Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 16
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Út er komin Árbók Ferðafélags Ís- lands 2017, Við Djúpið blátt – Ísafjarð- ardjúp, eftir dr. Ólínu Kjerúlf Þor- varðadóttur, þjóðfræðing og fyrrverandi al- þingismann. Þar segir frá náttúru, staðháttum, mannlífi og menn- ingu við Ísafjarð- ardjúpið. Sögu- sviðið nær frá Bolungarvík, inn Djúp – að með- töldum eyjunum, Æðey, Borgarey og Vigur – og út Snæfjallaströnd að Vébjarnarnúpi. Því er nokkuð stórt svæði undir og af mörgu var að taka við bókaskrifin sem Ólína hóf fyrir um fjórum árum. Bókin er alls 272 blaðsíður og prýdd fjölda mynda og korta. Spennandi grúsk í heimildum „Mér fannst strax spennandi þegar ritstjóri Árbókarinnar hafði samband við mig árið 2013 og spurði hvort ég hefði áhuga á þessu verkefni,“ segir Ólína sem tók boðinu. Verkið segir hún hafa byrjað með heimildavinnu og grúski í fornsögum, þjóðsögum, nátt- úrulýsingum, ferðabókum, æviminn- ingum og fleiru. Í tímans rás hafi ýms- ir skrifað um einstaka þætti sem snerta þetta landsvæði en árbókarrit- unin feli í sér meiri yfirsýn. Síðast var fjallað um þennan hluta landsins í ár- bók FÍ árið 1949 þegar Jóhann Hjalta- son skrifaði um Norður-Ísafjarðar- sýslu. „Árbókin sem kom út fyrir bráðum sjötíu árum var í raun um allt aðra ver- öld, því þá var byggð inn um allt Djúp og samfélag sem dafnaði vel,“ segir Ól- ína. „Síðan hafa orðið miklar breyt- ingar á samfélagsháttum. Það hefur líka margt breyst frá því ég fluttist vestur á Ísafjörð með foreldrum mín- um árið 1973, þá á unglingsaldri. Þá var togaraöldin í algleymingi. Núna hefur byggð í Djúpinu, frá Álftafirði og út á Snæfjallaströnd, að mestu lagst í eyði og kaupstaðirnir tveir, Ísafjörður og Bolungarvík, hafa gjörbreyst..“ Átök og grimmúð Áhugaverðir áningastaðir og góðar gönguleiðir eru meðal þess sem Ólína fjallar um í árbókinni. Hún er sjálf úti- vistarkona og björgunarsveitarmaður svo hún er á kunnugum slóðum í orðs- ins fyllstu merkingu. „Margar þessar leiðir eru vel þekktar, svo sem gömlu vermannagöturnar úr Önundarfirði í Álftafjörð. Víða er auðvelt að ganga um Vestfjarðahálendið og fjöllin yfir Djúpinu og þaðan er mikið útsýni,“ segir árbókarhöfundurinn. Þegar litið er yfir svið atburða ald- anna segir Ólína áberandi að sögur af Vestfjörðum séu oft átakamiklar og grimmúðlegar. Þekktur var Þorvaldur Snorrason Vatnsfirðingur sem vann sér til frægðar að brenna bæinn á Hrafnseyri við Arnarfjörð og vega svo frænda sinn, Hrafn Sveinbjarnarson, hvar hann stóð í gættinni á brennandi húsi. Það gerðist árið 1213. Árið 1615 voru svo framin einu fjöldamorðin sem orðið hafa á Íslandi, þegar hátt á ann- an tug baskneskra hvalveiðimanna sem hér voru skipreka voru vegnir vestra undir forystu Ara sýslumanns í Ögri. Ísafjarðardjúp hefur líka verið vett- vangur lista- og menningar. Snemma á 20. öldinni var Sigvaldi nokkur lækn- ir Djúpmanna og sat þá með fjöl- skyldu sinni í Ármúla við mynni Kaldalóns. Þar líkaði honum svo vel að hann nefndi sig eftir staðnum og allir þekkja lög læknisins, Sigvalda Kalda- lóns, sem eru nokkur við ljóð skáld- konunnar Höllu Eyjólfsdóttur á Laugabóli í Ísafirði. Þar á meðal eru tvær af helstu perlum íslenskra söng- laga, Svanurinn minn syngur og Ég lít í anda liðna tíð. „Ísafjarðardjúpið var harðbýlt svæði en stóð undir öflugu menningar- lífi sem gat þó verið torsótt. Um það vitnar sagan af því þegar sveitungar Sigvalda keyptu handa honum flygil sem fluttur var með báti frá Ísafirði yf- ir Djúp og loks borinn heim að bæ í Ármúla. Þannig vildu Djúpmenn gera tónskáldinu og lækninum sínum kleift að semja lög á gott hljóðfæri. Þessi saga segir okkur að menning er alltaf að einhverju marki háð afstöðu og vilja. Stundum þarf að leggja svolítið á sig til að gæða lífið fegurð og inni- haldi.“ Stórveldi og menningarbær Að skrifa jafn ítarlegt heimildarit og Ferðafélagsbók er löng vegferð og mikilvægt er að höfundur þekki vel til allra staðhátta eins og Ólína gerir. Hún hefur látið að sér kveða í þessu samfélagi, meðal annars sem skóla- meistari, alþingismaður, fræðimaður og fleira. „Ísafjörður var stórveldi og óvíða var meiri gerjun en þar til dæmis í stjórnmálum, atvinnulífi og menning- armálum. Fyrir öld eða svo þegar sjór- inn var megin samgönguleið Vestfirð- inga var lítið mál að ferðast frá Ísafirði til Kaupmannhafnar og þaðan bárust ýmsir straumar. Af því spratt að Ísa- fjörður varð menningarbær en líka staður þar sem átakalínurnar í stjórn- málunum urðu skarpar og oft harðvít- ug átök,“ segir Ólína og heldur áfram. „Á Ísafirði reis á 19. öld stærsta versl- unarveldi á landinu með Ásgeirs- verslun sem byggðist ekki síst á skreiðarverkun og útflutningi með fjölda útstöðva. Ísafjörður var á þeim tíma þriðji stærsti þéttbýlisstaður á landinu. Ég vona að bókin varpi ljósi á þessa merku sögu og gefi innsýn í hug- arheim og líf fólksins við Djúp.“ Frá Víkinni að Vébjarnarnúpi  Djúpið blátt í spánýrri Árbók FÍ  Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar  Átök og áhugaverðir staðir  Samfélag í gerjun  Innsýn í hugarheim Morgunblaðið/Sigurður Bogi List Í Djúpi er minnisvarði um tónskáldið Sigvalda, það er við bæinn Kalda- lón sem hann kenndi sig við. Í bjarginu eru línur sem sýna mann við flygil. Vigur Eyjan er stundum nefnd Perlan í Djúpinu. Þar er bygg- ingum haldið við af miklum mynd- arskap sem gerir þetta með öðru að vinsælum ferðamannastað. Ólína Kjerúlf Þorvarðadóttir 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 • AMT eru hágæða pönnur úr 9 mm þykku áli • Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita • 3 ára ábyrgð á verpingu • Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari en Teflon og án eiturefna • Nothæf fyrir allar eldavélar • Má setja í uppþvottavél • Kokkalands- liðið notar AMT potta og pönnur Úlfar Finnbjörnsson notar AMT potta og pönnur Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið Þýskar hágæða pönnur frá AMT Ný sending WORLD’S BESTPAN „ “ THE * “The world‘s best pan”according to VKD, largest German Chefs Association * Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Listsýning Guð- bjargar Lindar Jónsdóttur verð- ur opnuð annan í hvítasunnu, 5. júní, kl. 18 í safn- aðarheimili Kópavogskirkju. Sýningin sam- anstendur af úr- vali verka úr eigu listamanns- ins en viðfangsefni Guðbjargar Lindar hafa löngum tengst vatni. Í verkum hennar segir af ferðalagi á vit veraldar þar sem skynja má hið upphafna í sjálfum einfaldleik- anum. Kór unglinga frá Lúxemborg mun syngja nokkur lög í tilefni opn- unarinnar. Sýningin verður opin virka daga á milli 9 og13 og eftir samkomulagi. Lokað er í júlí. Guðbjörg Lind sýnir í Kópavogskirkju Guðbjörg Lind Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.