glíma við skaðlegar
ímyndir karlmennsku
Leikhópurinn Ást og karókí skoðar hvaða áhrif
staðalímyndir karlmanna hafa á geðheilsu þeirra
Ljósmynd/Aron Martin Ágústsson
Íþróttagallar Strákanir í Ást og karókí æfa sig fyrir sýninguna.
Þjóðhátíðarlagið í ár verður
samið og flutt af Ragnhildi
Gísladóttur við texta Braga
Valdimars Skúlasonar. Bræð-
urnir Logi Pedro og Unnsteinn
Manuel Stefánssynir sjá um
upptöku á laginu og verður það
frumflutt eftir viku, föstudag-
inn 9. júní.
Ragga Gísla bætist með þessu
í hóp þeirra tónlistarmanna
sem fram koma á Þjóðhátíð í
Eyjum, en þeirra á meðal eru
Emmsjé Gauti, Friðrik Dór, Ar-
on Can, Páll Óskar, Hildur,
Skítamórall og Herra Hnetu-
smjör.
Ragga semur og flytur Þjóðhátíðarlagið
Morgunblaðið/Golli
Á Þjóðhátíð Ragnhildur Gísladóttir.
SÝND KL. 8, 10.20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 2, 4, 6
SÝND KL. 8, 10.30
SÝND KL. 4.30
ÍSL. TAL
ÍSL. TAL
SÝND KL. 2
ÍSL. TAL
SÝND KL. 2, 5, 8, 10.40