Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 Yngsta dóttir mín – hún er fimm ára – hrópaði upp yfir sig öðru hvoru „oh my goodness“ þangað til ég sagði henni að prófa að hrópa „guð minn góður“ í staðinn. Og viti menn: það virk- aði. Þegar henni er mikið niðri fyrir hróp- ar hún hátt og snjallt „guð minn góður“! Íslenskan á undir högg að sækja þessa dagana. Tölvur, snjallsímar, bíó og sjónvarp með enskuna að vopni brjóta niður varnir íslensk- unnar án erfiðleika. Æ fleira ungt fólk í tónlistarheiminum kýs að syngja á ensku en sem betur fer kjósa margir enn þá að syngja og rappa á íslensku. Heimurinn er ekki lengur stór. Hann er í raun ekki stærri en síminn í lófa þér. Þar gerist allt. Þar eru stjórntækin enskumælandi, leik- irnir, textinn, allt er á ensku. Meðan íslenskan er að berjast fyrir lífi sínu í brimboðum enskunnar hafa menn slökkt á vitanum. Það sést ekki til lands. Æ fleiri fyrirtæki í græðgi- bríma kasta íslenskunni. Í veitinga- húsabransanum er það að verða þannig að þjónar tala ekki íslensku, matseðlar eru á ensku, staðirnir bera ensk nöfn. Í fjármálageiranum fara fyrirlestrar fram á ensku. Það nýjasta nýja er að Flugfélagi Íslands varð brátt í brók og skírði kúkinn Air Iceland Connect. Virðingin fyrir sögunni, arfleifðinni, tungumálinu var ekki meiri hjá þessu gamalgróna fyrirtæki. Nú er sjálf okkar, innsti kjarninn, rót menningar okkar að veði. Við verðum að snúa vörn í sókn. Það er mikilvægara að setja peninga í að ís- lenska tölvur en að grafa göng, svo dæmi sé tekið. Hvernig væri að hin ofsaríku útgerðarfyrirtæki, sem hafa mokað milljörðum upp úr haf- inu árum saman, settu ásamt ís- lenskum stjórnvöldum peninga í það verkefni að bjarga íslenskunni? Við verðum líka öll að vera vak- andi heima fyrir, leiðrétta börnin okkar og okkur sjálf. Það er enn þá ort á íslensku, það er enn þá sungið á íslensku, enn þá eru skrifaðar bækur á ís- lensku, við tölum enn þá íslensku, fréttir eru sagðar á íslensku, en hversu lengi verður það þegar hvert fyrirtækið af öðru í borginni ber enskt nafn? Þó að ferðamenn komi hingað í áður óþekktum mæli þá þurfum ekki að gefa íslenskuna upp á bát- inn. Ég heyrði í útvarpinu um daginn viðtal við fólk frá Belgíu sem hafði verið á tónleikum með Ás- geiri Trausta. Hann er að túra um heiminn og eðlilega syngur hann að mestu á ensku. En fólkið sem var talað við kvartaði yfir því að hann hefði ekki sungið á íslensku. Ég heyrði að Ólafur Páll útvarpsmaður var jafnhissa og ég. Enskan er komin á fullt í orða- forða barna okkar, fullorðið fólk slettir til hægri og vinstri, fréttafólk notar ensk orð í beinni í staðinn fyrir góð íslensk orð. Ég heyri vini barna minna nota enskuna svo mikið að það er verulegt áhyggjuefni. Við þurfum á íslenskunni að halda og ís- lenskan þarf á okkur að halda. Þú berð ábyrgð. Við berum ábyrgð á að tungumálið okkar lifi. Setjum hjartað í málið. Eftir Bubba Morthens Bubbi Morthens »Meðan íslenskan er að berjast fyrir lífi sínu í brimboðum enskunnar hafa menn slökkt á vitanum. Höfundur er skáld og tónlistarmaður. Setjum hjartað í málið Atvinna Af þeim bókum sem JanTimman hefur skrifaðheld ég mest upp á „Theart of chess analysis“, samantekt viðureigna frá tímabili þegar Hollendingurinn var að hasla sér völl í skákheiminum. Timman tekur nokkur dæmi um djarfar ákvarðanir við skákborðið: Bobby Fischer sat að tafli and- spænis Júgóslavanum Milan Ma- tulovic á millisvæðamótinu í Palma á Mallorca síðla árs 1970 og virtist geta tekið jafntefli með því að endataka leiki. Staða hans var greinilega lakari en hann hafnaði því að þráleika og hélt baráttunni áfram. Skákinni lauk um síðir með jafntefli en þetta dæmi og annað sem Timman tók úr viðureign Karpovs í Las Palmas á Kanarí- eyjum frá árinu 1977 gegn Ung- verjanum Andras Adorjan eru lýs- andi dæmi um óbilandi sjálfstraust þeirra allra bestu á hátindi ferils- ins. Timman hefði getað bætt við dæmum úr skákum þess heims- meistara sem lengst sat; Emanuel Lasker tók oft á sig erfiðar stöður og jafnvel tapaðar eingöngu til þess að geta haldið baráttunni áfram. Og mér sýnist að þessi lyndiseinkunn sem hér er lýst eigi vel við núverandi heimsmeistara, Magnús Carlsen. Á Meistaramóti Skákskóla Ís- lands sem haldið var um síðustu helgi féllu leikir þannig í baráttu tveggja af sigurstranglegustu keppendunum: Meistaramót Skákskóla Íslands 2017; 3. umferð: Hilmir Freyr Heimisson – Jón Trausti Harðarson Trompowsky-byrjun 1. d4 Rf6 2. Bg5 Re4 3. h4 c5 4. dxc5 Da5+ 5. Rd2 e5 6. c3 Rxd2 7. b4 Dc7 8. Bxd2 b6 9. cxb6 axb6 10. e4 Bb7 11. Bd3 Be7 12. Re2 d5 13. Rg3 Rd7 14. De2 O-O 15. h5 dxe4 16. Bxe4 Bxe4 17. Dxe4 Rf6 18. De2 Rd5 19. O-O Rxc3 20. Bxc3 Dxc3 21. h6 g6 22. Hac1 Dd4 23. Hfd1 Df4 24. Hc6 Hfd8 25. Hxb6 Bxb4 26. Hxd8+ Hxd8 27. Re4 Dxh6 - Sjá stöðumynd 1 - Þú ert einn efstur í mótinu og ert að tefla við stigahæsta kepp- andann. „Besti“ leikurinn er 28. Hxb4 en þá þvingar svartur fram jafntefli með þráskák, 28. … Dc1+ 29. Kh2 Dh6+ o.s.frv. Hvað gerir þú? Jafntefli þarf ekki að henta illa; eftir aðra leiki er svarta staðan heldur betri að mati „vél- anna“ og hvítur er peði undir. Það virtist ekki hvarfla að Hilmi að sættast á skiptan hlut og hann lék … 28. g3!? Be7 29. Kg2 Hc8 30. Hb1 Df8 31. a4 f5 2. Rd2 Bf6 33. Da6 Bg7 34. Rf3 De8 35. Hb7 e4 36. Rg5 e3 37. Dd6 37. … Kh8 38. Dd5 Í einhverjum tilvikum á þessum kafla hefði svartur getað gert bet- ur en núna varð hann að leika 38. … Dc6 og staðan er í jafnvægi. 38. … e2?? 39. Rf7+ Kg8 40. Rd6+ Kh8 41. Rxe8 e1(D) 42. Rxg7 f4 43. Rh5! og svartur gafst upp, 43. .. gxh5 er svarað með 44. Dd4+ og mátar. Hilmir Freyr lét ekki staðar numið eftir þennan sigur og vann stigahærri flokki meistaramótins með fullu húsi. Efstu menn urðu: 1. Hilmir Freyr Heimisson 5 v. (af 5) 2. Bárður Örn Birkisson 3½ v. 3.-5. Aron Thor Mai, Alexander Oliver Mai og Jón Trausti Harð- arson 2½ v. Í flokki keppenda undir 1.600 Elo-stigum urðu jafnir og efstir Gunnar Erik Guðmundsson, Örn Alexandersson og Þorsteinn Magnússon allir með 6 vinninga af átta mögulegum. Við stigaútreikn- ing reyndist Gunnar Erik hlut- skarpastur. Efstur í flokki kepp- enda undir 1.200 Elo-stigum var Magnús Hjaltason. Aðalstyrktaraðili mótsins var GAMMA. Óbilandi sjálfstraust Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/SÍ Fullt hús Hilmir Feyr Heimisson tekur við verðlaunum úr hendi Agnars Tóm- asar Möller frá GAMMA sem var aðalstyrktaraðili Meistaramóts Skákskólans. Láttu birtuna ekki trufla þig Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is PLÍ-SÓL GARDÍNUR Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is 2024 SLT L i ð Lé t t ingur Verð kr 2.790.000 Verð með vsk. 3.459.600 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Só lvangi 5 - 700 Egilsstað i r Sími 480 0400 // jotunn@jotunn . is // www. jotunn . is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.