Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 10
O ffita er eitt stærsta heilsufars- vandamál Vesturlanda og sí- fellt versnar ástandið. Íslend- ingar eru of þungir og offitusjúklingum fer fjölg- andi. Talað er um að vera í yfirþyngd þegar BMI-stuðull er á milli 25 og 30 en allt yfir 30 telst offita, en fólk með 18,5 til 25 er sagt vera í kjörþyngd. Talið er að rúmlega helmingur Íslendinga sé í yfirþyngd og samkvæmt alþjóðaheilbrigð- isstofnuninni (WHO) eru 22% Íslendinga í of- fituflokki samkvæmt tölum frá árinu 2014. Líklega hafa þessar tölur hækkað enn frekar á síðustu árum. Heilbrigðiskerfið þarf að glíma við afleið- ingar offitu, sem eru margar. En ekki síður þurfa offitusjúklingarnir sjálfir að líða fyrir það. Sjúkdómar og slæmir kvillar sem fylgja offitu eru fjölmargir og má nefna að algeng- ara er hjá offitusjúklingum að fá blóðtappa í hjarta eða heila, gallsteina, þvagsýrugigt, gigt í höndum, hnjám og mjöðmum, brjósta- krabbamein, leghálskrabbamein, ristil- krabbamein, krabbamein í nýrum, sykursýki tvö, kæfisvefn, háþrýsting, stækkun á lifur og jafnvel skorpulifur, bakverki, ófrjósemi hjá konum, astma og þunglyndi. Ein- staklingar í offituflokki þjást oft mikið lík- amlega og andlega. Félagslega finna þeir fyrir fordómum og eiga það til að einangra sig eða lenda jafnvel í einelti. Læknar eru almennt sammála að megrun virki ekki. Ævilanga lífstílsbreytingu þurfi til og þrír læknar sem hér er rætt við eru sammála um að oft sé nauðsynlegt að fara í aðgerð til að ná tökum á þyngdinni, og halda henni af. Skiptar skoðanir eru á því hvaða aðgerðir eru bestar en aðgerð er oft síðasta úrræði þeirra sem prófað hafa allt annað. Offita er sjúkdómur Vandamálin sem tengjast offitu eru margþætt en offita skerðir lífs- gæði verulega og styttir líf fólks. Rætt er við þrjá lækna um leiðir til þess að ná tökum á offitusjúkdóminum og telja þeir að aðgerð henti oft vel sem hjálpartæki til að ná af sér umframþyngd. En aðgerðir eru ekki töfralausn og þarf fólk að breyta um lífsstíl vilji það ná sem bestum árangri. Einnig er rætt við tvo einstaklinga sem glímt hafa við offitu og farið í aðgerðir með góðum árangri. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Thinkstock 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.6. 2017 HEILSA Það er mjög mismunandi hvað hentar, engrunnurinn er að ég vinn alltaf meðlífsstílinn,“ segir Erla sem vinnur hjá Heilsuborg. Kúr og lífsstílsbreyting er alveg tvennt ólíkt. Kúrar virka ekki, það er alveg ljóst. En það þarf alltaf að gera lífsstílsbreyt- ingu, hvort sem þú ferð í aðgerð eða ekki. Það þarf að vinna með mataræði, hreyfingu, svefn, andlega líðan og aðstæður í daglegu lífi. Í sumum tilvikum er æskilegt að nota aðgerð sem hjálpartæki. En það er aldrei lausn eitt og sér. En hún getur hjálpað,“ segir Erla sem hjálpar bæði fólki sem er á leið í aðgerð og því sem hefur þegar farið. Einnig vinnur hún mik- ið með fólki sem kýs eingöngu að fá hjálp við að breyta um lífsstíl. Opin umræða en ekki fordómar Erla segir að offita sé langvinnur sjúkdómur sem verði að ræða. „Mér er það mikið hjartans mál að fólk skilji að offita er langvinnur sjúkdómur og það þarf lífstíðarmeðferð. Í eðli sínu heldur hann áfram og versnar ef við veitum ekki meðferð, þannig að við þurfum að takast á við hann alla ævi. En mikilvægt er líka að greina á milli of- þyngdar og offitu og hvenær offita er sjúk- dómur og hvenær ekki. Það er stundum talað um að við sem erum að vinna með offitu séum með fordóma, og fólk megi vera eins og það vill. En það er bara önnur umræða. Við erum ekki að gera þetta út frá útliti heldur heilsu. Hlutfallslega of mikill fituvefur í líkamanum hefur slæm áhrif á líkamann. Fituvefurinn er líka mjög efnaskiptalega virkur vefur og starf- semi hans getur raskast eins og annarra líf- færa og við þurfum að geta tekið fordóma- lausa umræðu um það,“ segir Erla. Hún tekur fram að hreysti og aukakíló geti farið saman. „Það er alveg hægt að vera hraustur með heil- mörg aukakíló. En það er samt áhættuþáttur. Það er meiri hætta á ýmsum sjúkdómum.“ Vigtin er ekki óvinur Oft hefur skapast umræða um að ekki eigi að stíga á vigtir og láta töluna þar stjórna lífinu. Erla segir sjálfsagt að nota vigt sem tæki til hjálpar. „Við sem heilbrigðisstarfsfólk eigum að ganga á undan með góðu fordæmi og út- rýma þessum fordómum í garð vigtar. Það að fylgjast með þyngdinni er jafn eðlilegt og að fylgjast með blóðþrýstingi. Hættum að tengja þetta svona mikið við útlit og persónugerð, eins og umræða í fjölmiðlum snýst oft um,“ segir Erla og bætir við að offitumeðferð snúist ekki um það að léttast, heldur skapa jafnvægi í líkamanum. „Að léttast getur verið hluti af því en þú getur lést mikið og verið miklu óheilbrigðari. Ef þú velur hina klassíku leið, megrun, ertu að „borða“ vöðvana þína og þótt þú sért með færri kíló er meira ójafnvægi á öllu. Og það sem gerist er að viðkomandi fitn- ar mjög hratt á eftir. Við erum hér að reyna að skapa jafnvægi og þá fara kílóin í rólegheit- um og koma síður aftur tilbaka.“ „Ég vel aldrei magaband“ Erla segir að aðgerð, ásamt lífsstílsbreytingu, hjálpi mörgum en hún hefur ákveðnar skoð- anir á hvaða aðgerðir hún mæli með. „Maga- hjáveitan er gullstandardinn. Hún er besta aðgerðin hvað varðar langtímaárangur. Hún er hins vegar mesta inngripið. Í sumum til- vikum er betra að fara í ermina frekar. Það fer eftir líkamsástandi og heilsufari sjúklings- ins. En ég vel aldrei magaband. Það er barn síns tíma og ef við veljum aðgerð á annað borð, þá veljum við annaðhvort hjáveitu eða ermina,“ segir Erla og bætir við að hún hafi ekki trú á magaslöngunni, eða svokölluðum krana. „Alls ekki, hann hvorki hjálpar þér með lífsstílinn né efnaskiptin. Þetta er til að tappa af hitaeiningum og er því í andstöðu við það sem við erum að reyna að gera. Maga- bandið er í raun meira í ætt við fegrunar- aðgerð og fólk ræður auðvitað hvað það gerir við líkama sinn. En sú aðgerð breytir ekki efnaskiptum heldur minnkar bara magamálið og það þarf að hafa áhrif á efnaskipti lík- amans. Ég get ekki mælt með þessari leið,“ segir hún. „Ég fæ mikið til mín sjúklinga þar sem magabandið hefur ekki virkað sem skyldi. Ég sé auðvitað ekki þá sem gengur vel hjá, sem eru alltaf einhverjir.“ Lífsstílsbreyting alltaf nauðsyn Erla Gerður Sveinsdóttir, læknir og lýðheilsufræðingur, sér- hæfir sig í meðferð fólks í yfirþyngd og með offitu. Hún segir lífsstílsbreytingu alltaf verða að fylgja með, hvort sem ein- staklingur velur aðgerð eða ekki. Erla er hlynnt magahjáveitu og magaermi en mælir ekki með magabandi. Erla Gerður segir aðgerð geta verið gott hjálpartæki en alltaf þurfi að huga að lífsstílnum. Hún mælir hvorki með magabandi né magaslöngu en er hlynnt hjáveitu og magaermisaðgerð. Morgunblaðið/Ernir ’Kúrar virka ekki, það er alvegljóst. En það þarf alltaf aðgera lífsstílsbreytingu, hvort semþú ferð í aðgerð eða ekki. Það þarf að vinna með mataræði, hreyfingu, svefn, andlega líðan og aðstæður í daglegu lífi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.