Morgunblaðið - 20.07.2017, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
ALICANTE
Fljúgðu 25. júlí í sólina á
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Aðra leið
m/sköttum
Taska og
handfarangur
innifalið
Frá
14.950 kr.
á mann
Veitingastaðir urðu fyrir tölvuárás
Lausnargjalds krafist fyrir aðgang að tölvukerfum Skólabrúar og Gandhi Aukning í viðlíka árásum
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Sölukerfinu var bara stolið frá okk-
ur,“ segir Þórir Björn Ríkharðsson,
eigandi veitingastaðanna Gandhi og
Skólabrúar í miðborg Reykjavíkur,
en tölvukerfi staðanna varð fyrir
árás í fyrradag. Árásin lýsti sér
þannig að gögnunum í tölvukerfinu
var rænt og lausnargjalds krafist
fyrir aðgang að þeim.
„Það var þannig að þegar við ætl-
uðum að fara að nota sölukerfið þá
hafði einhver, líklegast erlendir að-
ilar, tekið og lokað fyrir allt,“ segir
Þórir í samtali við Morgunblaðið í
gær. Tölvuárásin hefur verið kærð
til lögreglu.
„Það var í raun enginn skaði nema
við gátum ekki notað sölukerfið í
einn dag. Við erum búin að vera síð-
an hálfátta í morgun að koma kerf-
inu upp aftur á öðrum tölvum. Það
verður ófullkomið í kvöld en 100% á
morgun,“ sagði Þórir. Kerfið ætti
því að vera komið í gott lag í dag.
Þórir hugðist í fyrstu stökkva til
og greiða tölvuþrjótunum lausnar-
gjaldið. „Mér var ráðlagt að gera
það ekki þar sem þeir skila jafnvel
engu þó þeir fái borgað.“
Hann segir að árásin hafi komið
honum virkilega á óvart. „Við vorum
með allar vírusvarnir í gangi og ég
taldi mig alveg 100% öruggan. Það
er orðið fullflókið að reka veitinga-
hús, þegar maður þarf að vera að
vara sig á erlendum tölvuþrjótum.“
Mikilvægt að vera meðvitaður
Hlynur Óskar Guðmundsson, sér-
fræðingur í tölvuöryggi hjá íslenska
tölvuöryggisfyrirtækinu Syndis,
segir að upp á síðkastið hafi svokall-
aðir „ransomware“-vírusar, sem
ræna tölvukerfum og krefja notend-
ur um lausnargjald, orðið vinsælli
hjá tölvuþrjótum.
„Nýlega hafa sprottið upp nokkur
svona tilvik innan íslenskra fyrir-
tækja og fyrir nokkrum mánuðum
var töluvert um að fyrirtæki væru
að lenda í þessu um allan heim,“ seg-
ir Hlynur Óskar, en stórfyrirtæki
eru oftast skotmörk árása sem þess-
ara.
Hann segir fólk þurfa að hafa var-
ann á þegar það opnar viðhengi eða
tengla sem berast í tölvupósti.
„Vanalega kemst þetta inn í fyrir-
tæki ef starfsmaður opnar viðhengi í
tölvupósti eða ýtir á einhverja smit-
aða slóð. Svo þarf auðvitað alltaf að
passa að tölvukerfin séu með allar
þær nýjustu öryggisuppfærslur sem
eru í boði,“ segir Hlynur Óskar.
Ljósmynd/AFP
Árás Gögnin voru tekin í gíslingu.
Grynnsla er byrjað að gæta við aust-
urgarð Landeyjahafnar, en Eyja-
fréttir greindu frá málinu í gær. El-
liði Vignisson,
bæjarstjóri Vest-
mannaeyja, segir
í samtali við
Morgunblaðið að
hann hafi fengið
afrit af tölvupósti
til farþega Herj-
ólfs um að það
gætti grynnsla
við höfnina, auk
þess sem öldu-
hæð væri mikil. Setti Elliði sig í sam-
band við Vegagerðina, sem staðfesti
að grynningar væru að myndast við
austurgarð hafnarinnar. Sagði
Vegagerðin við Elliða að allt yrði
gert til þess að fjarlægja grynning-
arnar við höfnina.
Skilaboð til samgönguyfirvalda
Þangað til garðurinn við Land-
eyjahöfn verður dýpkaður er það
mat skipstjóra Herjólfs hverju sinni
hvort siglt verður til hafnarinnar.
„Það eru skipstjórar Herjólfs, sem
taka ákvarðanir um siglingar og við
treystum ávallt þeirra mati,“ segir
Elliði. Telur hann að náttúran sé
þarna að senda samgöngu-
yfirvöldum skýr skilaboð. Það er, að
ekki sé nóg að smíða nýtt skip held-
ur þurfi dýpt hafnarinnar að vera í
lagi þegar skipið kemur þangað, seg-
ir Elliði að lokum. axel@mbl.is
Grynnsli við Landeyjahöfn
Elliði
Vignisson
Allt verður gert til þess að fjarlægja grynningarnar við höfnina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landeyjahöfn Vegagerðin staðfestir að grynningar séu teknar að myndast.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Maður féll í Gullfoss rétt fyrir klukkan fimm
síðdegis í gær. Á annað hundrað björgunar-
sveitarmenn og tvær þyrlur Landhelgisgæslu
Íslands tóku þátt í leitinni auk þess sem kaf-
arar, leitarmenn þjálfaðir í straumvatnsbjörg-
un, drónahópar og göngufólk frá Landsbjörg
tóku einnig þátt í leitinni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, fór í
loftið klukkan 17.13 og var komin á vettvang
um tuttugu mínútum síðar. Önnur þyrla Land-
helgisgæslunnar fór af stað með sérhæfða
björgunarsveitarmenn frá Reykjavíkurflug-
velli klukkan 17.37 og var komin á vettvang um
klukkan 18. Báðar þyrlurnar þurftu síðar að
snúa aftur til Reykjavíkur til að sækja elds-
neyti, en önnur þeirra sneri aftur á vettvang
laust fyrir klukkan 21 í gærkvöldi, að sögn
Sveins H. Guðmarssonar, upplýsingafulltrúa
Landhelgisgæslunnar.
Björgunarsveitarmenn af Suðurlandi og víð-
ar tóku þátt í leitinni, sem fyrst fór fram á
svæðinu neðan við fossinn og niður að Brúar-
hlöðum, efst í Hvítárgljúfrum.
Sveinn Rúnar Kristjánsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, stýrði í
gær aðgerðum á vettvangi. Sagðist hann
reikna með því að leitarsvæðið yrði stækkað
eftir því sem á liði.
Óvíst hver maðurinn er
Er Morgunblaðið fór í prentun á ellefta tím-
anum í gærkvöldi var maðurinn enn ófundinn
og ekki er vitað hver hann er. Þá þótti ólíklegt
að hann hefði verið þátttakandi í skipulagðri
ferð á svæðið.
„Við erum ekki komin með það staðfest hver
þetta er. Við erum heldur ekki með það stað-
fest að þetta hafi verið erlendur ferðamaður.
Hans er allavega ekki saknað úr neinni ferð,
þannig að það er ekkert skothelt með það,“
sagði Sveinn Rúnar.
Í gærkvöldi beindist athygli lögreglu og leit-
armanna að bíl sem virtist hafa verið yfirgefinn
á bílastæðinu við Gullfoss.
Leitað með ráðum og dáð
Ekki vitað hver maðurinn sem féll í Gullfoss er Tvær þyrlur sendar á vettvang Á annað hundrað
björgunarsveitarmenn leituðu fram í myrkur Athygli beindist að yfirgefnum bíl á bílastæði við fossinn
Morgunblaðið/Eggert
Leitarsvæði Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks, lögreglu og slökkviliðs tók þátt í leitinni við Gullfoss. Maðurinn var ófundinn í gærkvöldi.