Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.07.2017, Blaðsíða 29
Hiroshima er áhugaverður
áfangastaður. Þar má skoða
rústir eftir kjarnorku-
sprengjuna, lesa sér til um
þann skelfilega atburð og
skoða áhugavert safn.
Við ákváðum að gista ekki
í Hiroshima heldur við fal-
legu eyjuna Miyama.
Miyama er lítil eyja þar sem
dádýr eru í miklum meiri-
hluta. Þau ganga frjáls um
göturnar. Dádýrin eru afar
gæf og ekki annað hægt en
að knúsast aðeins í þeim. Á
Miyama er Itsukushima
Shinto, sem er helgidómur í
hafinu á heimsminjaskrá
UNESCO.
Við eyjuna er mikil ostru-
ræktun og því ómissandi að
gæða sér á ferskum ostrum
og góðu sake, japönsku víni.
HIROSHIMA OG MIYAMA
Dádýrin eru mjög gæf og ómótstæðilegt er að knúsa þau.
Náttúruperla
Itsukushima
Shinto í hafinu.
Minami er stuðhverfið í Osaka.
Þar er gríðarlegur fjöldi verslana
og veitingastaða með fjöl-
breyttum mat. Ljósin eru nánast
blindandi á endalausum ljósaskilt-
um hverfisins. Þá er einnig
ómissandi að kíkja í Dotonbori
að kvöldi til og upplifa ýkt og
ekta japanskt næturlíf með öllu
sem því fylgir.
Í Osaka er jafnframt hæsta
bygging í Japan, Abeno Harukas,
þar er útsýnispallur á efstu hæð
ásamt kaffihúsi og veitingastað.
Það er örlítið dýrt að komast
upp en ef röðin er ekki löng er
það ágætis skemmtun.
Í Osaka má jafnframt finna fal-
legar og töff verslanir með kera-
miki líkt og verslunina Wad Cafe.
OSAKA
Hverfið Dotonbori
er engu líkt.
Ýkt stemning og næturlíf
9.7. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
www.solning.is
Í Kyoto eru fjöldamörg hof sem vert er að skoða.
Má þar til að mynda nefna gullna hofið og Fus-
himi Inari-hofið en við það er gönguleið yfir fjall-
ið undir súlum sem taldar eru veita gæfu. Gang-
an tekur um einn og hálfan tíma og er
gönguleiðin virkilega skemmtileg. Í Kyoto er
einnig skemmtilegur matarmarkaður, Nishiki,
þar er hægt að kaupa ýmislegt spennandi fersk-
meti, kjöt og sjávarfang.
Þá er jafnframt ómissandi að heimsækja hverf-
ið Gion, geisju-hverfið í Kyoto. Hverfið er mikið
túristahverfi og mjög algengt að fólk leigi sér Ki-
mono til þess að líkja eftir geisjum.
Upplagt er að fara í dagsferð til Iwatayama.
Apagarðurinn Arashiyama er staðsettur í fjall-
inu. Gangan tekur um 40 mínútur og þegar upp
er komið taka á móti manni frjálsir apar. Þar má
einnig gefa öpunum að borða en til þess þarf
maður að fara inn „búr“ og aparnir geta þá kom-
ið og fengið sér snarl. Eftir gönguna niður er
dásamlegt að fara í siglingu á ánni og fá sér jap-
anskar udon-núðlur á veitingahúsi í aðalgötunni.
Í Arashiyama gefst fólki kostur á
að fara inn í „búr“ og gefa öp-
unum að borða. Kári Kamban
sést hér gefa litlum apa epli.
KYOTO
Falleg og fjölbreytt borg
Gion, geisju-hverfið í Kyoto, er vinsæll
ferðamannastaður.
Ljósmynd/Guðbjörg Káradóttir