Morgunblaðið - 20.07.2017, Qupperneq 1
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Á annað hundrað björgunarsveitarmenn og
tvær þyrlur Landhelgisgæslu Íslands leituðu í
gær að manni sem féll í Gullfoss síðdegis. Leitin
hafði ekki borið árangur þegar Morgunblaðið
fór í prentun á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þá
var ekki heldur vitað hver maðurinn er, né
hvort hann er búsettur hér á landi eða hingað
kominn að utan. Athygli lögreglu og björgunar-
manna beindist meðal annars að bifreið sem
virtist yfirgefin á bílastæðinu við Gullfoss.
Þegar líða tók á kvöldið sneru þyrlur Gæsl-
unnar aftur til Reykjavíkur og hélt önnur þeirra
til leitar á ný eftir að hafa tekið eldsneyti.
„Við erum ekki komin með það staðfest hver
þetta er. Við erum heldur ekki með það staðfest
að þetta hafi verið erlendur ferðamaður,“ sagði
Sveinn Rúnar Kristjánsson, yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við
Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Eggert
Lífleit Tvær þyrlur Landhelgisgæslu Íslands sáust sveima yfir Gullfossi í gærdag þar sem þær tóku þátt í umfangsmikilli leit að manni sem féll í fossinn. Leita átti fram á nótt.
Umfangsmikil leit gerð við Gullfoss
Á annað hundrað björgunarsveitarmenn og þyrlur Landhelgisgæslunnar leituðu að manni
MLeitað með ráðum og dáð »2
F I M M T U D A G U R 2 0. J Ú L Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 173. tölublað 105. árgangur
BARÁTTA
FYRIR AUKNUM
RÉTTINDUM
ÚTFLUTNINGUR
Á ÍSLENSKU
SALATI
MARÍA ÞÓRISDÓTTIR
LEIKUR MEÐ
NORSKA LIÐINU
VIÐSKIPTAMOGGINN EM KVENNA Í FÓTBOLTA 22FRAMÚRSKARANDI DÆTUR 80
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum,
Ólafur Helgi Kjartansson, stað-
festir að lögreglunni hafi borist
allmargar kvartanir varðandi hæl-
isleitendur á Ásbrú. Að sögn Frið-
jóns Einarssonar, formanns bæj-
arráðs Reykjanesbæjar, hefur
verið mikil umræða á Facebook-
síðu sem nefnist „Reykjanesbær –
Gerum góðan bæ betri“ en þar
hafa íbúar verið að tjá sig um
þjófnað og hegðan sem ekki sam-
rýmist því sem Íslendingar eru
vanir. „Þessi umræða hefur ekki
farið framhjá bænum. Við erum
hins vegar ekki að fá mikið af
beinum kvörtunum til okkar held-
ur finnum við fyrir þessari ólgu
sem magnast upp á samfélagsmiðl-
um,“ segir Friðjón.
Hafa engin afskipti
„Þessi ákvörðun Útlendinga-
stofnunar að fara upp á Ásbrú er
gegn okkar óskum. Við höfum eng-
in afskipti af þessum hópi, annað
en það að við erum í stöðugu sam-
bandi við Útlendingastofnun vegna
þess að við höfum áhyggjur af
þessu,“ segir Friðjón og bætir við
að auðvitað sé þetta vandamál fyr-
ir stofnunina hvar hælisleitendur
eigi að dvelja. „Það mætti því vera
meiri fræðsla og gæsla. Mér finnst
að við þurfum að gera þetta betur,
vanda okkur við þetta og finna sátt
við umhverfið.“
Kvarta undan þjófnaði
Lögreglunni hafa borist allmargar kvartanir frá fólki
vegna hælisleitenda sem hýstir eru á Ásbrú á Reykjanesi
MLögreglu berast kvartanir »4
Sú mikla umræða um brunavarn-
ir sem orðið hefur í kjölfar stór-
brunans í Lundúnum á dögunum og
ennþá frekar um myglufaraldurinn
sem gosið hefur upp hér á landi
getur gefið markaðsstarfi Stein-
ullar hf. á Sauðárkróki byr undir
báða vængi. En þar er framleidd
óbrennanleg einangrun í hús.
Magnús Sigfússon, sölustjóri
Steinullar, segir að alltaf þegar
stórbrunar verði gjósi upp umræða
um brunavarnir. Þá segir Einar
Einarsson, framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, þá merkja mikla aukn-
ingu í sölu á veggplötum, en hún
hefur tvöfaldast á skömmum tíma.
Er meðal annars hægt að rekja þá
miklu sölu til þeirrar umræðu sem
verið hefur um myglu í húsum hér á
landi að undanförnu. »32-34
Lundúnabruni og
mygla eykur sölu
Umsvif Hamborgarabúllu Tóm-
asar á Íslandi og erlendis hafa auk-
ist ár frá ári og selur keðjan nú yfir
milljón hamborgara á ári.
Keðjan notar skoskt kjöt í borg-
arana, þ.m.t. á Íslandi, nema hvað
norskt kjöt er notað í Ósló. Mikið af
brauðinu er bakað í London.
Tómas Tómasson veitingamaður
segir í undirbúningi að opna nýjan
stað í Oxford í Bretlandi, sem verð-
ur sá 21. í röðinni. Þá sé leitað að
hentugu húsnæði í Madrid.
Miðað við verð á dæmigerðri
hamborgaramáltíð hjá keðjunni má
ætla að milljón seldir borgarar skili
1-2 milljörðum króna í veltu á ári.
Tómas segir það aukast ár frá ári
að fólk kaupi tilbúinn mat í stað
þess að elda.
»ViðskiptaMogginn
Milljón Tomma-
borgarar á ári