Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.07.2017, Blaðsíða 20
Arkitektafélagið í London hefur sent frá sér ókeyp-
is smáforrit sem sýnir frægustu og merkilegustu
byggingar í borginni.
Smáforritið sýnir staðsetningar yfir 1.100 sögu-
frægustu bygginga í borginni á landakorti.
Í forritinu er einnig GPS þannig að forritið leiðir
viðkomandi áfram að byggingunum en þar má
einnig lesa texta um sögu þeirra.
Forritið er því upplagt fyrir áhugafólk um hönn-
un, sögu og arkitektúr.
Smáforritið ber heitið Guide to the Architect-
ure of London og er unnið upp úr bók arkitektanna
Edwards Jones og Christophers Woodwards frá
1983.
Arkitektafélagið mun halda áfram að bæta bygg-
ingum inn í forritið og uppfæra eftir þörfum.
Smáforritið sýnir staðsetningu frægustu bygginga Lundúna.
Öðruvísi leiðarvísir
um London
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.7. 2017
HÖNNUN
Í dag laugardag 8. júlí verður opn-
uð í Aðalstræti 2 verslunin Akk-
úrat, í húsnæði Hönnunarmið-
stöðvar Íslands. Akkúrat selur
vandaða íslenska og norræna
hönnun auk vel valinnar alþjóð-
legrar hönnunar.
Sigrún Guðný Markúsdóttir og
Döðlur ehf. standa á bak við versl-
unina. Sigrún Guðný hefur víðtæka
reynslu bæði úr verslunar- og
hönnunarbransanum þar sem hún
hefur starfað í fjöldamörg ár.
„Í Akkúrat leggjum við upp úr
því að vera með alhliða hönnun. Í
versluninni er allt frá húsgögnum
niður í bréfaklemmur. Konseptið
byggist á 70% íslenskri hönnun auk
norrænnar hönnunar en einnig
munum við selja alþjóðlega hönn-
un og myndlist. Ætlunin í framtíð-
inni er síðan að vinna náið með
hönnuðum úr sem flestum hönn-
unargeirum en Akkúrat á að vera
vettvangur fyrir íslenska hönnun
og list.“
Aðspurð hvernig hugmyndin að
búðinni kviknaði svarar Sigrún:
„Ég hef áður verið sjálfstætt starf-
andi í gegnum árin, bæði hér
heima og erlendis. Ég bjó í Dan-
mörku í níu ár þar sem ég var í
námi og rak þar mitt eigið fyrir-
tæki í sjö ár. Ég flutti síðan heim
fyrir sex árum og starfaði þá sem
vörumerkjastjóri og framkvæmda-
stjóri meðal annars hjá íslenskum
hönnunarfyrirtækjum,“ svarar
hún. „Ég fann það síðan mitt á síð-
asta ári að mig langaði aftur að fara
að gera eitthvað sjálf.“
Sigrún segist lengi hafa gengið
með hugmynd að konseptinu í
maganum og fékk Daníel og Hörð í
Döðlum með sér í lið. „Þegar ég
heyrði af plássinu í Aðalstræti
ákvað ég að slá til og sækja um það.
Ég, í samstarfi við Döðlur, komst í
gegn með hugmyndina og mikill
heiður að Hönnunarmiðstöð skuli
hafa valið og treyst okkur fyrir
þessu stóra verkefni.“ Sigrún segir
húsið vera eins konar hönnunarhús
og megi búast við fjölbreyttu starfi
þar í framtíðinni.
Opnunarteiti Akkúrat er haldið í dag, laugardaginn 8. júlí, á milli kl. 15 og 18.
Ljósmynd/Kjartan Hreinsson
Ný hönnunarverslun
í miðborg Reykjavíkur
Akkúrat selur vandaða íslenska og
norræna hönnun auk vel valinnar
alþjóðlegrar hönnunar.
Nýverið kynnti japanski arkitektinn Sou
Fujimoto bókahillur með meðfylgjandi
sæti. Þessi samsetning er einstaklega
svöl í í útliti þar sem stóllinn, sem einnig
inniheldur hillur, er dreginn út úr eining-
unni að vild en hillusamsetningin var
hönnuð fyrir ítalska merkið Alias.
Stóllinn, og hillusamsetningin, eru ein-
föld í útliti en hönnunin einstaklega töff,
hvort sem stóllinn er hafður inni í inn-
réttingunni eða dreginn út.
Svöl samsetn-
ing sætis og
bókahillu
Hér má sjá stólinn inni í innréttingunni.
Sérlega smart hönnun
japanska arkitektsins
Sou Fujimoto.
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
ÚTSALAN
Sumar