Morgunblaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verðlag á íslenskum veitingahúsum er nú um 43% hærra fyrir Breta í pundum talið en fyrir ári. Þá kostar leigubíllinn Bretann nú 48% meira í pundum en síðasta sumar. Þetta kemur fram í útreikn- ingum Rann- sóknaseturs verslunarinnar (RSV) fyrir Morgunblaðið. Af öðrum dæmum má nefna að verð á gistingu er nú tæplega 26% dýrara í evr- um talið en fyrir ári og verð á mat og drykk tæplega 21% dýrara í Banda- ríkjadölum. Veitingahúsin kosta 33,7% meira í Kanadadollurum og 34,5% meira í jenum. Við þessa útreikninga er tekið mið af því hvernig gengið hefur breyst frá júní 2016 til júní 2017. Sú breyt- ing er yfirfærð á breytingar á verð- lagi frá maí 2016 til maí 2017. Tölur frá Hagstofunni um verðlagsbreyt- ingar í júní hafa enda ekki verið birt- ar. Með hliðsjón af því að verðlag fer hækkandi er greiningin hófsöm, þ.e. hækkanirnar kunna að vera meiri. Muni breyta ferðahegðun Árni Sverrir Hafsteinsson, hag- fræðingur hjá RSV, segir verðbreyt- ingarnar svo miklar að líklegt sé að ferðamenn „breyti ferðahegðun sinni til þess að draga úr kostnaði við að heimsækja Ísland“. „Þeir gætu þá til dæmis keypt frekar dagvöru, eða matvöru, í versl- unum, og sniðgengið veitingahús. Jafnframt gæti veltan minnkað í allri verslun til ferðamanna sem þeir geta verið án í ferðalaginu. Við erum þá að tala um föt, minjagripi og ýmsa sérvöru. Svo gætu þeir þurft að spara við sig í mesta munaðinum, sem er skipulögðu ferðirnar; jeppa- ferðir, hvalaskoðun, þyrluferðir og annað slíkt. Neysla á slíkri þjónustu gæti minnkað,“ segir Árni Sverrir. Hann telur neyslumynstur munu breytast mest hjá ferðamönnum sem koma frá löndum þar sem gengi gjaldmiðla hefur gefið eftir. Til dæmis hafi pundið veikst mikið. Pakkaferðir á gjörólíku verði „Pakkatilboðið fyrir Íslandsferð- ina er nú á allt öðru verði fyrir er- lenda ferðamanninn en fyrir ári. Verðmunurinn er orðinn svo mikill. Það gæti dregið úr vinsældum Ís- landsferða í löndum þar sem gengið hefur þróast í öfuga átt við okkur. Meðalferðamaðurinn mun líklega velja ódýrustu kostina. Einhverjir tekjulágir gætu hætt við að koma. Ferðin er enda orðin svo dýr. Svo eru það þeir allra tekjuhæstu. Þeir munu sennilega halda sínu striki,“ segir Árni Sverrir, sem kannaði verðbreytingar í sex flokkum; mat og drykk, leigubifreiðum, klippingu, veitingahúsum, gistingu og loks pakkaferðum innanlands. Til sam- anburðar tók hann með verðbreyt- ingar á húsgögnum, raftækjum, öku- tækjum og námskeiðum. Árni Sverrir segir að þótt sala til ferða- manna sé ef til vill lítil í síðari flokknum sýni verðbreytingarnar hvernig Ísland sé almennt orðið dýr- ara. Námskeið sé dæmi um út- gjaldalið sem sé á uppleið, líkt og þjónusta almennt, meðal annars vegna launahækkana að undan- förnu. Með hliðsjón af spennu á vinnumarkaði fari verð á þjónustu á Íslandi hækkandi. Það geti smitast yfir í verð fyrir algenga þjónustu fyrir ferðamenn. Verðbólga í þjónustu á Íslandi „Þótt verðbólga á Íslandi mælist nú lítil er verðbólga í þjónustu, hvort sem það er ferðaþjónusta eða aðrir þjónustuliðir,“ segir hann. Samkvæmt greiningu RSV á kortaveltunni í maí jókst erlend kortavelta í dagvöruverslun um 12,8% í maí. Til samanburðar jókst hún um 0,9% í veitingaþjónustu. Skal tekið fram að reiknað er út frá erlendum greiðslukortum. Brot af þeim kann að vera í eigu Íslendinga. Skila gengisstyrkingu fljótt Jón Björnsson er forstjóri Festis, sem meðal annars rekur sautján Krónuverslanir víða um landið. „Við skilum hratt verðbreytingum vegna gengis og þá sérstaklega á innfluttri ferskvöru. Hún hefur lækkað mikið. Til dæmis hafa ávext- ir og grænmeti lækkað gríðarlega mikið á síðustu tveimur árum. Það er rúmlega 20% lækkun í þeim vöru- flokki. Við höfum ekki séð tölur um fjölgun ferðamanna endurspeglast í neinum verslunum hjá okkur. Það getur verið að ferðamenn séu í aukn- um mæli að versla hjá okkur. Það er hins vegar ekki auðgreinanlegt.“ Finnur Árnason, forstjóri Haga, sagði sölu til ferðamanna ekki vega þungt í heildarsamhenginu. Hins vegar kæmi sú sala fram í versl- unum Bónus á Laugavegi, Skipholti og Hallveigarstíg í Reykjavík. Íslandsferðin orðin miklu dýrari  Verðlag á Íslandi hefur hækkað um tugi prósenta fyrir erlenda ferðamenn frá því í fyrrasumar  Leigubíllinn kostar breskan ferðamann nú 48% meira og veitingahúsið kostar Japana 34,5% meira Breytingar á verðlagi fyrir erlenda ferða- menn á Íslandi frá júní 2016 til júní 2017* *Miðað er við breytingar á gengi frá júní 2016 til júní 2017.Miðað er við verðlagsmælingu Hagstofunnar í maí hvort ár. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabankinn, Rannsóknasetur verslunarinnar. Bandaríkja- dalur Pund Kanada- dalur Jen Evra Matur og drykkur 20,7% 34,0% 25,4% 26,2% 21,0% Leigubifreiðar 33,7% 48,5% 39,0% 39,8% 34,0% Klipping 27,5% 41,5% 32,5% 33,3% 27,8% Veitingahús 28,6% 42,8% 33,7% 34,5% 28,9% Gisting 25,6% 39,4% 30,5% 31,3% 25,9% Pakkaferðir innanlands 27,8% 41,8% 32,8% 33,6% 28,1% Húsgögn og heimilisbúnaður 15,1% 27,8% 19,6% 20,4% 15,4% Raftæki 13,0% 25,5% 17,4% 18,2% 13,3% Ökutæki 12,0% 24,3% 16,4% 17,1% 12,2% Námskeið 28,4% 42,5% 33,4% 34,2% 28,7% Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn á Laugavegi Landið er orðið dýrara heim að sækja. Miklar hækkanir » Samkvæmt vefsíðunni Rentalcars.com kostar rúm- lega 18.700 krónur að leigja smábíl í þrjá daga á Keflavíkur- flugvelli, 21. til 24. júní. » Lauslega áætlað hefur verð á þessum leigubíl hækkað úr 134 evrum í 164 evrur, miðað við breytingar á gengi evru. » Verð fyrir leigu á stærri bíl- um er mun hærra í krónum og fjölgar evrum sem því nemur. Árni Sverrir Hafsteinsson Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ofsaakstur ökumanns Toyotabif- reiðar í gærmorgun og eftirför lög- reglu sem hófst í iðnaðarhverfi í Vogahverfi í Reykjavík endaði í Ölfusá. Allt var reynt til þess að stöðva aksturinn, m.a. var kallaður til sérfræðingur í fortölum á sam- skiptasviði lögreglu sem sérþjálfað- ur er í því að tala um fyrir fólki. Hann reyndi að hringja í ökumann- inn sem svaraði ekki síma. Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlög- regluþjónn hjá umferðardeild lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að eftirförin hafi byrjað kl. 9.56 í iðnaðarhverfi í Vogunum skammt frá þar sem Mikligarður var einu sinni. Lögreglumenn gáfu ökumanni Toyotabifreiðar merki um að stansa sem hann gerði ekki en ók þess í stað út á Sæbrautina og þaðan í átt að Suðurlandsvegi. Þeg- ar á Suðurlandsveginn var komið lagði ökumaðurinn lykkju á leið sína inn í Norðlingaholtið og þaðan aftur út á Suðurlandsveg. Ásgeir segir lögregluna hafa reynt að komast fram fyrir bifreið- ina til að hægja á henni en ekki tek- ist. Tveir bílar eltu ökumanninn og sá aftari var að hluta til á öfugri ak- rein til þess að hægja á umferðinni sem kom á móti og fá ökumenn til þess að fara út í kant til að skapa meira pláss. Ekki val um að hætta eftirför Mikilvægt var að stöðva öku- manninn sem fyrst. „Það var ljóst samkvæmt upplýsingum úr mála- skrá að það var ekki val um að hætta eftirför,“ sagði Ásgeir. Lögreglan á Suðurlandi var feng- in til þess að setja naglamottu 200 – 300 metra vestan við hringtorgið við Hveragerði. „Slíkar naglamott- ur eru sjaldan notaðar. Þær virka þannig að stálpinnar stingast upp í dekkin og loft lekur úr þeim. Það hvellspringur ekki á bílnum en það gerir ökumanni erfiðara fyrir að stjórna honum. Ökumaðurinn sá mottuna og náði að sveigja fram hjá með því að fara út af veginum og svo inn á hann aftur stuttu síðar,“ útskýrir Ásgeir. Lögreglan reyndi því næst að keyra á bifreiðina með lögreglubíl frá sérsveitinni á hring- torginu við Hveragerði en það tókst ekki. Ásgeir segir að þá hafi verið ákveðið að loka Ölfusárbrú því stöðva þurfti ökumanninn með öll- um tiltækum ráðum til að koma í veg fyrir að hann færi inn á Selfoss. Heilmikið flug á bílnum Þegar ökumaður Toyota- bifreiðarinnar sá að búið var að loka Ölfusárbrú tók hann það ráð að keyra út í Ölfusá og lauk þar með tæplega hálftíma ofsaakstri klukkan 10.25. „Það sá það enginn fyrir að ökumaðurinn myndi velja að keyra út í Ölfusá. Það var heil- mikið flug á bílnum og hann kom niður á hvolfi. Straumurinn sá svo um að velta bílnum við. Við sáum strax að maðurinn var með meðvit- und. Lögreglumenn hentu til hans björgunarlínu. Ökumaðurinn klæddi sig í björgunarlínuna á þaki bílsins og beið eftir lögreglumönn- um sem sóttu hann á gúmmíbáti. Honum virðist ekki hafa orðið meint af,“ segir Ásgeir og bætir við að mikil almannahætta hafi skapast og eftirförin verið mikil aðgerð. Í aðgerðinni tóku þátt lögreglumenn, björgunarsveitir, sjúkrabílar, slökkvilið, vegagerðin og fortöluér- fræðingur. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar og kafari voru í viðbragðs- stöðu. „Þetta fór eins vel og orðið gat,“ segir Ásgeir sem vill þakka öllum sem komu að aðgerðinni. Hann var þakklátur ökumönnum sem sýndu tillitssemi og aðgát í þónokkurri umferð á þeim tíma sem eftirförin stóð yfir. Hafnaði í Ölfusá eftir hálftíma ofsaakstur  Allt reynt til að stöðva ökumanninn  Naglamottur og fortölusérfræðingur Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson Eftirför Ökumaður bíður björgunar lögreglu úr Ölfusá. Fortölusérfræð- ingur reyndi að hringja í ökumanninn til þess að telja honum hughvarf. Atburðarásin í eftirför lögreglunnar Hveragerði Selfoss Reykjavík 1. Iðnaðarhverfi í Vogunum Eftirför hefst kl. 9:56 2. Norðlingaholt Ökumaðurinn ekur inn í íbúðahverfið 3. Vestan við hringtorgið Lögregla leggur naglamottu 5. Ölfusárbrú Brúnni lokað með vegatálma 6. Eftirför lýkur við Ölfusárbrú Ökumaðurinn keyrir út í Ölfusá kl. 10:25 4. Á hringtorginu við Hveragerði Lögregla reynir að aka á ökutækið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.