Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017
kl 11. Ferming. Sr. Jón Helgi Þórarinsson og
sr. Þórhildur Ólafs þjóna. Guðmundur Sig-
urðsson leikur á orgel og stýrir söng Barböru-
kórsins. Kaffisopi á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Hátíðarmessa og
sögustund fyrir börn kl. 11. Sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir og sr. Birgir Ásgeirsson þjóna
ásamt messuþjónum. Mótettukórinn syngur,
organisti er Hörður Áskelsson, Baldvin Odds-
son leikur á trompet í athöfninni. Annar í
hvítasunnu: Messa og ferming kl. 11. Sr.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar ásamt Ingu
Harðardóttur æskulýðsfulltrúa og messuþjón-
um. Mótettukórinn syngur, organisti er Hörð-
ur Áskelsson. Árdegismessa kl. 8 alla mið-
vikudaga.
HÁTEIGSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11.
Prestur Eiríkur Jóhannsson, organisti Kári All-
ansson. Léttur málsverður í safnaðarheimili
eftir messu. Þriðjudagskvöldið 6. júní kl.
19.30 verður samkoma í safnaðarheimilinu
þar sem Vassula Rydén flytur boðskap um
frið og kærleika og einingu kirkjunnar.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sameiginleg
messa Hjalla- og Digranessafnaðar í Hjalla-
kirkju kl. 11. Sr. Karen Lind Ólafsdóttir og sr.
Toshiki Toma leiða stundina. Organisti Guðný
Einarsdóttir. Kór Hjallakirkju leiðir söng og
messusvör. hjallakirkja.is
HOLTASTAÐAKIRKJA Í LANGADAL | Í dag,
laugardaginn 3. júní kl. 11, verður messa í
kirkjunni. Kór Bergsstaða-, Bólstaðarhlíðar og
Holtastaðakirkju leiðir söng undir stjórn Hug-
rúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Fermt
verður í athöfninni. Sr. Bryndís Valbjarn-
ardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Með-
hjálpari er Kristín Jónsdóttir.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Ferming-
armessa kl. 13 Kór Hólaneskirkju syngur
undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur
organista. Sr. Bryndís Valbjarnardóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari ásamt Kristínu Árna-
dóttur djákna. Meðhjálpari er Steindór Runi-
berg Haraldsson.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Hátíð-
armessa annan í hvítasunnu kl. 11. Kirkjukór-
inn syngur undir stjórn Inga Heiðars Jóns-
sonar, prestur Guðbjörg Arnardóttir.
HREPPHÓLAKIRKJA | Hátíðarmessa og
ferming kl. 11. Kirkjukórinn syngur. Organisti
Þorbjörg Jóhannsdóttir.
HRUNAKIRKJA | Hátíðarmessa og ferming
kl. 13.30. Kirkjukór syngur og organisti er
Stefán Þorleifsson. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA | Hátíðamessa og
ferming kl. 10.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11, samkoma á ensku kl. 14. Annar
í hvítasunnu: útvarpsmessa kl. 11.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaupmannahöfn |
Hátíðarguðsþjónusta verður annan í hvíta-
sunnu, 5. júní kl. 14 í St. Pauls kirkju. Kamm-
erkórinn Staka syngur. Orgel og kórstjórn
annast Stefán Arason. Ferming. Prestur
Ágúst Einarsson. Messukaffi í Jónshúsi í um-
sjón Kvennakórsins í Kaupmannahöfn.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma með lofgjörð og fyrirbænum kl. 20.
Hópur frá Færeyjum sér um samkomuna. Al-
menn samkoma með lofgjörð og fyrirbænum í
umsjón hjónanna Maxine og John Ingalls kl.
20 annan í hvítasunnu. Þau segja frá starfi
sínu í Kanada, prédika og syngja.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Hátíðarguðsþjón-
usta og ferming kl. 11. Kór Keflavíkurkirkju
syngur. Arnór Vilbergsson leikur á orgelið og
sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Hátíðar-
guðsþjónusta kl.12.15. Sóknarprestur, Bald-
ur Rafn Sigurðsson, prédikar og þjónar fyrir
altari. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir stjórn
Stefáns Helga Kristinssonar organista. Með-
hjálpari Árni Hinrik Hjartarson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová kantors. Barnakór frá Lúx-
emborg syngur. Lesnir verða ritningarlestrar
og bænir beðnar á nokkrum tungumálum.
LANGHOLTSKIRKJA | Fermingarathöfn kl.
11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar. Organisti
er Sólveig Anna Aradóttir. Félagar úr Kór
Langholtskirkju leiða safnaðarsöng. Edda Hlíf
Hlífarsdóttir guðfræðinemi og messuþjónar
aðstoða við helgihaldið.
LAUGARNESKIRKJA | Kl. 11 ferming-
armessa. Hátún 12, betri stofan kl. 13.
Helgistund með sr. Davíð Þór, Arngerði Maríu
og Hjalta Jóni. Síðasta helgistund vetrarins.
LÁGAFELLSKIRKJA | Messa í Lágafells-
kirkju kl. 11. Ferming, prestur er Ragnheiður
Jónsdóttir, Rut G. Magnúsdóttir djákni að-
stoðar. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur og
leiðir söng. Einsöngur: Diddú og Rrezarta
Jónsdóttir. Organisti Kjartan Jósefsson Ogni-
bene. Kirkjuvörður Lilja Þorsteinsdóttir.
NESKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 11. Kór Nes-
kirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Samfélag
og kaffi á Torginu. Annar í hvítasunnu:
Ávaxtatré og vorsöngvar kl. 18. Kór Neskirkju
syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar.
Ásta Camilla Gylfadóttir landslagsarkitekt
fræðir um garðyrkju og við setjum niður
ávaxtatré í garði kirkjunnar. Sumarlegar veit-
ingar og Steinunnarborð með litum og mynd-
um fyrir börnin. Sr. Skúli S. Ólafsson leiðir
stundina.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Kvöldmessa kl.
20 annan í hvítasunnu. Sr. Pétur Þor-
steinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Með-
limir úr Graduale Nobili leiða sönginn undir
stjórn Árna Heiðars Karlssonar. Ólafur Krist-
jánsson tekur vel á móti öllum.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Ræðumaður Haraldur Jóhannsson.
Túlkað á ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Hátíðarmessa á kl. 11.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Edit A. Moln-
ár, prestur Guðbjörg Arnardóttir.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða
söng. Organisti: Douglas A. Brotchie.
SELTJARNARNESKIRKJA | Hátíðarmessa
kl. 11. Prestur er Bjarni Þór Bjarnason. Org-
anisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almenn-
an safnaðarsöng. Kaffiveitingar og samfélag
eftir athöfn.
Stafholtskirkja í Stafholtstungum | Ferm-
ingarmessa kl. 14. Kirkjukórinn leiðir söng
undir stjórn Jónínu Ernu Arnardóttur sem leik-
ur á orgelið. Prestur: Jón Ásgeir Sigurvinsson.
STRANDARKIRKJA | Messa annan í hvíta-
sunnu kl. 14, organisti Miklos Dalmay. Kór
Þorlákskirkju. Guðmundur Brynjólfsson pré-
dikar. Sóknarprestur.
VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa | Ferming-
armessa kl. 13. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn Inga Heiðmars Jónssonar, prestur Guð-
björg Arnardóttir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Hátíð-
arhelgistund kl. 20. Arnhildur Valgarðsdóttir
spilar á orgel og leiðir söng. Prestur: Hulda
Hrönn Helgadóttir.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 14. Þórhildur Ólafs prófastur setur
sr. Brynju Vigdísi Þorsteinsdóttur inn í emb-
ætti. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir stjórn
Stefáns Helga Kristinssonar organista. Með-
hjálpari Pétur Rúðrik Guðmundsson. Kaffi-
samsæti að athöfn lokinni.
ÞORLÁKSKIRKJA | Fermingarmessa kl.
13.30.
Morgunblaðið/ÓmarSelfosskirkja
✝ Erna Margrét Jóhann-esdóttir fæddist í Vest-
mannaeyjum 2. janúar 1937.
Hún lést á Dvalarheimilinu
Hraunbúðum 22. maí 2017.
Foreldrar hennar voru
hjónin Guðrún Einarsdóttir,
f. 28. febrúar 1909 í Austur-
Húnavatnssýslu, d. 28. des-
ember 1986 í Vestmanna-
eyjum, og Jóhannes Gunnar
Gíslason, f. 14. júlí 1906 í Út-
skálum á Tjörnesi, d. 2. jan-
úar 1995 í Vestmannaeyjum. Bróðir
Ernu er Hjálmar Þór Jóhannesson, f.
23. september 1940.
Hinn 31. desember 1955 giftist Erna
Sveinbirni Hjálmarssyni, f. 11. sept-
ember 1931, d. 27.október 2016. For-
eldrar hans voru Guðbjörg Helgadóttir,
f. 16. október 1898, d. 23. júní 1958, og
Hjálmar Jónsson, f. 5. júní 1899, d. 25.
júlí 1968. Börn Ernu og Sveinbjörns
25. júní 1963, kvæntur Guðnýju Þóris-
dóttur. Synir þeirra eru Darri, f. 1994,
Nökkvi, f. 2000 og Hugi, f. 2008. 4) Ás-
dís Ingunn, f. 9. ágúst 1968. Dætur
hennar og Kristjáns Þórs Jakobssonar
eru Guðrún Ósk, f. 1994 og Elísa, f.
1999.
Erna ólst upp á heimili foreldra sinna
á Kanastöðum í Vestmannaeyjum. Hún
lauk prófi frá Gagnfræðaskólanum þar
í bæ vorið 1953 og hóf þá verslunarstörf
og síðan skrifstofustörf hjá Tanganum í
Eyjum. Þar vann hún fram eftir ári
1955. Samhliða barnauppeldi og heim-
ilishaldi lagði hún stund á saumaskap
með áherslu á kjólasaum í um einn og
hálfan áratug. Á árinu 1972 fór hún á
vinnumarkað að nýju og vann auk hefð-
bundinna heimilisstarfa við umboð
Happdrættis Háskóla Íslands í Vest-
mannaeyjum til 2005. Frá ársbyrjun
1973 til hausts 1974 sinnti hún þessu
starfi í Reykjavík meðan jarðeldar í
Vestmannaeyjum og afleiðingar þeirra
hindruðu búsetu fjölskyldunnar þar.
Hún var virkur félagsmaður í Odd-
fellowstúkunni Vilborgu um árabil og
gegndi þar trúnaðarstörfum.
Útför Ernu fer fram frá Landakirkju
í dag, 3. júní 2017, klukkan 13.
eru: 1) Guðrún, f. 22.
október 1955, gift Gunn-
laugi Claessen. Sonur
þeirra er Sveinbjörn, f.
1986, í sambúð með
Gróu Björgu Baldvins-
dóttur. Dóttir Guðrúnar
og stjúpdóttir Gunn-
laugs er Erna Margrét,
f. 1980. Börn Ernu og
Leifs Steins Árnasonar
eru Arnór Steinn, Berg-
lind Björt og Jakob
Kári. Börn Gunnlaugs af fyrra hjóna-
bandi eru Þórdís, f. 1974 og Haukur, f.
1977. 2) Guðbjörg Helga, f. 1. ágúst
1957, gift Sigurði Vigni Vignissyni.
Börn þeirra eru Birna Vigdís, f. 1979 og
Daði Már, f. 1991. Birna Vigdís er gift
Davíð Halldórssyni og dóttir þeirra er
Elma Björg. Sonur Birnu er Dagur, fað-
ir Davíð Arnórsson. Dóttir Davíðs Hall-
dórssonar er Saga Margrét. 3) Egill, f.
Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga.
Baggi margra þungur er.
Treystu því, að þér á herðar
þyngri byrði’ ei varpað er
en þú hefir afl að bera.
Orka blundar næg í þér.
...
Þerrðu kinnar þess er grætur
þvoðu kaun hins særða manns
Sendu inn í sérhvert hjarta,
sólargeisla kærleikans
Vertu sanngjarn, vertu mildur,
vægðu þeim sem mót þér braut.
Bið þinn Guð um hreinna hjarta
hjálp í lífsins vanda’ og þraut.
(Erla skáldkona)
Elsku mamma
Þetta hafðir þú að leiðarljósi í lífi þínu.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guðrún, Guðbjörg, Egill og Ásdís.
Tengdaforeldrar mínir luku sinni jarð-
vist með stuttu millibili. Við sjáum nú á
eftir Ernu einungis sjö mánuðum eftir
fráfall Svenna. Hjá henni var aðdragand-
inn stuttur, andstætt því sem átti við um
eiginmanninn. Við kveðjum í dag heiðurs-
konu með söknuði.
Þessi tímamót kalla fram ótal minning-
ar af góðu fólki allt frá fyrstu kynnum af
verðandi tengdaforeldrum mínum fyrir
margt löngu. Þau hófust í heimsókn okkar
Guðrúnar til átthaga hennar á fögrum
sumardegi. Eftir móttökur við hlaðið
veisluborð á Kirkjubæjarbraut fannst
húsráðendum rétt að skreppa í bíltúr með
okkur til að sýna aðkomumanninum
Heimaey. Hér og hvar var stansað til að
njóta þess sem fyrir augu bar á þessari
fallegu eyju. Meðal annars var ekið upp á
Stórhöfða, sem var og er þekktur fyrir
ákveðna sérstöðu í veðurlýsingum RÚV.
Þar sem við stóðum á höfðanum nefndi ég
hvort landsmenn hefðu ekki fengið full
ýkta mynd af þessum stað, enda voru þar
ekki 15 eða 20 vindstig þann daginn, held-
ur blankalogn og bærðist ekki hár á höfði!
Svar þeirra var að þau hefðu margsinnis
áður komið á staðinn, en það kæmi þægi-
lega á óvart að ná að upplifa logn á Stór-
höfða. Í kjölfar þessarar fyrstu ferðar
fylgdu fjölmargar aðrar sumarferðir okk-
ar og barnanna á „ Hótel tengdamömmu“
í Eyjum að ógleymdum stökum ferðum
um áramót og páska. Eitt áttu þær allar
sammerkt og það var að tíminn leið allt of
hratt og komið að heimferð fyrr en varði.
Erna var glæsileg og vönduð kona og
bjó yfir ríkum mannkostum. Hún hafði
það sem stundum er kallað góða og hlýja
nærveru. Hluti þess var glaðlyndi, bros í
augum og smitandi hlátur. Hún var dug-
leg og ósérhlífin og það sýndi sig best
meðan hún stýrði enn barnmörgu heimili.
Hún drýgði þá tekjur þess með því að
læra og stunda saumaskap, þar sem hún
gat uppfyllt óskir viðskiptamannsins um
hvort heldur var brúðarkjól eða einfaldari
flík. Erna var líka félagsvera og þátttaka í
starfi Oddfellowstúkunnar Vilborgar í um
40 ár var henni mikils virði, en hún gegndi
þar einnig trúnaðarstörfum. Líklega hef-
ur þessi eiginleiki einnig ráðið nokkru um
þá ánægju sem hún hafði af starfi sínu fyr-
ir Happdrætti Háskóla Íslands í rúm 30
ár þar sem margir áttu erindi á hennar
fund í hverjum mánuði til að endurnýja
miðann sinn. Erna var þeirrar gerðar sem
fólk laðast að. Það kom af sjálfu sér að hún
var vinamörg.
Ég þakka tengdamóður minni fyrir
samfylgd sem aldrei bar skugga á. Henni
tengist fjöldi góðra minninga. Erna bætti
það mannlíf sem hún var hluti af. Fari
elskuleg tengdamóðir mín í friði, friður
Guðs hana blessi.
Gunnlaugur Classen.
Með þessum orðum kveð ég þig elsku
amma mín. Með söknuði en miklu þakk-
læti í hjarta. Ömmu mína sem tók á móti
mér í þennan heim og minnti mig reglu-
lega á það að hún var sú fyrsta sem sá mig.
Amma Erna eða amma E.T., eins og ég
kallaði hana frá því ég var lítil stelpa að
reyna að stafa, var eins og ömmur gerast
bestar. Amma var alltaf einstaklega þol-
inmóð við okkur barnabörnin og á Kirkju-
bæjarbrautinni fengum við að leika okkur
með öll húsgögn og allt postulín sem fannst
á heimilinu. Snúa öllu á hvolf og gera tjald í
stofunni úr öllum stólunum og teppunum.
Amma var svo glæsileg kona og passaði
alltaf að líta vel út. Á heimilinu átti líka allt
sinn stað og hún var einstaklega snyrtileg.
Hún var á mörkunum að vera of snyrtileg
og skömmuðum við hana stundum fyrir að
nota of mikla sápu þegar hún var farin að
fá sár á hendurnar. En hún hló bara að
okkur og hélt áfram að skrúbba. Hún var
rosalega hláturmild og sá yfirleitt fyndnu
hliðina á málunum. Eins og þegar hún var
farin að gleyma aðeins, hló hún að vitleys-
unni í sjálfri sér.
Amma átti ekki áfallalausa ævi og
barðist oftar við krabbamein en flestir, en
alltaf stóð hún upp og jafnaði sig á ógn-
arhraða. Hún kvartaði lítið og stundum of
lítið því hún vildi nú ekki trufla læknana. Í
fyrra kom svo stærsta áfallið þegar elsku
afi veiktist og lést eftir baráttu við sama
sjúkdóm. En saman áttu þau mörg ár sem
gott er að minnast.
Amma og afi hringdu í mig á hverjum
einasta afmælisdegi frá því ég man eftir
mér. Það verður skrítið að heyra ekki í
ykkur meir en ég geymi síðasta símtalið
okkar ömmu í hjarta mínu.
Ég var einstaklega þakklát að hafa þig
viðstadda brúðkaup okkar Davíðs í vetur
og þú lagðir á þig langt ferðalag til að geta
verið með okkur. Fyrir það verð ég æv-
inlega þakklát og veit að afi var með okk-
ur þar líka, sitjandi á stól úti í horni eins
og hann hafði óskað sér.
Við áttum ýmislegt sameiginlegt, elsku
amma, en kannski mest ást okkar á sósum
og mun sósuskammturinn minn alltaf
minna mig á þig. Því meiri sósa því betra.
Takk fyrir allt elsku amma E.T.
Þín
Birna Vigdís.
Eftirfarandi orð um hana ömmu í Eyj-
um skrifa ég einungis sjö mánuðum eftir
að hafa ritað minningargrein um afa sem
kvaddi í lok október sl. Það er sannanlega
skammt stórra högga á milli. Við kveðjum
í dag ömmu eftir baráttu hennar við erfið
veikindi sem höfðu að lokum betur. Afi
tekur á móti henni fagnandi hinum megin
hliðsins eftir stuttan viðskilnað. Þau hjón-
in voru gift í 60 ár og ekki leið langur tími
milli þeirra þegar kom að því að kveðja
þennan heim. Það er fallegt til þess að
hugsa að þau eru nú aftur sameinuð og
halda vegferð sinni áfram hönd í hönd.
Þegar litið er tilbaka trúi ég því að þau
hafi verið sköpuð hvort fyrir annað.
Minningar mínar um hana ömmu eiga
það sammerkt að fallegt bros hennar, hlát-
ur og gleðilegt viðmót koma við sögu í
þeim öllum. Mjóu dömusígaretturnar til-
heyra einhverjum minningarbútum en það
er önnur saga sem ekki verður rakin hér.
Gestrisnin var meiri en gengur og gerist
og það þekkja þeir sem komu í heimsókn á
Kirkjubæjarbrautina. Við elstu barna-
börnin vorum m.a. dekruð langt umfram
það sem eðlilegt getur talist þegar við
fengum að gista uppi á lofti hjá ömmu og
afa um þjóðhátíð. Í því sambandi eru mér
sérstaklega minnisstæð árin 2005 og 2006
þegar prinsinn úr bænum reisti þjóðhátíð-
arbækistöðvar sínar á Kirkjubæjarbraut-
inni. Höfðinglegar móttökurnar slógu öllu
öðru við; nýbakað brauð, kökur, kruðerí og
svellköld nýmjólk. Amma þekkti sinn
mann. Síðan var haldið í dalinn og alla
jafna komið heim snemma morguns. Þeg-
ar heim var komið beið nætursnarl á eld-
húsborðinu svo þjóðhátíðargesturinn fengi
nægjanlega orku til að drífa hátíðina á
enda. Síðan, þegar barnabarnið vaknaði
upp úr hádegi, brást ekki að skemmtigalli
hans beið við rúmstokkinn, nýþveginn og
brotinn saman. Þá má ekki gleyma veisl-
unum sem haldnar voru áður en haldið var
í dalinn þar sem m.a. lambakjöt var borið
fram á laugardagskvöldinu og lundaveislu
snarað fram á sunnudeginum. Þessa gest-
risni leyfi ég mér að kalla fyrsta flokks
dekrun. Þannig var hún amma nefnilega,
hugsaði vel um alla í kringum sig og sá til
þess að öllum liði vel. Hótel amma var
sannanlega fimm stjörnu!.
Ég vildi óska þess að ég fengi að heim-
sækja þau gömlu hjónin á Kirkjubæjar-
brautina aftur. Því miður fæ ég þá ósk
mína ekki uppfyllta. Eftir standa þó minn-
ingarnar, gleðilegar og fallegar. Þær mun
ég að sjálfsögðu varðveita vel. Ég tók það
loforð af ömmu þegar ég hitti hana í síð-
asta skipti í byrjun maí sl. að hún byði mér
í lundaveislu næst þegar við hittumst. Ég
mun að sjálfsögðu herma það loforð upp á
hana þegar sá tími kemur. Þangað til fær
afi að njóta góðgætisins, sæll og glaður.
Fyrir elsku ömmu er ég þakklátur.
Hún var góð kona og umfram allt yndisleg
amma sem ég var svo heppinn að fá að
eiga að í rúmlega 30 ár. Ég mun hlusta
vandlega eftir góðlátlegum hlátri hennar
á Kirkjubæjarbrautinni um helgina. Óm-
ur hans mun vafalaust heyrast.
Guð geymi hana og varðveiti.
Sveinbjörn Claessen.
Með söknuði í hjarta kveð ég Ernu vin-
konu mína og þakka allar samverustundir
sem voru margar og góðar en áttu að
verða miklu fleiri. Mikið er ég fegin að við
gátum samfagnað með Birnu Vigdísi og
Davíð á brúðkaupsdegi þeirra þann 19.
nóvember en þá var Svenni þinn nýfarinn
eftir erfið veikindi. Einstakt æðruleysi ein-
kenndi baráttu Ernu síðustu vikurnar sem
hún lifði. Erna var hógvær og heilsteypt
persóna sem gott var að eiga sem vin.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Blessuð sé minning þín.
Sandra.
Erna Margrét
Jóhannesdóttir