Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 Hrafnar Margrét með einn af hröfnunum sem hjónin hafa tamið á síðustu árum. Hrafnarnir hafa meðal annars fengið hlutverk í kvikmyndum. Katrín Lilja Kolbeinsdóttir katrinlilja@mbl.is Þegar fólk er búið að borðamatinn er það leitt út ídagsljósið og þá fær þaðmynd af réttunum sem það var að enda við að snæða. Þá sér það nákvæmlega hvað var á disknum hjá því,“ segir Jóhann Helgi Hlöðversson athafnamaður en hann rekur ásamt konu sinni, Margréti Ormsdóttur, bæði sveitahótel og veitingastaðinn Blind Raven á bænum Vatnsholti og hefur það gengið vonum framar. Alls eru um 40 herbergi til leigu á hótelinu en þar má að auki finna matsal sem hefur verið vinsæll fyrir brúðkaups- veislur, ráðstefnur, fermingarveislur og annað slíkt. Þá hefur veitingastað- urinn leyfi fyrir 300 manns í sæti hverju sinni. „Við keyptum þessa jörð árið 2005 en ætluðum okkur aldrei út í hótelrekstur. Í dag rekum við sveita- hótelið Vatnsholt í Flóahreppi og svo veitingastaðinn okkar.“ Spurður hvernig þetta hafi allt saman byrjað segir Jóhann að efnahagshrunið árið 2008 hafi verið ákveðinn örlagavald- ur. „Hrunið þvingaði okkur svolítið til þess að leigja út herbergin okkar. Á jörðinni sem við keyptum voru fjós, hlaða og hesthús sem var allt saman í niðurníðslu. Við gerðum það upp og breyttum í veitingahús sem við opn- uðum árið 2010.“ Veitingastaður þeirra hjóna á sér enga hliðstæðu hér á landi. Staðurinn er byggður upp að fyrirmynd nokkurra staða erlendis sem ganga út á að gestir borða í myrkri. Jóhann segir hugmyndina að því hafa kviknað út frá bíómynd fyrir nokkrum árum. Þjónarnir með nætursjónauka „Við konan vorum að horfa sam- an á einhverja rómantíska bíómynd og í henni hittust drengur og stúlka á veitingastað sem gekk út á það sem kallað er Borðað í myrkri (e. Dine in the Dark) í London. Þau sáu ekki hvort annað en urðu samt sem áður afskaplega hrifin hvort af öðru og náðu mjög vel saman. Mér fannst þetta svo frábært að ég sagði við kon- una mína að þetta yrðum við að opna á Íslandi. Þetta væri öðruvísi.“ Þau Jóhann og Margrét flugu því næst til London þar sem þau snæddu á um- ræddum stað í London. Daginn eftir borðuðu hjónin á samskonar stað í Berlín og þar á eftir í Moskvu. Eftir þetta ferðalag var enginn vafi í hug- um þeirra að opna slíkan stað á Ís- landi. „Erlendis er vaninn sá að þjón- arnir eru blindir. Það venst nú sjálf- sagt með tímanum. Hjá okkur eru þjónarnir hins vegar með nætursjón- auka. Úlfar Finnbjörnsson kokkur er höfundur réttanna hjá okkur og þetta gengur þannig fyrir sig að þegar fólk kemur til okkar getur það valið um liti. Rautt þýðir kjötréttir, grænt eru grænmetisréttir, blátt eru sjáv- arréttir og hvítt er bland af þessu þrennu. Þetta er ákveðin óvissuferð því gestir vita yfirleitt ekki nákvæm- lega hvað þeir eru að borða. Það tók okkur langan tíma að þétta hlöðuna þannig að það væru hvergi göt þar sem inn kæmist ljós.“ Þetta kann að hljóma undarlega í eyrum flestra, en Jóhann segir þetta þó vera mikla upplifun sem flestir ættu að prófa. Samræður öðruvísi í myrkri „Gesturinn er leiddur inn í kol- svartamyrkur og við það missir hann þetta skilningarvit sem kallast sjón. Hann snæðir tveggja til þriggja rétta máltíð og þarf að nota hin skilning- arvitin, þefskynið, snertiskynið og rýmisgreindina meðal annars. Það er gaman að prófa þetta í hóp, eða jafn- vel bara hitta fólk þarna inni sem þú sérð ekki hvernig lítur út. Samræður verða öðruvísi. Við erum svo vön því þegar við tölum saman að setja upp ýmiss konar svipbrigði en þetta hverfur allt saman í myrkri. Að sögn Jóhanns hefur veitinga- staðurinn gengið mjög vel og fólk verður sífellt forvitnara að koma og prófa. „Þetta hefur gengið gríðarlega vel. Við höfum reyndar bara opnað fyrir sérpantanir fyrir hópa því það er svo mikið að gera í öllu hinu.“ Með því á hann meðal annars við hrafna- rækt en á bænum Vatnsholti má finna fjöldann allan af hröfnum sem Jóhann hefur tekið að sér að temja. „Ég hef alltaf verið mikill áhugamað- ur um dýr og dýratamningar. Okkur áskotnaðist hrafnsungi fyrir um það bil átta árum og síðan þá er ég búinn að eiga nokkra hrafna.“ Unnið með Dalai Lama Uppeldið á fuglunum hefur gengið mjög vel, í raun svo vel að vin- sælt hefur verið að leita til Jóhanns þegar óskað er eftir hröfnum í alls kyns verkefni. Hafa hrafnar hans meðal annars birst í hinum vinsælu Vikings-þáttum, en einnig í auglýs- ingum og kvikmyndum. Þá hafa þeir komið fyrir í verkefnum fyrir Dalai Lama og ljósmyndarann heimsfræga Annie Lebovitz. Að sögn Jóhanns hefur tamningin því undið upp á sig. „Það æxlaðist eiginlega þannig, það var aldrei ætlunin að fara út í ein- hver viðskipti með þetta.“ Ljóst er að Jóhanni er annt um fuglana. „Hrafnar eru stórmerkileg dýr, rosa- lega gáfaðir og skemmtilegir. Það er auðvelt að vinna með þá fyrsta árið, svo verða þeir erfiðari og þá er betra að hafa þolinmæði, ákveðni og næmni. Einn af hröfnunum hjá mér komst til að mynda í fréttirnar fyrir ekki svo löngu, hann lærði að tala. Gat sagt hæ, elsku strákur, halló og fleira. Svo mjálmaði hann alltaf eins og köttur. Hann krunkaði sem sagt ekki heldur flaug hann alltaf um mjálmandi. Hrafnar geta lært svona lagað, þeir taka þetta bara upp. Í þætti á BBC fyrir nokkrum árum var talað um að hrafninn og krákan væru fjórðu gáfuðustu dýrategundir jarð- ar. Ég get alveg staðfest það, þeir eru ofboðslega gáfaðir og með mikla rök- hugsun. Þeir hugsa langt fram í tím- ann,“ segir Jóhann og nefnir dæmi, máli sínu til stuðnings. Hundarnir voru verkfæri „Vatnsholtið er 100 hektara jörð þannig að landið mitt er sirka tveir og hálfur ferkílómetri. Fyrir nokkrum árum átti ég sjö hunda og kenndi þeim öllum að þekkja lóðamörkin, þeir virtu þau alltaf. Eitt sinn komu tveir hrafnar og fóru að atast í hund- unum mínum daglega, þrjá daga í röð. Létu þá alltaf elta sig út fyrir bæinn og niður fyrir mýri. Ég hugs- aði ekki mikið út í það. Á þriðja degi kom nágranni minn hlaupandi í miklu áfalli og sagði að hundarnir mínir væru að drepa rollu hjá sér. Ég hljóp af stað og sá þá að hundarnir höfðu farið yfir djúpan landamæraskurð á milli okkar nágrannanna, sem þeir höfðu aldrei gert áður, og voru búnir að rífa rolluna á hol. Um það bil þrjá- tíu metrum aftar sátu hrafnarnir tveir á girðingarstaurum og biðu. Þá höfðu þeir ekki verið að stríða hund- unum mínum, þeir vissu bara um mat. Svo þeir fóru og fundu sér verk- færi sem voru hundarnir mínir. Svona vinna hrafnarnir í náttúrunni, oft með úlfum,“ segir Jóhann. Það er því óhætt að segja að Vatnsholt sé bæði líflegur og skemmtilegur staður að heimsækja. Myrk matarupplifun og tamdir hrafnar Á bænum Vatnsholti í Flóahreppi kennir ýmissa grasa en þar reka athafnahjónin Jóhann Helgi Hlöðversson og Margrét Ormsdóttir sveitahótel og veitingastaðinn Blind Raven sem óhætt er að segja að eigi engan sinn líka. Ásamt því að standa í rekstri rækta hjónin einnig hrafna og hafa fuglarnir frá Vatnsholti slegið í gegn á undanförnum árum. Athafnafólk Hjónin Jóhann Helgi Hlöðversson og Margrét Ormsdóttir. Öðruvísi Úlfar Finnbjörnsson kokkur sér um matseðilinn á Blind Raven. Þjónarnir notast við nætursjónauka þegar þeir þjóna gestum til borðs. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Útsalan Verið velkomin 20-70% afsláttur heldur áfram Fallegar peysur, bolir, síðbuxur, töskur og skart
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.