Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2017 Gunnlaugur Jónsson er maðurinn á bak við nýtt app sem heitir Skroll, en hugmyndina fékk hann ásamt bræðrum sínum Ívari Páli og Konráði árið 2013. „Þetta gengur út á að búa til myndbandaþræði með öðrum. Það er auðvelt að stofna fyrsta myndbandið og allir sem þú býður inn mega bæta inn mynd- klippum. Þetta hentar vel fyrir margt en þetta er upprunalega hugsað út frá gríni. Þetta er líkt því sköpunarferli sem er þar í gangi, fólk hendir boltanum á milli sín. Miðillinn hentar líka fyrir spunaleiki og áskoranir. Þetta er fyrir opnum tjöldum en það er líka hægt að gera þetta í leyni með vin- um ef þú stillir það þannig. Þetta gengur miklu meira út á sam- vinnu en að vera bara sóló í sjálfhverfunni. Sá sem stofnar eitt svona hefur stjórn á því og býður öðrum upp í dans,“ segir hann, en heildin spilast svo sem eitt myndband og sá sem byrjaði get- ur endurraðað myndbrotum eða eytt út. Ólíkt Snapchat er útkoman eitthvað sem lifir og er einnig hægt að deila á Skrolli og öðrum miðlum. „Þetta er líkara You- Tube hvað það varðar. Fólk setur efni inn og það er áfram til eft- ir nokkur ár og gaman að eiga það,“ segir Gunnlaugur. Skroll er til fyrir iPhone og kemur síðar fyrir Android en Android-notendur og aðrir geta fylgst með efni, þumlað og skrifað komment á skroll.is. Nú þegar er komið ýmislegt efni inn á miðilinn og er til dæmis hægt að fylgjast með félögunum úr Mið-Íslandi þarna. „Maður fylgir vinum og kunningjum en líka til dæmis frægum grínistum eða fólki sem skapar sér nafn inni á miðlinum,“ segir hann, en búast má við því að nýjar stjörnur spretti upp með nýjum miðli. Appið kemur á markað í Bandaríkjunum í haust. „Við erum byrjaðir að undirbúa það og erum í ágætis samtali við þekkt grínfyrirtæki og aðila sem eru á þessum smáforritamarkaði.“ Boðið upp í gríndans Gunnlaugur Jónsson Skroll, nýtt íslenskt app, gengur út á að búa myndbandaþræði með öðrum þar sem útkoman lifir. Hægt er að fylgja vinum eða frægum grínistum. Ýmislegt efni er komið inn á miðilinn og er t.d. hægt að fylgjast með félögunum úr Mið-Íslandi. Fyrir rétt rúmum 50 árum, þann 3.júní 1966, var sagt frá því á for- síðu Morgunblaðsins að tungl- farið Surveyor hefði lent á tungl- inu og sent þaðan 144 myndir og búist var við fleiri hundruð myndum næstu daga. Myndirnar sem höfðu borist frá tunglfarinu voru svo skýrar að það uppfyllti allt það sem vísindamenn von- uðust til. Lendingin tókst vel, en Surveyor lenti í Flamsteed-gíg í Stormahafinu og náði að lenda innan 16 km frá ráðgerðum lendingarstað. Einungis hálftíma eftir lendingu byrjaði tunglfarið að senda myndir til jarðar. Sur- veyor ferðaðist á 4.800 km hraða á klukkustund en þegar tunglfarið nálgaðist lendingu jókst hraðinn í 9.450 km á klukkustund vegna aðdráttarafls tunglsins. Surveyor ferðaðist alls 385.000 km leið. Myndirnar sem farið sendi töldust athyglisverð- ar og um var að ræða stórkost- legt afrek. Þetta var fyrsta til- raun Bandaríkjamanna til að lenda geimfari mjúklega á tungl- inu. Mikil bjartsýni var að hægt yrði að senda mannað tunglfar til tunglsins fyrir 1970. GAMLA FRÉTTIN Surveyor á tunglinu Fyrsta tungllending Bandaríkjamanna heppnaðist fullkomlega. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður Jon Hamm leikari Ty Burrell leikariSkeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Natuzzi Ítalía Golf Model 2945 Lengd 216 cm. Leður ct.10. Verð 299.000,- s s Natuzzi Italia Philo Model 2957 Lengd 214 cm. Leður Ct.15 Verð 740.000,- s Natuzzi Italia Avana Model 2570 Lengd 224 cm. Leður Ct.15. Verð 479.000,- s Natuzzi Italia Dado Model 2822 Lengd 214 cm. Leður ct.10. Verð 299.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Italia Skoðið nýju vefverslun okkar casa.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.