Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Síða 12
HEILSA
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.6. 2017
Magabönd og magaermar eru 99% afþví sem við gerum hér,“ segir Auð-un og útskýrir að aðgerðirnar tvær
henti mismunandi hópum. „Magaböndin eru
fyrst og fremst fyrir fólk með þyngdarstuð-
ulinn 30-45 (BMI). Auðvitað er hægt setja
magaband í þá sem þyngri eru en það er svolít-
ið erfiðara að glíma við þegar þyngdarstuðull-
inn er kominn hærra, þá þarf aðeins sterkari
aðgerð til þess að ná góðum árangri og þess
vegna erum við líka með magaermina. Svo er-
um við með það sem heitir magablaðra, fyrir
þá sem eru léttari og erum við ekki að nota
hana mikið, helst þegar við erum að undirbúa
mjög þungt fólk, 200 kíló eða yfir, sem þarf að
létta sig fyrir skurðaðgerð,“ segir Auðun.
70.000 fullorðnir mælast með offitu
Auðun segist vinna í samstarfi með sjúklingum
varðandi hvaða aðferð þeir eigi að velja. „Þetta
er fólk að leita eftir hjálp og það er mín laga-
lega og siðferðilega skylda að skýra frá því
hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Og í raun
hafa Íslendingar nokkra möguleika. Eitt er að-
gera enga aðgerð og halda áfram í ræktinni og
vona að næsti danski kúr komi og bjargi öllu.
En hjá mínu fólki, sem er með þyngdarstuðul
yfir 35-40, og jafnvel með kæfisvefn og fleira,
þá er árangurinn af slíku næstum því núll, ef
litið er til lengri tíma. Það er ein meðferðin, að
gera ekki neitt, og það eru allflestir sem kjósa
það,“ segir Auðun.
„Við skulum átta okkur á því að á Íslandi eru
70.000 fullorðnir með þyngdarstuðulinn yfir
þrjátíu og mælast með offitu. Það er meira en
helmingur Íslendinga í yfirþyngd, með þyngd-
arstuðul yfir 25 og 28% í offituflokki en í
Bandaríkjunum eru það yfir 30%. Og það er
bara að versna. Það er áætlað að það séu um
7.000 til 12.500 manns hérlendis með sjúklega
offitu og væru kandídatar í aðgerð,“ segir Auð-
un.
Miklir offitufordómar
Hér á landi þurfa sjúklingar sjálfir að bera
kostnað af aðgerðunum sem kosta á bilinu ein
til ein og hálf milljón. „Eins og annars staðar í
heiminum erum við bara að skera 1% af því
fólki sem við gætum skorið, því miður. Þó að
þetta sé eina áhrifaríka aðferðin og ekki bara
það, heldur er hún mjög arðbær þjóðfélaginu.
Ef þú tekur bara lyfin sem sykursjúkir þurfa
og sparar það í fjögur ár, þá ertu komin með
aðgerðina,“ segir Auðun. „Eftirspurnin er svo
gríðarleg og það eru takmarkaðir peningar til í
heilbrigðiskerfinu, það er því miður staðreynd
að það er ekkert sérstaklega „sexy“ að vera
með offitusjúkdóm. Það eru ákveðnir sjúk-
dómar sem eru meira í „tísku“ og það er litið
niður á þessa sjúklinga. Þeir þjást verulega
mikið, og þeim er mismunað. Það er gríðarlegt
verk að vinna þarna og offitufordómarnir eru
miklir. Svo er gaman að sjá þegar fólk er búið
að missa vigtina þá fær það sjálfstraustið aftur
og það hellir sér út í lífið og líður betur.“
Magabandið virkar vel hérlendis
Auðun segir magabandsaðgerðina gefa góða
raun. Hann gerði rannsókn á 729 Íslendingum
með magaband og sýndu niðurstöðurnar að á
Mikilvægt að
fyrirbyggja offitu
Auðun Sigurðsson bjó í Bretlandi í áratugi og framkvæmdi þar
þúsundir offituaðgerða, bæði magaermi og magabandsaðgerð-
ir. Nú er hann fluttur heim og hefur nóg að gera að setja maga-
bönd í Íslendinga sem hafa tekið þeim fagnandi.
Auðun Sigurðsson hefur gert yfir sex þúsund magabandsaðgerðir og segir árangurinn góðan á Íslandi.
Morgunblaðið/Ásdís
Aðalsteinn gerir tvenns konar aðgerðir,hjáveitu og magaermi, og segir þærbáðar gefa góðan árangur. Einnig
kjósa sumir magaslöngu, svokallaðan krana,
og þarf einungis magaspeglun til að koma
henni fyrir. „Í hjáveitunni er ekkert fjarlægt
heldur einungis tengt framhjá. Í erminni er
hluti magans fjarlægður en engar aðrar breyt-
ingar gerðar á líkamanum. Sjúklingum finnst
þessi staðreynd aðlaðandi og þeim finnst þetta
minni aðgerð,“ útskýrir hann og segir báðar
aðgerðirnar vera öruggar.
Lækning við sykursýki
Aðgerðirnar taka á milli 30 og 45 mínútur og
eru gerðar með kviðsjártækni. „Í stað þess að
kalla þetta offituaðgerðir er nú reynt að nota
heitið efnaskiptaaðgerðir í staðinn, en með því
er lögð áhersla á að báðar aðgerðirnar hafa
gríðarleg áhrif á efnaskipti líkamans. Efna-
skiptasjúkdómar eru hættulegustu sjúkdóm-
arnir tengdir offitu, eins og sykursýki, hjarta-
og æðasjúkdómar og hár blóðþrýstingur.
Báðar aðgerðirnar hafa reynst mjög góðar í
baráttunni við sykursýki af gerð 2 – og þá sér-
staklega hjáveitan. Ef þú ferð í hjáveitu eru
70% líkur að þú læknist af sykursýkinni og
getir þar með hætt á lyfjum. Ef einstaklingur
er með erfiða sykursýki geta læknar íhugað
slíkar aðgerðir, jafnvel þótt sjúklingurinn sé
ekki í yfirþyngd,“ segir Aðalsteinn og bætir
við að þessi hlið málsins mætti vera sýnilegri í
umræðunni um meðferð sykursýki á Íslandi.
Missa 60-80% af ofþyngdinni
Hvað er talið að fólk missi mikið af ofþyngd-
inni við ermina?
„Það er mikilvægt að skilja muninn á
heildarþyngd og ofþyngd. Ofþyngd er allt sem
er yfir 25 í BMI. Með erminni má gera ráð fyr-
ir að um 60-65% ofþyngdar hverfi en í hjáveit-
unni 75-80%.“
Hverjar eru neikvæðar hliðar ermarinnar?
„Það er kannski óvissan um langtíma-
árangur. Svo er hún ekki góð fyrir fólk með
slæmt bakflæði og getur jafnvel valdið bak-
flæði. Þeir sem fara í ermi þurfa hugsanlega að
fara í magaspeglun á nokkurra ára fresti til
eftirlits á neikvæðum áhrifum bakflæðis.
Magaermin er ekki alveg eins kraftmikil og
hjáveitan, þannig að þú getur ekki gert ráð
fyrir að léttast alveg jafn mikið,“ segir hann.
„20-25 ára reynsla er komin á kosti og galla
hjáveitunnar. Einungis 7-8 ára reynsla er
komin á ermina og menn hafa smá áhyggjur af
því hvernig hún reynist til lengri tíma. Maginn
getur þanist út aftur, eða líkaminn hugsanlega
aðlagað sig á annan hátt sem minnkar
árangurinn til lengdar.“
Enginn árangur af megrunum
Af hverju er svona erfitt að léttast?
„Enn og aftur erum við að tala um efnaskipti
líkamans, þetta samspil á milli hormóna frá
meltingarveginum og heilastöðva sem stýra því
hvernig við umgöngumst mat, t.d. hvenær við
erum svöng eða södd. Þetta eru gríðarlega öfl-
ug boðkerfi. Ef við erum svöng er erfitt að
segja: ég ætla ekki að borða núna, ég ætla ekki
að borða meira. Þú borðar gjarnan þangað til
þú finnur að þú sért að verða saddur. Annað
vandamál er að ef við þyngjumst notar heilinn
nýju þyngdina sem nýtt viðmið. Því miður still-
ir hann ekki núllpunktinn niður aftur þótt við
grennumst. Hann lítur svo á að við líðum nær-
ingarskort og gerir allt til að auka þyngdina
aftur,“ segir Aðalsteinn. Hann telur afar erfitt
fyrir fólk í yfirþyngd að ná kjörþyngd upp á
eigin spýtur.
„Erfitt er að finna góðar rannsóknir sem
sýna viðvarandi árangur á neinum aðferðum,
eins og megrunum. Það er ástæða fyrir því að
til eru 20 þúsund megrunarkúrar með nafni,“
segir Aðalsteinn. „Eitt gott dæmi er nýleg
rannsókn þar sem fylgst var með öllum þátt-
takendum í Biggest Loser í Bandaríkjunum í
sex ár. Einungis tveir þátttakendur héldu náð-
um árangri sex árum síðar; þar af hafði einn
farið í hjáveituaðgerð eftir að hafa fengið 80%
þyngdartapsins til baka. Þetta er klassískt
dæmi. Ef fólk er mótíverað og með gott stuðn-
ingskerfi í kringum sig geta allir létt sig. En
því miður ná fáir að viðhalda þeim árangri og
það er vandamálið.“
Eru allir offitusjúklingar matarfíklar?
„Nei, alls ekki, langt því frá. Það er auðvelt
að hafa sterkar skoðanir á þessum hópi. Við
erum fljót að koma með sleggjudóma. Grunn-
vandamálið hjá þessum einstaklingum er að
Aðgerð borgar sig
upp á tveimur árum
Aðalsteinn Arnarson skurðlæknir er öllum hnútum kunnugur
hvað varðar offituaðgerðir. Hann telur magabandið ekki hent-
ugan kost en segir að magahjáveita, magaermi og magaslanga
hafi hjálpað mörgum. Hann telur að sjúklingar sem eru með
BMI stuðul yfir 40 eigi að fá aðgerðir niðurgreiddar.
Aðalsteinn segir að eina ráðið til að losna við offitu og halda henni af sé að fara í aðgerð. Hann tel-
ur ekki ráðlagt að nota magaband og segir að víða erlendis sé sú aðgerð ekki valkostur lengur.
Morgunblaðið/Ásdís