Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 45
samtal um listasögu, t.d. með því að vísa til ferðar hennar til Egypta- lands með píramídamyndinni. „Þetta fer fram og aftur milli þess að hafa hana til samhengis fyrir verk hennar og verk hennar sem stoðir undir hugmyndir hennar og reynslu,“ segir Weiner. „Þetta hef- ur nánast verið eins og að vinna með henni persónulega. Ég finn fyr- ir nærveru Gerðar í vinnustofunni minni.“ Af brjóstmyndum og stigagöngum Á sýningunni velta listamennirnir einnig fyrir sér mannkynssögunni, hvað fær að vera hluti af henni og hvað ekki. „Mér finnst áhugavert að taka fyrir listasögu og hráefni,“ seg- ir Ragnheiður. „Á Íslandi byrjar sagan öll árið 874 þegar víkingarnir koma. Þar byrjum við okkar tíma- tal. Samt tengjum við okkur við Grikki, Rómverja og aðrar forn- þjóðir við Miðjarðarhafið. En á Ís- landi eigum við engar rústir eða forngripi sem tengja okkur við þá menningarsögu, ekki einu sinni byggingarefnin. Ég sé þó tilvísanir í hana í þessari byggingu, sem mér finnst áhugavert. Við búum til þessa frásögn til að styrkja ímynd okkar um það hvaðan við komum og hvert við stefnum.“ Í sýningarsalnum hefur Ragn- heiður stillt upp tveimur sjónvarps- skjáum hlið við hlið til að kanna þessi íhugunarefni í samhengi við verk Gerðar. Á öðrum skjánum er upptaka af marmarabrjóstmynd eft- ir Gerði sem höfð er í geymslu Gerðarsafns og hefur sjaldan verið sýnd almenningi. Á hinum er upp- taka af stigagangi í ónefndri íbúð í Beirút þar sem Ragnheiður var í vinnustofudvöl í fyrra. „Í myndbandinu til hægri eru marmaratröppur,“ segir Ragnheið- ur. „Við notum þetta byggingarefni lítið á Íslandi. Ekki nema maður eigi peninga. En sunnan við Evrópu og annars staðar í heiminum sér maður marmara úti um allt, líka á stigagangi þar sem fólk hendir rusl- inu sínu. Myndavélin fer upp og aft- ur á bak en við viljum almennt að sagan fari áfram. Við gerum okkur hugmyndir um framfarir, um að fara inn í rými og að kortleggja það svo við getum átt það.“ Listakonurnar þrjár eru sammála um að sýningin sem þær hafa sett upp hafi upp á margt að bjóða og sé túlkanleg á fleiri en eina vegu. Sýningin verður opnuð í dag kl. 15 í Gerðarsafni og stendur til 20. ágúst. Nærvera „Ég finn fyrir nærveru Gerðar í vinnustofunni,“ segir Weiner. Áfram „Við viljum almennt að sag- an fari áfram,“ segir Ragnheiður. Einn Plata Tómasar Jónssonar, sem er hans fyrsta, er nefnd eftir höfundinum. píanó- og hljómborðsleikur Tóm- asar. Og lagið sem ég nefndi í upp- hafi, „Einn“, slær um margt tóninn fyrir það sem koma skal. Lagið hefst á forrituðum takti, mjúkum og þægilegum, og síðan kemur pí- anó Tómasar inn og dansar ofan á framvindunni. Hið vélræna hittir hið lífræna, lagið rúllar áreynslu- laust áfram en um leið er erfitt að skilgreina stílinn nákvæmlega. „Upphaf“ rúllar t.d. í takt við „ambient“-skotinn hljóðheim Sigur Rósar en lög eins „Seigla“ nikka nett til áttunda áratugarins. Það lag gæti hæglega stutt við listræna ítalska bíómynd frá 1978. Tómas leyfir sér líka að vera glettinn, „Kúrekalag“ inniheldur mexíkósk- an mariachi-blástur og Ennio Morricone gægist fyrir hornið. Uppbrotið er þó ekki dólgslegra en það að lagið passar fullkomlega við allt annað hér. Tómas er að draga úr djassbankanum, sannarlega, en skimar um leið í aðrar áttir. Sam- þætting þessa alls hljómar þá eðli- lega og sannfærandi og er helsti styrkur þessa mjög svo ágæta frumburðar. Þetta er allt saman svo þægilega kunnuglegt eitthvað – en um leið ekki. Plötuna má nálgast á streymis- veitum eins og Bandcamp og Spot- ify en er og til á forláta vínyl. »Hið vélræna hittirhið lífræna, lagið rúllar áreynslulaust áfram en um leið er erf- itt að skilgreina stílinn nákvæmlega. MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Lau 3/6 kl. 20:00 181 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s. Mið 14/6 kl. 20:00 Sing-along Mið 7/6 kl. 20:00 Sing-along Lau 10/6 kl. 20:00 185 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s. Allra síðustu sýningarnar! Síðasta sýning fimmtudaginn 15. júní. RVKDTR- THE SHOW (Litla svið) Lau 3/6 kl. 20:00 5. sýn. Reykjavíkurdætur taka yfir Litla sviðið og láta gamminn geisa. Elly (Nýja sviðið) Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn Þri 6/6 kl. 20:00 aukas. Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara. Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið) Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 7. sýn Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn Fim 14/9 kl. 20:00 8. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Lau 9/9 kl. 20:00 6. sýn Fös 15/9 kl. 20:00 9. sýn Sýningar í haust komnar í sölu. Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 11/6 kl. 13:00 Sun 10/9 kl. 13:00 Lau 2/9 kl. 13:00 Sun 17/9 kl. 13:00 Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Húsið (Stóra sviðið) Lau 10/6 kl. 19:30 Lokasýning Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga. Tímaþjófurinn (Kassinn) Fim 8/6 kl. 19:30 Lokasýning Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi Naktir í nátturunni (None) Fim 15/6 kl. 19:30 Aðeins ein sýning ÁHUGASÝNING ÁRSINS leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Stofutónleikaröð Gljúfrasteins hefst að nýju á morgun, 4. júní, kl. 16, en stofutónleikar hafa verið haldnir á Gljúfrasteini frá árinu 2006 á hverjum sunnudegi frá byrj- un júní til loka ágúst. Á fyrstu tónleikunum á morgun, sunnudag, mun Strengjakvart- ettinn Siggi flytja verk eftir Bach og John Cage. Sigga skipa Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari, Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðlu- leikari, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari og Sigurður Bjarki Gunnarsson sellóleikari. Á meðal flytjenda á stofutónleik- um sumarsins verða Tómas R. Ein- arsson, Sigríður Thorlacius, Sóley, Bryndís Jakobsdóttir (Dísa), Davíð Þór Jónsson og Elmar Gilbertsson. Dagskrá sumarsins má finna á gljufrasteinn.is. Siggi á stofutónleikum Gljúfrasteins Strengjakvartett Sigga skipa Helga Þóra Björgvinsdóttir, Una Sveinbjarn- ardóttir, Þórunn Ósk Marínósdóttir og Sigurður Bjarki Gunnarsson. Skuggar/Bergmál nefnist sýningu sem opnuð var í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur 1. júní. Þar er á ferðinni syrpa sem varð til á tveggja ára tímabili þegar norski ljósmyndarinn Mari- anne Bjørnmyr ferðaðist um Ísland til að rannsaka, ljósmynda og safna heim- ildum um trú landsmanna á álfa og huldufólk, skv. til- kynningu frá safninu. Þar segir að trú á þessar vættir sé að hennar mati ennþá ljóslifandi í hugum Íslendinga og jafnvel nokkuð almenn. Bjørnmyr hlaut meistaragráðu í ljósmyndun frá London College of Communication árið 2012 og árið 2015 var hún valin ein af tíu frambærilegustu samtímaljós- myndurum sem búsettir voru í Lundúnum á þeim tíma. Skuggar/Bergmál í Skotinu Dalalæða Ein af ljósmyndum Bjørnmyr. Tónleikaröðin Sumarjazz á Jómfrúnni hefur göngu sína í 22. sinn í dag kl. 15 með tónleikum kontrabassaleik- arans Tómasar R. Einarssonar og latín-djass- hljómsveitar hans. Sigríður Thorlacius og Bogomil Font syngja en sá síðarnefndi leikur einnig á kongatrommur, Tómas Jónsson leikur á píanó og Snorri Sigurðar- son á trompet. Hljómsveitin mun m.a. leika tónlist af plötu Tómasar; Bongó. Líkt og undanfarin sumur sér Sigurður Flosason, djassgeggj- ari og saxófónleikari, um djass- dagskrá Jómfrúarinnar og verða haldnir tónleikar alla laugardaga í júní, júlí og ágúst. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu og aðgangur er ókeypis. Sumardjassinn hefst á Jómfrúnni Tómas R. Einarsson Sunnudagskaffi með skapandi fólki nefnist röð fyrirlestra, tónleika, upplestra, gjörninga eða hvers þess sem byggist á skapandi hugs- un, í Alþýðuhús- inu á Siglufirði. Boðið verður í kaffi á morgun kl. 14.30 og að þessu sinni mun rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson segja frá sjálfum sér og bókum sínum og lesa valda kafla úr þeim. Að loknu erindi er boðið upp á spjall og kaffiveitingar og eru allir velkomnir. Guðmundur Andri er ís- lenskufræðingur að mennt og hefur skrifað fjölda bóka, skáldsagna og ljóð og greinasöfn auk þess að hafa um árabil skrifað vikulega pistla fyrir dagblöð, auk þess að hafa starfað við yfirlestur hjá forlögum. Kaffi með Guð- mundi Andra Guðmundur Andri Thorsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.