Morgunblaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 27
sameiginleg að snúa að vélum og
tækjum. Þar „brasaði“ hann í ró og
næði í mörg ár, ásamt því að halda
við húsnæðinu. Þegar heilsu eigin-
konu hans, Dóru, fór að hraka þurfti
hann að skipta um hlutverk og fara
að sinna henni. Þegar hún fór svo að
lokum á hjúkrunarheimili ók hann
sjálfur þangað daglega um nokkurra
ára skeið til að heilsa upp á hana og
sjá til þess að henni liði sem best.
„Ég er hættur að keyra núna, vildi
ekki eiga það á hættu að fá aðsvif
undir stýri þannig að ég gæti slasað
fólk.“ Jón fylgist enn með fréttum og
les blöðin þótt sjón og heyrn sé að-
eins farin að daprast.
Engin formleg veisla verður í til-
efni afmælisins, en opið hús verður
fyrir þá sem vilja heilsa upp á Jón.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns var Hallfríður
Halldóra Brynjólfsdóttir, f. 7.11.
1922, d. 2.8. 2008, húsmóðir. For-
eldrar hennar voru hjónin Brynj-
ólfur Oddsson bóndi í Þykkvabæjar-
klaustri í Álftaveri, f. 15.2.. 1898, d.
30.4. 1987, og Guðrún Þórðardóttir, f.
2.12. 1888, d. 18.4. 1965.
Börn Jóns og Halldóru eru 1)
Brynjólfur, f. 17.9. 1955, dr.med.,
bæklunarlæknir, bús. í Kópavogi.
Maki: Kristín Hanna Siggeirsdóttir,
f. 10.6. 1960, MS, framkvæmdastjóri.
Börn: a) Siggeir Fannar, f. 8.1. 1980,
dr.med., líffræðingur, bús. í Gauta-
borg í Svíþjóð. Maki: Berglind Ósk
Einarsdóttir, f. 26.1. 1979, dr.med.,
líffræðingur. Börn: Krista Ýr, f. 4.12.
2007, Styrmir, f. 6.8. 2011. b) Jón
Hjalti, f. 12.1. 1984, MS, félags-
ráðgjafi, bús. í Reykjavík. Maki: Sig-
ríður Ósk Hannesdóttir, leiðbein-
andi, f. 20.11. 1987. Barn: Kristín
Hanna, f. 23.2. 2017. c) Ragnheiður
Dóra, f. 2.12. 1985, BA, uppeldis- og
menntunarfræðingur, bús. í Stirling í
Skotlandi. Maki: Sæmundur Óskar
Haraldsson, f. 30.6. 1981, PhD. Börn:
Guðný Birna, f. 6.2. 2007, Brynjólfur
Kristinn, f. 7.3. 2009. 2) Hannes Rún-
ar, f. 11.8. 1958, MS FIT, tölvunar-
fræðingur, bús. í Kópavogi. Maki:
Beatriz Ramirez Martinez, f. 19.11.
1982, starfsstúlka. Kjördóttir:
Claudia, f. 15.11. 2005. 3) Guðrún, f.
22.12. 1959, BS, fjármálastjóri, bús. í
Reykjavík. Maki: Eiríkur Ingi Ei-
ríksson, f. 24.10. 1956, vélvirkja-
meistari. Börn: Margrét og Þórður,
nemendur, f. 30.1. 1996. 4) Soffía
Guðný, f. 14.6. 1963, hæstaréttar-
lögmaður, bús. í Kópavogi. Maki:
Björn Lárus Bergsson, f. 4.3. 1964,
hæstaréttarlögmaður. Börn: Ingi-
björg, f. 22.12. 1993, háskólanemi,
Dóra, f. 23.11. 1999, nemi, Birna, f.
29.8. 2006.
Systkini Jóns: Guðný Marta
Hannesdóttir, f. 28.7. 1913, d. 15.7.
2011, húsmóðir í Reykjavík; Hálfdán
Hannesson, f. 4.10. 1914, d. 12.2.
2011, bifvélavirki í Reykjavík; Ragn-
heiður Hannesdóttir, f. 12.10. 1915,
d. 5.3. 2015, húsmóðir í Reykjavík;
Elínborg Hannesdóttir, f. 23.8. 1917,
d. 19.5. 2010, hattagerðar- og sauma-
kona í Reykjavík; Þóra Hannes-
dóttir, f. 2.6. 1919, d. 6.2. 2000, versl-
unarkona í Kópavogi; Sigurður
Hannesson, f. 28.4. 1922, d. í maí
1922.
Foreldrar Jóns voru hjónin
Hannes Sigurðsson, f. 16.8. 1881, d.
14.2. 1981, bóndi á Brimhóli í Vest-
manneyjum, og Guðrún Jónsdóttir, f.
24.5. 1884, d. 5.5. 1976, húsfreyja á
Brimhóli.
Úr frændgarði Jóns Hannessonar
Jón Hjaltalín
Hannesson
Guðrún Sigurðardóttir
húsfreyja á Kirkjulandshjáleigu í A-Landeyjum
Þorbjörn Jónsson
útvegsbóndi á Kirkjulands-
hjáleigu og á bátnum Farsæl
Guðný Þorbjarnardóttir
húsfreyja á Seljalandi
Jón Jónsson
bóndi á Seljalandi undir
Eyjafjöllum Rang.
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Brimhóli
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja á Bakka
Jón Oddsson
bóndi á Bakka í A-Landeyjum, Rang.
Ástríður Vigfúsdóttir
húsfreyja í Bakkakoti
Sveinn Björnsson
b. í Bakkakoti á Útskálum, Gull.
Margrét Sveinsdóttir
húsfreyja á Seljalandi
Sigurður Sigurðsson
b. á Seljalandi undir Eyjafjöllum Rang.
Hannes Sigurðsson
bóndi á Brimhóli í
Vestmannaeyjum
Sigurður Ísleifsson
b. og hreppstjóri á Seljalandi og Barkarstöðum
Guðný
Marta
Hann-
esdóttir
húsfr. í
Rvík
Ágúst Jónsson tann-
smiður og aðalræðis-
maður í Malmö
Gísli Hannes
Guðjónsson
réttarsálfræðingur
í Bretlandi
Guðmundur
Guðjónsson fyrrv.
yfirlögregluþjónn
Margrét Þóra Jóns-
dóttir verslunareigandi
og athafnakona í Rvík
Þóra Hann-
esdóttir versl-
unarkona í
Kópavogi
Ingibjörg Sæmundsdóttir
húsfreyja á Barkarstöðum
í Fljótshlíð
Tómas Sæmundsson
Fjölnismaður
Ökumaðurinn Jón keyrði bíl þar til
hann varð 103 ára gamall.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017
105 ára
Jón Hannesson
95 ára
Rakel Guðmundsdóttir
90 ára
Sigurður H. Kristjánsson
85 ára
Ólafur Walter Stefánsson
80 ára
Ágústa Aðalh. Ágústsdóttir
Hildur Ágústsdóttir
Jóna Gissurardóttir
Kristbjörg Jónsdóttir
Sigurgeir N. Kristjánsson
75 ára
Böðvar Jónsson
Cheng Theng Pang
Fanney Sigurðardóttir
Gylfi Þór Ólafsson
Jónína Bryndís Sigurðard.
Margrét Björnsdóttir
Sigurður Garðarsson
Sverrir Magnússon
70 ára
Einar Haraldsson
Gunnar Th. Gunnarsson
Hólmfríður Óskarsdóttir
Kára Hrönn Vilhjálmsdóttir
Magnús B. Marísson
Ólafur Haraldsson
Ragnheiður Kjærnested
Richard Lunkevich
Sigurrós Jóhannsdóttir
Stefanía V. Sigurjónsdóttir
Svanfríður Halldórsdóttir
60 ára
Ásdís Sólrún Arnljótsdóttir
Bryndís Þorsteinsdóttir
Böðvar Ingvason
Fjóla Erlingsdóttir
Gunnar Jónsson
Hafdís Una Júlíusdóttir
Halldóra Þorgerður Leifsd.
Ingvar Ingvarsson
Ísak Pétur Lárusson
Kristinn Kristinsson
Kristín Sigurðardóttir
Sigríður Arna Arnþórsdóttir
Sigurður Á. Guðbjörnsson
50 ára
Finnur Ingimarsson
Guðbjörg Svandís Gíslad.
Guðrún Jóhanna Stefánsd.
Hafdís Fjóla O. Bjarnadóttir
Halldór I. Indriðason
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Hjalti E. Sigurbjörnsson
Ingunn Sveinsdóttir
Ingvar Reynisson
Jón Berg Sigurðsson
Kristín Hreiðarsdóttir
Kristjana Skúladóttir
Lilja Kristín Jónsdóttir
Magnús Birgisson
Sólrún Jörgensdóttir
Thi Thien Nguyen
Tryggvi Jónsson
Unnur Óskarsdóttir
Þórunn Óskarsdóttir
40 ára
Adda Nari Silva
Arna Rúnarsdóttir
Björgvin Ölversson
Davíð Ezra Magnússon
Guðbrandur R. Sigurðsson
Guðrún Sigurðardóttir
Halldór Arnar Hilmisson
Marcos Zotes López
María Jónsdóttir
Olly S. Aðalgeirsdóttir
Ólafur Níels Eiríksson
Sigrún Þóra Theodórsdóttir
Stefanía Dögg Vilmundard.
Sæþór Vídó Þorbjarnarson
Thelma Guðrún Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Arna er Reykvík-
ingur og lífefnafræðingur
og er próteindeildarstjóri
hjá ORF líftækni.
Maki: Karvel Þor-
steinsson, f. 1977, sjálf-
stætt starfandi smiður.
Börn: Arnar Smári, f.
2005, og Haukur Freyr, f.
2006.
Foreldrar: Rúnar Gunn-
arsson, f. 1950, arkitekt,
og Helga Jensdóttir, f.
1950, kennari í Breið-
holtsskóla.
Arna
Rúnarsdóttir
40 ára Guðbrandur er
Selfyssingur og er eigandi
ásamt öðrum að tölvu-
fyrirtækinu Endor ehf.
Maki: Lucinda Árnadóttir,
f. 1982, sálfræðingur hjá
sveitarfélaginu Árborg.
Börn: Jóhanna Kolbrún, f.
1999, Dagur Freyr, f. 2004,
og Brynja Björk, f. 2011.
Foreldrar: Sigurður Rand-
ver Sigurðsson, f. 1952, d.
1996, kennari, og Kolbrún
Guðnadóttir, f. 1951, fv. að-
stoðarskólastj.
Guðbrandur R.
Sigurðsson
30 ára Rósa Dröfn er
Hornfirðingur en býr í Nes-
kaupstað. Hún er hár-
snyrtimeistari en er í sál-
fræðinámi við HA.
Maki: Guðjón Birgir Jó-
hannsson, f. 1985, hljóð-
maður og eigandi Hljóð-
kerfaleigu Austurlands.
Börn: Jóhann Páll, f. 2008,
og Elísa Dröfn, f. 2012.
Foreldrar: Páll Valdemar
Ólafsson, f. 1956, og
Sigurbjörg Sveinbjörns-
dóttir, f. 1960.
Rósa Dröfn
Pálsdóttir
Monika Wittmann hefur varið dokt-
orsritgerð sína við Jarðvísindadeild Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Áhrif
sandfoks og eldfjallaösku á snjó og ís
(Impact of Icelandic dust and volcanic
ash on snow and ice). Leiðbeinandi er
dr. Þröstur Þorsteinsson, prófessor í
umhverfis- og auðlindafræði hjá Jarð-
vísindastofnun HÍ.
Á Íslandi er að finna stærstu sanda
heims úr basísku gjóskugleri. Þeir hafa
myndast úr eldfjallaösku frá fjölda eld-
gosa og við jökul- og vatnsveðrun gos-
bergs. Mjög vindasamt er á Íslandi
vegna legu landsins í brautum lægða
eftir Norður-Atlantshafi. Gnægð lausra
efna (svifryks) í söndum landsins og
vindasöm veðrátta gerir jökla á landsins
útsetta fyrir sand- og öskufoki. Efnið
sem sest á jöklana hefur áhrif á end-
urkast sólarljóss frá yfirborðinu. Yf-
irborðið verður dekkra og tekur upp
meira af orku frá sólgeislun, en það hef-
ur áhrif á orkubúskap við jökulyfirborð,
leysingu og þannig afkomu jöklanna.
Áhrif eldfjallaösku sem sest á snjó og
ís voru rannsökuð með tilraunum, bæði
á tilraunastofu og í náttúrunni. Fundin
voru mörkin þar sem öskuþykkt er svo
mikil að hún einangrar alveg og hindrar
bráðnun íss og reyndust þau vera 9-15
mm. Hámarksaukning bráðnunar varð
hins vegar þegar
öskulagið er um
=1-2 mm þykkt.
Reiknilíkanið
FLEXDUST, sem
reiknar dreifingu
loftborinna efna,
var notað til að
herma sandfok á
Brúarjökul í norð-
ur-Vatnajökli árið 2012. Við öll tilvik
sandfoks sem komu fram í líkan-
reikningum mældist samsvarandi lægra
hlutfall endurkastaðs sólarljóss frá yf-
irborði við sjálfvirkar veðurstöðvar á
jöklinum. Við veðurstöð nærri jafnvæg-
islínu Brúarjökuls voru 10 tilvik verulegs
sandfoks og uppsafnað magn efnis var
20,5 g/m2 samkvæmt líkanreikning-
unum.
Kort af dreifingu ryks á yfirborði
Vatnajökuls voru gerð eftir mælingum á
rykmagni í snjósýnum sem safnað var
af yfirborði (við hausthvörf) Vatnajök-
uls haustin 2013 og 2015. Einnig var
borað eftir tveimur 4,5 m löngum kjörn-
um úr efsta hluta hjarns á safnsvæði
Brúarjökuls árið 2015. Kjarnarnir náðu
aftur til ársins 2006 og greinileg ryklög
í þeim rakin til hausthvarfa áranna
2014, 2012, 2011 og 2008, en aðeins
fannst mjög lítið ryk árin 2007 og 2013.
Monika Wittmann
Monika Wittmann er frá Austurríki, fædd 1988. Hún lauk meistaragráðu í
Mountain and Climatic Geography frá University of Graz í Austurríki árið 2013.
Hún býr í Austurríki og er í fæðingarorlofi, en hún og maðurinn hennar, Werner,
eignuðust soninn Niklas fyrir tveimur mánuðum.
Doktor
MIKIÐ ÚRVAL
ELDHÚSVASKA
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15