Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Ég er hérna í Hollandi til þess að
reyna að brjóta upp hversdagsleik-
ann fyrir stelpurnar,“ segir Hinrik
Ingi Guðbjargarson, kokkur ís-
lenska kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu, sem kom til móts við liðið
eftir Frakkaleikinn í fyrradag og
mun dvelja með liðinu fram að
leiknum gegn Sviss.
Hann segir sitt hlutverk fyrst og
fremst vera það að fylgjast með því
að maturinn sem stelpunum er boð-
ið upp á sé í lagi.
„Ég er búinn að lesa yfir mat-
seðlana sem eru auðvitað í góðu
lagi enda opinberir matseðlar frá
Evrópska knattspyrnusambandinu.
Ég mun reyna að setja íslenskt
„twist“ á matinn en ég er aðallega
þarna til þess að passa að maturinn
sé bragðgóður.“
Lambakjöt og fiskur
Hann segir að boðið verði upp á
íslenskan mat meðan á dvöl hans
stendur. „Ég tók með mér nóg af
íslenskum mat til þess að bjóða
stelpunum upp á. Þetta er aðallega
gert til þess að koma með eitthvað
annað en er á boðstólnum á hót-
elinu. Þegar ég fer í svona ferðir
tek ég alltaf með mér íslenskt
lambakjöt og íslenskan fisk enda er
það eitthvað sem slær alltaf í
gegn.“
Spurður yfir hverju landsliðs-
menn Íslands kvarti helst segir
Hinrik að almennt finnist Íslend-
ingum erlendur fiskur ekki góður.
„Maturinn á hótelunum er yfirleitt
mjög fínn en helsti munurinn er á
fiski. Við erum vön atlantshafsfisk-
inum sem er talsvert öðruvísi en
heitsjávar-miðjarðarhafsfiskurinn.
Okkur finnst hann alls ekki eins
góður og þess vegna tek ég yfirleitt
með mér nóg af íslenskum fiski í
landsliðsferðir.“
Rökræður við tyrkneska
kokka
Hinrik segir að atvik sem karla-
landslið Íslands lenti í, í ferð liðsins
til Tyrklands, sé til marks um það
hversu mikilvægt það getur verið
að skoða matinn vel sem landsliðinu
er boðið upp á.
„Þegar landsliðið var í Tyrklandi
í síðustu undankeppni þurfti Einar
Björn, þáverandi kokkur landsliðs-
ins, að rökræða við tyrknesku
kokkana um að það væri ekki í lagi
að skera hráan kjúkling á sama
bretti og grænmeti. Ástæðan var
sú að þeir vildu meina að það væri
ekki salmonella í kjúklingnum í
Tyrklandi. Það er því mikilvægt að
passa svona hluti enda væri ekki
gott ef landsliðsmenn væru að fá í
magann fyrir leiki,“ segir Hinrik og
bætir við að eflaust hefði hann
dvalið lengur með landsliðinu ef
keppnin hefði verið haldin ann-
arsstaðar en í Hollandi.
„Ef Evrópumótið hjá stelpnum
hefði verið haldið í Tyrklandi eða
landi í Austur-Evrópu þar sem
matarmenningin er talsvert ólík því
sem við eigum að venjast hefði ég
örugglega verið lengur. Fyrst mót-
ið er haldið í Hollandi þá er ekki
ástæða til þess að hafa mig lengur
með liðinu enda maturinn á hót-
elinu eflaust mjög góður.“
Eldar íslenskan
mat fyrir landsliðið
Hinrik brýtur upp hversdagsleika stelpnanna okkar á
EM Tók með sér nægan íslenskan mat til Hollands
Morgunblaðið/Ófeigur Lýðsson
Kokkur Hinrik segir mikilvægt að fylgjast með því að maturinn sem lands-
liðinu er boðið upp á sé bragðgóður. Hann fór utan með íslenskan mat.
„Áhorfið á leikinn gegn Frökkum
var frábært og það mesta sem
mælst hefur á fótboltaleik
kvenna,“ segir
Valgeir Vil-
hjálmsson, mark-
aðsrannsókn-
arstjóri RÚV.
Hann segir að
áhorfið á leikinn
í fyrradag hafi
verið talsvert
meira en þegar
mest lét fyrir
fjórum árum á
Evrópumóti kvenna í Svíþjóð.
„Samkvæmt tölum frá Gallup
mældist 40% meðaláhorf á hverja
mínútu leiksins og uppsafnað
áhorf var 54% (þeir sem horfðu í
amk 5 mín samfleytt). Auk þess
sýna tölurnar að 93% þeirra sem
horfðu á sjónvarp í fyrradag fylgd-
ust með leiknum.Til samanburðar
fékk leikur Íslands og Þýskalands
mesta áhorfið á EM kvenna fyrir
fjórum árum. Þá mældist með-
aláhorfið 25% og uppsafnað áhorf
47%.“
Vaxandi áhugi á kvennabolta
Valgeir segir aukninguna ekki
einungis eiga sér stað í leikjum Ís-
lands heldur virðist áhugi á öðrum
leikjum keppninnar líka fara vax-
andi. „Upphafsleikurinn fyrir fjór-
um árum, leikur Ítalíu og Finn-
lands, fékk um 2% meðaláhorf og
6% uppsafnað áhorf,“ segir Val-
geir og bætir við að annað hafi
verið upp á teningnum í ár. „Áhorf
á opnunarleik Hollands og Noregs
mældist 9% og uppsafnað áhorf
var í kringum 19% sem verður að
teljast gott,“
aronthordur@mbl.is
Áhorfið það mesta
sem mælst hefur
93% sjónvarpsáhorfenda fylgdust með
Valgeir
Vilhjálmsson
EM KVENNA Í FÓTBOLTA 2017
Í HOLLANDI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
María Þórisdóttir gengur til mín lauflétt í
bragði, brosandi og heilsar á íslensku áður en
ég ræði við hana eftir æfingu með norska
landsliðinu í knattspyrnu á EM í Hollandi.
Norskir íþróttafréttamenn sögðu mér að
þetta fas hennar, og það hve stutt sé í brand-
arana, sé alfarið úr móðurættinni. Þeir
þekkja pabbann líka, handboltaþjálfarann
sigursæla Þóri Hergeirsson, sem þeir segja
jafnan alvarlegri í bragði.
María vakti athygli með frábærri frammi-
stöðu sinni gegn Hollandi í fyrsta leik Noregs
á EM, þrátt fyrir 1:0-tap. Þessi 24 ára gamli
leikmaður, sem landsliðsþjálfari Íslands
reyndi á sínum tíma að fá til að spila fyrir Ís-
land, var með tárin í augunum fyrir leikinn
því um tíma var ekkert útlit fyrir að hún yrði
með á EM, og hún var ekki viss um að geta
spilað fótbolta aftur:
„Ég spilaði á HM í Kanada árið 2015, mætti
svo heim til Noregs og meiddist strax í fyrsta
leik með félagsliði mínu. Ég var frá keppni í
næstum tvö ár og byrjaði ekki að spila fót-
bolta aftur fyrr en í janúar síðastliðnum. Það
er svolítið langur tími,“ segir María.
„Það var læknir sem sagði mér að það gæti
verið að ég myndi ekki spila fótbolta aftur. Ég
hitti þann lækni hins vegar á besta tíma. Hefði
ég beðið í einn mánuð í viðbót þá hefði ferill-
inn kannski bara verið búinn,“ segir María.
Fáum ekki svona í Noregi
María þekkir vel til íslenska landsliðsins og
var um tíma samherji Katrínar Ásbjörns-
dóttur hjá Klepp í Noregi, sem og Guðmundu
Brynju Óladóttur sem þó er ekki í landsliðs-
hópnum að þessu sinni.
„Ég fylgist vel með íslenska liðinu og þekki
nokkra leikmenn þar. Mér finnst mjög
skemmtilegt að Ísland sé að spila hérna núna
og það er frábært að sjá hvernig kvennafót-
boltinn á Íslandi er á leiðinni upp. Það var
Ragnar Eyjólfsson var landsliðsþjálfari
reyndi hann að fá Maríu til að spila fyrir Ís-
land og það kom vel til greina. María komst
hins vegar á endanum í norska liðið og lék
fyrsta landsleikinn einmitt gegn Íslandi, í Alg-
arve-bikarnum árið 2015.
„Það hafði komið fyrirspurn um hvort ég
vildi spila fyrir Ísland og ég get alveg sagt það
að það hefði verið mjög gaman að spila fyrir
Ísland. En ég er norsk. Svo kom þetta tæki-
færi í Algarve-bikarnum og þar með var það
ákveðið,“ segir María, og hún fann ekki neinn
þrýsting frá pabba sínum um að horfa frekar
til Íslands, eða til þess að velja handbolta fram
yfir fótbolta en María þótti afar efnileg hand-
boltakona:
„Hann er bara mjög ánægður með að ég sé í
landsliði. Hann veit líka að ég er alltaf ánægð
á Íslandi en hann gleðst bara fyrir mína hönd.
Hann hefur bara gaman af öllu með bolta og
ég gat alveg tekið þessa ákvörðun sjálf,“ segir
María hlæjandi.
Saknar bragðarefsins
Föðurfjölskylda hennar býr á Selfossi og
hún reynir að fara til Íslands að minnsta kosti
einu sinni á ári þar sem hún kann vel við sig:
„Ég sakna alltaf íssins frá Íslandi. Mér
finnst bragðarefur svo góður og pylsa með
öllu. Svo er það heiti potturinn og sundlaug-
arnar, og auðvitað fjölskyldan mín þar,“ segir
María létt og hún finnur góða strauma til sín
frá Íslandi: „Ég finn að það er aðeins fylgst
með mér og fjölskyldan fylgist alltaf vel með
mér, sem er mjög gaman.“
rosalegt að sjá þessa kveðjustund sem liðið
fékk á flugvellinum fyrir mótið,“ segir María
og augun ljóma.
„Það var mjög kúl, og ekki eitthvað sem við
fáum í Noregi. Ég vona að Ísland komist langt
á þessu móti og vonandi mætumst við á seinni
stigum þess,“ bætir hún við.
Hefði verið mjög gaman að spila fyrir Ísland
María er fædd og uppalin í Noregi, dóttir
Þóris og Kirsten Gaard. Þegar Sigurður
Frábært að sjá uppganginn á Íslandi
María Þórisdóttir leikur með norska landsliðinu á EM Finnur góða strauma berast til sín frá Ís-
landi Vakti athygli með frábærri frammistöðu gegn Hollandi Vonar að Íslandi komist langt
Morgunblaðið/Sindri
Íslendingur í norska liðinu María Þórisdóttir leikur fyrir Noreg á EM í knattspyrnu kvenna í
Hollandi. Um tíma var óvíst hvort María myndi geta leikið fótbolta aftur vegna meiðsla
VEISLUÞJÓNUSTA
MARENTZU
www.marentza.is - 553 8872 - info@marentza.is
Allar gerðir af veislum
sérsniðnar að þínum þörfum
• Fermingarveislur • Brúðkaup
• Erfidrykkjur • Veitingar fyrir fundi
• Móttökur • Útskriftir