Morgunblaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017
✝ Sigurlaugfæddist á Ísa-
firði 26. febrúar
1922. Hún lést 19.
apríl 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Stefán
Grímur Ásgrímsson
verkamaður, f. 1899
á Sauðadalsá í
Skagafirði, d. 1968,
og Jensey Jörgína
Jóhannesdóttir hús-
móðir, f. 1893 á Ísafirði, d. 1958.
Þau giftust 1920. Systkini Sig-
urlaugar eru Jón Arndal, f. 1920,
d. 2011, Ásgrímur, f. 1923, d.
2014, Guðrún Þorbjörg, f. 1925,
d. 2016, Elín, f. 1926, d. 1926,
Magðalena, f. 1928, Jensey Jörg-
ína, f. 1929, d. 2017, Elín, f. 1930,
Lóa, f. 1933, d. 2005, og drengur,
f. og d. 1935.
Eiginmaður var Gunnar Mark-
ússon, f. 18.10. 1918, d. 20.7.
1997. Foreldrar Markús Jónsson,
f. 1893, d. 1924, og Þuríður Páls-
dóttir, f. 1889, d. 1978. Sigurlaug
og Gunnar giftust 6.11. 1943. Sig-
urlaug hóf sambúð með Torfa
Jónssyni á Blönduósi 2001 og bjó
með honum þar til hann lést.
Börn Sigurlaugar eru: 1) Hild-
ur, f. 15.7. 1946, giftist 11.4. 1966
Helga Finnlaugssyni, f. 1946, þau
skildu. Þeirra börn: a) Þuríður, f.
1971. Giftist 1.10. 2004 Hermanni
Jóhannesi Jónssyni, f. 1946.
2. Þór Jens, f. 30.11. 1947, d.
25.9. 2012, hans kona er Áslaug
Þorsteinsdóttir, f. 1950, börn: a)
Björn Markús, f. 1974, hans maki
er Steinunn Ósk Ásgeirsdóttir,
þeirra börn: 1. Emý Sara, f. 1999.
2. Markús Orri, f. 2006. b) Sara, f.
1976, d. 1976. c) Sonja Þórey, f.
1978, hennar maki Jóhann Guð-
bjargarson, f. 1972, þeirra börn:
1. Bjartur Þór, f. 2009, og 2. Eld-
ar, f. 2012. d) Steinunn, f. 1984,
hennar maki er Margrét Grét-
arsdóttir, f. 1983. Þeirra dóttir er
Ingibjörg Áslaug, f. 2016.
3. Stefán, f. 3.10. 1951, kvænt-
ur Helgu Sigurbjörnsdóttur, f.
1954, þeirra börn: a) Davíð Fann-
ar, f. 1976, sonur með Eddu M.
Bóasdóttur er Axel Leon, f. 2016.
b) Róbert Orri, f. 1980, og c) Sig-
urbjörg Herdís, f. 1988.
4. Ágústa, f. 18.1. 1953, maki 1)
Haraldur Guðbjartsson, f. 1949,
skildu. Þeirra sonur er Guð-
bjartur, f. 1972, kvæntist Megan
E. Bryden. Þeirra börn eru Finn
Markus, f. 2006, Ari Thomas, f.
2007, Erik Scott, f. 2009. Maki 2)
Guðmundur Emilsson, f. 1951,
skildu. Maki 3) Leigh A. Woods, f.
1948, þeirra börn: a) Livia A. Sa-
vit-Woods, f. 1984, hennar maður
er Gavriel Levi Savit-Woods, f.
1988, b) Bryndís A. Woods, f.
1987, hennar maður er John Les-
pasio, f. 1988.
Útför Sigurlaugar fer fram
frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn í
dag, 20. júní 2017, og hefst at-
höfnin kl. 10.30.
1965, gift Þórhalli
Kristjánssyni, f.
1957, þeirra börn: 1.
Sigurlaug Elín, f.
1987, gift Oddi Ást-
ráðssyni, f. 1984. 2.
Hildur Ásta, f. 1994.
3. Kristján, f. 1995,
hans maki er
Sandra Gunnars-
dóttir, f. 1996, og 4.
Helgi Þorleifur, f.
2001. b) Gunn-
laugur, f. 1967, hans kona er
Guðríður Erna Gísladóttir, f.
1966, þeirra börn eru: 1. Hafþór,
f. 1987. 2. Arnar Páll, f. 1989,
hans maki er Dagrún Dögg Jóns-
dóttir, f. 1989. 3. Rakel Ýr, f.
1992, hennar maður er Ryan
Maskell, f. 1982. 4. Lára Björk, f.
2000.
c) Finnlaugur Pétur, f. 1968,
hans kona er Sigurlaug Hauks-
dóttir, f. 1975, þeirra börn eru: 1.
Helgi Fannar, f. 2004. 2. Pétur
Snær, f. 2006. 3. Dagbjört María,
f. 2007. 4. Óskar Jökull, f. 2009,
og 5. Sólrún Ásta, f. 2011. d) Sig-
urlaug, f. 1971, fyrrverandi maki
Halldór Guðmann Karlsson, f.
1968, þeirra börn eru: 1. Gunnar
Hrafn, f. 1998, og 2. Karólína
Ósk, f. 2001, fyrir átti Sigurlaug
Guðmund Helga, f. 1991, hans
faðir er Ragnar Guðmundsson, f.
Mig langar að minnast tengda-
móður minnar hennar Sigurlaug-
ar með örfáum orðum.
Ég kynntist þessari dásam-
legu konu fyrir 49 árum þegar við
Þór Jens, sonur þeirra hjóna, fór-
um að vera saman – þetta er
langur tími og margs að minnast.
Það var alltaf gott að vera í
kringum Sigurlaugu, það sem
helst einkenndi hana var mikið
jafnaðargeð og hún sá líka alltaf
það góða í öllu. Maður kom aldrei
að tómum kofunum hjá henni
hvort sem það tengdist handa-
vinnu eða matargerð, enda marg-
ar flíkur sem hún hefur útbúið á
okkur öll, bæði prjónað og saum-
að, svo og glæsilegar veislur sem
hún hefur haldið. Sigurlaug var
einnig mjög elsk að allri tónlist
svo og bókmenntum þannig að
hægt var nánast að spyrja hana
um hvað sem var í þeim efnum,
hún vissi næstum alltaf svarið.
Eftir að hún missti Gunnar eig-
inmann sinn fór hún með okkur
hjónum í margar skemmtilegar
utanlandsferðir sem skilja eftir
dásamlegar minningar. Börnum
okkar var hún góð amma og alltaf
til í að spila við þau og sérstak-
lega var gaman þegar „Scrabbl-
ið“ var tekið fram, þá var hún í
essinu sínu og vann yfirleitt með
miklum yfirburðum.
Sigurlaug heyrðist sjaldan
kvarta þó hún væri oft með mikla
verki í stoðkerfinu, það var alltaf
sama seiglan í henni og getum við
hin margt af henni lært. Nú veit
ég að hún hefur fengið friðinn
eins og sagt er og við sem eftir
erum eigum eftir að sakna henn-
ar um ókomna tíð. Takk fyrir allt,
elsku Sigurlaug.
Þín tengdadóttir,
Áslaug.
Þegar pabbi kynntist Sigur-
laugu var hann kominn vel yfir
áttrætt og hún sex árum yngri og
nýkomin með bílpróf. Ástin spyr
ekki um aldur í árum, hún er eða
er ekki. Þau áttu nokkur góð ár
saman en síðan nokkur erfið og
döpur eftir því sem heilsu pabba
hrakaði og líf hans fjaraði út. En
Sigurlaug stóð vaktina við beð
hans allt til enda.
Að vera hátt á sextugsaldri,
eignast þá stjúpmóður og nýja
fjölskyldu er merkileg upplifun.
Því fylgja nýir siðir, nýtt fólk,
stjúpsystkin, já alveg ný vídd í
tilveruna. Ekki má gleyma systk-
inum Sigurlaugar og fjölskyldum
þeirra og góðri viðkynningu við
þau. Það var ótrúlega auðvelt og
gefandi að læra á þetta allt. Sig-
urlaug var þeirrar gerðar að vera
skjótráð, allt að því frökk og órög
við að taka ákvarðanir. Hún var
virk í hverju því samfélagi sem
hún bjó í og fljót að eignast nýja
vini og kunningja. Vildi líka láta
til sín taka og sinnti málefnum,
sérstaklega á sviði hvers kyns
menningar, víðlesin og ávallt með
eitthvað á prjónunum.
Sigurlaug var jafnaðarmann-
eskja í þess orðs bestu merkingu
og mikill aristókrat í senn, lagði
metnað í að hafa fínt og næm á
breyttan tíðaranda og tísku. Hún
elskaði veislur og naut þess bæði
að vera gestur og gestgjafi. Á
góðu árum hennar og pabba voru
þau tíðir gestir hér á Torfalæk,
sérstaklega ef betra var á borð-
um af einhverju tilefni, svo og um
jól og áramót. Það var líka ein-
stakt að upplifa væntumþykju
hennar við börn okkar og barna-
börn, sem kölluðu Sigurlaugu
ömmu og langömmu.
Milli Sigurlaugar og Ellu
spannst gullinn þráður trausts og
einlægrar vináttu. Þær nöfnur
áttu mörg og löng samtöl, þar
komst enginn annar að. Við hjón-
Sigurlaug Arndal
Stefánsdóttir
Móðir okkar,
MARÍA HALLGRÍMSDÓTTIR,
Laugarvegi 23,
Siglufirði,
lést á heimili sínu 26. maí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jakobína Erla Ásgrímsdóttir
Elín Gísladóttir
og fjölskyldur
Kæru sveitungar, vandamenn og vinir nær
og fjær,
PÁLMAR ÞORGEIRSSON
á Flúðum.
Hlýjar hugsanir og bænir ykkar hjálpa okkur
í sorginni og í gegnum erfiða tíma. Með
þakklæti og góðum óskum förum við út í sumarið.
Til minningar um Pálmar Þorgeirsson viljum við benda á söfnun
fyrir sjálfvirkum hjartahnoðara sem Björgunarfélagið Eyvindur
stendur fyrir núna. Reikningsnúmer 0325-13-301382, kt.
460100-2590.
Ragnhildur Lára Bryndís
Rúnar Svavar Geir
og fjölskyldur
Svava Pálsdóttir og stórfjölskyldan öll
Ástkær maður minn, faðir, sonur, bróðir,
mágur og frændi,
EINAR VEIGAR JÓNSSON,
Curacao,
lést á heimili sínu.
Quenny Dols
Hrafnkell Már Einarsson
Þorbjörg Einarsdóttir
Jóhanna Margrét Jónsdóttir
Ýr Jónsdóttir Magnús Tómasson
Jón Ólafur Magnússon Helga Dögg Magnúsdóttir
Emelía Gná
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir, mágur og
unnusti,
ÞÓRIR SNÆR STEINARSSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi þann 27. maí.
Útförin hefur farið fram.
Þökkum ættingjum og vinum fyrir allan stuðninginn.
Rökkvi Snær Þórisson Elimar Þór Þórisson
Bryndís Harðardóttir
Steinar Þór Þórisson Marina de Quintanilha e Mendonca
Gyða Steinarsdóttir Tryggvi Svansson
Hörður Pétur Steinarsson
Tómas de Quintanilha e Mendonca Steinarsson
Kristín Ester Vignisdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HRAFNKELL GUÐJÓNSSON
stýrimaður og kennari,
lést miðvikudaginn 14. júní á
hjúkrunarheimilinu Eiri.
Útför verður auglýst síðar.
Soffía Hrafnkelsdóttir Einar Gunnar Einarsson
H. Jóhanna Hrafnkelsdóttir
Heimir Hrafnkelsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN AÐALBJÖRNSSON,
Leiðhömrum 28, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 19. júní.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 6. júlí klukkan 15.
Guðbjörg Eggertsdóttir
Eggert Kristjánsson
Aðalbjörn Kristjánsson Ólöf Sigurðardóttir
Þórhallur Kristjánsson
Jóhann Kristjánsson Hildur Inga Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Minn elskulegi eiginmaður, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR EINARSSON
prentari,
Rjúpnasölum 10, Kópavogi,
andaðist laugardaginn 17. júní á
hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi.
Útförin verður auglýst síðar.
Elínborg Steinunn Pálsdóttir
K. Fjóla Guðmundsdóttir Sævar Jóhann Sigursteinsson
Þorsteinn S. Guðmundsson Þórunn Heiða Gylfadóttir
Ólafur Þór Guðmundsson Lilja Margrét Bergmann
Páll Þórir Rúnarsson Mekkín Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÚN EINARSDÓTTIR,
Dalbraut 14, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
sunnudaginn 18. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Eiríkur S. Ormsson
Einar Hjaltason Birna Sigurðardóttir
Anna Þórhildur Salvarsdóttir Pétur Hermannsson
Gunnar Salvarsson Ragnheiður E. Guðmundsd.
Sigurður Þór Salvarsson Guðrún Alda Harðardóttir
barnabörn og langömmubörn
Sonur okkar, faðir og bróðir,
SÍMON PÁLL JÓNSSON,
verður kvaddur í Seljakirkju, föstudaginn
23. júní, klukkan 15.
Kærar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæslu-
deildar Landspítalans við Hringbraut og viðbragðsteymi 112.
Þeir sem vilja minnast Símonar er bent á sparnaðarreikning fyrir
syni hans, reikningur: 0515-14-351090, kennitala:
140901-3180.
Eygló Magnúsdóttir Jón Símon Gunnarsson
Elvar Máni Símonarson
Aron Páll Símonarson
Friðborg Jónsdóttir Pétur Valgarð Pétursson
Þorbjörg Jónsdóttir Stefnir Gunnarsson
Gunnar Jónsson Freyja Þórsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, sonur, bróðir,
mágur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN SVAVARSSON
frá Patreksfirði,
verður jarðsunginn frá Neskirkju
föstudaginn 23. júní klukkan 13.
Sigríður Björg Gísladóttir
Guðrún Dögg, Hulda Lind, Sigríður Arndís
Daði Magnason - Gísli Magna Sigríðarson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÍNA JÓHANNA GÍSLADÓTTIR,
andaðist í Brákarhlíð, Borgarnesi,
mánudaginn 19. júní.
Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju
föstudaginn 23. júní klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Brákarhlíðar, - sjá heimasíðu: www.brakarhlid.is
Björg H. Kristófersdóttir
Gísli Kristófersson Þóra Ragnarsdóttir
Þorgeir Kristófersson Inga Pétursdóttir
Einar Kári Kristófersson Kolbrún Karlsdóttir
ömmu- og langömmubörn