Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.07.2017, Blaðsíða 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.7. 2017
FRÆGÐIN Efron var eittsinn spurður að því hvern-
ig hann sjái framtíðina fyrir sér. „Innst inni veit ég
að þetta gæti allt horfið á morgun, líkurnar á að ná
árangri í þessum bransa eru litlar eða engar og í
augnablikinu held ég að líkurnar séu á móti mér.
Það eru ekki margir sem eiga langan leikaraferil og
þess vegna verður þú virkilega að leggja í vinnuna,
þú getur aldrei verið sáttur, aldrei taka því sem
sjálfgefnu.“ Þegar hann er spurður út í hvernig það
er að vera frægur þá segir hann „Það er skrítið, en
mér finnst ég ekki eiga alla þessa athygli skilið. Það
er ekki nema ein leikaraprufa fyrir Disney Channel
sem aðskilur mig frá 2.000 öðrum dökkhærðum,
bláeygðum strákum í Los Angeles.“ Vegna frægðar
sinnar í High School Musical árið 2006, þurfti hann
að skipta um símanúmer eftir að gríðarlega margir
aðdáendur víðsvegar að höfðu hringt til hans.
Efron var nefndur fimmti kynþokkafyllsti maðurinn
í blaðinu Glamour á lista yfir 50 kynþokkafyllstu
menn árið 2011. Zac Efron þegar hann var að stíga sín fyrstu skref sem leikari.
Þurfti að skipta
um símanúmer
ÁSTIN Árið 2005 kynntist hann Vanessu
Hudgens en þau léku saman í myndinni
High School Musical. Þau byrjuðu saman
tveimur árum seinna eða árið 2007 og
voru saman til ársins 2010. Síðan þá hef-
ur hann verið í sambandi með mörgum
þekktum konum, þar á meðal söngkon-
unni Taylor Swift, módelinu Sami Miró
og leikkonunum Michelle Rodriguez og
Lily Collins. Nú í ár er orðrómur að hann
sé í sambandi með Alexöndru Daddario
sem lék með honum í myndinni Bay-
watch. Hann segir að hún sé mögnuð
leikkona og virkilega klár. Einnig finnst
honum hún vera þroskaðri en aðrar kon-
ur, en eftir nokkur misheppnuð sambönd
segist hann ekki vera að drífa sig í neinu.
Kærustupar
eða vinir?
KVIKMYND Efron hefur verið mikið í sviðsljósinu upp á
síðkastið og hafa verið tekin mörg viðtöl við hann núna
nýlega vegna nýjustu myndarinnar Baywatch. Þá einna
helst vegna þess hversu góðu líkamlegu formi hann er í.
Margir hafa áhuga á að vita hvernig kappinn komst í
svona gott form, þó að hann hafi alltaf litið vel út þá lagði
hann sig enn þá meira fram í líkamsræktinni fyrir þessa
kvikmynd. Hann æfði hjá einkaþjálfara og fór eftir
ströngu mataræði. Hann sagði sjálfur í einu viðtali þegar
hann var spurður hvernig hann hefði komist í svo gott
form: „Ég borðaði ekki kolvetni í tvo mánuði, það var
ekki gaman, ég setti líkamann í gegnum margt.“ Því má
segja að það er ekkert sjálfgefið í þessu starfi og það er
mikil vinna á bak við það að vera leikari.
Í sínu besta formi.
Borðaði ekki kol-
vetni í tvo mánuði
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni@hitataekni.is
hitataekni.is
ótorlokar
ir allar stærðir kerfa.
tum einnig boðið mótorloka
llar algengustu gerðir loka
frá öðrum framleiðendum.
Gæðamótorlokar
frá Sviss
M
fyr
Ge
á a
ZACHARY DAVID ALEXANDER EFRON er betur þekktur undir nafn-
inu Zac Efron. Hann er bandarískur leikari og söngvari fæddur árið 1987 í
San Luis Obispo í Kaliforníu. Leikaraferill hans byrjaði af alvöru þegar
hann var ellefu ára, eftir að foreldrar hans uppgötvuðu sönghæfileika hans.
Hann hafði þó áður leikið í þáttunum ER en þá var hann sjö ára gamall.
Söng- og leiklistarhæfileikar hans leiddu síðan til þess að hann fékk hlut-
verk í þáttunum Gypsy og var þá ekki aftur snúið. Efron varð fyrst frægur
fyrir leik sinn í myndinni High School Musical árið 2006, þá 19 ára gamall,
fyrir það vann hann verðlaunin nýliði ársins á Teen Choice Award. Ári
seinna lék hann síðan í High School Musical 2 sem setti met í áhorfstölum
með 17,5 milljónir áhorfenda. Lengi vel lék hann í kvikmyndum þar sem
hann fór með hlutverk skólastráks þrátt fyrir að vera mikið eldri en per-
sónan sem hann lék og þróaði þar með sér barnastjörnuímynd. Hann hefur
notið mikilla vinsælda og þá helst meðal yngri kynslóðar-
innar. Eftir því sem hann lék í fleiri myndum hefur hann
hægt og rólega verið að færa sig úr barnastjörnuímyndinni.
Í myndinni Neighbors fer hann með hlutverk ungs manns
sem er í bræðralagi og mikið samkvæmisljón, þar fær hann
þessa vandræðagemsaímynd á sig og nær að stimpla sig al-
gjörlega út sem barnastjarna. Hann hefur einnig leikið í
mörgum öðrum myndum og má þar nefna Hairspray, 17
Again, New Year’s Eve, The Lucky One og fleiri. Nýjasta
myndin sem hann lék í er Baywatch en það er nokkurskonar
endugerð af þáttunum Baywatch sem voru gríðarlega vinsæl-
ir á tíunda áratuginum, þar fer hann með eitt af aðalhlutverk-
unum í myndinni. Í frítíma sínum hefur hann síðan gert upp
tvo bíla en einnig spilar hann á píanó þegar hann er heima
við. Hann hefur líka gaman af íþróttum og hreyfingu en uppá-
haldsíþróttagreinarnar hans eru meðal annars golf, skíði,
fjallaklifur og snjóbretti. Allir leikarar hafa sína leiklistar-
fyrirmynd og hjá Efron er það Johnny Depp en einnig heldur
hann upp á leikarana Brad Pitt, Christian Bale, Leonardo Di-
Caprio og Jack Black. Frægðin á það til að vefjast fyrir fólki
og á það stundum til að leita í vímugjafa, Efron fór út af leið
en snemma árs 2013 fór hann í meðferð vegna drykkjuvanda-
mála og misnotkunar vímuefna. Hann náði sér þó á strik og
hefur verið edrú síðan í júní 2013.
nina@mbl.is
Ekki lengur
barnastjarna
AFP
’ Efron fór út af leið ensnemma árs 2013 fórhann í meðferð vegnadrykkjuvandamála og
misnotkunar vímuefna.
Leikararnir í
myndinni
Baywatch.
Efron hefur gaman af íþróttum
og hreyfingu.
Það gengur sá orðrómur að Efron og Daddario séu saman.