Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Vinnubrögðinhjá Reykja-víkurborg
halda áfram að
vekja furðu. Nú
hefur verið greint
frá því að síðar í þessum mán-
uði verði gestum og gangandi
boðið að stíga á borgarhjól.
Slíkt fyrirkomulag má finna
víða um heim og er því ekkert
einsdæmi. Gegn gjaldi er hægt
að taka hjól á einum stað til að
komast leiðar sinnar og skilja
eftir á öðrum.
Margir munu eflaust fagna
þessari nýjung í borginni. Ekki
stendur þó öllum á sama eins og
fram kemur í fréttaskýringu í
Sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins nú um helgina. Þar segir
Stefán Helgi Valsson, sem rek-
ur Reykjavík Bike Tours og
býður upp á hjólaferðir og hjól
til leigu, að allt að 90% sam-
dráttur verði hjá hjólaleigum
við tilkomu borgarhjóla sem
þessara.
Í greininni finnur Einar Her-
mannsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins JCDecaux á Ís-
landi, sem rekur biðskýlin fyrir
strætisvagna í borginni, að því
að ekki hafi verið haldið útboð.
Borgin hafi fyrir rúmu ári aug-
lýst eftir áhugasömum rekstr-
araðilum, en ekkert hafi verið
vitað um hvað til stæði að hjólin
yrðu mörg eða hvenær ætti að
láta til skarar skríða. Einar
sagði að fyrirtækið hefði ekki
viljað vera með á þessu stigi, en
myndi taka þátt í útboði þegar
þar að kæmi.
Útboðið fór aldrei fram. Þess
í stað var tilkynnt
að samið hefði ver-
ið við flugfélagið
WOW. Verða hjóla-
stöðvarnar átta
alls.
Einar segir þetta sérstakt
þar sem hjólastöðvarnar séu
allar í borgarlandi. Á næsta ári
hyggist borgin einmitt bjóða út
rekstur strætóskýlanna, sem
nú er í höndum JCDecaux, með
þeim rökum að hún sé að láta
eftir borgarland.
Í fréttaskýringunni koma
fram þau svör frá borginni að
enginn þeirra fjögurra aðila,
sem funduðu með borginni
vegna auglýsingarinnar í fyrra
hafi verið tilbúinn að leggja
fram bindandi tilboð. Í haust
hafi hins vegar tveir aðilar haft
samband. WOW var annar
þeirra og í kjölfarið hafi verið
samið við flugfélagið.
Margt hefur aflaga farið í
þessu ferli. Hjá borginni hafa
menn greinilega ekki velt því
fyrir sér hvaða áhrif það hefði á
þau fyrirtæki sem fyrir eru að
opinbert bolmagn yrði notað til
að gera nýjum keppinauti kleift
að hasla sér völl með því að
tryggja honum aðgang að stöð-
um í borginni þar sem jafnan er
margt um ferðamanninn.
Þá getur borgin varla ætlast
til þess að fyrirtæki geri bind-
andi tilboð í verkefni sem er
óljóst og óskilgreint. Það getur
ekki verið afsökun fyrir því að
halda ekki útboð að þau fyr-
irtæki sem þá gáfu sig fram hafi
ekki verið tilbúin að skuldbinda
sig.
Vinnubrögð vegna
borgarhjóla vekja
spurningar}
Án útboðs
Mun færri inn-flytjendur
útskrifast úr fram-
haldsskólum en
nemendur af ís-
lenskum uppruna.
Aðeins 31% inn-
flytjenda sem inn-
rituðust í fram-
haldsskóla árið 2004 hafði
lokið námi sjö árum síðar eins
og fram kemur í Morg-
unblaðinu í dag. 62% nemenda
af íslenskum uppruna höfðu
lokið námi á þeim tíma.
Þessar tölur eru ekki góðs
viti. Það getur ekki talist eðli-
legt að helmingi færri innflytj-
endur ljúki námi, en nemendur
af íslenskum uppruna.
Líklegt er að þennan mikla
mun megi að stórum hluta
skrifa á skort á íslenskukunn-
áttu. Mikilvægt er að innflytj-
endur sem hingað koma á
grunnskóla- eða framhalds-
skólaaldri læri íslensku og hafi
sömu tækifæri og aðrir til að
afla sér mennt-
unar. Hér er ekki
verið að boða ný
sannindi. Í lögum
er kveðið á um að
nemendur með
annað móðurmál
en íslensku eigi
rétt á íslensku-
kennslu. Síðan segir: „Með
kennslunni er stefnt að virku
tvítyngi þessara nemenda og
að þeir geti stundað nám í
grunnskólum og tekið virkan
þátt í íslensku samfélagi.“ Það
er hins vegar eitt að setja lög
og annað að framfylgja þeim.
Oft er sagt að foreldrarnir
flytji til nýs lands til að búa
börnum sínum betra líf. Takist
það hins vegar ekki og þau
flosni upp úr námi og verði ut-
angátta í samfélaginu sé það
ávísun á vandamál.
Þess vegna þarf að fara ofan
í saumana á því hvers vegna
þetta mikla brottfall á sér stað
og finna leiðir til úrbóta.
Það gengur ekki að
helmingi færri inn-
flytjendur ljúki
framhaldsskóla en
nemar af íslenskum
uppruna}
Of mikið brottfall
Í
áratugi vann Jóhannes Gunnarsson
þrotlaust starf við uppbyggingu Neyt-
endasamtakanna og velgdi gjarnan
undir uggum þeim sem reyndu að snúa
á neytendur hér á landi. Hann fór
gjarnan hægt yfir í málatilbúnaði sínum en ábúð-
arfullur náði hann að sannfæra hina hörðustu
kapítalista um að pottur væri víða brotinn í versl-
un og viðskiptum. Allt virtist þetta starf unnið af
mikilli hugsjón og ekki verður Jóhannes sakaður
um að hafa skarað eldi að eigin köku á vettvangi
samtakanna.
En svo þótti Jóhannesi komið nóg, líkt og karl-
inum í Gullna hliðinu forðum, en ólíkt þeim
ólánsmanni var það ekki gigtin sem jafnaði um
Jóhannes heldur sú staðeynd að hann þekkti
sinn vitjunartíma, skildi að það var gott að
hleypa nýjum forystumanni að félaginu.
Átta mánuðum síðar standa Neytendasamtökin í björtu
báli og óvíst að þau eigi lengur það erindi við íslenskt sam-
félag sem þau sannarlega áttu meðan Jóhannesar naut við.
En hvað veldur því? Svarið við þeirri spurningu liggur í aug-
um uppi og tengist þeim löngu kunnu sannindum að menn
eru sjaldnast vel bærir til að velja með góðu sína eftirmenn.
Og það hefur sannast með afgerandi hætti í tilfelli Neyt-
endasamtakanna.
Við félaginu tók maður sem á síðustu árum hefur helst
unnið það sér til frægðar að skrifa níð um nafngreinda ein-
staklinga og hefur því víða verið haldið fram að fyrir það hafi
hann þegið fjármuni úr vasa almannatengsla-
fyrirtækis sem lengi hefur tengst vafasömum
bankamönnum sem kunnu fótum sínum ekki
forráð um miðjan síðasta áratug. Hafa skrif for-
mannsins einkum miðað að því að fella sök á
saklaust fólk og klína á það annarlegum hvötum
og ábyrgð á því hvernig fór fyrir viðskiptabönk-
unum árið 2008.
Þótti mörgum sem formaðurinn færi vel af
stað í hinu nýja embætti sínu sem formaður
Neytendasamtakanna og gerði hann sig breiðan
í öllum skilningi þess orðs og hafði gott og nærri
algjörlega hindrunarlaust aðgengi að fjöl-
miðlum í öllum gassaganginum. Sá gangur
reyndist hins vegar mikið gönuhlaup og innan
örfárra vikna varð stjórn samtakanna ljóst að ef
ekki yrði stigið niður fæti, myndi formanninum
með glórulausum fjárútlátum, sem helst fólust í
óhóflegum launagreiðslum til hans sjálfs og leigu á bíl undir
hann einnig, takast að ganga af samtökunum dauðum.
Í stað þess að skammast sín og biðjast afsökunar á dóm-
greindarleysinu hefur formaðurinn hins vegar allur færst í
aukana og segir hann stjórnina alla fara með fleipur. Neitar
hann öllum ásökunum og dregur hvergi af sér. Því miður
eru viðbrögð hans ekki trúverðug.
Jóhannes Gunnarsson mátti sjá allan þennan darraðar-
dans fyrir – og raunar allir þeir sem kusu hinn nýja formann.
Þeir hinir sömu bera nú ábyrgð á því að bjarga samtökunum
og formanninum um leið frá sjálfum sér. ses@mbl.is
Stefán Einar
Stefánsson
Pistill
„Neitendasamtökin“, eða hvað?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS
Alexander Gunnar Kristjánss.
agunnar@mbl.is
Einungis 31% innflytjendasem innrituðust í fram-haldsskóla árið 2004hafði lokið námi sjö árum
síðar, samanborið við 62% nemenda
af íslenskum uppruna.
Þetta kom fram í svari Kristjáns
Þórs Júlíussonar menntamálaráð-
herra við fyrirspurn Nichole Leigh
Mosty, þingmanns Bjartrar fram-
tíðar. Í fyrirspurninni er farið fram
á sundurliðun eftir kynjum og skól-
um á árunum 2010-2016. Þær tölur
liggja hins vegar ekki fyrir þar sem
upplýsingakerfi framhaldsskólanna,
Inna, skráir ekki uppruna nemenda.
Nýjustu upplýsingar frá Hagstofu
Íslands taka til þeirra 4.830 nem-
enda sem hófu nám í framhalds-
skólum haustið 2004. Af þeim nem-
endum hafði 2.961 útskrifast sjö
árum síðar en 1.316 hætt námi, eða
27%. Mjög mikill munur er á brott-
falli eftir uppruna nemenda. Mest
er brottfallið hjá fyrstu kynslóð inn-
flytjenda, eða 65%, samanborið við
26% hjá nemendum með engan er-
lendan bakgrunn. Minnst er brott-
fallið þó hjá íslenskum nemendum
sem fæddir eru í útlöndum, eða
21%.
Boðar starfshóp
Nichole segir mikilvægt að bregð-
ast við þessum mikla mun. Í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar
sé kveðið á um mikilvægi þess að
efla stuðning við tvítyngda nem-
endur og kennslu í íslensku sem
öðru máli og sú vinna sé nú rétt að
hefjast. Hún á von á að setjast niður
með ráðherra í sumar og ræða þær
hugmyndir sem hún hefur og segir
mögulegt að starfshópur verði skip-
aður á næstunni.
Þessi málaflokkur stendur
Nichole nærri, en hún er sjálf fædd
og uppalin í Bandaríkjunum og
flutti hingað til lands árið 1999. Þá
vann hún á leikskóla í mörg ár og
var leikskólastjóri í fimm ár áður en
hún settist á þing. Hún segist sjá
mikinn mun á því hvernig börn með-
taki námsefni eftir því hvort þau
hafi íslensku sem annað mál og eða
læri málið frá fæðingu. Þetta sé mál
sem hafi brunnið á henni lengi. Í
grunnskólum séu nú um 10% barna
tví- eða fjöltyngd, það sé of stór
hluti til að gefa þeim ekki sérstakan
gaum. „Við viljum ekki að 10% af
börnum okkar komist ekki í gegnum
framhaldsskóla,“ segir Nichole.
Gögnin ekki greind
vegna manneklu
Aðspurð segist Nichole ósátt við
hve gamlar tölur hafi fengist frá
Hagstofunni og segir koma til
greina að starfshópur verði settur
af stað til að rýna í gögnin.
Ásta M. Urbancic hjá Hagstofu
segir gögn stofnunarinnar um fram-
haldsskólanema bjóða upp á að
brottfall sé sundurliðað eftir ár-
göngum og uppruna nemenda, eins
og farið var fram á í fyrirspurninni.
Hagstofan haldi bæði utan um nem-
endaskrá í framhaldsskóla og
gagnagrunn um íbúa eftir uppruna
og með því að samkeyra megi fá
umbeðin gögn. Spurð hvers vegna
slík greining hafi ekki farið fram nú,
þegar fyrirspurnin barst, segir Ásta
að starfsmenn stofnunarinnar hafi
ekki séð sér fært að leggjast í þessa
vinnu vegna manneklu. Því hafi
ráðuneytið þurft að gera sér að
góðu tölfræði um nemendur frá
árinu 2004.
Innflytjendur tvöfalt lík-
legri til að hætta í námi
Brottfall nemenda úr framhaldsskólum
Nemendur sem innrituðust
árið 2004 en höfðu hætt
námi 7 árum síðar
Enginn
erlendur
bakgrunnur
Meðaltal: 27%
Fæddu/ur
erlendis,
íslenskur
bakgrunnur
Einhver
erlendur
bakgrunnur,
meðaltal*
Innflytjandi
Heimild: Mennta- og menningarmálaráðherra *Erlent foreldri, innflytjendur og önnur kynslóð
26%
21%
65%
42%
Morgunblaðið/Golli
Hátt fall Nýnemar í MR eru boðnir velkomnir með tolleringu
Gamlar tölur
» Nýjustu tölur eru um nem-
endur sem hófu nám 2004.
» Aðeins 38% karla höfðu út-
skrifast fjórum árum síðar
samanborið við 52% kvenna.
» Brottfall úr framhaldsskóla
er minnst meðal íslenskra
nemenda sem fæddir eru er-
lendis.
» 12 konur útskrifast úr fram-
haldsskóla fyrir hverja 10
karla.