Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Hrafnar Margrét með einn af hröfnunum sem hjónin hafa tamið á síðustu
árum. Hrafnarnir hafa meðal annars fengið hlutverk í kvikmyndum.
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja@mbl.is
Þegar fólk er búið að borðamatinn er það leitt út ídagsljósið og þá fær þaðmynd af réttunum sem það
var að enda við að snæða. Þá sér það
nákvæmlega hvað var á disknum hjá
því,“ segir Jóhann Helgi Hlöðversson
athafnamaður en hann rekur ásamt
konu sinni, Margréti Ormsdóttur,
bæði sveitahótel og veitingastaðinn
Blind Raven á bænum Vatnsholti og
hefur það gengið vonum framar. Alls
eru um 40 herbergi til leigu á hótelinu
en þar má að auki finna matsal sem
hefur verið vinsæll fyrir brúðkaups-
veislur, ráðstefnur, fermingarveislur
og annað slíkt. Þá hefur veitingastað-
urinn leyfi fyrir 300 manns í sæti
hverju sinni.
„Við keyptum þessa jörð árið
2005 en ætluðum okkur aldrei út í
hótelrekstur. Í dag rekum við sveita-
hótelið Vatnsholt í Flóahreppi og svo
veitingastaðinn okkar.“ Spurður
hvernig þetta hafi allt saman byrjað
segir Jóhann að efnahagshrunið árið
2008 hafi verið ákveðinn örlagavald-
ur.
„Hrunið þvingaði okkur svolítið
til þess að leigja út herbergin okkar.
Á jörðinni sem við keyptum voru fjós,
hlaða og hesthús sem var allt saman í
niðurníðslu. Við gerðum það upp og
breyttum í veitingahús sem við opn-
uðum árið 2010.“ Veitingastaður
þeirra hjóna á sér enga hliðstæðu hér
á landi. Staðurinn er byggður upp að
fyrirmynd nokkurra staða erlendis
sem ganga út á að gestir borða í
myrkri. Jóhann segir hugmyndina að
því hafa kviknað út frá bíómynd fyrir
nokkrum árum.
Þjónarnir með nætursjónauka
„Við konan vorum að horfa sam-
an á einhverja rómantíska bíómynd
og í henni hittust drengur og stúlka á
veitingastað sem gekk út á það sem
kallað er Borðað í myrkri (e. Dine in
the Dark) í London. Þau sáu ekki
hvort annað en urðu samt sem áður
afskaplega hrifin hvort af öðru og
náðu mjög vel saman. Mér fannst
þetta svo frábært að ég sagði við kon-
una mína að þetta yrðum við að opna
á Íslandi. Þetta væri öðruvísi.“ Þau
Jóhann og Margrét flugu því næst til
London þar sem þau snæddu á um-
ræddum stað í London. Daginn eftir
borðuðu hjónin á samskonar stað í
Berlín og þar á eftir í Moskvu. Eftir
þetta ferðalag var enginn vafi í hug-
um þeirra að opna slíkan stað á Ís-
landi.
„Erlendis er vaninn sá að þjón-
arnir eru blindir. Það venst nú sjálf-
sagt með tímanum. Hjá okkur eru
þjónarnir hins vegar með nætursjón-
auka. Úlfar Finnbjörnsson kokkur er
höfundur réttanna hjá okkur og þetta
gengur þannig fyrir sig að þegar fólk
kemur til okkar getur það valið um
liti. Rautt þýðir kjötréttir, grænt eru
grænmetisréttir, blátt eru sjáv-
arréttir og hvítt er bland af þessu
þrennu. Þetta er ákveðin óvissuferð
því gestir vita yfirleitt ekki nákvæm-
lega hvað þeir eru að borða. Það tók
okkur langan tíma að þétta hlöðuna
þannig að það væru hvergi göt þar
sem inn kæmist ljós.“ Þetta kann að
hljóma undarlega í eyrum flestra, en
Jóhann segir þetta þó vera mikla
upplifun sem flestir ættu að prófa.
Samræður öðruvísi í myrkri
„Gesturinn er leiddur inn í kol-
svartamyrkur og við það missir hann
þetta skilningarvit sem kallast sjón.
Hann snæðir tveggja til þriggja rétta
máltíð og þarf að nota hin skilning-
arvitin, þefskynið, snertiskynið og
rýmisgreindina meðal annars. Það er
gaman að prófa þetta í hóp, eða jafn-
vel bara hitta fólk þarna inni sem þú
sérð ekki hvernig lítur út. Samræður
verða öðruvísi. Við erum svo vön því
þegar við tölum saman að setja upp
ýmiss konar svipbrigði en þetta
hverfur allt saman í myrkri.
Að sögn Jóhanns hefur veitinga-
staðurinn gengið mjög vel og fólk
verður sífellt forvitnara að koma og
prófa. „Þetta hefur gengið gríðarlega
vel. Við höfum reyndar bara opnað
fyrir sérpantanir fyrir hópa því það
er svo mikið að gera í öllu hinu.“ Með
því á hann meðal annars við hrafna-
rækt en á bænum Vatnsholti má
finna fjöldann allan af hröfnum sem
Jóhann hefur tekið að sér að temja.
„Ég hef alltaf verið mikill áhugamað-
ur um dýr og dýratamningar. Okkur
áskotnaðist hrafnsungi fyrir um það
bil átta árum og síðan þá er ég búinn
að eiga nokkra hrafna.“
Unnið með Dalai Lama
Uppeldið á fuglunum hefur
gengið mjög vel, í raun svo vel að vin-
sælt hefur verið að leita til Jóhanns
þegar óskað er eftir hröfnum í alls
kyns verkefni. Hafa hrafnar hans
meðal annars birst í hinum vinsælu
Vikings-þáttum, en einnig í auglýs-
ingum og kvikmyndum. Þá hafa þeir
komið fyrir í verkefnum fyrir Dalai
Lama og ljósmyndarann heimsfræga
Annie Lebovitz. Að sögn Jóhanns
hefur tamningin því undið upp á sig.
„Það æxlaðist eiginlega þannig,
það var aldrei ætlunin að fara út í ein-
hver viðskipti með þetta.“ Ljóst er að
Jóhanni er annt um fuglana.
„Hrafnar eru stórmerkileg dýr, rosa-
lega gáfaðir og skemmtilegir. Það er
auðvelt að vinna með þá fyrsta árið,
svo verða þeir erfiðari og þá er betra
að hafa þolinmæði, ákveðni og
næmni. Einn af hröfnunum hjá mér
komst til að mynda í fréttirnar fyrir
ekki svo löngu, hann lærði að tala.
Gat sagt hæ, elsku strákur, halló og
fleira. Svo mjálmaði hann alltaf eins
og köttur. Hann krunkaði sem sagt
ekki heldur flaug hann alltaf um
mjálmandi. Hrafnar geta lært svona
lagað, þeir taka þetta bara upp. Í
þætti á BBC fyrir nokkrum árum var
talað um að hrafninn og krákan væru
fjórðu gáfuðustu dýrategundir jarð-
ar. Ég get alveg staðfest það, þeir eru
ofboðslega gáfaðir og með mikla rök-
hugsun. Þeir hugsa langt fram í tím-
ann,“ segir Jóhann og nefnir dæmi,
máli sínu til stuðnings.
Hundarnir voru verkfæri
„Vatnsholtið er 100 hektara jörð
þannig að landið mitt er sirka tveir og
hálfur ferkílómetri. Fyrir nokkrum
árum átti ég sjö hunda og kenndi
þeim öllum að þekkja lóðamörkin,
þeir virtu þau alltaf. Eitt sinn komu
tveir hrafnar og fóru að atast í hund-
unum mínum daglega, þrjá daga í
röð. Létu þá alltaf elta sig út fyrir
bæinn og niður fyrir mýri. Ég hugs-
aði ekki mikið út í það. Á þriðja degi
kom nágranni minn hlaupandi í miklu
áfalli og sagði að hundarnir mínir
væru að drepa rollu hjá sér. Ég hljóp
af stað og sá þá að hundarnir höfðu
farið yfir djúpan landamæraskurð á
milli okkar nágrannanna, sem þeir
höfðu aldrei gert áður, og voru búnir
að rífa rolluna á hol. Um það bil þrjá-
tíu metrum aftar sátu hrafnarnir
tveir á girðingarstaurum og biðu. Þá
höfðu þeir ekki verið að stríða hund-
unum mínum, þeir vissu bara um
mat. Svo þeir fóru og fundu sér verk-
færi sem voru hundarnir mínir.
Svona vinna hrafnarnir í náttúrunni,
oft með úlfum,“ segir Jóhann.
Það er því óhætt að segja að
Vatnsholt sé bæði líflegur og
skemmtilegur staður að heimsækja.
Myrk matarupplifun
og tamdir hrafnar
Á bænum Vatnsholti í Flóahreppi kennir ýmissa grasa en þar reka athafnahjónin
Jóhann Helgi Hlöðversson og Margrét Ormsdóttir sveitahótel og veitingastaðinn
Blind Raven sem óhætt er að segja að eigi engan sinn líka. Ásamt því að standa í
rekstri rækta hjónin einnig hrafna og hafa fuglarnir frá Vatnsholti slegið í gegn á
undanförnum árum.
Athafnafólk Hjónin Jóhann Helgi Hlöðversson og Margrét Ormsdóttir. Öðruvísi Úlfar Finnbjörnsson kokkur sér um matseðilinn á Blind Raven.
Þjónarnir notast við nætursjónauka þegar þeir þjóna gestum til borðs.
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Útsalan
Verið velkomin
20-70%
afsláttur
heldur áfram
Fallegar peysur, bolir,
síðbuxur, töskur og skart