Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019
Valin verk úr safneign
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER
Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017
STEINA - ELDRÚNIR (PYROGLYPHS) 4.3. - 20.8.2017
VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
Pastel - útgáfuhóf í safnbúð Listasafns Íslands. Sunnudaginn 4. júní kl. 14.
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017
Opið daglega kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningaropnun í Myndasal laugardaginn 3. júní kl. 14:
Fuglarnir, fjörðurinn og landið. Ljósmyndir Björns Björnssonar
Hugsað heim – Inga Lísa Middleton
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Fuglarnir, fjörðurinn og landið í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Hugsað heim á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Síðasta sýningarhelgin: Geirfugl †Pinguinus impennis
Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga frá 10-17.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Þessi sýning byggir á hugleið-
ingum um það hvernig hugmyndir
og túlkanir breytast,“ segir Brynja
Sveinsdóttir, verkefnastjóri í
Gerðarsafni í Kópavogi, um sýn-
inguna Innra, með og á milli eftir
myndlistarkonurnar Theresu
Himmer, Emily Weiner og Ragn-
heiði Gestsdóttur. „Sérstaklega
byggir hún á því hvernig maður
kemur hlutum til skila á milli landa-
mæra, tungumála og jafnvel tíma.“
Þrír ólíkir listamenn
Theresa, Weiner og Ragnheiður
eru hver frá sínu landinu og með
ólíkan listrænan bakgrunn. Þessi
sýning, líkt og fyrri sýning þeirra í
Brooklyn fyrir tveimur árum, er
eins konar samtal milli listamann-
anna þriggja. „Við Ragnheiður og
Emily vorum í sama myndlist-
arskóla í New York og hittumst þar
árið 2011,“ segir Theresa, sem er
frá Danmörku en búsett á Íslandi.
„Þetta verkefni byrjaði eiginlega
2015 þegar við fórum að deila á
meðal okkar hugmyndum um ólínu-
legar tímarásir og hvernig tákn og
merki ferðast um menningarheima
þar sem þau eru notuð í ólíku sam-
hengi. Þetta varð að samsýningu
okkar í Soloway-galleríi í Brooklyn
haustið 2015. Við vildum allar endi-
lega halda áfram þessu samtali okk-
ar.“
Á sýningunni í Gerðarsafni hefur
mikilvægur listamaður bæst í hóp
þremenninganna en það er Gerður
sjálf. Gerði Helgadóttur (1928-1975)
er hér boðið að taka þátt í samtali
listamannanna og kallast verk
þeirra á sýningunni því á við störf
og ævi Gerðar.
„Ég held að samhengi Gerðar-
safnsins og ævi Gerðar hafi skipt
miklu máli í ramma sýningarinnar
og hafi gert uppsetninguna að tals-
verðri áskorun,“ segir Malene Dam
sýningarstjóri. Dam starfar í Kaup-
mannahöfn og hefur einkum stýrt
sýningum sem huga að líðandi
stund og femínískri eða hinsegin
túlkun á mannkynssögunni.
„Hvernig setur maður upp samtal
þriggja nútímalistamanna við mann-
eskju sem er ekki lengur á lífi en
skildi eftir sig mjög margbreytileg
verk?“ spyr hún sig. „Mér finnst við
hafa gert það á mjög spennandi
hátt, með því að finna það sem okk-
ur fannst áhugavert og fannst
tengjast listamönnunum í verkum
Gerðar. Allar þrjár tala þær sínu
eigin myndmáli og nálgast listina
hver á sinn máta. Við sjáum samtal
þessara hugsunarmáta og hvernig
þeir leitast allir við að lesa í tíma og
rúm. Öll verkin á sýningunni vísa til
þess hvernig hlutir ferðast í gegn-
um tíma og rúm og verða hluti af
samtölum Þannig verður Gerður
hluti af samtalinu.“
Samtal milli jafningja
„Ég nálgast þetta með miklu til-
liti til rýmisins,“ segir Theresa, sem
er menntuð í arkitektúr. „Það skipti
okkur allar máli að samtalið við
Gerði yrði samtal milli jafningja.
Það átti ekki að setja Gerði upp á
stall og tengjast henni á „lóðréttan“
hátt byggðan á kynslóðabili og arf-
leifð. Ég hafði áhuga á því hvernig
saga Gerðar væri túlkuð og sögð;
hvernig safnið heldur nafni hennar
á lofti og þá leið sem arkitektinn fer
í að búa til umgjörð um verk henn-
ar. Hvernig er hægt að túlka safn-
rýmið sem rammann um ævi og
störf Gerðar?“
Theresa segist hafa leitað til vina
Gerðar og þá sérstaklega til Elínar
Pálmadóttur sem ritaði ævisögu
hennar. „Ég ætla að sýna ljós-
myndir af verkum Gerðar í heim-
ilislegu og persónulegu umhverfi.
Til dæmis er mjög persónulegt safn
smáskúlptúra eftir Gerði í íbúð
Elínar. Mér finnst áhugavert hvern-
ig húsrýmið verður ramminn utan
um verkin; hvernig verkin verða
leikmunir í persónulegri frásögn
þegar þeir birtast í heimilisrými
sem ber öll merki þess að þar sé lif-
að góðu lífi.“
Safnið var þó einnig notað. „Ég
tók upp myndband í sýningarsaln-
um þar sem ég tek fyrir nálgun
Gerðar á hugmyndir heimspekings-
ins George Gurdjieff, sem hafði
mikil áhrif á listahreyfinguna í Par-
ís þegar Gerður var þar. Gurdjieff
skipulagði hugmyndir sínar eftir
svokölluðu „enneagrami“ sem ég
teiknaði inn í salsrýmið. Í mynd-
bandinu dansar Saga Sigurðardóttir
í kringum táknið á gólfinu hugleið-
ingardans í anda Gurdjieff. Með
þessu móti skapast tengsl milli hug-
myndafræði Gerðar og safnhúsnæð-
isins, sem okkur fannst of ótengt
Gerði og verkum hennar.“
Tákn í tíð og tíma
„Við vorum allar að hugsa um það
hvernig hægt væri að miðla merk-
ingum á milli kynslóða, menninga
og tímabila,“ segir Emily Weiner,
sem er bandarísk og menntuð í mál-
aralist, „og hvernig tákn sem eiga
sér mörg hundruð ára sögu geta
skotið upp kollinum í nútímamenn-
ingu. Merkingin sem miðlað er gæti
verið trúarleg, heiðin eða táknræn –
mörg þessara málverka eru mjög
fjölræð.“
Weiner tekur eitt málverka sinna
til dæmis. „Lítum á þessa píramída-
mynd og þríhyrningstáknið. Þrí-
hyrningurinn er í senn valdatákn
fyrir píramídann en finnst einnig á
endurreisnartímanum í myndbygg-
ingu Mónu Lísu og aftan á hverjum
einasta bandaríska dollaraseðli sem
ramminn utan um hið alsjáandi
auga Guðs. Hvernig birtast sömu
táknin hvað eftir annað í ólíkum
menningarheimum á ólíkum tíma-
bilum?“
Með táknunum vísar Weiner
einnig í líf Gerðar og á við hana
Sýning þriggja listamanna opnuð
í Gerðarsafni í tengslum við Gerði
Morgunblaðið/Hanna
Kátar Malene Dam með Theresu Himmer og syni hennar, David Mána, Emily Weiner og Ragnheiði Gestsdóttur.
Samtal yfir
tíma og rúm
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Lagið sem opnar þessa plötu kall-
ast „Einn“ og er það við hæfi. Lag
númer eitt, plata númer eitt og höf-
undurinn, sem nefnir hana eftir
sjálfum, stendur og fellur með
henni – einn. Þrátt fyrir tiltölulega
ungan aldur hefur píanó- og hljóm-
borðsleikarinn Tómas Jónsson
leikið með margvíslegum tónlistar-
manninum íslenskum en á þessari
plötu stígur hann fram sem lista-
maður og ber á borð fyrir okkur
eigin tónsmíðar, alls tíu talsins.
Tómas útskrifaðist frá FÍH fyrir
fimm árum og sama ár hlaut hann
tilnefninguna „Bjartasta vonin“ á
Íslensku tónlistarverðlaununum
(og þessi plata hér var tilnefnd sem
plata ársins í Opnum flokki á sömu
verðlaunum í ár). Síðustu ár hefur
Tómas leikið með fjölbreyttum
hópi listamanna, bæði á hljóm-
Áleitin
værðarstef
leikum og á hljómplötum, hérlendis
og erlendis og sem dæmi hefur
hann unnið með Ásgeiri Trausta,
Hjálmum, Memfismafíunni, Fjalla-
bræðrum,
Helga
Björnssyni,
Sigríði
Thorlacius,
Uni Stef-
son, Björg-
vini Gísla-
syni,
Brynhildi
Oddsdóttur
og Skafrenningunum og einnig var
hann í uppfærslu Vesturports á
Í hjarta Hróa hattar.
Tómas hefur keyrt samnefnda
sveit í tengslum við eigið efni þar
sem þeir Guðmundur Óskar Guð-
mundsson, Magnús Trygvason
Eliassen, Rögnvaldur Borgþórsson
og Hilmir Berg Ragnarsson koma
við sögu. Leggja þeir gjörva hönd á
plóg hvað þessa plötu varðar en
uppistaðan er samt sem áður
Tómas Jónsson er ein af vonarstjörnum hins ís-
lenska djass, en plata hans, samnefnd honum og
auk þess hans fyrsta, læðist lymskulega undir
skinnið á hlustandanum.
Síðustu tónleikarnir að sinni í tón-
leikaröðinni Frjáls eins og fuglinn
verða haldnir í dag kl. 17 í Fella- og
Hólakirkju. Á þeim koma fram Arn-
hildur Valgarðsdóttir, organisti
kirkjunnar, Marta Kristín Friðriks-
dóttir sópran og Einar Dagur Jóns-
son tenór. Á efnisskránni verða
ýmsar frægar óperuaríur, sóló og
dúettar, úr Töfraflautu Mozarts og
einnig eftir Puccini, Donizetti o.fl.
Að auki munu þau flytja nokkrar af
perlum íslenskra sönglaga.
Marta fór með sigur af hólmi fyrr
á árinu í söngkeppninni Vox Dom-
ini sem haldin var af Félagi ís-
lenskra söngkennara og hlaut nafn-
bótina Rödd ársins 2017. Hún hefur
nám í haust við Universität für
Musik und darstellende Kunst í
Vínarborg. Marta söng hlutverk
Pamínu í uppfærslu Söngskólans í
Reykjavík á Töfraflautunni nú í vor
og Einar Dagur söng hlutverk
Tamínós.
Samstillt Marta, Arnhildur og Einar.
Frjáls eins og fugl-
inn í síðasta sinn