Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Blaðsíða 37
Leikstjórinn Elfar Að- alsteins ásamt Karli Ósk- arssyni kvikmyndatöku- manni við tökur á End of Sentence á Írlandi í vikunni. Úr einkasafni hún ferilinn snemma og lék, ásamt yngri systur sinni, í kvikmyndinni In America þegar hún var níu ára göm- ul. Sú mynd fékk tilnefningar til bæði Óskars- og Golden Globe-verðlauna og allt leikara- liðið var til- nefnt til Screen Actors Gu- ild Awards. Ljúfsár saga Vanity Fair sagði frá því nýlega að End of Sentence hefði verið kynnt sem kvikmynd í framleiðslu í Cannes en Rocket Science sem hefur tryggt sér alþjóðlegan sölurétt á myndinni. „End of Sentence er hlý, fyndin og hjart- næm saga af ósamlyndum feðgum sem finna tengingu á ný; vegreisumynd sem gerð er af næmi og húmor. Þar á ég við bæði leikarana hæfileikaríku og hið frábæra teymi sem stendur að myndinni. Hún mun áreiðanlega hreyfa við áhorfendum víða um heim,“ er haft eftir Thorsten Schumacher, forstjóra Rocket Science. End of Sentence er fyrsta kvikmynd Elfars í fullri lengd en hann stefnir á að frumsýna hana í janúar á næsta ári. „Við erum komin með meiriháttar leik- arahóp og tökulið og ég hlakka mikið til að vinna með þeim að því að gæða þessa ljúfsáru sögu Michaels lífi,“ sagði Elfar í fréttatilkynningu stuttu áður en tökur hófust, en þær standa yfir fram til mánaðamóta. Ólafur Darri Ólafsson fer með hlutverk í myndinni End of Sentence. Sarah Bolger AFP 4.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 SJÓNVARP Netflix hefur ákveðið að hætta með Sense8 eftir tvær þáttaraðir. Streymisveitan staðfesti þetta fyrir helgi. Þessir vísindaskáldsöguþættir eru úr smiðju Lönu og Lilly Wachowski og J. Michael Straczynski. Lilly og Lana eru þekktar sem höfundar Matrix- þríleiksins. „Sense8-sögunni lýkur eftir 23 þætti, 16 borgir og 13 lönd,“ sagði Cindy Holland hjá Netflix og þakkaði um leið höfundum þáttanna. Viku áður tilkynnti Netflix að það yrði ekki fram- leidd önnur þáttaröð af The Get Down, tónlistardrama Baz Luhrmann. Sense8 hættir Leikaraliðið úr Sense8. TÓNLIST Fyrrverandi Oasis-stjarnan Liam Gallagher spilaði í fyrsta sinn á tónleikum sem sólólistamaður í London þegar hann hélt tónleika í Brixton Electric á fimmtu- dagskvöld. Hann tók meðal annars lög af væntanlegri plötu sinni As You Were ásamt því að hann spilaði þekkta Oasis-slagara á borð við „Rock N’ Roll Star“ og „Morning Glory“. Með honum í sveitinni eru Drew McCon- nel úr Babyshambles á bassa, Jay Mahler bassaleikari Kasabian á tónleikaferðalög- um, Mike Moore á gítar, Dan McDougall á trommur og Chris Madden á hljómborð. Liam spilar sóló Liam Gallagher. AFP Hertoginn af Cambridge og Harry prins segjast vera að gera skyldu sína sem synir með því að taka þátt í heimildarmynd BBC um móður þeirra, Díönu prinsessu. Þeir vilja heiðra nafn hennar og finnst þeir hafa valdið henni von- brigðum í fortíðinni með því að vernda hana ekki. Í myndinni munu Vil- hjálmur og Harry ræða um vikuna eftir dauða hennar, allt frá því þegar þeim var til- kynnt um sviplegt andlát móður sinnar og þangað til útförin fór fram. Myndin, sem verður 90 mínútur að lengd, er gerð í tilefni þess að 20 ár verða liðin frá andláti Díönu þann 31. ágúst. Vinnuheitið er einfaldlega Díana. „Við brugðumst henni þeg- ar við vorum yngri,“ mun Vil- hjálmur segja í myndinni að sögn BBC. Hann segir að þeir vilji minna alla á hvaða per- sónu hún bjó yfir. Harry segir að hann hafi orðið fyrir miklum áhrifum af þeirri ást og öllum þeim til- finningum sem hann fann hjá al- menningi eftir lát móður sinnar. „Það var ótrúlega fallegt og magnað, þegar ég horfi til baka, það var magnað hve mikil áhrif móðir okkar hafði á svo margt fólk,“ segir Harry í myndinni. Í myndinni verða viðtöl við nána vini Díönu, stjórnmálafólk og blaðamenn, sem sumir hverj- ir eru að ræða í fyrsta sinn op- inberlega um lát Díönu og það sem fylgdi í kjölfarið. BBC hefur ennfremur tilkynnt að sjónvarpsstöðin ætli að fram- leiða leikna mynd sem mun bera nafnið Díana og ég sem fjallar um hvaða áhrif andlát Díönu hafði á fjórar ólíkar manneskjur. HEIMILDARMYND UM DÍÖNU Vilja heiðra móður sína Bræðurnir á góðum degi með Díönu móður sinni. Harry og Vilhjálmur á leið í brúðkaup Pippu Middleton. Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögumSvansvottuðbetra fyrir umhverfið, betra fyrir þig. Almött veggmálning Dýpri litir – dásamleg áferð u Frábær þekja u Mikil þvottheldni u Hæsti styrkleikaflokkur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.