Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.6. 2017 LESBÓK TÓNLIST Eminem hefur upplýst hvaðan hann fékk hvað mestan innblástur fyrir plötuna The Eminem Show, nefni- lega frá Jim Carrey. „Hugmyndin að The Eminem Show kom frá The Truman Show af því að líf mitt var eins og sirk- us og á þessum tíma leið mér eins og það væri alltaf verið að fylgjast með mér. Í raun samdi Jim Carrey plötuna,“ skrifaði rapparinn á Instagram og vísar til kvikmyndar Carrey frá 1998. The Eminem Show á fimmtán ára afmæli um þessar mundir, en hún hefur selst í meira en tíu milljón eintökum í Bandaríkjunum frá því að hún kom út árið 2002. Hún er líka á topp 100 lista Rolling Stone yfir bestu plötur fyrsta áratug- ar þessarar aldar. Hún fékk Grammy-verðlaun sem besta rappplatan og var tilnefnd í flokknum plata ársins. Innblástur frá Jim Carrey Eminem árið 2002. AFP KVIKMYNDIR Ron Howard hefur tekið að sér að leikstýra heimildarmynd um óperu- söngvarann Luciano Pavarotti. Howard ætl- ar einnig að framleiða myndina ásamt fleir- um, að því er Variety greinir frá. Pavarotti fæddist árið 1935 á Ítalíu og lést úr krabbameini árið 2007. Hann hóf feril sinn sem óperusöngvari árið 1961 á Ítalíu og kom síðast fram á Vetrarólympíuleikunum í Tór- ínó árið 2006. „Líf Pavarotti var dramatískt og uppfullt af bæði hápunktum og lágpunktum og eins og allir krefjandi persónuleikar var hann maður mótsagna,“ sagði Howard. Heimildarmynd um Pavarotti Ron Howard AFP Elfar Aðalsteins leik- stýrir rísandi stjörnum End of Sentence, ný kvikmynd eftir íslenska leikstjórann Elfar Aðalsteins, var kynnt í Cannes í síðasta mánuði en tökur á henni hófust á Írlandi fyrir um tveimur vikum. Fjölmargir Íslendingar koma að gerð og framleiðslu myndarinnar og mun eftirvinnsla að öllum líkindum fara fram á Íslandi. Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com Hawkes, sem fór með hlutverk í Eve- rest. Írska leikkonan Sarah Bolger fer með hlutverk puttaferðalangsins en hún hefur m.a. unnið til verðlauna fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum The Tudors. Líkt og Lerman hóf Hinn bandaríski Logan Lerman leikur soninn Sean en Lerman er rís- andi stjarna í Hollywood. Hann hóf leiklistarferilinn aðeins átta ára er hann lék son Mel Gibson, bæði í kvik- myndunum The Patriot og What Women Want og hef- ur mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur en með- al nýlegra mynda hans er stríðsmyndin Fury þar sem hann lék á móti Brad Pitt. Lerman lék einn- ig Ham, son Nóa, í sam- nefndri kvik- mynd sem tek- in var upp á Íslandi og hefur því þegar teng- ingu við ís- lenska kvik- myndagerð líkt og John ure og verðlaunamyndinni Sailcloth, þar sem John Hurt fór með aðal- hlutverk. End of Sentence er hins vegar íslensk/bandarísk mynd fram- leidd af Elfari og Guðrúnu Eddu Þór- hannesdóttur frá Berserk Films, Evu Maríu Daníels, Samson Films á Ír- landi og hinu bandaríska Palomar Pictures, framleiðslufyrirtæki Sig- urjóns Sighvatssonar, en hann er ný- kominn frá Cannes þar sem hann kynnti myndina ásamt fulltrúum dreifingarfyrirtækisins Rocket Science. Ungar stjörnur í hópnum Handrit End of Sentence er skrifað af Michael Armbruster, sem m.a. skrifaði Beautiful Boy, mynd sem Eitt aðalhlutverkið í myndinni erí höndum bandaríska leikar-ans John Hawkes sem íslensk- ir bíógestir ættu að kannast við úr mörgum kvikmyndum síðustu ár en með eftirminnilegri hlutverkum hans er fatlaða ljóðskáldið í The Sessions, sem Hawkes hlaut fjölda tilnefninga og verðlaun fyrir ásamt móttleikkonu sinni, Helen Hunt. Ólafur Darri Ólafsson fer með lítið hlutverk í End of Sentence og meðal annarra Íslend- inga sem koma að myndinni eru Karl Óskarsson sem sér um kvikmynda- töku og Kristján Loðmfjörð sem sér um klippingu. Elfar Aðalsteins hefur unnið að gerð fjölmargra mynda og skrifaði og leikstýrði stuttmyndunum Subcult- skartaði Maria Bello og Michael Sheen í hlutverkum foreldra drengs sem fremur fjöldamorð í skólanum sínum. End of Sentence fjallar hins vegar um feðga sem leggja í ferðalag frá Bandaríkjunum til Írlands til að dreifa ösku eiginkonunnar og móð- urinnar í fæðingarlandi hennar. Feðgarnir höfðu skorið á öll tengsl sín á milli og sonurinn er nýkominn úr fangelsi er hann samþykkir treg- lega að fara í ferðalagið gegn loforði um að þeir þurfi aldrei að eiga sam- skipti eftir það. Ferðin verður hins vegar óútreiknanlegri en þeir höfðu búist við, siðir og móttökur heima- manna koma þeim í opna skjöldu og bakpokaferðalangur kemur inn í líf þeirra á óvæntan hátt. Logan LermanJohn Hawkes Bókaðu núna og tryggðu þér pláss Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá . . . . . kr. 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá . . . . kr. 74.500 1 Bókaðusnemma ogtryggðu þér pláss Taktu bílinnmeð í ferðalagiðFæreyjar - Danmörk - Evrópa 2017 Færeyjar2 fullorðnir með fólksbíl Verð á mann frá34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Verð á mann frá 74.500 570 8600 / 470 2808 · www.smyrilline.is Mikið er bókað nú þegar með Norrænu á næsta ári. Því er mikilvægt fyrir þá sem ætla að ferðast með Norrænu að bóka sig sem fyrst og tryggja sér pláss á meðan enn er laust pláss. Aðeins25% núna,eftirstöðvarmánuði fyrirbrottför Bæklingur 2017 Nýja bæklinginn okkar er nú hægt að sækja á heimasíðuna, www.smyrilline.is Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600 info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Fjarðargötu 8 | 710 Seyðisfjörður | Sími: 4702808 info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Taktu bílinn með í ferðalagið til Færeyja og Danmerkur 2017 Frá tökustað myndarinnar í nágrenni Dublin á Írlandi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.