Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.06.2017, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 EITT ER VÍST: ALNO Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is eldhús er 90 ára í ár Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ákvörðun Bandaríkjanna þess efn- is að segja sig frá Parísarsamkomu- laginu um loftslagsmál er mjög mið- ur og þegar ég segi það er ég að tjá mig mjög varfærnislega,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari. Vísar hún í ummælum sínum til ákvörðunar ríkisstjórnar Donalds Trump Bandaríkjaforseta, en forset- inn lýsti þessari stefnubreytingu Bandaríkjanna yfir á blaðamanna- fundi sem haldinn var á lóð Hvíta hússins í fyrradag. Frá því að yfir- lýsingin féll hafa þjóðarleiðtogar um heim allan, ráðherrar og önnur fyrirmenni lýst yfir undrun sinni og óánægju með afstöðu ráðamanna vestanhafs í loftslagsmálum. „Sáttmálinn er óafturkræfur“ „Ákvörðunin má og mun ekki stöðva okkur hin í því að vernda plánetuna okkar. Þvert á móti. Við í Þýskalandi, Evrópu og annars stað- ar í heiminum erum nú sem aldrei fyrr ákveðin í að sameina alla krafta okkar til að mæta einni af helstu áskorunum mannkyns,“ sagði Merk- el enn fremur í ávarpi sínu. Emmanuel Macron Frakklands- forseti ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi í gær. Þar sagði hann Frakkland ekki hafa sagt sitt síðasta orð í um- ræðunni. „Ég get fullvissað ykkur um þetta – Frakkland mun ekki hætta baráttunni. Parísarsáttmálinn er óafturkallanlegur og verður inn- leiddur, ekki aðeins af Frakklandi heldur öllum öðrum ríkjum,“ sagði Macron. „Ég bið ykkur um að sýna áfram sjálfsöryggi. Okkur mun tak- ast þetta því við erum heils hugar. Hvar sem við búum og hver sem við erum deilum við öll sömu ábyrgð. Gerum plánetuna okkar aftur frá- bæra,“ bætti Macron við og afbakaði þannig þekkt slagorð Donalds Trump úr kosningabaráttu hans. Varðar heiminn allann Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, sagði ráðamenn þar von- svikna með ákvörðun ríkisstjórnar Bandaríkjanna. „Kanada stendur staðfastlega við skuldbindingar sín- ar þess efnis að berjast gegn lofts- lagsbreytingum og styðja hreinan efnahagslegan vöxt,“ sagði hann. Forsætisráðherra Ástralíu, Malc- olm Turnbull, tekur í sama streng og segir ákvörðunina „vonbrigði en ekki óvænta“. Að sögn hans mun Ástralía hins vegar standa við sínar skuldbindingar í loftslagsmálum. Þá hafa ráðamenn á Indlandi, í Brasilíu og Kína einnig lýst því yfir að ríki þeirra muni standa við gefin loforð. „Loftslagsmál varða heiminn allan og því getur ekkert eitt ríki haldið sig þar fyrir utan,“ sagði Hua Chunying, talsmaður utanríkis- ráðherra Kína. Vladimír Pútín Rúss- landsforseti hvatti í gær ríki heims til að vinna með Bandaríkjunum í stað þess að „dæma“ þau. Afstaða Bandaríkjanna fordæmd  Þjóðarleiðtogar um heim allan fordæma ákvörðun ríkisstjórnar Bandaríkjanna  Kanslari Þýska- lands segir önnur ríki staðráðin  Gerum plánetuna okkar aftur frábæra, sagði forseti Frakklands AFP Jarðefnaeldsneyti Hópur fólks mótmælti ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta á götu úti í New York. Minnst 36 eru látnir og fjöl- margir særðir eftir eldsvoða í spilavíti í Manila, höfuðborg Fil- ippseyja, í fyrri- nótt. Fréttaveita AFP greinir frá því að grímu- klæddur maður hafi ráðist þang- að inn, skotið af sjálfvirkum riffli og lagt eld að spilaborði með fyrr- greindum afleiðingum. Stjórnvöld á Filippseyjum segja ódæðið ekki rannsakað sem hryðju- verk. Eftir að maðurinn lagði eld að borðinu hélt hann lengra inn í bygginguna og kom sér fyrir inni í hótelherbergi. Þar er hann sagður hafa lagst í rúm, hellt eldfimum vökva yfir sig og kveikt í. Lög- reglumenn fundu illa brunnið lík hans þar inni um fimm klukku- stundum eftir árásina. FILIPPSEYJAR Óður maður svipti sig lífi eftir árás Ódæði Árásar- maðurinn lést. Árleg heræfing Atlantshafs- bandalagsins (NATO), Saber Strike, er nú í fullum gangi, en hún hófst 23. maí og stendur til 24. júní. Alls taka hersveitir 20 ríkja þátt í æf- ingunni, undir forystu Bandaríkjanna, sem fram fer innan landamæra Eistlands, Lettlands, Litháens og Póllands. Fyrsti liður æfingarinnar var að flytja mikinn fjölda brynvarinna ökutækja og annan herbúnað á milli staða, en alls fluttu herflutn- ingaskip yfir eina milljón tonna af hergögnum til Lettlands á þremur dögum. Næsti liður æfingarinnar hefst fljótlega þegar yfir 2.000 her- menn, bryndrekar og loftför stilla saman strengi sína og æfa bæði árásir og varnir. khj@mbl.is ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ Milljón tonn af her- gögnum til Lettlands Æfing Tekið á móti hergögnum. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Tveir bandarískir herskipaflotar undir forystu flugmóðurskipanna USS Carl Vinson og USS Ronald Reagan, sem bæði eru af svonefndri Nimitz-gerð flugmóðurskipa, æfa nú við Kóreuskaga ásamt japönskum herskipum. Er alls um að ræða 14 herskip af hinum ýmsu gerðum, s.s. tundurspilla og freigátur. Þá má einnig gera ráð fyrir að USS Michigan, einn stærsti kjarnorku- kafbátur heims, sé skammt undan. Fjölmiðill bandaríska varnar- málaráðuneytisins, Stars and Stripes, greinir frá því að þriðji her- skipaflotinn, undir forystu flug- móðurskipsins USS Nimitz, sé einnig væntanlegur á næstunni, en það mun vera afar sjaldgæft að Bandaríkjamenn sendi tvö flug- móðurskip til æfinga á sama stað, hvað þá þrjú. Er þetta öflugasta flotasveit sem sést hefur við Kór- euskaga um langt skeið, en ástæða komu flotadeildanna þangað er tíðar tilraunir stjórnvalda í Pjongjang með langdrægar skotflaugar. Nimitz ekki í forystu frá 2013 „Þessar flotadeildir, ásamt tveim- ur japönskum herskipum, nýttu sér tækifæri til að æfa og þróa sam- eiginlegar aðgerðir,“ segir í tilkynn- ingu 7. flotadeildar bandaríska sjó- hersins. „Að geta æft tvær flotadeildir flugmóðurskipa á sama tíma er einstakt tækifæri og ein af mörgum leiðum bandaríska sjóhers- ins til að stuðla að öryggi, stöð- ugleika og velmegun á svæðinu,“ segir einnig í tilkynningu. Flugmóðurskipið USS Nimitz mun hitta tundurspillana USS Kidd og USS Shoup við flotastöðina við San Diego í Bandaríkjunum áður en stefnan er tekin á Kóreuskaga. Lík- legt er að fleiri herskip sláist í för eftir því sem nær dregur, en þetta er í fyrsta sinn frá 2013 sem flota- deild siglir undir stjórn USS Ni- mitz. Tveir risar æfa við Kóreuskaga  Þriðja banda- ríska flugmóður- skipið á leiðinni Mynd/Bandaríski sjóherinn Skýr skilaboð Flugmóðurskipin USS Carl Vinson (nær) og USS Ronald Reagan við Kóreuskaga, en á milli þeirra er japanskur tundurspillir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.