Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 ✝ Einar Guð-mundsson fæddist í Hamri á Breiðdalsvík 8. febrúar 1952. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 21. maí 2017. Foreldrar hans voru Guðmundur Tómas Arason, verslunarmaður á Breiðdalsvík, f. 28. febrúar 1923, d. 11. nóvember 2001, og Sigrún Gunnarsdóttir, húsmóðir og verkakona á Breið- dalsvík, f. 5. janúar 1926, d. 10. febrúar 2005. Einar kynntist Jay Chalor Kaewwiset 1988 og hófu þau sambúð 1990. Sonur þeirra er Guðmundur Rúnar Einarsson, f. 4. desember 1990, og á hann einn son, Leon Leví, f. 1. maí 2016. Dóttir Jay frá fyrra sambandi er Selja Janthong, f. 31. janúar 1986. Unnusti hennar er Sigurður Grétar Sigurðsson, f. 12. febrúar 1987. Dóttir þeirra er Jasmín Líf, f. 29. ágúst 2015. Einar og Jay slitu sambúð 2001. Systkini Einars eru: 1) Gunnar Ari, f. 25. ágúst 1950. 2) Björn, f. 11. ágúst 1953. 3) Að- alheiður Guðrún, f. 16. nóv- ember 1954. 4) Friðrik Mar, f. 25. ágúst 1960. 5) Sigrún, f. 11. október 1969. Eftir nám í Barna- og ungl- ingaskólanum í Staðarborg stund- aði Einar nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi frá Fiskimannadeild vorið 1973. Einar var sjómaður allan sinn starfsaldur og byrjaði á sjónum 16 ára gamall á bátnum Hafdísi SU 24 frá Breiðdalsvík. Eftir fyrra árið í Stýrimannaskólanum var hann stýrimaður og afleysinga- skipstjóri á humarbátnum Hauki SU 50 á Djúpavogi hjá Einari Ásgeirssyni. Þegar hann lauk námi vorið 1973 fór hann um borð í skuttogarann Hval- bak SU 300 frá Breiðdalsvík, fyrst sem háseti og síðan sem 2. stýrimaður. Hann lenti í alvar- legu slysi 31. október 1973. Ein- ar vann eftir það um hríð við fiskvinnslu á Breiðdalsvík en fór aftur á sjóinn um leið og hann gat og var þá í áhöfn hjá Einari Ásgeirssyni og Ólafi Helga Gunnarssyni nær óslitið upp frá því. Útför Einars fer fram frá Heydalakirkju í dag, 3. júní 2017, klukkan 14. Meira: mbl.is/minningar Missir okkar systkinanna er mikill. Bói okkar, eða Einar eins og mamma kallaði hann alltaf, var yndislegur persónu- leiki og er minningabankinn því stór. Bói var skemmtilegt barn, skarpur og uppátækjasamur. Eilítið baldinn og sá eini okkar systkina sem var „sendur“ í sveit. Hann fékk byssu í ferm- ingargjöf sem er bæði táknrænt fyrir hann sem persónuleika og tíðarandann. Sem ungur maður var Bói mikill töffari, vinsæll og vinamargur, sjarmör og kvennagull og hafði gaman af að skemmta sér. Ekkert partý byrjaði fyrr en Bói var mættur. Hann þurfti lítið að hafa fyrir námi, lauk skipstjórnarprófi með glæsibrag og framtíðin blasti við honum. Hann þótti mjög efnilegur skipstjórnar- maður og fékk strax mikla ábyrgð. En svo gripu örlögin í taumana þegar hann lenti í al- varlegu slysi haustið 1973 og líf- ið tók óvænt aðra stefnu. Bói náði sér ótrúlega vel eftir slysið og var fljótlega aftur kominn á sjóinn. Skipstjórarnir, Einar heitinn Ásgeirsson og Ólafur Helgi Gunnarsson, reyndust honum einstaklega vel og segja má að þeir eigi drjúgan hlut í því að Bói gat áfram haft sjó- mennskuna sem ævistarf. Einn- ig sýndu áhafnir Kambarastar og Ljósafells honum mikinn vin- skap og tillitssemi. Eftir slys fengum við annan Bóa, heldur hömlulausari en þann „fyrri“. Hann hafði góðan húmor og hafði gaman af að snúa út úr og endurnefna fólk og athafnir. Hann bjó til sín eigin orðatil- tæki og var hnyttinn í tilsvör- um. Við fjölskyldan brosum í gegnum tárin þegar við rifjum upp hans tungutak og erum byrjuð að skrásetja minnisstæð orðatiltæki. Hann var fylginn sér, mikill prinsipp-maður og dálítið þrjóskur. Ef honum misbauð eitthvað þá var hann duglegur að segja samferðarfólki sínu frá því öðrum til mismikillar gleði. Hann var alla tíð ákaflega gjaf- mildur og frændrækinn. Öll fjöl- skyldan naut þess þegar hann kom með alls kyns varning úr siglingum auk þess sem hann færði fjölskyldu og vinafólki björg í bú af sjónum. Hann var talnaglöggur og minnugur á bæði nýja og gamla tímann. Hann mundi alla afmælisdaga og hringdi þá í afmælisbörnin. Hann var greiðvikinn og lét ekki bíða eftir sér. Þegar leitað var til hans, svaraði hann gjarn- an að hann hefði ekki tíma en var samt mættur til aðstoðar eftir fimm mínútur. Bói var mikill kokkur, kannski ekki mikið í heilsufæðinu, en eldaði góðan mat. Hann steikti heims- ins bestu kleinur samkvæmt sérstakri leyniuppskrift, bakaði rúllutertur og fleira góðgæti. Bóa þótti afar vænt um æsku- heimili sitt og sýndi það með ósérhlífni í þeim verkefnum sem þar þurfti að sinna. Hann var stoltur af ættfólki sínu og í tíðu sambandi við stórfjölskylduna. Hann sá ekki sólina fyrir syni sínum, Selju og barnabörnum. Þá reyndist Jay honum einstak- lega vel og áttu þau góðan vin- skap. Elsku Bói okkar, hafðu hjart- ans þökk fyrir allt með kærri kveðju til allra sem við þekkjum hjá Sameinuðu þjóðunum eins og þú kallaðir þann stað þar sem hinir látnu sameinast. Við kveðjum þig með þínum orðum og biðjum að heilsa eftir Inga T. Þín systkini, Gunnar Ari, Björn, Aðalheiður Guðrún, Friðrik Mar og Sigrún. Einar Guðmundsson Antík Antík skenkur til sölu. Kemur frá Danmörku í kring um 1870. Mjög heillegur og vel með farinn. Verð 50.000 en skoða öll tilboð. Upplýsingar í síma 6997955. Verslun Armbandsúr í útskriftargjöf Frí áletrun, PL dömu-, herra- og hjúkkuúrin eru samsett í Frakklandi enda haldast gæði og listræn hönnun í hendur. Verðið er frábært. ERNA, Skipholti 3, s. 5520775 www.erna.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. LOKAÐ 6. til 20. júní Smáauglýsingar Atvinnuhúsnæði Gott skrifstofuhúsnæði til leigu Til leigu er 197 fm skrifstofuhúsnæði við Bíldshöfða. Skiptist í móttöku, fimm stór skrifstofuherbergi, eldhús og geymslu. Ágæt vinnuaðstaða fyrir allt að 12 starfsmenn. Sameiginlegar snyrtingar eru á hæðinni. Vsk. inn- heimtist ekki af leigunni og hentar húsnæðið því vel aðilum sem eru í vsk. lausri starfsemi. Beiðni um frekari upplýsingar sendist í tölvupósti til dogdleiga@gmail.com. | | Hinsti vilji Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomu- lag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar- og lögfræðiþjónusta HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Ástkær systir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA MARÍA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, Skipholti 8, Reykjavík, lést 24. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. María Guðrún Sigurðardóttir Sigurður Rúnar Ívarsson Bjarnheiður Jóna Ívarsdóttir Guðjón Guðmundsson María Björk Ívarsdóttir Hákon Hákonarson Svandís Guðrún Ívarsdóttir Jakob Þórarinsson Bjarni Hrafn Ívarsson Elsa Björk Knútsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS VIÐARS GUÐLAUGSSONAR, Melateigi 27, Akureyri. Kristjana Ingibjörg Svavarsdóttir Svavar Alfreð Jónsson Bryndís Björnsdóttir Emelía Bára Jónsdóttir Viðar Magnússon Sigríður Margrét Jónsdóttir Karl Jónsson afa- og langafabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ERNU ELÍNBJARGAR ÁRNADÓTTUR, Bogatúni 10, Hellu. Fyrir hönd aðstandenda, Þór Rúnar Þorsteinsson Lára Hildur Þórsdóttir Skúli Guðmundsson Vilborg Þórsdóttir Þóra Guðrún Þórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir og hlýhugur til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts ástkærrar eiginkonu minnar, móður, ömmu og langömmu, JÓNU GEIRNÝJAR JÓNSDÓTTUR sjúkraliða, Sóleyjarima 9, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 12G og gjörgæsludeildar Landspítalans fyrir umönnun og hlýju. Einnig þökkum við öllu tónlistarfólki kærlega fyrir þess þátt við kistulagningu og útför. Már E. M. Halldórsson Jóhann Másson Margrét Geirsdóttir Birgir Másson Ríkey Mortensen Pétursdóttir Arnór Már Másson Arnrún Sæby Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabarn KRISTJÁN Þ. SNÆDAL bílstjóri, Kjalarsíðu 10, Akureyri, lést föstudaginn 24. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Örvar Þór Kristjánsson Sigurður Helgi Kristjánsson Sigrún R. Snædal Magnús V. Snædal Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR M. GUÐMUNDSSONAR, fv. aðstoðaryfirlögregluþjóns, Bláskógum 8, Reykjavík. Guðrún Jónsdóttir Magnús Fjalar Guðmundss. Bryndís Friðriksdóttir Fjölnir Guðmundsson Trine Houmøller Erna Guðmundsdóttir Halldór Magnússon Katrína Hekla, Friðrik Kári, Guðmundur Birkir, Óskar, Jónas, Emma, Sindri Steinn og Mattea Milla Systir mín, ÍRIS SIGURBERG SIGVALDADÓTTIR, ljósmyndari í Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi 21. maí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og innilegar þakkir til starfsfólks á 2. hæð á Sólvangi fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Árni Sigvaldason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.