Morgunblaðið - 20.07.2017, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
SVIÐSLJÓS
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það er eins og að vera kominn í sveit
að heimsækja gistiheimilið Hlið á
Álftanesi. Það er fjörulykt og hænur
vappa um á hlaðinu. Á bak við bursta-
bæinn er gamall bátur.
Jóhannes Viðar Bjarnason veit-
ingamaður ræður hér ríkjum. Hann
er stofnandi Fjörukrárinnar og hefur
rekið Hótel Víking þar við hlið í Vík-
ingastræti í Hafnarfirði.
Á Álftanesi er komið annað hótel
með sterkum einkennum. Þar má
upplifa gamla tímann á Íslandi með
sjóinn á aðra hönd og Bessastaðanes
á hina.
Jóhannes Viðar keypti húsnæðið
fyrir nokkrum árum. Fyrrverandi
eigandi hafði byggt þar burstabæ og
vestan við hann var veitingaskáli.
„Hér var ágætismaður sem hét
Bogi Jónsson. Hann var á sínum tíma
með rekstur. Burstabærinn hafði
staðið auður í þrjú ár og var í niður-
níðslu. Ég fékk vilyrði fyrir því hjá
bæjaryfirvöldum að hér mætti
kannski bæta við nokkrum húsum,“
segir Jóhannes Viðar, sem hóf end-
urbyggingu fyrir tveimur árum.
Býr í burstabænum
Bogi var með heimaveitingar á
staðnum. Jóhannes Viðar mælti með
þjónustunni og vísaði gestum Hótels
Víkings reglulega á Hlið. Nú býr Jó-
hannes Viðar í nýja burstabænum og
með honum heldur gistirekstur
áfram á þessum sérstaka stað.
„Það hefur gengið illa fyrir útlend-
inga að bera fram orðið Hlið svo ég
hef kallað þetta Fishermen village
and resort fyrir útlendinga til að gera
þetta auðveldara fyrir þá,“ segir Jó-
hannes Viðar til skýringar. „Ég hef
alltaf verið mjög hrifinn af þessum
stað,“ segir Jóhannes Viðar sem tek-
ur reglulega á móti 30 til 80 manna
hópum í veislur og mannfagnaði. Það
er eins og hann sé að bjóða fólki
heim. „Við erum með morgunmat
fyrir gesti okkar en tökum eingöngu
á móti hópum á kvöldin í mat eins og
staðan er í dag en skoðum að hafa
meira opið þegar staðurinn verður
fullbúinn,“ segir hann.
Áform um 70-80 rúm
Staðurinn hefur breyst mikið síðan
endurbyggingin hófst. Veitingaskáli
vestur af burstabænum hefur verið
endurbyggður og eru þar tvö ný her-
bergi fyrir hótelið. Hlaðið og bíla-
stæðin hafa verið endurgerð og er nú
betri aðstaða til að taka á móti stærri
hópum.
„Það er verið að bæta alla aðkomu
að Hliði og með haustinu stendur til
að hér verði allt malbikað og hellulagt
og bílastæði fyrir stóra sem smáa
bíla,“ segir Jóhannes Viðar.
Við hlið veitingaskálans er svo risin
ný hótelálma með 11 herbergjum.
Samtals eru því 13 herbergi á hót-
elinu. Ný álma með sex herbergjum
til viðbótar er í smíðum við innkeyrsl-
una. Þegar hún verður tekin í gagnið í
ágúst verða 19 herbergi á hótelinu. Á
næsta ári hyggst Jóhannes Viðar
bæta við þremur burstum á bónda-
bæinn og bæta þar við sex her-
bergjum. Fullbúið verður hótelið með
25 herbergjum og veitingaaðstöðu
fyrir 70 til 80 manns.
Jóhannes Viðar segir að fullbúið
verði hótelið ágætis rekstrareining.
Samtals verði 25 herbergi sem taki
frá þremur til fimm gesti og rúmin
því samtals 70-80. Þetta kemur til við-
bótar 60 herbergjum á Hótel Víking.
Herbergjum hefur fjölgað smám
saman og umfangið vaxið ár frá ári.
Þúsund ára nafn
Jóhannes Viðar segir örnefnið Hlið
hafa verið til nánast frá landnámi.
„Hér er ein af fáum vörum sem eft-
ir eru á Íslandi. Hlið dregur nafn sitt
af lóni sem myndaðist þegar sjómenn
notuðu hana sem bryggju. Hér er
rennan sem þeir notuðu,“ segir Jó-
hannes Viðar og bendir út í víkina.
„Þá var ekki hlaðinn garður eins og
núna. Hér er skeljasandur og gott
undirlag fyrir báta. Árið 1860 bjó hér
maður, Kristján Mathiesen, sem var
með níu langæringa og 100 manns í
búðum. Hlið var þá ein stærsta fisk-
verkun Suðurlands. Þetta er því
merkur staður. Hlið dregur nafn sitt
af innsiglingu í þessa vör. Hér þótti
gott hlið í vörina, enda gott sjólag,“
segir Jóhannes Viðar.
„Svo vill líka til að annar Mathiesen
var ábúandi í því húsi sem Fjörukráin
byrjaði í en það var kallað Fjaran og
byggt 1841 af Matthíasi Mathiesen
sem rak þar verslun með mynd-
arbrag.“
Ný álma að verða til
Sem fyrr segir er ný álma í smíð-
um. Byrjað var að gera sökkulinn í
vor. Svo kom álman í fjórum gámum
frá Eistlandi. Nú eru iðnaðaðarmenn
langt komnir með fráganginn. Kostn-
aður við hvert herbergi verður 8-10
milljónir. Frá herbergjunum er hægt
að ganga út á verönd og fylgjast með
hestum á beit. Á herbergjunum verða
að sjálfsögðu luktir í sjómannastíl.
Við annan enda álmunnar er árabátur
merktur Titanic.
Jóhannes Viðar segir þetta björg-
unarbát smíðaðan í sömu skosku
verksmiðjunni og bátarnir í skipið
fræga. Hér hafa allir hlutir sögu.
Hluti innréttinga, þar með talið
kojur, er sérsmíðaður. Í veitinga-
salnum er búið að safna saman mörg-
um gömlum munum héðan og þaðan.
Úr loftinu hangir grænlenskur kajak,
sem var í eigu Árna Johnsen, og við
enda salarins gnæfir uppstoppaður
ísbjörn yfir borðum.
Jóhannes Viðar segist aðspurður
ekki þurfa að auglýsa mikið gist-
inguna í Hliði. „Ég hef ágætis teng-
ingu út af Fjörukránni. Markaðs-
setningin fer í gegnum þann grunn
sem fyrir er og bókunarsíðurnar.
Þetta gerist mikið til af sjálfu sér.“
Spurður um verðlagninguna segir
Jóhannes Viðar að hún sé hófleg.
Hann býður svo blaðamanni og
Raxa ljósmyndara að skoða hótelher-
bergi sem er með útsýni út í víkina.
„Þetta voru töffarar, maður. Það
hefði verið flott fyrir Raxa að taka
mynd af þessum körlum þegar þeir
voru í skinnklæðum að draga upp
bátana og fara rennvotir út á sjó,“
segir Jóhannes Viðar, sposkur á svip.
Byggir sveitahótel í borginni
Jóhannes í Fjörukránni stendur fyrir mikilli uppbyggingu á Álftanesi Stækkar gistirýmið og
bætir við nýrri álmu Veitingaskálinn endurbyggður Stefnir á 25 herbergi með 70-80 rúm
Morgunblaðið/RAX
Veitingamaður Jóhannes Viðar Bjarnason, kenndur við Fjörukrána, býr nú á Hliði á Álftanesi.
Veitingar Jóhannes hefur látið stækka skálann.
Sjómennska Útisvæðið við veitingaskálann er með sjómannaívafi. Nýbygging Jóhannes Viðar við nýju hótelálmuna sem hann réðst í að byggja. Fullbúið verður hótelið með 25 herbergjum.
Ferðaþjónusta Hlið er úti við sjóinn á Álftanesi.