Morgunblaðið - 03.06.2017, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 03.06.2017, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 ✝ Steinn Jónssonfæddist á Eski- firði 22. október 1918. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Uppsölum, Fá- skrúðsfirði, 25. maí 2017. Foreldrar hans voru Guðrún Sigurlín Bóasdótt- ir, f. 14.4. 1886, d. 29.7. 1929, og Jón Steinsson, f. 22.8. 1887, d. 20.6. 1937. Við lát móð- ur sinnar var Steinn sendur í fóstur að Dölum í Fáskrúðsfirði til ömmu sinnar, Guðbjargar Marteinsdóttur, og seinni manns hennar, Höskuldar Stefánsson- ar, sem þar bjuggu. Þar ólst Steinn upp við hefðbundin sveitastörf. Steinn kvæntist Stefaníu Mar- íu Árnadóttur, f. 9.1. 1935. Hún er dóttir Árna Daníelssonar, f. í Sandvíksseli 23.3. 1901, d. 3.6. Anna Karen og Eygló, gift Braga Bjarnasyni, eiga þau þrjú börn, Bjarna Dag, Hildi Evu og Elmar Andra. 4) Jón, giftur Svandísi Stein- grímsdóttur, eru börn þeirra Steinn og Katrín María. Steinn stundaði nám við Al- þýðuskólann á Laugum 1937-38, lauk mótornámskeiði í Neskaup- stað 1943 og lauk meira fiski- mannaprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík 1946. Steinn hóf sjómannsferil sinn 1941. Eft- ir stýrimannaprófið var hann á ýmsum bátum og togurum í flestum störfum og síðar skip- stjóri, m.a. á togurunum Vetti og Guðrúnu Þorkelsdóttur fram til 1967 er hann kom í land. Hann hóf störf hjá Verðlags- stofnun (síðar Samkeppnis- stofnun) 1968 og vann þar til starfsloka. Steinn sat tvö kjör- tímabil í hreppsnefnd Eski- fjarðar og nokkur ár í skóla- nefnd. Útför Steins fer fram í Eski- fjarðarkirkju í dag, 3. júní 2017, og hefst athöfnin kl. 11. 1978, og Gyðu Steindórsdóttur, f. í Nesi í Norðfirði 26.2. 1901, d. 20.3. 1960. Steinn og Stef- anía eiga fjögur börn, þau eru 1) Guðrún Sigríður, f. 7.3. 1959, gift Vil- helm Jónssyni og eru dætur þeirra a) Hulda María, sam- býlismaður Sean Ryan, börn Aníta Guðrún, Saga María og Vilhelm Leonard. b) Ester, sam- býlismaður Marteinn Dagsson, dætur Amanda Ósk og Telma Dögg. 2) Gyða, f. 27.2. 1962, sam- býlismaður Einar Páll Harð- arson, og eru dætur þeirra Aníta Ósk og Íris Eva. 3) Guð- björg, f. 4.6. 1965, gift Hans Jörgen Einarssyni, eru börn þeirra Steinunn, Einar Jörgen, Á uppstigningardaginn kvaddi þetta jarðlíf Steinn Jónsson, eða Denni eins og hann var alltaf kall- aður, 98 ára gamall. Hjálpsemi, traust, réttlæti, heiðarleiki, hæv- erska og kímnigáfa eru þau orð sem fyrst koma upp í huga okkar þegar við hugsum til góðs föður og tengdaföður. Þú fylgdist vel með heimsmál- unum og íþróttum og sinntir fjöl- mörgum áhugamálum af krafti. Hestamennska, spilamennska, garð- og kartöflurækt, berjatínsla, veiðiskapur, útivist og prjónaskap- ur síðustu árin, allt átti þetta hug þinn. Þú varst víðlesinn og fróður, sérstaklega í Íslendingasögum, og við minnumst góðra stunda við stofuborðið á æskuheimilinu okkar í Hátúninu þar sem við nutum leið- sagnar þinnar. Þar áttum við ávallt skjól hjá þér og mömmu og þangað gátum við komið með vini okkar til lengri eða skemmri tíma. Þar var og er alltaf pláss fyrir alla. Börnin okkar voru ávallt í miklu uppáhaldi hjá þér og þú naust hverrar stundar með þeim. Þú hafðir mikinn áhuga á hesta- mennskunni og fórst í margar skemmtilegar ferðir með vinum og félögum. Eftirminnileg er ferðin þegar þú, 86 ára gamall, fórst ríð- andi fram og til baka frá Eskifirði á hestamannamót í Skagafirði og settist aldrei inn í bíl á leiðinni. Á veturna skipulagðir þú ferðirnar, skoðaðir landakort af kostgæfni, pantaðir gistingu, fékkst haga- pláss og talaðir við staðkunnuga. Að því búnu tilkynntir þú ferða- félögum þínum ferðaáætlunina sem auðvitað var alltaf samþykkt. Sem sjómaður upplifðir þú marga atburði sem kröfðust bæði áræðni og dugnaðar af þér og þín- um mönnum. Ber þar hæst björg- unarleiðangur þegar togarinn Eg- ill Rauði frá Neskaupstað strandaði undir Grænuhlíð. Við systkinin gerðum okkur ekki grein fyrir því hversu mikið björgunar- afrekið var fyrr en við löngu seinna lásum blaðagrein sem lýsir þessum atburði. Þá bjargaðir þú ásamt áhöfn þinni á mótorbátnum Sindra 14 manna áhöfn af þýsku saltskipi við Garðskagavita. Þú varst víkingur til vinnu, tal- aðir aldrei um eigið ágæti en minntist oft á hvað þú varst alltaf heppinn með mannskap. Þér var tíðrætt um það að maður ætti aldr- ei að vera með hendur í vösum og horfa á aðra vinna heldur að leggja hönd á plóginn. Þú varst mikill jafnaðarmaður og liðsheildin gekk fyrir hjá þér. Sveitin þín í Dölum í Fáskrúðs- firði stóð hjarta þínu alltaf næst og þangað var oft farið til Sigrúnar og Ella. Þá voru líka farnar margar ferðir í Hraunkot í Lóni til Frissa bróður þíns. Þarna voru skapaðar dýrmætar minningar og mynduð náin tengsl við frændfólk, enda varstu mjög ættrækinn. Í þessum ferðum kenndir þú okkur nöfn á öllum bæjum og fjöllum og varst alltaf jafn undrandi þegar við mundum þau ekki í næstu ferð. Elsku pabbi og tengdapabbi, þú áttir langa, góða og gifturíka ævi. Dýrmætar minningarnar streyma fram, þær munu lifa með okkur öllum um ókomna tíð. Það verður sárt að koma heim í Hátún og hitta þig ekki aftur í því hlýja og góða umhverfi sem þið mamma sköp- uðu saman, en við lofum að passa vel upp á mömmu. Hvíl í friði. Guðrún og Vilhelm, Gyða og Einar Páll, Guðbjörg og Hans, Jón og Svandís. Elsku afi minn, mikið var sárt að fá þessar fréttir af andláti þínu fimmtudaginn 25. maí. En þetta er víst gangur lífsins, eins sárt og það er. Ég á þér svo margt að þakka. Ég væri ekki á kafi í hestamennsk- unni í dag nema því þú kynntir hana fyrir mér og mikið sem ég er þakklát fyrir að hafa fengið að fara með þér í hesthúsin þegar ég var lítil. Ég var svo stolt af sjálfri mér þegar ég var lítið krakkarassgat og mokaði allt hesthúsið sjálf, brosið fór ekki af mér. Ég man þegar ég var alltaf að spyrja um að fá að prófa hina og þessa hestana sem þú áttir og þú sagðir að ég þyrfti að vera eldri til að fá að fara á bak á þeim ein. Þegar ég var orð- in 13 ára fékk ég að fara ein á And- vara í fyrsta skipti, þá fannst mér ég vera orðin svo stór. Hann var einn af uppáhaldshestum þínum og var nú ekki beint barnahestur. Ég gat setið hann í reiðtúr sjálf og ég var með stjörnur í augunum. Ég man þegar að ég fór með þér að girða út á Sigmundarhús- um, ég var 10 ára þá. Þá fórum við gangandi frá bænum með staura upp í hlíðina, sem var nú smá spöl- ur og frekar bratt. Ég tók einn staur undir sitthvora höndina og þú tvo og verkfærakassann, mér fannst ég hafa svo mikið hlutverk og orðin svo fullorðin. Við vorum þarna allan daginn og tókum reglulegar nestispásur og drukk- um orkudrykki. Þú sagðir að ég mætti ekki segja ömmu hvað við drukkum marga því ég var orðin svo æst og komin með munnræpu. Þegar ég var í grunnskóla átti ég stundum að skrifa sögu um það sem gerðist í gamla daga. Alltaf fannst mér það frábær hugmynd að hringja í afa og skrifa úr æsku hans. Auðvitað varst þú alltaf boð- inn og búinn að segja mér frá sjálfum þér og á ég margar sögur frá þér. Ég gleymi því ekki þegar ég kom í skólann einn daginn og búin að skrifa sögu um að þú hefð- ir ekki átt skó á sumrin og hefðir gengið um berfættur í sveitinni. Það sem krökkunum í bekknum fannst þetta merkilegt og það var mikið talað um það í bekknum að afi hennar Esterar hefði ekki átt skó á sumrin. Mér þótti mér alltaf vænt um það þegar þú heyrðir stundum í mér eftir að ég spilaði handbolta- leiki og spurðir mig hvernig hefði gengið, því þú hafðir fylgst með mér í sjónvarpinu. Þú sagðir mér alltaf að æfa vel og borða hafra- graut í morgunmat því ég yrði svo sterk af því, og að sjálfsögðu borð- aði ég vel af hafragraut. Telma dóttir mín sem er orðin fjögurra ára er komin með hesta- delluna, hún er farin að fara á hestbak. Hún spyr mig reglulega þegar við erum að brasa uppi í hesthúsum: „Gerði afi Denni þetta svona, mamma?“ Hún spyr mikið um þig. Afi minn, ég hef alltaf litið upp til þín og hugsa oft um þig þegar ég er uppi í hesthúsum eða að ríða út. Ég er þér óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið þessa hesta- dellu frá þér. Þetta er líf mitt og yndi í dag. Nú kveð ég þig með miklum trega og sorg í hjarta. Þú verður alltaf fyrirmyndin mín í lífinu og ég veit að nú ertu kominn á vit æv- intýranna og ert aftur farinn að ríða út á Stormi þínum. Takk fyrir að gefa mér allar þessa minningar, gleði, ást og hlýju. Ester Vilhelmsdóttir. Elsku afi. Mér finnst svo ótrúlega skrítið að hugsa til þess að þú sért farinn, en ég er svo ótrúlega heppin að eiga margar og fallegar minningar um þig. Mínar fyrstu minningar um þig eru úr hesthúsinu, þegar ég var að fara með þér þangað. Ég hætti mér nú aldrei langt frá þér því að ég var alltaf hálfhrædd við þessar risastóru skepnur. Þú varst sjaldan ánægðari en þegar þú varst á hestbaki og þú hafðir alveg óendanlega þolinmæði gagnvart mér og mínu litla hjarta. Þú varst alveg ótrúlega góður afi, sagðir alltaf já ef maður bað þig um eitt- hvað. Þú varst aldrei reiður og við krakkarnir máttum nánast allt. Eitt skipti þegar ég var svona um 10 ára sátum við að borða kvöld- mat með ykkur ömmu og mér verður á að prumpa, og mamma lít- ur á mig og segir reið „Hulda María svona gerir maður ekki við matarborðið,“ þá fórst þú að hlæja, knúsaðir mig og sagðir „Hulda mín, það er engin synd þó að búk- urinn leysi vind,“ þú varst alltaf með kímnigáfuna í lagi. Aðeins einu sinni man ég eftir að þú varst reiður við mig og skammaðir mig og þá vissi ég líka að ég hefði gert eitthvað alvarlegt af mér. Þú varst alltaf til í að spila og kenndir mér að spila Ólsen Ólsen og Kasínu og seinna kenndirðu stelpunum mín- um það líka. Ég man alltaf þegar ég sat og fékk að fylgjast með ykk- ur spila Manna, þá bankaðirðu allt- af fast í borðið svo að glumdi í þeg- ar þú settir út spil og þetta fannst mér alveg rosalega flott að geta og ég æfði mig og æfði, því að mig langaði svo að geta bankað svona í borðið eins og afi þegar ég var að spila. Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir hvað við fengum að hafa þig lengi hjá okkur og að stelpurnar mínar Aníta Guðrún og Saga María eiga eftir að muna eftir þér alla tíð. Allar sögurnar sem þú sagðir okkur frá því hvernig hlut- irnir voru öðruvísi þegar þú varst lítill og bjóst hjá ömmu þinni í Döl- um, t.d. þegar Saga María kom í nýjum strigaskóm og þá sagðirðu okkur frá því að þú hefðir aldrei átt neina skó á sumrin þegar þú varst lítill, þá voruð þið alltaf berfættir krakkarnir og svo í sauðskinns- skóm á veturnar og í vel þæfðum ullarsokkum. Svipurinn á stelpun- um mínum var æðislegur, þær voru svo hissa og þetta er eitthvað sem þær munu aldrei gleyma. Eins þegar þú varst að kenna þeim að brjóta ullarsokkana í hælbrot svo auðveldara væri að klæða sig í þá og sagðir okkur að svona hefði amma þín alltaf fært þér ullarsokk- ana þína á morgnana. Núna brýtur Aníta ullarsokkana sína alltaf svona. Allar þessar sögur eru ómetanlegur lærdómur fyrir bæði mig og stelpurnar mínar og ég ylja mér við að þær munu muna þetta alla tíð, eftir langafa sem átti enga skó á sumrin og var alltaf til í að spila. Vilhelm minn er svo lítill að því miður mun hann ekki muna eft- ir þér en við munum vera dugleg að segja honum og ófædda barninu sögur af þér, hversu skemmtilegur og yndislegur afi og langafi þú varst. Þín er sárt saknað elsku afi, hvíldu í friði. Hulda María Vilhelmsdóttir. Steinn Jónsson HINSTA KVEÐJA Elsku langafi. Þú hefur verið besti langafi sem hægt er að hugsa sér. Mín heitasta ósk er að þú hefðir ekki þurft að fara frá okkur. Mér finnst svo leiðinlegt að þú hafir ekki getað eytt síð- ustu mánuðunum hér á Eskifirði með okkur. Þín er sárt saknað hér og við elsk- um þig öll. Ég næstum grét við að skrifa þetta en ég veit að þú ert á betri stað. Vonandi hittumst við aftur þegar ég kem til þín. Hvíldu í friði. Ástarkveðja, Saga María.  Fleiri minningargreinar um Stein Jónsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. Eiginmaður minn, PÉTUR LÁRUSSON bóndi, Káranesi, Kjós, lést 30. maí. Útförin verður frá Reynivallakirkju miðvikudaginn 7. júní klukkan 14. Marta Finnsdóttir Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, DÓRA OTTESEN JÓSAFATSDÓTTIR, áður til heimilis að Ljósheimum 6 í Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 6. júní klukkan 11. Erla Haraldsdóttir Sigurður Einarsson Jóna Haraldsdóttir Thelma Sigurðardóttir Jón Otti Jónsson Hrönn Sigurðardóttir Haraldur V. Haraldsson Margrét Gunnlaugsdóttir Sigurhans Vignir Halldór Gunnlaugsson Hildur Sveinsdóttir og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RUT SIGURÐARDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áður Árskógum 8, andaðist fimmtudaginn 1. júní. Útför hennar verður auglýst síðar. Birna Ágústsdóttir Júlíus Sigmundsson Guðlaugur Ágústsson Sigríður Ósk Pálmadóttir Ævar Ágústsson Ragnheiður Júníusdóttir Ína Björg Ágústsdóttir Haraldur Hansson Magnús Ágústsson Reynee Rose Agustsson Berglind Ágústsdóttir Hjálmar Hjálmarsson Linda Sjöfn Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg systir okkar, JÓHANNA BÁRÐARDÓTTIR BURRILL læknir, lést umvafin fjölskyldu sinni á líknardeild sjúkrahússins í Ystad miðvikudaginn 24. maí. Fyrir hönd fjölskyldna okkar, Guðmundur Bárðarson Margrét Bárðardóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VILBORG FRIÐJÓNSDÓTTIR, Arnarvatni, Mývatnssveit, lést á Hvammi, heimili aldraðra Húsavík, 31. maí. Útförin fer fram frá Skútustaðakirkju laugardaginn 10. júní klukkan 14. Örlygur Arnljótsson Anna Ólafsdóttir Ingigerður Arnljótsdóttir Jóhann Böðvarsson Kolbjörn Arnljótsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR V. VILHJÁLMSSON, Mansi, matreiðslumaður, Strikinu 8, lést miðvikudaginn 31. maí. Sigríður Þorsteinsdóttir Einar Halldór Halldórsson Hörður Halldórsson Hólmfríður Jónsdóttir Valgerður Halldórsdóttir Ágústa A. Grétarsdóttir Jón Benediktsson Kristján Grétarsson Guðný Hansdóttir Inga Hrönn Grétarsdóttir Ari Björnsson barnabörn og langafabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN EINARSDÓTTIR fóstra, Stóragerði 18, Reykjavík, sem lést á dvalarheimilinu Grund fimmtudaginn 25. maí, verður jarðsungin frá Seljakirkju þriðjudaginn 6. júní klukkan 13. Tómas Ríkarðsson Heba Sigurgeirsdóttir Ágústa Ríkarðsdóttir Gunnlaugur Nielsen Ríkarður Rúnar Ríkarðsson Friðbjörg Sif Grjetarsdóttir Einar Már Ríkarðsson ömmu- og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.