Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.07.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.07.2017, Blaðsíða 24
Spýtuhestareið (hobbyhorsing) er nýjasta æðið hjá finnskum ung- mennum, en athöfnin felur í sér að ríða spýtuhesti í gegnum þrautabraut og stökkva yfir hindr- anir. Spýtuhestareið fangaði fyrst áhuga almennings í heimildar- myndinni Hobbyhorse Revolution eftir finnsku kvikmyndagerð- arkonuna Selmu Vilhunen í mars 2017, en íþróttin hefur vaxið hratt í vinsældum og í maí síðastliðnum komu hátt í 5.000 manns saman í Kaivopuisto-garðinum í Helsinki og fylgdust með spýtuhesta- reiðmönnum leika listir sínar. Íslenska sumarið er tilvalið fyrir íþróttina og hentar hún við fjölda tilefna, hvort sem það er í útileg- una, afmælið eða saumaklúbbinn, enda er spýtuhestareið skemmti- leg og ódýr heilsurækt fyrir unga sem aldna. SPÝTUHESTAREIÐ Hestamennska án hests Spýtuhestareiðkona á stökki. HEILSA Samkvæmt rannsókn á vegum Nasa jafngildir 10 mínútna hopp á trampólíniþví að hlaupa í 30 mínútur. Auk þess sem eftirgefanlegt trampólínið kemur í veg fyrir slítandi álag á ökkla, hné, mjaðmir og hrygg. Allir út í garð! Trampólínið leynir á sér 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.7. 2017 Á Íslandi fáum við ekki marga mán- uði á ári sem henta vel til útihlaups, þess vegna er um að gera að nýta sumarmánuðina til að dusta rykið af hlaupaskónum og skella sér út í skokk. Nú fer til að mynda hver að verða síðastur til að skrá sig í Reykjavík- urmaraþonið sem fer fram 19. ágúst, en hvort sem hlaupið er 10 kílómetra eða heilt maraþon er mikilvægt að undirbúa sig vel. Sérfræðingarnir hjá Runner’s World eru duglegir að gefa góð ráð til að undirbúa sig fyrir hlaupin en hér fyrir neðan má finna nokkur slík. Byrjaðu rólega Ekki demba þér út í djúpu laugina. Ef þú hefur aldrei hlaupið meira en 5 km, ekki byrja á 10 km. Það er skynsamlegra að byrja á styttri hlaupum og vinna sig rólega upp í lengri hlaup. Leyfðu líkamanum að jafna sig Það getur verið freistandi að stökkva upp úr sófanum og hefja stífar æfingar sjö sinnum í viku, en það er ávísun á álagsmeiðsli og ves- en. Ekki sprengja þig, leyfðu þér að taka hvíldardag að minnsta kosti tvisvar í viku. Hlauptu langt Ef þú ætlar 10 km, prófaðu að hlaupa 15 km. Ef þú ætlar hálf- maraþon, reyndu við 30 km. Það er engin töfralengd, þú þarft bara að venjast því að hlaupa í langan tíma. Borðaðu rétt Til að halda sér heilum og hraustum er mikilvægt að borða nóg af kol- vetnum eftir hlaup. Það veitir orku og hjálpar vöðvum að jafna sig. Pró- tein og járnrík fæða er líka mik- ilvæg. Forðastu meiðsli Til að halda skrokknum heilum er gott að leggja stund á krossþjálfun, til dæmis jóga, sund eða göngutúra. Krossþjálfun getur hjálpað vöðvum að jafna sig, ásamt því að bæta þol og liðleika. Notaðu réttan búnað Góðir hlaupaskór eru mikilvægir hlaupurum. Sérfræðingar mæla með að skipta um skó á rúmlega 800 km fresti. Reykjavíkurmara- þonið fer fram laug- ardaginn 19. ágúst Morgunblaðið/Ófeigur Ekki sprengja þig REYKJANESBÆ Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104 Full búð af NÝJUMVÖRUM Siemens - Adidas - Under Armour - Cintamani Það er auðveldara en margur heldur að útbúa sinn eigin íþróttadrykk, sem er auk þess miklu hollara en að drekka þessa margunnu og alltof söltu og sykruðu gervidrykki. Þessi er tilvalinn áður en æft er. Appelsínur eru stútfullar steinefnunum pótassíum og magnesíum, vítamínunum B1, B2, B3, B6 og fólín- sýru. Hörolía (eða hampolía) mun hægja á upptöku ávaxtasykursins í blóðinu, sem gefur þér jafnt orku- flæði í nokkrar klukkustundir. Hráefni: Fimm sætar appelsínur og þrjár mat- skeiðar af hörolíu eða hampolíu. Aðferð: Kreistið appelsínurnar, bætið út í desilítra af köldu vatni ásamt olíunni og blandið. Drekkið hægt. Morgunblaðið/Golli HEIMAGERÐIR ÍÞRÓTTADRYKKIR Appelsínu- og hörolíuþeytingur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.