Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.6. 2017 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Í nýfarinni helgarferð til höfuðstaðar Bretlands þurfti að koma við á hverjumeinasta bás á markaðnum í Camden. Hver einasta minjagripabúð á svæðinu íkring var heimsótt. Ástæðan: ferðafélaginn, átta ára að aldri, hafði horft á ótal myndbönd á YouTube af fólki um heim allan að snúa þyrilsnældum, fingra- snældum eða því sem við kölluðum reyndar bara fidget spinner upp á enskuna í ferðinni til að gera okkur skiljanleg í búðunum. Spinnerana eða snældurnar var nauðsynlegt að prófa ...í hverri einustu búð! Sumir snúast nefnilega ekki nógu vel og ekki vildi sá stutti henda peningum. Þegar heim var komið var ekkert sérlega leiðinlegt fyrir hinn unga ferðafélaga að vera örlítið á undan æð- inu með sínar snældur. Öllum finnst gaman að vera á undan sinni samtíð, á hvaða aldri sem er. Snældurnar eru kærkomnar og þessu æði sem nú gengur yfir ættu for- eldrar að taka fagnandi, því það er ekki oft sem krakkar sýna svona inni- legan og einskæran áhuga á jafn ein- földu fyrirbæri. Snældurnar eru algjörlega frábær- ar í einfaldleika sínum. Í þessum heimi tækninýjunga og eilífrar kröfu um að horfa á skjái er ánægjulegt að svona einfalt fyrirbæri skuli slá í gegn hjá krökkum. Þetta bara snýst ...og það er nóg! Börn velta fyrir sér virkni og snún- ingi snældunnar og vilja taka hana í sundur, sem er tiltölulega lítið mál með flest- ar snældurnar. Það er gaman að setja saman aftur og spá í af hverju einhverjar snúast vel en aðrar illa. Eiginlega er þarna komið alveg tilvalið tækifæri fyrir for- eldra að rifja upp eðlisfræðina frá því í grunnskóla. Æðið kemur ekki alveg á besta tíma fyrir skólana, skellur á akkúrat þegar þeir eru að klárast. En foreldrar og börn geta nýtt snældurnar saman og æft sig í ýmsum þrautum í sumarfríinu eins og að halda henni á nefinu, skipta á milli fingra og öðru skemmtilegu. Einfaldleikinn er oft bestur. Sumarið verður snælduvitlaust. Thinkstock Þetta bara snýst ...og það er nóg! Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Snældurnar eru al-gjörlega frábærar íeinfaldleika sínum. Í þessum heimi tækninýj- unga og eilífrar kröfu um að horfa á skjái er ánægjulegt að svona einfalt fyrirbæri skuli slá í gegn hjá krökkum. Þetta bara snýst ...og það er nóg! Helga Bjarnadóttir Já, í gær. Það kom mér skemmtilega á óvart. Ég fór og fyllti bílinn og var verulega sátt. SPURNING DAGSINS Ertu búin(n) að fara í Costco? Jóhann Ingi Guðbergsson Já, og það kom mér á óvart hvað vörurnar voru flottar og fjöl- breyttar. Morgunblaðið/Ásdís Guðný Erna Bjarnadóttir Nei, ég á ekki kort og er ekki á leiðinni þangað. Styrkár Þóroddsson Nei, ekki enn. Fer örugglega einhvern tímann. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ÁSDÍS THORODDSEN SITUR FYRIR SVÖRUM Ættum að nota þjóðbún- ingana meira Forsíðumynd Thinkstock Ásdís Thoroddsen, framleiðandi, leikstjóri og rithöfundur, á opnunarmynd heimildarmyndahátíðarinnar Skjaldborgar, Skjól og skart. Myndin fjallar um sögu og handverk íslensku þjóðbúninganna. Hátíðin fer fram á Patreksfirði um helgina og var hún sett á föstudag í ellefta sinn. Af hverju að gera heimildarmynd um íslensku þjóðbúninga? Mig langaði að gera eins konar svar við minni eigin mynd sem var heimildarmynd um bátasmíði á Norðurlöndum; Súðbyrðingur – saga báts. Nú langaði mig að skoða það handverk sem konurnar sýsluðu helst við. Þótt ég saumi sjálf gjarnan út af fingrum fram og hafi gaman að skoða hannyrðir af ýmsu tagi hefur búningasaumur eða fata- saumur yfirhöfuð aldrei togað í mig. Svo að þetta var alveg nýtt fyrir mig að skoða og mjög fróðlegt. Hvað er áhugaverðast við búningana? Saga búninganna varð pólitísk í rómantík nítjándu aldar og fram á tuttugustu öld og enn; við þekkjum vægi búninganna þegar við lítum til þjóðhátíðarinnar og fjallkonunnar. Bún- ingarnir tengjast pólitískri sögu þjóðarinnar. Svo er það sjálft handverkið; eiginlega er þar svo margt fallegt að finna að það vekur hjá manni kenndir, fegurðin hreyfir við manni. Að því leyti varð þessi mynd allt önnur en sú fyrri um bátanna, því sagan og handverkið er flóknari. Eru þjóðbúningarnir á undanhaldi? Eins furðulegt og það er þá er það alls ekki svo. Margt fólk er að koma sér upp búningi, hefur gert það eða ætlar sér að gera það. Og þá er ekki aðeins verið að hugsa um þá búninga sem við þekkjum best, ofangreind peysufötin og upphlutinn, heldur er seilst aftur fyrir hönnun Sigurðar Guðmundssonar málara og nú eru fjölmargar sem koma sér upp nítjándu aldar upphlut eða jafnvel faldbúningi. Þá þarf rétt föt á karlpening- inn svo kynin eigi saman og þá sauma þeir sér líka nítjándu ald- ar karlmannsflíkur. Eiginlega er undarlegra þó að fólk skuli ekki oftar sjást í þessum flíkum. Hvaða gildi hafa búningarnir fyrir listamenn og hönnuði í landinu? Við höfum þennan sameiginlega brunn, sem er handverkið, munstr- in, sagan; skírskotunin við allt sem áður var og jafnvel pólitíkina líka. Listamenn og hönnuðir gera sér grein fyrir því að hægt er að sækja í hann og gera það vel. Hvað er næst á dagskrá hjá þér? Ég var að setja saman umsókn í Kvikmyndamiðstöð um styrk til þróunar á mynd sem væri líka í þessum flokki „þjóðlegra“ mynda. Þá væri komin þrenna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.