Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 26
Vörumerkið iglo+indi kynnir Empwr-peysuna, sem framleidd er í samstarfi við UN Women á Íslandi. Empwr-peysan er bæði ætluð á börn og fullorðna og er þetta í fyrsta sinn sem iglo+indi framleiðir flík á fullorðna. Allur ágóði af sölu á peysunum rennur til reksturs griðastaða UN Women fyrir konur á flótta. Peysurnar verða seldar í verslunum iglo+indi. Samstarf iglo+indi og UN Women Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fata- kaupum? Til að forðast skyndiákvarðanir er snjallt að sofa á hlutum. Sé maður enn með flíkina á heilanum morguninn eftir er líklegt að hún eigi að verða þín. Í seinni tíð hef ég líka valið gæði fram yfir magn. Það hefur reynst vel. Hvar kaupir þú helst föt? Zara inniheldur yfirleitt allt sem mér þykir fallegt. Þegar ég ferðast erlendis finn ég alltaf eitthvað fal- legt í Cos og fer aldrei tómhent út úr Monki enda nóg af fjörlegum fötum sem poppa upp látlausa klæðnaðinn sem ég á það til að velja. Einfalt er samt oftast best. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Ég komst nýverið upp á lagið með að nota augnskuggablýant, sem hefur reynst frábær lausn í tímaþröng. Baugafelari er svo auðvitað algjör nauðsyn fyrir þreyttar mömmur. Fallegur gloss gerir alla daga betri, sem og ilm- vatnslykt í stíl við skapið. Ég fer heldur ekki fet nema augnblýant- urinn Teddy frá Mac sé með í för, sem og maskari, en ég er mikill maskaraperri þó að ég hafi ekki enn fundið minn eina rétta. Hver hafa verið bestu kaupin þín? Alls konar treflar í yfirstærð sem halda á mér hita yfir mesta kuldatímabilið og lífga upp á hversdags- legar kápur, jú og þægilegir sportskór. Lífið er of stutt fyrir hælsæri. Hvaða tískutímaritum/bloggum fylgistu með? Ég er ekki ein af þeim sem skoða bara myndir í tímaritum, ég vil lesa greinarnar, Marie Claire, Porter og Harper’s Bazaar eru meðal þeirra fjölmörgu tíma- rita sem fjalla um spennandi hluti. Íris Hauksdóttir velur gæði fram yfir magn þegar kemur að fatakaupum. Fölbleikur kjóll úr einni eftir- lætisverslun Írisar, Cos. Íris Hauksdóttir, blaðakona hjá Vikunni, er jakkasjúk og fær ekki nóg af kimono sem hægt er að klæða upp og niður. Hún er einnig með mikið maskarablæti og ilmvötn á heilanum. Íris segir mikilvægt að taka sjálfa sig ekki of alvarlega þegar kemur að tísku og mestu máli skipti að fylgja hjartanu. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Ég fell oftast fyrirþægilegum fötum, síðum peysum, rifnum gallabuxum og svoauðvitað öllu með blúndum. Ætli ég sé ekki með hæfilega fíngerðan stíl með nettu dassi af pönki, en ég er samt frekar afslöppuð og læt sjaldnast tískustrauma stjórna mér. Hvað heillar þig við tísku? Líklega frelsið, rétt eins og þegar kemur að förðun, það má allt. Að mínu mati er mikilvægt að taka sig ekki of alvarlega og vera ekki upptekin af því hvað sé töff og í tísku, heldur fylgja frekar hjartanu, enda skín það alltaf í gegn þegar maður fílar sig í fötunum sínum. Áttu þér uppáhaldsflík eða fylgihlut? Ég er jakkasjúk og fæ ekki nóg af kimono sem hægt er að klæða upp og niður. Annars fell ég alltaf fyrir fölbleikum flíkum og á nokkrar slíkar í miklu uppáhaldi. Það er gott að vera ekki of svört. Á að fá sér eitthvað fallegt fyrir sumarið? Ég er nýbúin að kaupa mér draumaskóna sem passa við allt og eru æðislegir með skrautlegum sokkum. Ég mun svo án nokkurs vafa bæta fleiru við sumarsafnið, til að mynda dreymir mig um sæta skyrtu og skvísuleg sólgleraugu. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Ætli ég hafi ekki elskað Victoriu Beckham lengst. Annars finnst mér Mila Kunis ofsa- lega flott og skemmtilegt að fylgjast með henni, Emma Watson tekur líka áhugaverðar ákvarðanir varðandi tísku. Svo er alltaf gaman að fylgjast með Lady Gaga fara sínar leiðir, góður innblástur þar. Íris fer ekki fet án augnblýants- ins Teddy frá Mac. Í tímaritinu Marie Claire má finna áhugaverðar greinar. Þessi skvísulegu sólgleraugu frá Marc Jacobs eru meðal annars á óskalista Írisar fyrir sumarið. Victoria Beckham er alltaf flott. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fíngerður stíll með dassi af pönki TÍSKA 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.6. 2017

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.