Morgunblaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Félagsstarfið er með opið í sumar frá kl. 8.30-15.45. Opin smíðastofa frá kl. 10-15. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Hádegismatur, soðin ýsa með tilheyrandi frá kl. 12.40-12.45. Kaffiveit- ingar á vægu verði kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Allir velkomnir nær og fjær. Boðinn Brids og kanasta kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Lesið og spjallað kl. 10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Bónusrútan kemur kl. 12.30. Gönguhópur kl. 13.30, tekinn léttur hringur um hverf- ið. Opið kaffihús kl. 14.30-15.30. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera í vinnustofu kl. 9, félagsvist kl. 14. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Félagsvist kl. 13.30-16. Vinningar í boði fyrir efstu sætin. Opið kaffihús frá kl. 14.30-15.30. Hádegisverður alla daga í sumar frá kl. 11.30-12.30. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg, Lindargötu 59. Síminn er 411-9450. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617- 1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45. Gönguhóp- ur fer frá Jónshúsi kl. 10. Botsía í Sjálandsskóla kl. 13.45. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 alkort. Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, ganga kl. 10, kanasta kl. 13. Fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir! Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9–14. Jóga kl. 10.10–11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir 588- 2320, hársnyrting 517-3005. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, Bónusbíll kl. 12.40, listasmiðjan er opin kl. 9-15.30, brids kl. 13, bókabíll kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri og búsetu, nánar í síma 411-2790. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, opin listasmiðja kl. 9-16, morg- unleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og leikir kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltj. kl. 07:15, tækninám- skeið í Valhúsaskóla kl. 10:00, kaffispjall í króknum kl. 10:30, pútt á Skólabraut kl. 13:30. Skráning í sumarferðina sem farin verður fimmtudaginn 29. júní stendur yfir. Skráningarblöð liggja frammi á Skólabraut. Einnig er skráning og upplýsingar hjá Kristínu í síma 8939800. Stangarhylur 4 Ferð á Reykjanes við Ísafjarðardjúp 26.-28. júní. Gist- ing Hótel Reykjanesi. Náttúruperlur Vestfjarða skoðaðar, m.a. Unaðs- dalur, Skjaldfönn, Laugarland o.fl. Leiðsögn Magnús S. Sædal. Nokkur sæti laus, uppl. og skráning í síma 588-2111. Smáauglýsingar Atvinnuhúsnæði Gott skrifstofuhúsnæði til leigu Til leigu er 197 ferm. skrifstofuhús- næði við Bíldshöfða. Skiptist í mót- töku, fimm stór skrifstofuherbergi, eldhús og geymslu. Ágæt vinnu- aðstaða fyrir allt að 12 starfsmenn Sameiginlegar snyrtingar eru á hæðinni. Vsk. innheimtist ekki af leigunni og hentar húsnæðið því vel aðilum sem eru í vsk. lausri starf- semi. Beiðni um frekari upplýsingar sendist í tölvupósti til dogdleiga@gmail.com. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Þjónusta Tek að mér lagfæringar á harðviðarútihurðum. Slípum og pússum. Lagfæri fúa í gluggum, Húsaþjónustan. Uppl. í síma 899 0840. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. LOKAÐ 6. til 20. júní Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Til sölu Quicksilver CLASSIC 20 hraðbátur Verð: 5,7 milljónir. Myndir og uppl. thorsteinn@concordia.is Sími: 696 9621 Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald VIÐHALD FASTEIGNA Lítil sem stór verk Tímavinna eða tilboð ℡ 544 4444 777 3600 jaidnadarmenn.is johann@2b.is  JÁ Allir iðnaðarmenn á einum stað píparar, múrarar, smiðir, málarar, rafvirkjar þakmenn og flísarar. Hreinsa þakrennur ryðbletta þök og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com in heimsóttum Sigurlaugu síðast rétt fyrir jólin og þáðum þá sérrí úr fínu glösunum. Færnin til orða var ennþá til staðar, færni til at- hafna þorrin og ákefðin til lífsins. Þegar við kvöddum sagði hún: „Nú verð ég næst. Ég er tilbúin.“ Það er söknuður og þakklæti við þessi tímamót og við Jón bróðir og fjölskyldur þökkum ár- in sem þau pabbi áttu saman og færðu okkur gleði og þeim ham- ingju. Blessuð veri minning um góða konu. Jóhannes Torfason. Það var dimmt haustkvöld árið 1968 að rúta renndi inn í sand- barið fiskiþorp. Meðal farþega var undirritaður, nýútskrifaður kennari, sem örlögin höfðu valið þennan stað, sem hann vissi þó einna þokkalausastan á landinu, því þar hafði hann aðeins komið þegar engin leið var önnur frá Vestmannaeyjum til lands en að lenda þar við brimbrjótinn. Á móti piltinum tók Gunnar Markússon skólastjóri á staðnum sem dreif hann heim til sín á G- götuna í mat. Þar var fyrir frú hans, Sigurlaug Stefánsdóttir, handavinnukennari við grunn- skóla þorpsins. Það fór vel á með þeim þremur og kviknaði vinátta sem aldrei bar skugga á. Gunnar Markússon lagði mikla áherslu á að tónlist yrði kennd í skólanum, enda formað- ur skólanefndar, Ingimundur Guðjónsson kórstjóri og söng Sigurlaug í kórnum. Ég hafði gutlað við tónlist og lært m.a. tvo vetur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Sigurlaug söng mikið og kunni nokkuð fyrir sér í gít- arleik. Við lögðum saman krafta okkar. Hún kenndi á gítar og söng, en ég á blokkflautu og voru allir nemendur skólans færir um að leika einfalt lag með svo sem einu formerki. Stofnuðum við skóla- hljómsveit og keyptar voru alt-, tenór- og bassablokkflautur og margskonar slagverk kennd við Carl Orff. Segja má að okkur Sigurlaugu hafi gengið ótrúlega vel, miðað við frumstæðar að- stæður, að þjálfa þessi börn, sem voru forverar þess blómlega tón- listarlífs sem síðar hefur verið unnið við Grunnskóla Þorláks- hafnar. Þegar hreppurinn keypti hús fyrir kennara við B-götu 7, fékk ég þar stórt kjallaraherbergi, enda einhleypur þá, og gat loks- ins flutt hljómflutningstæki mín og plötur í Höfnina. Þar heim- sótti Sigurlaug mig oft og læddi ég lagrænum djassi á fóninn milli þess sem við hlustuðum á stór- virki Bachs. Hægindastólunum hafði verið stillt nákvæmlega til að stereóið nyti sín sem best, eins og tíðkaðist á þessum árum. Það var nautn að hlusta á tónlist með Sigurlaugu, velja tónverk og spjalla um þau og Gunnar hæst- ánægður með að þurfa ekki að sitja þarna með okkur. Aftur á móti kom hann með Sigurlaugu á magnaða tónleika danska bassa- snillingsins Niels-Hennings Ørs- ted Pedersens og brasilísku söngkonunnar og píanistans Tönju Maríu, er við Jazzvakning- armenn stóðum fyrir í Háskóla- bíói og nutu þau þeirra í botn. Árin mín í Þorlákshöfn urðu 12 og var það fyrst og fremst vin- áttan við Sigurlaugu og Gunnar sem varð til þess að ég flutti ekki til Reykjavíkur fyrr en hann lét af skólastjórn, en alltaf hélt ég góðu sambandi við þau hjón. Samvistir við Sigurlaugu voru gefandi, innilegt viðmótið og smitandi hláturinn náði til hjart- ans. Hún bætti allt sem bæta þurfti þegar hvessti í Þorláks- höfn. Lífsgleðin ljómaði af henni þó að lífið hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Níræðisafmælið hennar var einstök stund. Síðast hitti ég hana í Hörpu og hún komin í hjólastól – þannig tengdi tónlistin okkur alla tíð. Vernharður Linnet. Vonin er okkar dýrmætasti fjár- sjóður. Vonin um að allt þetta sé til einhvers var okkur gefin við upprisu frelsar- ans. Vonin er því fjársjóðurinn í lífi okkar kristinna manna, hún er uppspretta gleðinnar, viðnám og kenndin sem fjarlægir tár úr hvarmi og orkugjafi lífsins er von- in sem frelsarinn gaf okkur um bjartan lífsvang að lokinni lífs- göngu sinni. „Við lifum sem blaktandi strá.“ Þessi hending þjóðskáldsins gefur okkur sýn á stöðu mannsins á leik- sviði lífsins. Áreitið er alls staðar, gott og illt. Það er kannski þess vegna sem við verðum að halda fastar, en við gerum um einföldu gildin í hinni kristnu siðfræði og móta skipti okkar við náungann með vonina að vopni. Með vonina að vopni tókst hann á við illvígan sjúkdóm, eins og hann hafði tekist á við annað sem brimöldur lífsins höfðu brotið á hans brjósti. Kristján var maður sem til for- ystu og ábyrgðar var kallaður í ríkisfyrirtækinu RARIK, sem hafði verið stofnað til að rafvæða allt landið á markvissan hátt, með því litla fjármagni sem gæti kannski skilað sér til verksins, ef vel fiskaðist. Hvílík forréttindi að fá að leggja til krafta og þekkingu í svo göfugt verkefni. Hlutskipti Kristjáns sem og hinna sem á undan voru kallaðir til forystu, var að slétta allar fyrir- stöður á öllum draumkenndum fjárvana verkefnum stjórnvalda, meðan handar hvers og eins nyti við. Einkenni Kristjáns var hæv- ersk og kurteis framkoma með Kristján Jónsson ✝ Kristján Jóns-son fæddist 21. apríl 1939 í Reykjavík. Hann lést 9. maí 2017 í Reykjavík. Útför Kristjáns fór fram 23. maí 2017 í kyrrþey. þungri undiröldu al- vöru manns. Óhætt er að segja að viðskipta- aðilar RARIK og við vinnufélagar hans bárum mikið traust til allra verka sem hann vann og naut Kristján virðingar fyrir. Sann- arlega vann hann af trúmennsku og ábyrgðarkennd fyrir velferð RARIK og hlúði að bjartri framtíðarhyggju. Stjórinn varð að geta „dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar“, já hver sam- herjastund okkar verkamanna verkanna var óðurinn til lífsins, þá voru engir afslættir gefnir og vinnugleðin kastaði birtu og yl á allt sviðið hverja slíka stund, svo stundin var önnur og betri en stundin sem var liðin. Rarik hefur á síðustu árum svo sannarlega slitið barnsskónum og fest sig í sessi sem eitt af bestu þjónustu- fyrirtækjum ríkisins. Kristján birtist æði oft sem hin- ar hörðu bergsnasir hinnar ís- lensku strandar sem ólgusjóir virðast ekki getað brotið, bara breytt til að taka betur á móti öld- unni. En um leið sem maður hlýrra en mikilla tilfinninga, maður sem gat fundið til en borið harm með reisn og glaðst af góðum árangri. Við finnum til en leitum engra svara, en í hljóðri bæn þakka ég fyrir að hafa fengið að njóta sam- fylgdar góðs vinar um tíma og átt samvistastundir sem ekki gleym- ast. Það var oft erfitt að finna sjálfan sig og staðsetja, maður sér þá illa sitt næsta spor, þá er gott að vera svo ríkur að eiga sterkan félaga. Já, stundum koma inn á leiksvið sérhvers manns menn, sem verða gimsteinar minning- anna. Innilegar samúðarkveðjur til sonar hans, Walters Ragnars, tengdadóttur og barna þeirra og systur hans, Kristeyjar. Guðrúnu sendi ég kveðju virðingar og sam- úðar. Erling Garðar Jónasson. Við vorum systra- dætur, hún einu ári eldri en ég, báðar léttar á fæti og fór- um alveg eins og fiðrildi væru á ferð. Eitt sinn var ég með móður minni í Vallanesi á sauðburðar- tíma, pabbi hennar Jóhönnu, hann Valdemar, kom inn kallandi í dyr- unum „stelpur komið þið nú ég þarf að ná lambi“, upp og út í ein- um spretti fórum við. Nú faðir hennar tók það ráð að henda poka og hann lenti á réttum stað, á hausnum á lambinu, þá hvein í minni „pabbi því gerðir þú þetta?“ Svarið var: það dugði. Þannig var að mamma fór oft til systur sinnar, hennar Guðrúnar, að prjóna á sína fjölskyldu. Jó- hanna var afar lík föður sínum, eins og snælda, aldrei kyrr. Hann var alltaf með hestinn með hnakknum á og gæruskinni sem ég skildi ekki ef það var réttur árs- tími en Guðrún móðir hennar var hæglætiskona, geðgóð og haggað- ist ekki þó að eitthvað væri í gangi, kom það sér stundum vel. Hún hlustaði og bóndi hennar hafði kannski hátt, það þurfti að ganga allt í hvelli sem hann var að gera, Jóhanna Valdemarsdóttir ✝ Jóhanna Valde-marsdóttir fæddist 7. júní 1933. Hún lést 25. mars 2017. Útför Jóhönnu fór fram 6. apríl 2017. dugnaðarforkur eins og hún en allt í góðu. Nú síðast lágu leiðir okkar saman við útför systur hennar, Herfríðar í Brekku, þá hafði ég litla mynd af Jó- hönnu með sem ég hafði átt lengi og datt í hug að færa henni, hún hefur verið svona þriggja ára eða svo. Þar var hennar fal- lega bros sem einkenndi hana alla tíð, geislaði af henni hvar sem hún var. Eitt sem mig langar að segja hér að lokum, þegar ég var krakki kenndi mamma mér vísu sem ég hef bara aldrei heyrt neins staðar, hún er um systkini sem voru níu talsins og er svona: Imba, Gunna, Ólafur, engu má ég týna, Sigfús, Gerða, Sigríður, Silla, Þóra, Stína. Þetta finnst mér frábært, ein- hver gamall maður gerði þetta. Merkilegt en virðast fáir kunna. Blessuð sé minning þeirra, þau voru öll myndar- og dugnaðarfólk. Jæja, frænka mín góð. Ég að lokum kveð þig klökk kölluð ert frá lífsins þrautum. Heiðurskona hafðu þökk hæsta guðs á nýjum brautum. (KR.) Hvíl í friði. Megi guð styrkja fjölskyldu þína. Þín frænka, Soffía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.