Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.07.2017, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.07.2017, Blaðsíða 15
9.7. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 „Ég mæli með kajaksiglingum við Stokkseyri. Það er mjög gaman að fara stóra siglinga- hringinn sem boðið er upp á í stilltu veðri,“ segir María Sigrún Hilmarsdóttir frétta- kona. „Þá er fyrst róið eftir Löngu- dæl inn þröngar rásir fenja- svæðisins og svo með Hraunsá til sjávar. Þá er siglt með strandlengjunni til baka milli skerjagarðanna. Stundum svamla forvitnir selir meðal kaj- akræðara og það er nokkuð sem toppar upplifunina. Svo er gott að fá sér kvöldmat í Rauða húsinu á Eyrarbakka á eftir.“ Það þykir víst engu líkt að upplifa strendur landsins í gegnum kajaksiglingar. Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir … kajaksiglingar „Þú verður að prófa að sigla út í Drangey og smakka skarfa- kálið þar og fara síð- an á slóðir Sturlung- anna,“ segir Líf Magneudóttir borgar- fulltrúi. „Það býr einhver kynngimagnaður kraftur í Drangey og skarfakálið og Íslendingasöguslóðir eru alltaf mann- bætandi.“ Sigling út í Drangey er engu lík en siglt er dag- lega frá Reykjum á Reykjaströnd á sumrin. Morgunblaðið/Sigurður Bogi … að heim- sækja Drangey „Þegar ég kom fyrst sem leiðsögumaður í Sænautasel á Jökuldal, með hóp af Ítöl- um fyrir mörgum árum, þá langaði mig hreinlega að verða eftir og biðja um vinnu. Það fyndna var að einn Ítalinn spurði mig að því sama: „Vilborg, má ég verða eftir?“ Það segir mikið um töfra staðarins,“ segir Vilborg Halldórsdóttir, leikkona og leiðsögumaður. „Lilja (Óladóttir) rekur þetta af þvílíkum myndarskap að allir sem koma þangað og fá hjá henni heitar lummur og kaffi verða bara betri manneskjur á eftir. Það má bæta því við til fróðleiks að þegar Halldór Kiljan Laxness var að undirbúa sig fyrir að skrifa Sjálfstætt fólk gekk hann þarna í heiðinni 1926 og fyrirmyndin að Sumarhúsum er næsti bær við Sænautasel, Veturhús, en hann breytti því bara í Sumar- hús.“ Í Sænautaseli á Jökuldalsheiði er rekin ferðaþjón- usta á sumrin en bærinn lagðist í eyði árið 1943. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson … að koma við í Sænautaseli „Mér finnst að allir Ís- lendingar ættu að kíkja í Óbyggðasetrið í Fljóts- dal. Þar er sýning um manninn og óbyggð- irnar í gegnum tíðina og ógleymanlegt að fara um þessa lif- andi sýningu og fá söguna beint í æð,“ segir Einar Skúlason, göngu- garpur og leiðsögumaður með meiru. „Reyndar finnst mér að allir ættu að lesa Aðventuna eftir Gunnar Gunn- arsson fyrir ferðina. Eftir Óbyggðasýn- inguna er ekkert betra en að gista á bað- stofuloftinu í Óbyggðasetrinu og upplifa á eigin skinni stemninguna á alvöru bað- stofulofti.“ … gistingu á baðstofulofti Gestir fá söguna beint í æð á bað- stofuloftinu. „Minn uppá- halds- staður á land- inu er við lindina innst í Ásbyrgi,“ segir Ólafur Gunnarsson rithöfundur. „Að setjast þar og horfa á tært vatnið og hlusta á fuglinn kvaka í bjarginu er að fá for- skot á himnaríki áður en maður fer þang- að.“ Hið stórkostlega Ásbyrgi myndaðist við tvö hamfarahlaup úr Vatnajökli, fyrir 8-10 og þrjú þúsund árum. Morgunblaðið/Brynjar Gauti … að fara að lindinni innst í Ásbyrgi „Prófið að koma við í Friðheimum á ferðum ykkar í upp- sveitum Ár- nessýslu og kaupa kon- fekttómata beint af hjónunum þar eða í Bjarnabúð þar rétt fyrir neðan,“ segir athafnamaðurinn Einar Bárðarson. „Eða bara yfirhöfuð að kaupa ferska íslenska tómata beint frá bónda eða úti í búð ef þið komist ekki upp í Tungur.“ Tómatar beint frá bónda bragðast vel. Getty Images/iStockphoto … tómata beint frá bónda „Mér finnst að fólk verði að prófa að taka svokallað „stay- cation“,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari. „Þá ferðu í raun ekkert út fyrir borgarmörkin. Ferð í göngutúr í 101 Reykjavík þar sem er alltaf eitthvað nýtt og spennandi. Próf- ar einn af þessum hágæðaveitingastöðum sem eru úti um allt og jafnvel gengur svo langt að gista á hóteli í miðbænum sem er sérlega gott ef mað- ur býr í úthverfunum. Þetta er ekkert öðruvísi en að fara til London eða Kaupmannahafnar nema þú sparar flugfarið. Ég get mælt með mexíkóska veitingastaðnum El Santo á Hverfisgötu.“ Í Reykjavík eru mörg glæsileg hótel sem væri hægt að prófa. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon … miðbæjarævintýri Ljósmynd/wilderness.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.