Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 52

Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 52
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 154. DAGUR ÁRSINS 2017 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Saga hvarfakúta undan bifreiðum 2. Myndskeiði af Tiger í fangelsinu... 3. Ástæðulaust að óttast Costco-pöddur 4. Læknum Hrafnistu sagt upp  Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og norski píanóleikarinn Mathias Hal- vorsen halda tónleika í Hannesarholti í dag kl. 17. Á efnisskránni verða verk úr ýmsum áttum og stefnum sem eiga sameiginlegt að hafa verið sam- in á seinni hluta 20. aldarinnar, m.a. verk eftir John Adams, Miklós Rózsa og Dimitri Shostakovich. Á morgun kl. 20 mun svo dúettinn Blyde Lasses frá Hjaltlandseyjum leika í Hannesarholti. Blyde Lasses skipa þær Claire White og Frances Wilkins, en þær hófu að leika saman á fiðlu og „concertinu“ árið 2006. Tónlistarhefð Hjaltlandseyja nýtur sín vel í flutningi þeirra, sem og sagnahefðin, eins og segir í tilkynn- ingu. Hulda, Halvorsen og Hjaltlandseyjadúett FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning með köflum sunnan jökla í dag en líkur á síðdegisskúrum norðan til. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast vestanlands. Á hvítasunnudag Austlæg átt, 5-13 m/s, hvassast með suðurströndinni og á annesjum norðan til. Rigning eða súld víða sunnan til á landinu, einkum SA-lands en skýjað með köflum og stöku skúrir norðan til. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast NV-lands. Á mánudag Norðaustlæg átt, 5-10 m/s. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast SV-til. Kvennalandsliðið í körfuknattleik sótti í sig veðrið á Smáþjóðaleik- unum eftir ferðaþreytu og tap í fyrsta leiknum gegn Möltu og landaði silfurverðlaunum. Ísland vann í gær sannfærandi sigur á öflugu liði Lúx- emborgar 59:44 og er það fyrsti sig- ur íslensku kvennanna á Lúxemborg síðan 2009. Lúxemborg ætlaði sér sigur á mótinu. »3 Spiluðu betur og betur eftir ferðalagið langa „Það er nokkuð augljóst hjá þessu liði að ekkert annað kemur til greina en að vinna þessa keppni. Að vinna Meistaradeild Evrópu á þessu keppnistímabili er skýrt markmið okkar,“ segir Aron Pálmarsson sem á möguleika á að vinna Meistaradeild Evrópu um helgina með liði sínu Veszprém frá Ungverjalandi. »4 Verður Aron Evrópumeistari? Gylfi Þór Sigurðsson er einn af fimm leikmönnum í íslenska landsliðs- hópnum í knattspyrnu sem hefur spilað alla deild- arleiki síns fé- lagsliðs það sem af er þessu ári. Ragnar Sigurðsson hefur spilað minnst á árinu, aðeins þrjá leiki með Fulham. Sautján úr hópn- um hafa nýlokið vetrartímabili með sínum lið- um en hinir sex eru á miðju sínu keppn- istímabili. »1 Fimm hafa spilað alla leikina á árinu Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ásta Dóra Finnsdóttir, 10 ára píanó- leikari, varð í 4.-5. sæti í flokki 10 ára og yngri á alþjóðlegri píanókeppni í Szafarnia í Póllandi á dögunum og fékk sérstaka viðurkenningu fyrir árangurinn. Keppnin, sem nú var haldin í 25. sinn, er kennd við Fryde- ryk Chopin og voru 55 börn og ung- lingar víðs vegar að úr heiminum valdir samkvæmt ferilskrá úr fjölda umsækjenda til keppni í þremur ald- ursflokkum. „Þetta er fyrsta keppnin mín í út- löndum,“ segir Ásta og leggur áherslu á að hún hafi upplifað margt nýtt. Sérstaklega hafi áskorunin verið meiri en hún hafi átt að venjast heima. „Svo eignaðist ég vini frá Japan, Singapore, Þýskalandi og alls konar.“ Finnur Þorgeirsson, faðir Ástu, bætir við að í raun hafi hún fengið tækifæri í þessari keppni til þess að bera sig saman við bestu píanóleikara heims á þessum aldri og það hafi verið ómetanleg reynsla. Ásta hefur verið í píanónámi í tæplega sex ár. Hún byrjaði undir handleiðslu Önnu Fossberg Kjart- ansdóttur í Suzuki-deild Tónlistar- skólans á Álftanesi og ári síðar fór hún í Allegro Suzuki-tónlistarskól- ann í Reykjavík. Þar var hún áfram með Önnu sem kennara fyrsta árið en hefur síðan notið kennslu Krist- ins Arnar Kristinssonar. Þó að hún sé aðeins 10 ára byrjaði hún í fram- haldsnámi í fyrra og er í formlegu framhaldsnámi eftir að hafa lokið grunnprófi og prófi á miðstigi. Draumur að veruleika Ásta hélt sína fyrstu einleikstón- leika á Barnamenningarhátíð í Hörpu fyrir um mánuði og var það jafnframt formleg útskrift hennar úr sjöundu og síðustu bók námsins í Su- zuki. Hún var verðlaunahafi Nót- unnar árin 2014, 2015 og 2016 og sigraði í sínum flokki í EPTA- keppninni 2015. „Að vera píanisti er draumur sem mig hefur alltaf langað til þess að vera,“ segir hún. Píanónámið útheimtir mikla þrautseigju og æfingu en Ásta sér ekkert nema ánægju við áhuga- málið. „Þetta er allt svo skemmti- legt, en mér finnst skemmtilegast að sýna hver ég er þegar ég spila á pí- anóið. Ég ímynda mér hvað er að gerast í laginu sem ég er að spila hverju sinni og þá finnst mér ég skína eins og stjörnur á stjörnu- himninum.“ Ásta segir að hún hafi átt leik- fangapíanó sem lítið barn og það hafi kveikt áhugann. „Ég man ekki alveg af hverju ég byrjaði að spila en mér fannst áhugavert að spila á leik- fangið þótt það hafi ekki verið alvöru píanó. Svo sendu pabbi og mamma mig í tónlistarskóla og það virkaði vel.“ Eins og stjarna á himninum  Ásta Dóra Finnsdóttir vekur athygli í Póllandi Morgunblaðið/Hanna Draumur Ásta Dóra Finnsdóttir á lokatónleikum og skólaslitum Allegro Suzuki-tónlistarskólans í fyrrakvöld. Skólaslit Ásta Dóra Finnsdóttir og Kristinn Örn Kristinsson kennari. Morgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 6. júní. Fréttaþjón- usta verður um hvítasunnuhelgina á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is. Þjónustuver áskriftardeildar er opið í dag, laugardag, frá kl. 8 til 12 en lokað er á hvítasunnudag og annan í hvítasunnu. Þjónustuverið verður opnað aftur á þriðjudag kl. 7. Sími þjónustuvers er 569-1122 og netfangið askrift@mbl.is. Blaðberaþjónusta er opin í dag, laugardag, frá kl. 5-12. Hún verður opnuð á ný á þriðjudag kl. 5. Hægt er að bóka dánartilkynningar á mbl.is. Símanúmer Morgunblaðsins er 569-1100. Fréttaþjónusta mbl.is um helgina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.