Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 Á morgun, sunnudag, kemur stærsta skemmtiferðaskip sumars- ins, MSC Preziosa, sína fyrstu ferð til Reykjavíkur. Samkvæmt áætlun á það að leggjast að Skarfabakka í Sundahöfn klukkan 7 að morgni. Skipið mun hafa sólarhrings við- dvöl við Skarfabakka. Af því tilefni munu starfsmenn Faxaflóahafna afhenda skipstjór- anum skjöld til minningar um heim- sóknina til höfuðborgarinnar. MSC Preziosa mun koma tvisvar sinnum aftur í sumar til Reykjavík- ur, þ.e. 25. júlí og 17. ágúst. Skipið mun ávallt hafa yfir sólarhrings viðdvöl. MSC Preziosa er í eigu MSC Cruises og er skrásett í Panama. MSC Preziosa er 139.072 brúttó- tonn, 333 metrar að lengd og 38 metra breitt. Á skipinu eru 18 þil- för og þar af eru 13 þilför sem eru í notkun af farþegum skipsins. MSC Preziosa getur tekið mest 4.345 farþega en skráðir farþegar í þessa ferð eru 3.502, auk áhafnar. sisi@mbl.is Stærsta skip ársins kemur á morgun MSC Preziosa Risastórt skip sem kemur þrisvar til Reykjavíkur á þessu sumri. Kolbeinn Óttarsson Proppé, þing- maður Vinstri grænna, var ræðu- kóngur Alþingis að þessu sinni. Þetta vekur athygli því hann var ný- liði á þingi. Kolbeinn talaði í 933 mínútur samtals. Hann flutti 125 ræður og gerði 196 athuga- semdir eins og það kallast á ræðulista Alþing- is. Fast á hæla Kolbeins kom flokkssystir hans Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir en hún var einmitt ræðudrottning síðasta löggjaf- arþings. Stjórnarandstaðan á níu af tíu þingmönnum á „topp 10“ listanum. Benedikt Jóhannesson, fjár- málaráðherra og þingmaður Við- reisnar, er sá eini í stjórnarliðinu sem nær inn á listann. Venjan hefur verið sú að þingmenn stjórnarand- stöðunnar eiga oftar erindi í ræðu- stól Alþingis en stjórnarþingmenn. Vinstri græn eiga eins og oft áður flesta þingmenn á listanum eða fjóra. Margfaldur ræðukóngur und- anfarinna áratuga, Steingrímur J. Sigfússon, var hársbreidd frá þvi að komast á listann að þessu sinni. Hann talaði í 491 mínútu og varð í 11. sæti. Væntanlega þarf að fara langt aftur í tímann til að finna lög- gjafarþing þar sem Steingrímur er ekki á „topp 10.“ Steingrímur hefur setið lengst allra núverandi þing- manna á Alþingi eða í 34 ár. Þegar listinn yfir þá þingmenn sem skemmst töluðu er skoðaður skera þeir sig nokkuð úr, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Páll Magnússon. Reyndar töluðu tveir kjörnir þing- menn skemur en þeir félagar, pírat- arnir Eva Pandóra Baldursdóttir og Gunnar Hrafn Jónsson. En þau tvö gátu ekki sótt þingfundi í langan tíma og eru því ekki talin hér með. Samkvæmt yfirliti Alþingis voru þingræður í vetur alls 3.902 og at- hugasemdir 3.653. Þingmenn töluðu í samtals 320 klukkustundir. Með- allengd þingræða var 3,6 mínútur. Vegna alþingiskosninganna í október í fyrra hófst 146. löggjaf- arþingið óvenjuseint. Af þeim sökum eru ræðurnar færri en oftast áður. Þegar 145. löggjafarþinginu var frestað í júníbyrjun í fyrra hafði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir „for- ystuna“ en hún hafði þá talað í 26 klukkustundir. sisi@mbl.is Kolbeinn Óttarsson Proppé talaði lengst allra  Steingrímur J. Sigfússon náði ekki inn á „topp 10“ listann Kolbeinn Óttarsson Proppé 933mín. (16 klst.) Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir 888mín. (15 klst.) Björn Leví Gunnarsson 695mín. (12 klst.) Katrín Jakobsdóttir 686mín. (12 klst.) Smári McCarthy 576mín. (10 klst.) Elsa Lára Arnardóttir 552mín. (9 klst.) Andrés Ingi Jónsson 549mín. (9 klst.) Logi Einarsson 524mín. (9 klst.) Oddný G. Harðardóttir 517mín. (9 klst.) Benedikt Jóhannesson 501mín. (8 klst.) 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 1 2 3 4 5 Þingmenn sem töluðu lengst á Alþingi Þingmenn sem skemmst töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 23mín. Páll Magnússon 32mín. Gunnar Bragi Sveinsson 81mín. Hildur Sverrisdóttir 83mín. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir 95mín. Kolbeinn Óttarsson Proppé Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Þingfundum 146. löggjafarþings var frestað 1. júní síð- astliðinn. Þingfundir falla nú niður í rúma þrjá mánuði því Alþingi á að koma saman að nýju þriðjudaginn 12. september næstkomandi. Í yfirliti á heimasíðu Alþingis kemur fram að þingið var að störfum frá 6. til 22. desember 2016 og frá 24. janúar til 1. júní 2017. Þingfundir voru samtals 79 og stóðu í rúmar 383 klukkustundir. Meðal- lengd þingfunda var 4 klukkustundir og 51 mínúta. Lengsti þingfundurinn stóð í 15 klst. og 32 mín. Lengsta umræðan var um fjármálaáætlun 2018-2022 sem stóð samtals í rúmar 42 klukkustundir. Þingfundadagar voru alls 61. Af 131 frumvarpi urðu alls 53 að lögum, 78 voru óútrædd. Af 95 þings- ályktunartillögum voru 23 samþykktar, 72 tillögur voru óútræddar. 305 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 192 þeirra svarað og 96 bíða svars er þingi var frestað en 17 voru felldar niður vegna ráðherraskipta. Þingmál til meðferðar í þinginu voru 627 og tala prentaðra þingskjala var 1.087 þegar þingi var frestað Segir að Alþingi þurfi meira fjármagn „Hér á Alþingi þarf forysta þingsins að fara yfir reynsluna af umfjöllun nefnda um fjármálaáætlun,“ sagði Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, m.a. í ávarpi sínu við frestun þingfunda. „Ég tel jafnframt einsýnt að styrkja þurfi þjónustu við nefndir þingsins og tryggja að þingmenn fái nauð- synlega aðstoð til að geta lagt sjálfstætt mat á ýmsa þætti áætlunarinnar. Til að svo megi verða þarf Alþingi aukið fjármagn. Við þurfum einnig að endurskoða starfsáætlun Alþingis með tilliti til fjármálaáætlunar- innar. Reynslan í ár sýnir að gefa þarf henni meira rými í vinnuskipulagi þingsins. En á móti er líka ljóst að fjárlagameðferðin á haustþingi ætti að geta styst og jafnvel ætti að vera mögulegt að afgreiða fjárlög fyrr en verið hefur. Slíkt væri til mikilla bóta fyrir alla aðila sem þurfa að skipuleggja starfsemi sína á grundvelli fjárlaga hvers árs,“ sagði Unnur Brá. Hún sagði jafnframt að fjármálaáætlunin hefði kallað á breytt verklag við fjárlagagerð, bæði í ráðuneytum og á Alþingi. Ljóst sé að allt ferlið eigi eftir að slípa enn betur, bæði undirbúning við gerð fjármálaáætlunar í Stjórnarráðinu og meðferð málsins í þinginu. „Ég fagna því yfirlýsingu hæstv. fjármála- og efnahags- ráðherra í vikunni um að flýta eigi framlagningu fjár- málaáætlunar svo meiri tími gefist til umfjöllunar þingsins.“ Unnur Brá sagði að aldrei fyrr hefðu jafn margir þingflokkar verið á Alþingi sem gerði erfiðara en áður að koma öllum fyrir í því takmarkaða húsnæði sem þingið hefur. „Það er því verulegt tilhlökkunarefni að á árinu 2020 á að taka nýja byggingu í notkun sem mun bæta aðstöðu alþingismanna og auka sveigjanleika í nýtingu húsnæðis þegar þingflokkar ýmist stækka eða minnka, verða til eða hverfa, og leiða til verulegrar hagkvæmni í rekstri Alþingis,“ sagði þingforsetinn. Gefa þarf fjármála- áætlun meira rými  Áætlunin rædd í rúma 42 klukkutíma á nýafstöðnu þingi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Léttleiki í þingsal Birgir Ármannsson og Svandís Svav- arsdóttir eru hér greinilega að fara með gamanmál.Unnur Brá Konráðsdóttir 20% afsláttur af öllum vörum TAX FREE DAGAR 31. MAÍ - 3. JÚNÍ T A X F R E E FRÁ MIÐVIKUDEGI TIL LAUGARDAGS 18.–29. NÓVEMBER GOLF Á THAILANDI Glæsileg 10 daga ferð með lúxus gistingu á Ananatara Hua Hin Resort og spili á sex glæsilegum völlum á svæðinu. Fararstjóri er Þórður Rafn Gissurarson. FRÁ 439.900 KR. Verð á mann m.v. 2 fullorðna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.